Tíminn - 04.02.1977, Síða 6

Tíminn - 04.02.1977, Síða 6
6 Föstudagur 4. febrúar 1977 OGarðyrkjuskóli þær sem fá 18 w/ ferm., en mun- urinn er of litill miöaö viö ljós- magn og gæti það stafaö af þvi að plönturnar eru ræktaðar viö sama hitastig, en búast má viö, að þærplöntur sem fá 27 w/ferm. gætu nýtt ljósið betur viö hærra hitastig og myndu þá skila meiri afköstum, einnig ef koltvisýrings- magn loftsins yrði aukið. Að sögn Grétars, hafa þær plöntur sem fá 18 w/ferm. nú náð svipaðri framleiðni stuðli (græðl- ingar á móðurplöntu á fram- leiðsluviku) og gert er ráö fyrir i lokaskýrslu um ylræktarver, en græölingarnir eru heldur léttari en þeirra, sem fá 27 w/ferm. sem bendir til minni gæða. Hvað hag- kvæmni varöar þarf 1-6 fleiri lömpum til aö fá 27 w/ferm. en 18 w/ferm., sem myndi leiða til talsverðar hækkunar á stofn- kostnaði, og spurning er hvort fengjust þá fleiri og betri græðl- ingar sem myndi borga þann mun. „A það verður að leggja á- herzlu að hér er um frumathugun að ræða og endanlegar niður- stöðutölur geta vart legið fyrir, fyrr en að 2-3 árum liðnum,” sagði Grétar Unnsteinsson, skólastjóri að lokum. Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðar, jeppabifreiðar og sendiferðabifreið, er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 8. febrúar kl. 12-3. Tilboðin verða opnuð i skrifstnfu vorri kl. 5. Sala varnarliðseigna Rafvirkjar Rafveita Hafnarfjarðar óskar að ráða raf- iðnaðarmann til starfa, nú þegar. Laun eru samkvæmt launaflokki b-13. Umsóknarfrestur er til 11. fébrúar. Umsóknum skal skilað á sérstökpm umsóknareyðublöðum til rafveitustjora, sem veitir nánari upplýsingar um starfið. Rafveita Hafnarfjarðar. Oskilahestar í Þingvallahreppi Leirljós hestur. Mark tveir bitar aftan vinstra. Jarpur hestur. Mark heilrifa hægra, biti eða lögg aftan vinstra. Dökk steingrár hestur, ungur, ómarkaður. Hreppstjóri. Vinnuskólar óskast Færanlegir vinnuskálar óskast nú þegar til kaups. Heppileg stærð ca. 200 fermetrar. Mættu vera i smærri einingum. Hörður s.f. Simar (92) 7615 og 7570. Utanrikisráðuneytið Utanrikisráðuneytið óskar að ráða strax ritara til starfa i utanrikisþjónustunni. Umsækjendur verða að hafa góöa kunnáttu og þjálfun i ensku og a.m.k. einu ööru tungumáli. Fullkomin vélritun- arkunnátta áskilin. Eftir þjálfun i utanrikisráðuneytinu má gera ráö fyrir, aö 'ritarinn verði sendur til starfa i sendiráöum Islands er- lendis, þegar störf losna þar. Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf verða að hafa borist utanrikisráðu- neytinu Hverfisgötu 115, Reykjavik, fyrir 10. febrúar 1977. y mL "'wBm S9m 1m 89 Trésmföafélag Reykjavikur og Meistarafélag húsasmiða stóð fyrir endurmenntunarnámskeiði tré- smiða dagana 10.