Tíminn - 04.02.1977, Blaðsíða 2
2
Föstudagur 4. febrúar 1977
erlendar f réttijr
• ísraelar
melta svar
Sýrlendinga
Reuter, Brussel — Haft var
eftir áreiöanlegum heimildum
i gær, aö NATO-ríki hefðu nú
þvi sem næst náð samkomu-
lagi um byggingu flota af
fijúgandi radarstöðvum, sem
gætu ,,séð” og fylgzt meö flug-
vélum á lágflugi, en talið er að
bygging fiotans muni kosta
um eöa yfir fimm billjónir
dollara.
Aætlað' er að tuttugu og sjö
flugvélar af geröinni Boeing
707 veröi búnar mjög stórum
radarskermum og með þvi
móti verði hægt að fyigjast
með flugumferö alla leið niður
að trjátoppum, allt að fimm
hundruð kflómetra inn yfir
landamæri kommúnistarfkja i
Austur-Evrópu.
Enn mun eftir aö semja um
það hvernig skipta skuli
kostnaðinum af viðhaldi flot-
ans á milli rfkja og munu
varnarmálaráðherrar rfkj-
anna halda fund uin það 21.
febrúar.
• Samkomulag
um byggingu
fljúgandi
radarflota
Reuter, Tel Aviv. — Yitzhak
Rabin, forsætisráöherra ísra-
els og aðrir helztu ráðherrar
landsins áttu I gær fund meö
helztu leiðtogum Israelska
hersins, þar sem rætt var svar
Sýrlendinga við kröfum
israelsmanna um aðsýrlenzk-
ir herir drægju sig til baka frá
Nabatiyeh-svæðunum I suður-
hluta Llbanon, aö því er út-
varpið í israel skýröi frá í gær.
israelsmenn krefjast þess
aö Sýrlendingarnir hverfi af
svæðum þessum, sem eru um
tfu kflómetra fyrir noröan
landamæri israels og Lfban-
on, á þeim forsendum aö nær-
vera hersveitanna skapihættu
fyrir landamærahéruð sin.
Útvarpið sagði, að hugsan-
leg málamiðlun, sem Banda-
rfkjamenn hafa stungiö upp á,
hafi I gær verið rædd á fundi,
þar sem Shimon Peres,
varnarmálaráðherra, Yigal
Allon, utanrikisráðherra,
Morechai Gur, yfirmaöur her-
ráðs israels, og Shiomo Gazit
yfirmaöur leyniþjónustu fsra-
elska hersins, komu saman
mcð Rabin forsætisráöherra.
Ekki er vitaö hvað fólst I
svari Sýrlendinganna, sem
taliö er að bandariskir dipló-
matar hafi boriö til israels-
manna. Engin yfirlýsing var
gefin út eftir fundinn, og
embættismenn hafa ckki vilj-
að tjá sig um máliö, aö þvf er
útvarpiö segir.
Hins vegar skýrir útvarpið
frá þvf, aöengin ákvörðun hafi
verið tekin um það að hvika i
einu eða öðru frá fyrri stefnu
israelsmanna. tsraelsmenn
hafa lýst þeirri von sinni, aö
deilurnar um sýrlenzku her-
sveitirnar leysist eftir dipló-
matiskum leiðum.
Útvarpiö skýrði einnig frá
þvf, aö komið hefði fram á
fundi þessum, aö engar breyt-
ingar hefðu oröiö á styrk eöa
stöðu sýrlenzku hersveitanna
umhverfis Nabatiyeh.
Haft er eftir heimildum inn-
an israelska hersins, að talið
sé að þarna sé um að ræða
styrkt fótgönguliðsherfylki,
búiö brynvörðum liösflutninga
bifreiðumj. i>
Kristnir Lfbanonmenn, sem
komu til israel á miðvikudag,
hafa skýrt fréttamönnum frá
þvf, að þessar sýrlenzku her-
sveitir væru tvær vfkinga-
sveitir og tvær sveitir skrið-
drekaliös.
Fiskur á Bandaríkjamarkað
Neyzlan vex
en fram-
leiðslan minnkar
gébé Reykjavik. — ,,Fiskmarkaðurinn hér i Bandarikjunum er sérstakur
að þvi leyti nú, að litið framboð er af þorsk- og ýsublokkum, en neyzla og
eftirspurn hefur haldið áfram að vaxa allt sl. ár, en framleiðslan er mjög
ilitil á þessum árstima,” sagði Guðjón B. ólafsson, framkvæmdastjóri Ice-
landic Products, fyrirtækis Sambands isl. samvinnufélaga i Harrisburg i
Bandarikjunum. Guðjón sagði samkeppni vera mikla milli bandariskra
fiskverksmiðja um það litla hráefni sem til væri, og það væri ástæðan fyrir
hækkuninni, sem varð i vikunni, en verðið hefur sjaldan eða aldrei verið
betra.
*».í --
Verksmiöjur Icelandic Products f Harrisburg, Penn.
Stuðningur stjórnarinnar við iandsliðið
í handbolta:
Leikmenn, sem eru
opinberir starfsmenn,
fái leyfi á launum,
frekari stuðningur
í athugun
HV-Reykjavik — Það var rætt á
rikisstjórnarfundi I morgun
hvort og þá hvernig rikisstjórn-
in gæti stutt landsliðiö i hand-
knattleik. Það var samþykkt að
greiöa fyrir leyfi á launum til
handa þeim opinberu starfs-
mönnum.sem nú undirbúa þátt-
töku I heimsmeistarakeppninni
1 handknattleik, og auk þess var
menntamálaráðherra og fjár-
málaráðherra falið að athuga
nánar beiðni stjórnar Iþrótta-
sambands tslands um aukinn
stuöning vegna sérstakra og
umfangsmikiila verkefna á ár-
inu, sagði Vilhjálmur
Hjálmarsson, menntamálaráð-
herra I viðtali við Tfmann I gær.
