Tíminn - 04.02.1977, Blaðsíða 11

Tíminn - 04.02.1977, Blaðsíða 11
Föstudagur 4. febrúar 1977 11 Rabbað við fólk í Borgarnesi Vekja AAyndir og texti: AAagnús Ólafsson Kristin Halldórsdóttir einhver sérstök ástæöa til þess? — Ég álit, aö konur eigi að fá að ráða, hvort þær vilja vera heima og hugsa um börn og heimili á meðan börnin eru ung. Þá þurfa börnin á mestri umhyggju að halda. Að vlsu mætti segja, að faðirinn gæti alveg eins verið heima og hugs- að um börnin, en vegna þess að þarf fólk til umhugsunar um jafnrétti — segir Kristín Halldórsdóttir, formaður jafnréttisnefndar í Borgarnesi Það erslæmthvað konur, sem fara út að vinna, eiga erfitt með að fá annars konar störf, en þær stunda alla daga inni á sinum heimilum, sagði Kristln Halldórsdóttir nýkjörinn ritari Verkalýðsfélags Borgarness I viðtali við Tlmann. Konur fara m.a. út að vinna til þess að kynnast einhverju öðru en þær eru með milli handanna alla daga, og þeimer nauðsynlegt að komast I fjölmenni. Þess vegna er lika slæmt hve margir vinnu- staðir eru sérhæfðir og á þeim vinnur einungis fólk af öðru kyninu. — Hvernig er dagvistunar- málum barna háttað I Borgar- nesi? — Dagheimili er rekið I bráðabirgðahúsnæði, en nú er leikskóli ibyggingu. Þegar hann kemsti gagnið, leysir hann mik- inn vanda. A sumrin er gæzlu- völlur starfræktur, en aðeins á einum stað i þorpinu og þyrftu að koma fleiri, a.m.k. fyrir smábörnin. — En hvernig er félagsað- staða fyrir unglingana? — Það er nokkurt félagslif fyrir þá i skólanum, sérstaklega I eldri bekkjunum. En þar fyrir utan vantar unglingana til- finnanlega aðstöðu til þess að geta komið saman. Þá tel ég nauðsynlegt að hingað verði ráðinn æskulýös- fulltrúi, sem sinni unglingunum og skipuleggi tómstundastarfiö með þeim. — Hvernig er að biía i Borg- arnesi? — Mér fellur mjög vel að búa hér, og þessi staður er mátulega stór fyrir mig. En ef byggð hér eykst verulega, koma fram viss vandamál. Þá verður erfiðara aö tengja byggöahlutana saman og með stærri byggð tapast einnig ýmislegt af þeim heimilisbrag, sem nú rikir hér. T.d. sjá gamlir Borgnesingar eftir ýmsu, sem glataðist viö það að þorpið náði þeirri stærö sem það nú hefur. — Nd vinnur þú ekki dti. Er konur fá ekki nema lægst laun- uðu störfin, er móðirin yfirleitt nauðbeygð til aö vera heima, en maðurinn verður að vinna fyrir heimilinu. A þessu þarf aö verða breyting. — Nd ert þú formaður jafn- réttisnefndar i Borgarnesi. Hvað er aö frétta af störfum þeirrar nefndar? — Jafnréttisnefndin er nú nýskipuð og þvi litlar fréttir enn af henni að hafa, en okkur lang- ar til að kynna fólki jafnréttis- mál og vekja það til umhugsun- ar um þau. Með þvi viljum við stuðla að auknu jafnrétti bæði á heimilum og utan þeirra. En til þess aö einhver árangur náist verða konur að vilja vinna að jafnréttismálunum sjálfar, þvi án samstöðu kvenna næst litill árangur. Margar konur vilja hafa allt i gamla farinu, en þaö getur ekki gengið. Þvi erum við aö reyna að ýta viö hlutun- um og fá fólk til að hugsa um þessi mál. MÓ Magnús Jósefsson T rúnaðarmaðurinn fylgist með, að reglur séu haldnar og réttur ekki brotinn á verkafólkinu Magnús Jósefsson verka- mann hittum við þar sem hann var aö hlaða fóðurbæti á vöru- flutningabil f vöruhdsi Kaupfé- lags Borgfirðinga. Hann er trúnaðarmaður verkalýðsfé- lagsins I deild 6, en það er sd deild kaupféiagsins, sem að- setur hefuri Brákarey. Að