-29. jan. sl. I Iönskólanum i Reykjavík og unnu menn frá þvi kl. 5 á daginn til kl. 9 á kvöldin sex daga vikunnar. Nemendur voru alls tólf og komust færri að en vildu. A myndinni sjáum viö nemendur þessa nýafstaöna námskeiðs ásamt kennurum sinum. Athugasemd við athugasemd Hr. ritstjóri 1 blaði yðar 27. janúar birtist athugasemd Rikisendurskoöun- ar við grein eftir mig I Dagblaö- inu frá 24. janúar, sem nefndist „Ekkert eftirlit með innflutn- ingi og sölu tóbaks”. Athuga- semdin mun hafa verið birt að ósk Jóns Kjartanssonar, en ekki Rikisgndurskoðunar. Ég hef orðiö þess óþægilega var, aö athugasemd Rikisendurskoðun- ar hefur verið skilin sem endan- legt og fullnægjandi svar við athugunum minum á sölu og innflutningi á tóbaki á árunum 1964 til 1975. Af þeim sökum vil ég, að eftirfarandi komi fram: 1. Athugasemd Rikisendur- skoðunar er ekki svar viö grein minni i heild, heldur aðeins einu atriði, og var send Dagblaöinu til þess að koma i veg fyrir, að lesendur greinarinnar héldu, að embætti rikisendurskoöanda sinnti ekki störfum sinum sem skyldi. Halldór V. Sigurðsson, rikisendurskoðandi hefur stað- fest i samtali við mig, að hann hafi viljaö taka af öll tvimæli i þessu efni. Athugasemd Rikisendurskoð- unarer yfirlýsing þess efnis, að birgðabókhald Afengis- og tóbaksverzlunar sé i lagi. 1 grein minni tala ég hvergi um birgðabókhald og efast raunar ekki um, að þaö sé i stakasta lagi. Oðru var athugasemd Rikisendurskoðunar ekki ætlað að svara. 2. Efni greinar minnar var þetta: Söluskýrslum ATVR og innflutningsskýrslum Hagstofu Islands ber ekki saman. Um þetta misræmi skrifaöi ég og spurði hvernig á þvi kynni að standa. Ég talaði um eftirlits- leysi i þessum púnkti og velti fyrir mér hvaða afleiðingar slikt gæti haft. Ég sagði jafn- framt, að svar við þessu væri ekki að finna hjá neinni stofnun rikisins. Það er óþarfi að telja fleira til, en ég vil að það komi fram, að Halldór V. Sigurðsson, rikis- endurskoðandi hefur staðfest athuganir minar i samtali, sem við áttum á föstudag. Hann sagði: „Það er rétt. Söluskýrsl- um og innflutningsskýrslum ber ekki saman”. Hann staðfesti, að þessar skýrslur væri ekki hægt að bera saman, vegna þess, að ólikar einingar væru notaðar, annars vegar kiló, hins vegar stykki. Rikisendurskoðandi hef- ur m.ö.o. staðfest, að ég hafi farið með rétt mál og hann tók undir meö mér, að þetta mis- ræmi væri ekki hægt að skýra. Þessi orð hans ber ekki að skilja sem svo, að hann sé að gefa i skyn, að skitugt mél sé I pokan- um. Sjálfur lagði ég endurtekið áherzlu á, aö svo þyrfti alls ekki að vera. 3. Auk þess, sem Jón Kjartans- son, forstjóri dreifði athuga- semd Rikisendurskoðunar til dagblaða, þar sem ekki hafði verið fjallað um grein mina, og lesendur þvi ekki i aöstööu til að meta gildi athugasemdarinnar, tókst sama manni með þjösna- skap að fá sömu athugasemd lesna á undan lestri á úrdrætti forystugreina dagblaöanna i Ut- varp að morgni 28. janúar. Ég álit, að með þessu hafi Jón Kjartansson reynt að gera mig tortryggilegan fyrir alþjóð. Hann þvingar útvarpsstjóra til þess að láta lesa athugasemd Rikisendurskoðunar i útvarp við blaðagrein, sem þó aðeins litill hluti útvarpshlustenda hef- ur lesið. En það sem verra er: Hann fær útvarpsstjóra til að láta lesa þessa athugasemd við grein eftir migsem athugasemd við forystugrein, sem ég skrif- aði ekki.