— Það var Gunnar Thorodd-
sen, sem fyrst hreyfði máli
þessu viö mig, sagöi mennta-
málaráðherra ennfremur, en
eftir það hefur þetta borizt úr
svo til öllum áttum. Eftir sigur-
inn á Tékkum í Laugardalshöll-
inni fóru menn að eygja von fyr-
ir landsliðið okkar I keppninni,
og síðan hefur hver maðurinn af
öðrum orðað þessa hugmynd
um stuðning við það.
Við getum greitt fyrir þvl, aö
þeir landsliösmenn, sem eru
opinberir starfsmenn, fái leyfi á
launum til þátttöku I keppninni,
en aftur á móti getum við ekki,
sem eðlilegt er, skipaö fyrir um
frí handa öðrum. Stuðningur við
þá yrði þá að falla undir síðari
liðinn, það er hugsanlegan auk-
inn stuöning við heildarsamtök-
in, ISí, sem við fjármálaráð-
herra eigum aö kanna nánar. —
KARFAMIÐUNUM
ÚT AF BREIÐA-
FIRÐI LOKAÐ
46—66,5% afla togaranna
reyndist undirmálskarfi
gébé Reykjavik — t gærdag sendi
Hafrannsóknastofnun Sjávarút-
vegsráðuneytinu tillögu þess efn-
is, að samkvæmt athugunum er
lagt til að svæðinu um Hrygginn
út af Breiðafirði verði lokað um
óákveöinn tlma. Að sögn Þórðar
Asgeirssonar skrifstofustjóra I
sjávarútvegsráöuneytinu, hefur
tillagan vcriö tekin til greina og
ákveðið að verða við lokun þess-
ari. Nánar verður tilkynnt um
stærð svæöisins I dag.
Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræöingur er leiöangursstjóri um
borð I rannsóknaskipinu Bjarna
Sæmundssyni, og hefur verið við
athuganir á fyrrnefndu svæði út
af Breiðafirði. í samtali við Tlm-
ann I gær, kvaðst Hjálmar hafa
lokaö svæöinu á grundvelli upp-
lýsinga eftirlitsmannsins um borö
I togara, sem var þar á veiðum.
Svæðinu var lokað á þriðjudag-
inn.
Jakob Magnússon hjá Hafrann-
sóknastofnun sagöi I gær, að sam-
kvæmt upplýsingum frá eftirlits-
mönnum um borö I nokkrum
togurum, hefði aflinn verið
rannsakaður og þá komiö I ljós,
að 46-66,5% afla togaranna hafi
veriö undirmálskarfi eftir lengd,
en karfi undir 33 sm á lengd, er
talinn undirmálsfiskur. Sagði
Jakob, aö stofnunin heföi lagt það
fram viö sjávarútvegsráðuneytið
að svæöinu yrði lokað um óákveð-
inn tlma, en slðan yrði fylgzt með
þvl eftir þvl gem ástæður leyfðu.
Verða veiöar á svæðinu bannaö-
ar, I flot- og botnvörpu.
Umrætt svæði um Hrygginn út
af Breiðafiröi, nokkuð djúpt und-
an Snæfellsnesi, eða um 70 sjó-
mllur, er skv. lögum, venjulega
lokað frá 1. maf til 31. desember.
og þvl aðeins opið fjóra mánuöi á
ári. Hins vegar þegar svo mikiö
veiðist af smákarfa sem raun ber
vitni reynist nauðsynlegt aö loka
því, eins og nú hefur veriö gert.
„Kuldarnir hér I desember og
janúar hafa leitt af sér að um
mun minni viöskipti er að ræða
við veitingahúsakeðjurnar, sem
eru langstærstu kaupendurnir og
hefur þvl neyzlan á þessum tlma
dregizt saman, þannig að þetta
er ekki mjög fjörugur eða sterk-
ur markaður sem leiddi af sér
hækkunina. Þá hafa margir
áhyggjur af þvi, að á sama tlma
sem fiskurinn hækkar, þá lækkar
kjötveröið og ég þori þvi engu að
spá um hvernig markaðurinn
verður hér I febrúar/ marz, og
reyndar getur enginn sagt um
það,” sagði Guðjón.
„Það er ekkert vafamál, að
Framhald á bls. 19.
Guðjón B. ólafsson, fram
kvæmdastjóri Icelandic Products.
Timamynd: Róbert.
Vetraráætlun Fl hefur
gengið betur í ár en verið
hefur um áratuga skeið
HV-ReykjavIk — Það má segja, að miðað við allt annað, þá hefur
innanlandsflugið gengið mjög vel Ivetur. Þaðhafa komið timabii, eink-
um norðanlands og á Vestfjörðum, þegar einstakir staðir hafa lokazt I
einn eða tvo daga, en við verðum að muna að það er vetur og almennt
hefur flugið gengið vel, jafnvel betur en oft áður. Þegar allt kemur til
alls hefur vetraráætlunin eiginlega gengið allt aðþvljafn vel og sumar-
áætlun væri og það höfum við ekki upplifað I áratugi, sagði Sverrir
Jónsson, stöðvarstjóri Flugfélags Islands, I viðtali viö Timann I gær.
— Hvað varðar flutninga, bæöi á farþegum og vörum, sagði Sverrir
ennfremur, þá hefur það ekki dregizt neitt saman að marki, og jafnvel
verið meira en sum undanfarin ár. Þar er ekki yfir neinu aö kvarta.
Jóiaáætlunin gekk alveg prýðilega hjá okkur og svo hefur verið um allt
annað.