Tíminn - 04.03.1977, Blaðsíða 3

Tíminn - 04.03.1977, Blaðsíða 3
Föstudagur 4. marz 1977 3 Þessi mynd er tekin á haustdögum, meöan rjúpan er enn flekkótt og snjór ekki fallinn. Þær eru drifhvitar, sem næra sig ábruminu á hrislunum I Egilsstaðaskógi. RJÚPNAMERGÐ í EGILSSTAÐASKÖGI J.K. — Egilsstöðum. — Nú er mjög gott veöur hér um slóðir stillt og bjart, og færð oröin góð vlðast hvar, nema hvað snjóbflsferðir eru um Fjarðar- heiði og Oddsskarð og Vatns- skarð til Borgarfjarðar hefur ekki veriö mokað ennþá. Um helgina siðustu voru menn mikiö úti viö. Margir voru á skiöum uppi á Fagra- dal, en þar er skiöalyfta I gangi á vegum Egilsstaöa- hrepps, og notuöu menn sér þaö mikiö einkum unglingar. Veöur var afburöagott sólskin og blíöa, en annars hefur sólar ekki mikiö notiö hér fram aö þessu. Menn hafa veriö út um héraö og upp um fjöll á snjó- sleöum, enda er færi fyrir snjósleöa afburöagott. Þeir eru orönir algengir hér, svo aö segja má, aö snjósleöi sé næstum á hverjum sveitabæ. Mikiö er af hreindýrum hér niöri I byggö. Þau dreifast yfir mjög stórt svæöi, og menn halda, aö þeim fjölgi frá ári til árs. Þau eru nú dreifö um allt Fljótsdalshéraö og Austf jaröa fjöllin. Nokkrir menn fóru héöan noröur I Fagradal I Vopnafiröi á snjósleöa á dögunum, og þá var þar hrein- dýrahópur alveg niöri viö sjó. I Egilsstaöaskógi er svo mikiö af rjúpu, aö menn muna vart annaö eins. En þaö er sýnd veiöi en ekki gefin, þvi aö rjúpnaveiöitiminn i vetur er löngu liðinn. Tófuskyttur í fullum gangi — Hafa unnið tuttugu dýr á skömmum tima F.I. Reykjavik — Það er rétt, að hér um slóðir hafa verið skotnar um 20 tófur á skömmum tima, en þar hafa lika verið að verki margir menn úr mörgum sveit- um. óvenjulega gott hefur verið aö rekja slóöirnar i vetur, þar sem hriðaö hefur á hverri nóttu og stillur legið yfir. Hitt er svo spurning, hvort grenum fækkar nokkuð i vor, venjulega eru þau um 10 að tölu. Tófan er tii alls vfs og við ferðalög er hún alls óbang- Á þessa leiö fórust Óla Hall- dórssyni, bónda á Gunnarsstöö- um i Þistilfiröi, orö i samtali viö Timann i gær. Óli sagði, aö bezt væri aö veiða .tófuna um miöjan daginn eöa á morgnana, þvi aö þá leitaöi hún inn til lands eftir næturrölt sitt viö sjávarsiöuna. Ekki væri þó auð- hlaupiö aö ná henni þrátt fyrir góðar ytri aðstæöur, og oft mættu menn rekja slóöina 10-15 kiló- metra. Óli bætti viö, að ef til vill væri það ómannúðlegt aö drepa þessi dýr, en sá, sem kynnzt heföi tóf- unni og séö hana rekja garnirnar úr lifandi lömbunum, gæti enga samúö meö henni haft. Jötunn losnaði en festist í þriðja sinn! gébé Reykjavik — Já, þetta ætlar að ganga ilia hjá okkur. Við gátum losað borinn eftir að hann festist um siðustu helgi, en nú er hann bara fast- ur aftur sagði isleifur Jóns- son, forstöðumaður jarðbor- unardeildar Orkustofnunar i gær, en hann er staddur norð- ur i Eyjafirði — að Lauga- landi, þar sem borinn Jötunn hefur valdið mönnum mikium erfiðleikum við borun eftir heitu vatni. Það var verið að vinna viö hreinsun borholunnar þegar hrun varð i henni rétt einu sinni enn og varð það þess valdandi aö borinn festist á ný. — Viö erum aö vinna aö þvi núna, aö fóöra holuna niö- ur á það dýpi sem borinn var kominn á, eða 463 metra, meö þvi að reyna að setja niður stálrör. Jarðvegurinn er mjög laus i sér á þessum stað sem borað er og veldur það starfs- mönnum borsins, sem eru um tuttugu að tölu, ómældum erfiðleikum. Arnarflug: Bíða enn eftir skýrslu frá Flugráði HV-Reykjavik—Þaö