Tíminn - 04.03.1977, Blaðsíða 11

Tíminn - 04.03.1977, Blaðsíða 11
Föstudagur 4. marz 1977 11 Wméwm Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfuiltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Augiýsingastjóri: Steingrfmur Gislason.Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu viö Lindargötu, símar 18300 — 18306i Skrifstofur i Aöal- stræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — auglvsinga- ' simi 19523.. Verö I iausasölu kr. 60.00. Askriftargjaid kr. 1.100.00 á mánuöi. Blaöaprenth.f.f Aldrei aftur Skýrsla heilbrigðisyfirvaldanna um mengunina i álbræðslunni i Straumsvik, er glöggt dæmi um þá aðgæzlu, sem verður að sýna i samskiptum við er- lenda auðhringa. Menn vissu að visu mi nna um mengunarhættuna, þegar samið var við sviss- neska auðhringinn en menn vita nú. Það hefði þó ekki komið að sök, þótt samningarnir væru ekki nógu ákveðnir varðandi þetta efni, ef álbræðslan hefði veriðundir islenzkum lögum og lögsögu. Það eru afglöp, sem ekki er hægt að fyrirgefa, að samið var við álbræðsluna á þann hátt, að hún væri að mestu leyti undanþegin islenzkum lögum og islenzkum dómstólum, og risi upp ágreiningur, yrði fjallað um hann af erlendum gerðardómi. Af þessum ástæðum hefur ekki verið hægt að setja álbræðslunni stólinn fyrir dyrnar. Hún getur haft það i hendi sinni að visa ágreiningi um þetta til alþjóðlegs gerðardóms. Sú málsmeðferð gæti tekið ærinn tima og óvist um úrslit, þar sem dæmt yrði eftir þvi, sem talið væri alþjóðlegar reglur um mengunarvarnir. Eina leið islenzkra stjórnvalda er þvi að fara eins konar bónarveg og ná þannig samkomulagi um fullnægjandi varnir. Þetta hefur verið gert, en það reynzt meira en torsótt. Nú virðast menn þó gera sér vonir um einhvern árangur, en þó þannig, að það verður ekki full- reynt fyrr en eftir mörg ár, hvernig efndirnar verða. Af þeim afglöpum, sem hér blasa við sjónum, verða menn að læra. I fyrsta lagi ættu menn að ihuga betur allar frekari hugmyndir um ál- bræðslur, unz séð er hvernig hinar væntanlegu mengunarvarnir i Straumsvik gefast. 1 öðru lagi þarf það að verða ófrávikjanleg regla, að engu fyrirtæki sé leyft að starfa i landinu, nema það sé að öllu leyti háð islenzkum lögum og dómstólum. Aldrei aftur megum við gera samning, sem er likur álsamningnum að þessu leyti. Siðast, en ekki sizt, kennir þetta okkur svo það, að við eigum fyrst og fremst að treysta á islenzkt framtak. Reynslan hefur sýnt, að þvi má örugg- lega treysta, ef rétt er búið að þvi. Við þurfum þvi ekki að vera háðir erlendum auðhringum á neinn hátt. Mikilvægur árangur Það er ekki að lasta, þótt stjórnarandstæðingar bendi á sitthvað, sem hefur farið miður hjá núv. rikisstjórn. Það er ekki nema eðlilegt að þeir geri það. En þeir eiga þá einnig að viðurkennaþað sem vel hefur verið gert, eins og hinn mikla árangur, sem hefur náðst i landhelgismálinu. Það er einnig að viðurkenna, að hér hefur verið næg atvinna, meðan stórfellt atvinnuleysi hefur rikt i flestum nálægum löndum. Það er einnig vert viðurkenn- ingar, að áfram hefur verið fylgt hinni þróttmiklu byggðastefnu, sem hafin var i tið rikisstjórnar Ólafs Jóhannessonar. Þá má ekki gleyma þeim endurbótum, sem verið er að vinna að á sviði dómsmálanna, og stofnun rannsóknarlögreglu rikisins er gleggst dæmi um. Þannig má rekja þettaáfram. Það er ekki sizt ástæða til að minnast framangreindra atriða, þegar samanburður er gerður við árin 1967-1970, þegar einnig var erfitt efnahagsástand. Þá var hér mikið atvinnuleysi, stórfelld verkföll, mikill landflótti og verðbólgu- vöxtur þrefalt meiri en i nágrannalöndunum. Og þá var ekkert aðhafzt i landhelgismálunum. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Amin lét Carter færa sér þakkir Hann nýtur þess að vera í sviðsljósinu 1 ERLENDUM blööum hafa ekki birzt fleiri myndir aö undanförnu af öörum manni en Amin einræöisherra i Uganda. Amin er sagöur njóta þess aö sjá myndir af sér i heimsblööunum, enda gerir hann bersýnilega sitt itrasta til þess aö vera sem mest i sviösljósinu.Hvaö sem sagt er um gáfnafar Amins, veröur þvi ekki neitaö, aö hann hefur lag á þviaö lóta tala um sig og þaö ekki eingöngu vegna grimmdarverka sinna, heldur sökum furöulegra tiltekta, sem bersýnilega hafa þaö markmiö, aö hann komist i heimsfréttirnar. Siöasta dæmiö um þetta er viöureign hans viö Carter for- seta. Carter forseti fordæmdi harölega af mannréttinda- ástæöum, aö Amin lét nýlega myröa biskup og tvo ráöherra. Viöbrögö Amins voru þau aö kveöja alla Bandarlkjamenn I Uganda á sinn fund, en þeir munu um 200, aöallega trú- boöar. Margir óttuöust aö Am- in ætlaöi aö láta þessa menn gjalda ummæla Carters og þvi hóf Bandarikjastjórn ein- hverja hina mestu diplómat- isku sókn aö tjaldabaki til aö reyna aö fó Amin ofan af öll- um slikum fyrirætlunum. Am- in tilkynnti aftur, aö banda- rikjamenn þyrftu ekkert aö óttast. Hann ætlaöi aöeins aö þakka þeim góö störf. Jafn- framt veitti hann Bandarikja- mönnum frest til aö hitta sig. Þannig gekk þetta 1 nokkra daga og var ekki annaö meira fréttaefni I f jölmiölum þá dag- ana. Loks lýsti Amin yfir þvi, aö óþarft væri fyrir Banda- rikjamenn aö koma til fundar viö sig og þeim yröi ekkert mein gert. Carter sendi hon- um eins konar þakkarskeyti aö launum. Þeir fréttamenn, sem bezt þekkja til, álita, aö Amin hafi sett þetta allt á sviö. Hann hafi taliö, aö hann gæti bezt náö sér niöri á Carter fyrir ummælin um biskupsmoröiö, meö þvi aö láta hann senda sér umrætt þakkarskeyti. Jafnframt tókst honum á þennan hátt aö vera á dagskrá i heimsfréttunum i marga daga og fá birtar af sér ótal myndir, en þrjór þeirra fylgja þessari grein. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.