Frjáls þjóð - 19.06.1964, Qupperneq 8
ER RANNSÓKN ÚT AF BORGARHÚSUNUM
VID KAPLASKJÓLSVEG ÓHJÁKVÆMILEG
Það hefur verið heldur en
ekki fum á máttarvöldum
Reykjavíkurborgar og fleiri á-
standspersónum út af grein í
síðasta tbl. Frjálsrar þjóðar
um kaupin á íbúðarhlokkun-
um við Kapaskjólsveg.
Heyrðum við á skotspón-
um, að málið væri miklu
skuggalegra en blaðið liafði
gefið í skyn, og mundi það
t. d. ranghermi, að Sölunefnd
varnarliðseigna hefði selt
Sameinuðum verktökum efni
og vélar til bygginganna úr
góssi sínu af Keflavíkurvelli.
Snerum við okkur því til
Sölunefndarinnar og óskuð-
um upplýsinga um málið.
\'ar okkur tjáð, að Sölunefnd-
in hefði alls ekkert selt til
þessara bygginga, hvorki efni
né vélar. En þegar við spurð-
um um það, hvernig efni og
\’élar hefði verið unnt að fá
frá Vellinum án milligöugu
Sölunefndarinnar, fengum við
engin svör.
Hér skal því krafi/.t skýrra
svara um það frá borgaryfir-
völdum og tollyfirvöldum.
hvemig og hverjum tollar
hafa verið greiddir af efni og
vélum til umræddra bvgg-
inga?
Það sjá allir, að borgaryfir-
\'i)ldin geta ekki ausið út fé
borgarbúa til gróðamanna og
sérréttindamanna Sjálf.stæðis
flokksins, án þess að a. in. k.
allt sé á hreinu, að því er
lögin snertir.
Og það mega hinir háu
lierrar vita, að það er von-
laust að ætla að reyna að
þegja þetta mál í hel
ftláls þióö
Föstudagurinn 19. júní 1964.
Sölumennskan 17. júní
Skíðaferð á sumri
Þeir sem hafa yndi af göngu-
og fjallaferðum eða hafa löngun
til þess að læra á skíðurn og
njóta sumarleyfis í hópi glað-
værra félaga á einum fegursta
stað íslenzku öræfanna, fá á-
gætt tækifæri til alls þessa í
sumar.
Eins og undanfarin þrjú sum-
ur efna þeir félagarnir, Valdi-
mar Ornólfsson, Eiríkur Haralds
son og Sigurður Guðmundsson
til skíða- og gönguferða í Kerl-
ingarfjöllum, í samráði við
Ferðafélag íslands. Þessar ferðir
hafa notið mikilla vinsælda og
vaxandi aðsóknar almennings og
er nú þegar farið að panta í
ferðirnar.
Farnar verða sex ferðir sem
hér segir:
1. ferð mánud. 6. júlí—
mánud. 13. júlí.
2. — miðvikud. 15. júlí—
miðvikud. 22. júlí.
3. — föstud. 24. júlí—
föstud. 31. júlí.
4. — þriðjud. 4. ágúst—
þriðjud. 10. ágúst.
5. — miðvikud. 12. ágúst—
þriðjud. 18. ágúst.
6. — fimmtud. 20. ágúst—
miðvikud. 26. ágúst.
Eins og sjá má af þessari tíma
töflu eru ferðirnar í júlí átta
daga hver en í ágúst' eru þær
sjö daga hver. Júlíferðirnar kosta
kr. 3.200,00 á mann ágústferðirn
LÍTIÐ FRÉTTABLAÐ
, ./<#<•. .-u** '
Happdrættis-
vísa
Ágætur kaupandi Frj
þj. á Djúpavogi lét
fylgja eftirfa.randi vísu
er hann sendi greiðsln
fyrir happdrættismiða
Margir lögðust laun
mín .
löngum var þeim
sundrað.
Nú vill þjóðin frjálsa
tb
frá mér krónur
hundraf-
Ekki var nú þyngr."
í honum samt en svo
að hann sendi „tollinn
sinn“ tvöfaldan.
í 9. viku sumars 1964.
sérsjónarmiðum á fran.
færi og milligönguaðiii
hér heima fyrir bæði
sjónarmiðin er Heims
kringia. Nýlega var
dreift um bæinn yfi,
100 blaðsíðna bók, sem
inniheldur ræðu, er
Súsloff nokkur hélt yfi ?
miðstjórn kommúnista
flokks Sovétríkjanna og
fjallar um hugsjóna
stríð Kínverja og Sové*
manna. Þetta er ákaí
lega fróðleg lesning
á köflum spennand.
eins og glæpareifa;,
Aftur á móti er vafa
samt að lesendur hneys.
ist til kommúnisma r’
lestrinum.
Vafasamur W<ki blankur
ávinningur
Kínverjaj- og Sovet
menn eiga nú í mikium
illdeilum, sem ekki ei
enn séð fyrir endann á
Þeir nota hvert tæki
færi til að koma sínum
Mö-rg dæmi mætu
sjálfsagt forma un>
eyðslusemi unglinga
sem fá mikla pening.