Ég óskaði eftir þvi viö útvarpsstjóra, að ég fengi aö sitja við sama borð og Jón Kjartansson, en var neitað. Með þessu hef ég verið misrétti beittur,seméggetekki sætt mig við. 4. Það sem er ef til vill eftir- tektarverðast i þessu öllu er, aö Jón Kjartansson, forstjóri ATVR, sem óneitanlega er sá sem gagnrýnin hefur beinzt að, hefur sjálfur ekki svarað fyrir sig enn. Hann hefur jafnvel ver- ið svo ósvifinn, að láta lesa athugasemd Rikisendurskoöun- ar i útvarp án þess að biðja höf- unda hennar um leyfi. Athuga- semdin komst i útvarp að ríkis- endurskoðanda fornspurðum. Raunar var hún skrifuð og æUuð til birtingar aðeins i Dagblað- inu. Þótt grein min sé undirrót á- greinings, þá tel ég að vegna alls þess, sem siöan hefur gerzt, að upp sé komið annað mál i framhaldi af þvi, sem er ekki siður athyglisvert. Það er spurningin um hvernig öflugar rikisstofnanir og embættismenn geta niðzt á gagnrýnendum sin- um vegna aðstöðu sinnar og valda i kerfinu. Það er annað mál, sem vert væri aö f jalla um siöar. Með þökk fyrir birtinguna, Halldór Halidórsson Skjólfandadjúp: Engin loðna fannst fyrir 0 Réttindi máliö höfðu að gera, hafi án efa talið að þeir myndu bregð- ast skyldu sinni, ef hann ekki væri settur i varðhald. Aö öðru leyti gleðst ég að- eins yfir þvi, að Sakadómur skuli nú hafa gefiö út endan- lega yfirlýsingu um það, að skjólstæðingur minn og hinir þrir, sem einnig voru úrskurö- aðir i gæzluvarðhald aö ó- sekju, séu alsaklausir og hafi hvergi nálægt máli þessu komiö. Að sjálfsögðu ber rlkinu að greiöa mönnunum skaðabætur vegna þessa, þótt þaö verði ef til vill aldrei metiö til fjár að fullu, en mér finnst þó i dag aö þeir eigi ekki að þurfa aö gera kröfur um slikt, heldur eigi dómsmálaráöuneyti og fjár- málaráöuneyti að sjá sóma sinn i þvi aö bjóða þeim bætur af fyrra bragði, sagði Ingvar Björnsson, að lokum. norðan gébé Reykjavlk—Eins og skýrt var frá i Timanum i gær, varð vart loðnu djúpt út af Skjálf- andadýpi. Aö sögn Jakobs Jakobssonar fiskifræöings, sem er leiöangursstjóri um borö i Ama Friörikssyni, fannst engin loðna þar, þrátt fyrir nákvæma leit i fyrrinótt. Arni Friðriksson var i gærdag um 35 sjómilur austur af Kolbeinsey og sagöi Jakob, ab ætlunin væri að leita loðnu og kanna djúpslóðiraustur um, djúpt út af Melrakkasléttu og Langanesi, þar sem ekki væri óliklegt aö einhverjar loðnugöngur heföu oröiö eftir. o Landakot þær þá Islenzka rikinu spital- ann til kaups. Kaupsamningur var undirritaður 26. nóv. 1976 og tók gildi um seinustu ára- mót. Samkvæmt þessum kaup- samningi verður Landakots- spitali ekki einn af rikisspitul- unum heldur sérstök sjálfs- eignarstofnun i sama rekstr- arformi og hann er nú i. Yfirstjórn sjálfseignar- stofnunarinnar er skipuð 7 mönnum og er óttarr Möller, formaöur hennar. Fulltrúaráö stofnunar Landakotsspitala er skipaö 21 manni, og mun þaö koma saman eigi sjaldnar en 3var á ári. Allar breytingar á rekstri spitalans veröa aö hijóta fylgi 2/3 fulltrúaráös. Eins og fram hefur komið áður veröur hluti sölufjárins greiddurlerlendum gjaldeyri, enda verður ekki fram hjá þvi gengiö, aö systurnar tilheyra alþjóöareglu og munu þær veita fjármagninu til starfs systra sinna viða um heim. Vélbundið hey til sölu Nánari upplýsingar gefnar i sima um Villingaholt af seljanda Gesti M. Kristj- ánssyni, Forsæti II.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.