Frjáls þjóð - 19.06.1964, Qupperneq 7
Forsætisrdðherra ....
Frh. af bls. 1.
um almennings, fyrst Jón Helga
son gæti enn talað íslenzku, haf-
andi verið í Danmörku meira en
hálfa ævina.
Nú fá þeir Gunnar Gunnars-
son og Halldór Kiljan Laxness
að heyra sama sönginn, svo að
einhverjir séu nefndir af sextíu-
menningunum, þeim sem dval-
izt hafa erlendis.
Lágkúruleg áróðurs
„aðferð
Prófessor Jóhann Hannesson
skrifaði fyrir nokkru í Lesbók
Mbl. hugleiðingu um það, er
smjaðri er beitt í áróðursskyni.
Forsætisráðherrann virðist ekki
lesa sitt eigið blað mjög vand-
lega, a. m. k. hefur hugvekja
prófessorsins ekki megnað að
bæta hann.
Það er ekkert annað en ]æ-
víslegt smjaður fyrir almenning
að bera viðnámsþrótt hans í
menningarmálum saman við við-
nám þeirra manna, sem bein-
línis lifa og hrærast í tungunni
sjálfri, sitja daglega við upp-
sprettulindir hennar og rækta
með sér fagurt málfar.
Almenningur beitir að sjálf-
sögðu tungunni ósjálfrátt, notar
það orð sem fyrst kemur upp í
hugann.
íslenzkur almenningur er á-
reiðanlega tiltölulega vel við
því búinn að mæta erlendum á-
UPPREIMAÐIR
STRIGASKÓR
allar stærðir
GÚMMlSKÓR
með
hvítum sóla.
Skólavörðustíg 12.
hrifum, en þegar flóðbylgja er-
lends menningarstraums skellur
á honum úr einni átt, stendur
hann uppi berskjaldaður.
Menntaður maður, sem dvelst
í útlöndum, hefur þroska til að
velja og hafna, hefur yfirsýn yfir
það, sem að honum er rétt.
Munu þó allir sammála um, að
hver sá sem dvelst í framandi
samfélagi, verður stöðugt að ’
vera á verði, ef málkennd hans
og þjóðerniskermd á ekki að
slævast.
Ofmat og vanmat
Það væri rangt að ofmeta
gildi menntunar, en við skulum
ekki vanmeta það heldur. AUan
þorra manna vantar þann þroska
og yfirsýn, sem þarf til að stand-
ast sterk menningaráhrif úr
einni átt. Allir þekkja dæmi um
það hve ýmsir, bæði menntaðir
og ómenntaðir, eru fljótir að
týna tungu sinni, er þeir dvelj-
ast með erlendum þjóðum. Það
verður býsna dýr tilrauji, ef við
ættum að ganga úr skugga um
það tölulega, hve stór hluti þjóð
arinnar hefur þrótt til að stand-
ast áhrif dátasjónvarpsins.
Það verður að teljast fordæm-
anlegt ábyrgðarleysi, að forsæt-
isráðherra skuli nota 20 ára af-
mæli lýðveldisins til að grafa
vísvitandi undan viðnámsþrótti
þjóðarinnar í menningarmálum
með því áróðursvopni, sem er
auvirðilegast allra: smjaðrinu.
Skíðaferð á sumri
Frh. af bls. 8.
- valið sér gönguleiðir við sitt
hæfi, því þarna er fjölbreytni í
landslagi, mjög athyglisverð
náttúrufyrirbæri, sem gaman er
að skoða, svo sem hverir, íshell-
ar og hrikaleg gljúfur, Skíða-
kennslan er að sjálfsögðu einn
aðalliðurinn í útiveruimi. Þeir
sem aldrei hafa stigið á skíði en
langar til þess að læra undir-
stöðuatriði skíðaíþróttarinnar fá
þarna ágætt tækifæri til þess.
Þáttakendum er skipt í hópa
eftir getu og er þannig komið í
veg fyrir, að byrjendur verði
fyrir truflunum af völdum þeirra
sem lengra eru komnir Komið
verður upp litlum skíðalyftum
eins og áður og geta þátttakend-
ur námskeiðanna fengið sérstök
afsláttarkort.
Kvöldvökur þar efra hafa þótt
takast vel og fer þar saman söng
ur, leikir og dans.
Farmiðasölu annast skrifstofa
Ferðafélags íslands, Túngötu 5,
simi 19533 og 11798, og Þor-
varður Örnólfsson, sími 10470.
Á það má minna, að meðal
vinninga í Ferðahappdrætti
Frjálsrar þjóðar er einmitt ferð
fyrir tvo í Kerlingarfjöll.
Ný skrifstofa F.l.
Framh, al bls. 8.
framt verður tekicS á móti
farpöntunum, farmiðar seld-
ir og önnur þjónusta er lýt-
ur að ferðalögum veitt. -
Þessi nýja skrifstofa í
Hótel Sögu mun starfa sem
deild Úr aðalsöluskrifstofu
félagsins í Laekjargötu 2 og
Birgir Ólafsson skrifstofu-
stjóri þar, mun hafa yfirum-
sjón með henni. Starfsstúlka
í skrifstofunni verður Kristín
Guðjohnsen, sem að undan-
förnu hefur starfað í bók-
anadeild Flugfélagsins í
Lækjargötu 2.
Æskan og ....
(Frh. af bls. 1.)
nýlega á Hreðavatni, í Þjórs
árdal og víðar.