er afskap- lega dauft hjá okkur i augna- blikinu, enda er verkefnalitiö þessa mánuöi. Svo bætist þaö viö, aö viö getum litiö sem ekk- ert hreyft okkur, eöa hugaö aö frekari verkefnaöflun, meöan ekki berst svar viö umsókn okk- ar um áætlunarflugsleyfi. Viö sóttum um i lok desember- mánaöar siöastliöins ogFlugráö hefur haft máliö i höndunum i tvo mánuði, án þess aö hafa enn skilað skýrslu um þaö til sam- göngumálaráöuneytisins. Dráttur þessi kemur sér ákaf- lega illa, þvi að hann nánast úti- lokar okkur frá þvi aö geta hug- aö aö einu eöa ööru, sagöi Magnús Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Arnarflugs h.f., i viðtali viö Timann i gær. — Viö höföum hugsaö okkur, svona i fyrstu atrennu, aö hefja áætlunar-flug til Amsterdam, ef leyfiö fengist, sagöi Magnús ennfremur, enda er i gildi loft- 'ferðasamningurmilli islands og Hollarids, þannig aö ekki þyrftu að koma til langvinnir og viða- miklir samningar milli ráöu- neyta. Þarermöguleikinn opinn nú þegar. Viö höfum litiö unniö að þessu máli hjá okkur enn, þar sem óvist er hvort leyfið fæst, en það teljum við þó fullvist, að þótt þetta yröi ef til vill erfitt i fyrstu, þá myndi áætlunarflug á milli þessara staöa vel bera sig. Við myndum aö sjálfsögðu fara inn i sölu á okkar stööum, og einn liöur i þvi yröi auðvitaö aö reyna að auka ferðir islend- inga til Evrópulanda almennt. Þaö er þó ferðaskrifstofuhliöin á málinu. En, sem sagt, viö bara biöum. BÚNAÐARÞING Flateyj arverksmiðj an og lausaskuldir bænda A fundi Búnaöarþings I gær voru lögö fram tvö ný mál, sem send voru frá Alþingi. Fyrra málið var um athugun á sölu graskögglaverksmiöjunnar á Flatey á Mýrum, og siðara mál- iö fjallar um lausaskuldir bænda. Þá voru þrjú mál til fyrri umræðu og þrjú mál voru afgreidd frá Búnaðarþingi. Er- indi Snæþórs Sigurbjörnssonar um öryggisráðstafanir viö notk- un dráttarvéla og annarra bú- véla, var afgreitt meö eftirfar- andi ályktun: Búnaöarþing telur, aö meö si- aukinni vélvæöingu á sviöi land- búnaðar beri brýna nauðsyn til aö auka eftirlit meö öryggis- búnaöi véla og tækja, sem notuö eru viö bústörf. Þingið telur eölilegast, aö þetta verkefni falli undir öryggiseftirlit rikisins og lög um öryggisráöstafanir á vinnu- stöðum veröi breytt þannig, að þau taki til almenns búreksturs. Jafnframt felur þingið stjórn Búnaöarfélags Islands aö hlut- asttil um framgang þessa máls. Frumvarp milliþinganefndar Búnaöarþings um vinnuaöstoö I sveitum var afgreitt með smá- vægilegum breytingum frá bú- fjárræktarnefnd. Gert er ráö fyrir i frumvarpinu, aö búnaðarsamböndum sé heimilt að setja á stofn vinnuaðstoð hvert á sinu sambandssvæði. Tilgangur vinnuaðstoöar er, aö bændur geti fengið aðstoöarfólk, þegar veikindi, slys eöa önnur forföll bera aö höndum. Kostnaður af störfum aöstoöar- manna greiöist aö 2/3 úr rikis- sjóöi og 1/3 úr sveitasjóöum. Áætlaö er að einn aðstoðar- maöur sé ráöinnfyrir hverja 150 bændur. i ályktun búfjár- ræktarnefndar var minnt á samþykkt Alþingis frá 1973, þar sem rikisstjórninni var faliö aö kanna á hvern hátt megi veita öllum konum i landinu fæöingarorlof og tryggja tekju- stofna i þvi skyni. Þá var einnig afgreitt erindi stjórnar Stofn- lánadeildar landbúnaöarins um aö tekin veröi upp skyldutrygg- ing útihúsa i sveitum. Þá felur þingiö stjórn Búnaöarfélags Islands aö at- huga á hvern hátt megi ná sem hagstæðustum samningum viö tryggingarfélögin varðandi þessar tryggingar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.