í hendurnar. Leigubil
stjóri í Rvík sagði frétt?
manni L.F. eina slíka
sögu: Það var skömmu
eftir lokadaginn, að ung
ur piltur tók sér fari
með honum snemma
nætur — og bað hann
aka með sig upp aí
Selási; sjoppur allar
lokaðar í bænum, en
sig vantaði tilfinnanlega
tvær flöskur af „kók‘
Þegar í bæinn kom aft-
ur og drengur hugðist
greiða ferðina, 200 kr
eða þvi sem næst, verð
ur honum þrifið um
brjóstvasann og segir
svo: „Æ, ég er síga-
rettulaus“. og biður
bílstjórann að aka með
sig aftur upp að Selási
Bílstjóranum blöskrað
.em vonlegt var ráðslag
piltsins, og spurð:
hvo-rt honum fyndist
ekki þessi varningui
orðinn dýr, þegar svo
hátt flutningsgjald væri
komið á hann. Drengur
svaraði eitthvað á þá
lund að sig munaði vxst
ekki um nokkra skitna
hundraðkalla, því að
hann væri að koma at'
vertíð og væri sko ekki
blankur!
ar kr. 2.850,00. í þessu gjaldi er
innifalið: ferðir frá Reykjavík og
til baka, fæði og gisting, skíða-
kennsla og leiðsögn i göngu-
ferðum. Þeir sem ekki hafa á-
huga á því að fara á skíði geta
Frh. :í bls. 7.
Kjarvalsbók i
Thors Vilhjálmssonar
Út er komin hjá Helgafelli
nnkií bók um Kjarval eftii Tlior
Vilhjálmsson rithöfund Er hún
svipuð að ytri gerð og bækur
þær, sem Helgafell hefui áður
gefið út um nokkra kunnustu
myndlistarmenn þjóðarinnar, fen
gjörólfk þeim að því, er tekur
til liins ritaða efnis. í eftirmála
kemst höfundur syo að orði;
„Þessari bók er ekki ætlað að
vera sagnfræði né listfræði.
Heldur eru í henni mjög per-
sónulegar hugrenningar um
manninn Kjarval og listamann-
inn, áhrif af list hans og kynn-
um við meistarann og Iréttir af
ferli tians og háttum.“
Þessarar merku bókai verður
nánar getið hér í blaðinu síðar.
Það hefur vakið almenna
hneykslun Reykv'íkinga, hve
sölumennskan setur æ meiri svip
á hátíðahöldin 17. júní. Sóða-
skapurinn sem þessu fylgir, er
fyrir neðan allar hellur. og lét
þó hátíðanefndin hreinsa til á
svæðinu öðru hverju.
Að þessu sinni munu hafa
verið gefin leyfi fyrir um 80
sölutjöldum, en auk þess voru
allir veitingastaðir í miðborg-
inni opnir. Það virðist vera orðið
keppikefli margra þennan dag
að snapa eftir fé borgarbúa, og
sumir virðast nota frjálsræðið
þennan dag til að leggja vel á
varninginn. Verðlag virtist vera
misjafnt, sumir voru sanngjarnir,
en aðrir smurðu vel á. .
■ Væri fyllsta ástæða til að
i framkvæmdanefnd hátíðahald-
anna revndi að draga sem mest
úr sölumennskunni á þjóðhátíð-
ardaginn, því að söluprangið set-
ur skugga á daginn. Atliugandi
væri, hvort ekki mætti skipu-
leggja sölutorg fyrir hina ötulu
sölumenn utan við sjálft hátíða-
svæðið og jafnframt tryggja að
fyllsta þrifnaðar sé gætt.
Ný skrifstofa
F.í.íHótel Sögu
Nýlega opnacSi Flugfélag
Islands upplýsinga- og sölu-
skrifstofu í anddyri Hótel
Sögu, Reykjavík.
Skrifstofan mun veita al-
hliða upplýsingar um fertSir
innanlands og utan og jafn-
Framhald á 7. síðu.
SUNDLAUG VÍGÐ
í MOSFELLSSVEIT
17. júní var tvöfaldur hátíðis-
dagur hjá íbúum Mosfells-
hrepps, því þá var vígð afar
myndarleg sundlaugarbvgging á
Varmártúni í grennd við Hlé-
garð. Vígsluathöfnin fór hið
bezta fram og var þarna margt
manna samankomið, enda var
margt til skemmtunar, m. a. boð
sundskeppni milli stjórnar ung-
mennafélagsins og hreppsnefnd-
arinnar og var keppni afar jöfn
og spennandi og lauk með naum
um sigri ungmennafélagsins. Þá
vakti geysimikla kátínu boðróð-
ur á völtum flekum milli bænda
og iðnaðarmanna og fengust
aldrei úrslit í þeirri keppni, þar
sem ræðararnir voru oftast á
kafi í vatni. í knattspyrnukapp-
leik milli giftra og ógiftra báru
þeir giftu sigur af hólmi, enda
gamlir kunningjar frá ís-
landsmótum í hópi giftia. Mvnd
in sýnir er gestir gengu frá
lauginni til að taka þátt í kaffi-
drykkju í Hlégarði.