Hins vegar mótmælir þing
ið því kröftuglega, að ungt
fólk sé spilltara að eðlisfari
en áður, þótt ýmsir telji svo
vera og hafi hátt um mikla
spillingu æskunnar.
Þingið hikar ekki við að
staðhæfa, að hinir fullorðnu
eigi langoftast meginsök á
ávirðingum unga fólksins,
m. a. með vítaverðu for-
dæmi á ýmsum sviðum og
þá ekki sízt um neyzlu á-
fengis og tóbaks.
Þingið átelur sérstaklega
þá háttu forráðamanna þjóð
arinnar að veita áfengi í
veizlum og móttökum hins
opinbera, þótt vitanlegt sé,
að þar er um að ræða á-
hrifamikið og hættulegt for-
dæmi öllum landslýð, ekki
sízt æskunni. Mættu þeir
gjarnan rifja upp hið sígilda
spekimál sr. Hallgríms Pét-
urssonar: „Hvað höfðingj-
arnir hafast að; hinir ætla
sér leyfist það“.
Loks minnir þingið á þau
uppeldislegu sannindi, að
fordæmið er meira virði en
allar umvandanir.
Uppnám ....
Framh. af bls. 2.
þegar þeir komu á vettvang
var að hefjast sjónvarp á ill-
ræmdum glæpaþætti, sem
heitir á ensku „The Untouch-
ables“ eða „Hinir ósnertan-
legu“!!l
Ekki varð förin með öllu
árangurslaus, þvi að svo mik-
ið var fátið og fumið á stöð-
inni, meðan íslendingarnir
áttu þar viðdvöl, að útsend-
ing stöðvaðist 2—3 mínútur
og sáu þeir, að á skerminn
kom spjald, sem á stóð:
„Sorry! We are having
trouble", sem útleggst laus-
lega: „Afsakið! Hér er allt í
patí.“
Frétt frá ríkisstjórninni
í 2. gr. kjaradóms frá 3. júlí 1963, segir svo:
,,Á tímabilinu frá 1. júní til 30. september ár hvert,
er heimilt, með samkomulagi forstöðumanna hlut-
aðeigandi stofnana og starfsmanna, að fella niður
vinnu á laugardögum, enda lengist dagvinnutími
aðra daga vikunnar, svo að full vinnuvika náist á
5 dögum“.
Orðið hefur að samkomulagi, að heimild þessari sé
beitt, með því skilyrði, að fært sé að dómi forstöðu-
manns og viðkomandi ráðuneytis að fella niður
störf á umræddum tfma, svo og að vinnutími þeirra
starfsmanna, sem ekki vinna á laugardögum skv.
framansögðu, lengist í staðinn um eina klst. á mánu-
dögum allt árið með þeim hætti, að þá verði unnið
til kl. I 8.
Tilkynning
Til loka septembermánaðar verða skrifstofur vorar
og vörugeymslur lokaðar á laugardögum.
Þá breytist og afgreiðslutími, þannig að framvegis
verður opið frá kl. 9—1 2.30 og kl. 1 3—1 7.30 alla
mánudaga, en frá kl. 9— 1 2.30 og kl. 1 3— I 6 aðra
virka daga.
Áfengis og tóbaksverzlun ríkisins.
Eignizt og lesig bækur, sem máli skipfa.
fjallar um dýpstu og innilegustu samslripti karls og konn
þ. á. m, um ástina, kynlífið, frjógvun, getnaðarvarnir barna
uppeldi, hjónalífið og hamingjuna,
Höfundar: Hannes Jónsson. félagsfræðingur, Ff-tur H. J. Ja;c-
obsson, forstöðumaður fæðingardeildar Landsp.talans; Sigurjón
Björnsson, sálfræðingur; dr. Þórður Eyjóifsson, hæstaréttar-
dómari: dr Þórir Kr Þórðarson. prófessor
Höfundarnir tryggja gæðin, efnið ánægiuna
Þessi bók á erindi til alira kynþioska karla og kvenna
Verkalýðurínn og fjjóðfélagið
eftir Hannes Jónsson félagsfræ'Sing.
er úrvalshandbók tvrir alla þá, sem taka
vilja ábyrgan bátt 1 féiagsstarfi og ná ár-
angri í fundarstörfum og mælsku.
Bók þessi fjallar á hagnýtan og fræðilegan hátt um fundar-
stjórn, fundarsköp, og allar tegundir félags- og fundarstarfa.
í henni er líka rökfræðiágrip, fróðlegur kafli um áróður og
margar teikningar af fyrirkomulagi i fundarsal. Vlunið, að leikni
i félagsstörfum og mælsku getur ráðið miklu um þjóðfélags-
legan frama ykkar og framvindu þjóðfélagsmála.
Upplagið er takmarkað af þessum úrvalsbókum. Tryggið ykkur
eintök meðan til eru.
J FELAdSI
Pósthólt 31 — Reykjavík — Ssmi 40624
PONTUNARSEÐILL iPóstsent um lano allt).
Sendi héi með kr...... til greiðslu eftirtalin.d bókarpöntun,
sem óskast póstlögð strax 'Merkið það sem við ál
— Fjölskyldan og hjónabandið i/eré kr 150.00.
— Félagsstörf og mælska. Veið 150. 00.
Nafn: ............................................
Heimili: ......................................
Frjáls þjóð — fóstudaginn 19. júní 1964.
7