stað- aldri vinna þar milli 30 og 40 manns, en i sláturtiðinni er þar miklu meira starfslið. — i hverju eru störf trún- aðarmanns fólgin? — Fyrst og fremst á trún- aðarmaður að fylgjast með þvi, að reglur séu haldnar og réttur ekki brotinn á verkafólkinu.' Einnig á trúnaöarmaðurinn að koma kvörtunum fólksins á framfæri og vinna aö þvi að úr málum þess sé leyst. — Er erfitt að sinna þessu? — Þetta gengur mjög vel hér, enda höfum við mjög góðan verkstjóra og vinnuveitendur. Enég fersamtsem áður á skrif- stofu verkalýösfélagsins á hverjum fimmtudegi til þess að láta vita hvernig gengur, svo að þeir fylgist alltaf með. — Hvernig eru kjör verka- fólks i dag? — Þaðeróskiljanlegt hvernig hægt er að lifa af launum verka- fólks, og það er mikill munur á kaupmættinum nú og 1973. Ef reynt er aö bæta sér upp lágar tekjur með næturvinnu, fer helminguraf þvi kaupi I skatta, og stundum gerir maöur ekki annað en vinna fyrir þeim. Fyrst ég nefndi skattana, er eitt sem þar veröur nauðsyn- lega að breyta. Það verður að fara að taka upp staðgreiðslu- kerfi skatta. Það er ófært aö taka skatta af launum þessa árs vegna teknanna i fyrra. Ef tekj- umar eru miklar eitt ár, veröur að halda áfram að afla mikilla tekna aðeins til þess aö geta greitt skattana. MÓ 1883. Sýningarmunir voru alls 500 og 31 aöili hlaut verðlaun fyrir framlag sitt. Aðsókn að sýningunni verður aö teljast góð, alls skoðuöu hana um 1400 manns. önnur sýning félagsins 1911 var i tilefni af aldarafmæli Jóns Sigurössonar. Sýningin var haldin I Miðbæjarskólanum. A tólfta hundrað munir voru á sýningunni, sá dýrasti metinn á 6.000,00 krónur auk þess voru á sýningunni munir frá Barna- skóla Reykjavikur, Landakots- skólanum, Kvennaskólanum og Barnaskóla Akureyrar, sem fylltu samtals 5 stofur. Allir munirnir á sýningunni voru vá- tryggðir fyrir 65 þúsund krónur. Við opnun sýningarinnar sagði formaður sýningarnefndar- innar Jón Haldórsson, tré- smiöur: „Þetta litla safn eru fyrstu stafirnar, sem skráðir verða i geröasafni Islensks iðnaðar á 20. öldinni: sú yfirskrift snertir alla þá, sem þetta land byggja og vel er hverjum þeim, sem er á verði, að gæta skyldu sinnar, hvort sem þú eða ég höfum tekið okkur I hendur til stuðnings hamar, hefil eða sög, upp brekkuna á sjónarhæðina, þar sem þá sól er aö lita, sem aldrei gengur til viðar”. Þá stóð félagið fyrir iðn- sýningu 1924 og 1932. Mjög fróðlegt yfirlit er um siðustu sýninguna aö finna i 6. árgangi Timarits iönaðarmanna eftir Guöbjörn Guðmundsson, prentara. Skömmu fyrir 1000 ára afmæli Islandsbyggöar kom Siguröur Guðmundsson fram með þá hugmynd i Kvöld- félaginu aö reisa standmynd af fyrsta Landnámsmanninum Ingólfi Arnarsyni. Ekki komst þessi hugmynd i framkvæmd þá. Svo er þaö i sambandi viö heimsókn íslenzkra þingmanna til Danmerkur 1906 aö sú hug- mynd kemur fram, ásamt öðrum, að þjóöþingið danska gæfi Islendingum standmynd af Ingólfi Arnarsyni eftir Einar Jónsson, én Einar hafði þá gert frumdrög að slikri mynd. Viö þessa hugmynd var þó hætt. A félagsfundi áriö 1906 var sam- þykkt aö félagiö léti gera stand- mynd þessa og kosin nefnd, sem gekk undir nafninu „Ingólfs- nefnd”. Daginn sem siminn var opnaöur, 29. september 1906, sendi nefndin Einari Jónssyni svohljóðandi skeyti: „Iðnaðarmannafélagið gengst fyrir kaupum á Ingólfi, starfaðu öruggur”. Þaö var félaginu mjög erfiöur ba'ggi aö afla f jár til þessa verks og löng saga, sem ekki veröur rakin hér, en það haföist samt og 24. febrúar 1924 var stand- myndin afhjúpuö aö viðstöddu fjölmenni. A árinu 1942 er farið að ræða um þaö aö nauðsynlegt sé að koma upp sameiginlegri byggingu fyrir iðnaðarmenn. I framhaldi af þessum umræöum er siðan stofnað Húsfélag iðnaðarmanna á sumardaginn fyrsta 25. april 1046 af eftir- töldum félögum: Trésmiða- félagi Reykjavikur, Sveinasam- bandi byggingamanna, Lands- sambandi iðnaðarmanna, Múrarameistarafélagi Reykja- vikur, tlrsmiöaféiagi Islands og Félagi pipulagningameistara ásamt Iðnaöarmannafélaginu. Strax og húsfélagið haföi verið stofnað falaöist þaö eftir lóö Iðnaðarmannafélagsins við Ingólfsstræti undir væntanlegt hús, en þá lóð haföi félagið fest kaup á árið 1929 og var upphaf- lega ætlunin að byggja á henni skólahús, en eins og kunnugt er var hætt við þaö vegna þess að lóðin þótti of litil, heldur var hinn nýi skóli byggður á Skóla- vörðuhæö. Lóöinni við Ingólfs- stræti var síðan afsalaö til Hús- félagsins, gegn þvi að byggt yrði á henni innan 5 ára. Ýmsar ytri ástæður ollu þvi að ekki var hægt að hefjast handa með byggingu þesshúss s.s. skipulag og fjárfestingarhömlur. En á árinu 1968 fæst svo samþykkt að byggja þar hús. Þaö er nú risið af grunni og búiö að taka það aö mestu leiti til notkunar. A byggingartimanum hafa nokkur fleiri félög bæst i hópinn og núverandi eigendur aö þessu húsi eru auk Iðnaöarmanna- félagsins, Landssamband iönaðarmanna, Trésmiðafélag Reykjavíkur, Meistarafélag húsasmiöa, Húsgagnameistara- félag Reykjavikur, Sveinafélag pipulagningamanna, Félag plpulagningaeistara, Málara- félag Reykjavlkur, úrsmiða- félag íslands, Félag Islenzkra iönrekenda, Málarameistara- félag Reykjavíkur, Sam- band byggingamanna, Sveina- félag húsgagnasmiða, Sveina- félag húsgagnabólstrara, Hár- greiöslumeistarafélag ts- lands. A sl. 10 árum hefur félagsstarfsemin einkum beinzt að þessu verkefni. Þá er ennfremur I eigu félagsins „Styrktarsjóöur ísleifs Jakobs- sonar”. Úr þeim sjóði er úthlutað árlega styrkjum til iðnaðarmanna, sem vilja full- nema sig I iön sinni erlendis. A sl. ári var úthlutað úr sjóðnum kr. 216.000,00 til 6 iðnaöar- manna. A 100 ára afmæli félags- ins var borgarstjóraembættinu I Reykjavik færð borgarstjóra- keðja úr silfri. Viö Iönskólann er verðlaunasjóður, sem félagið stofnaöi á 90 ára afmæli sinu. Verölaun hafa verið veitt úr honum tvö sl. ár. 1 tilefni af sjötiu og fimm ára afmæli félagsins var gefin út iðnsaga tslands I tveimur bindum. Um ritstjórn þess verks sá Guömundur Finnbogason, landsbókavörður. Stærsta kaflann I það ritverk skrifaðu Guömundur Hannesson, pró- fessor, um „Húsagerö á Islandi”. Þá lét félagið Gisla Jónsson, menntaskólakennara, skrá sögu félagsins á 100 ára afmæli þess. A þessum 110 árum, sem liðin eru frá stofnun félagsins, hafa 20 gengt formennsku i þvi. Guömundur H. Guömundsson, húsgagnasmföameistarari, gengdiformennsku allra manna lengst eöa I 21 ár. Núverandi stjórn félagsins skipa: Gissur Simonarson, húsasmiöa- meistari, formaöur, Halldór Magnússon, málarmeistari, varaformaöur, Siguroddur Magnússon, rafverktaki, ritari, Sigriður Bjarnadóttir, hár- greiöslumeistari, gjaldkeri, Benóný Kristjánsson, pípu- lagningameistari, vararitari. Aðalsteinn Tryggvason, raf- verktaki og ólafur Jónsson, málarameistari, eru i vara- stjórn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.