Tíminn - 04.03.1977, Blaðsíða 24

Tíminn - 04.03.1977, Blaðsíða 24
HREVnLL Slmi 8 55 22 - cT'-'ðí í fyrirgóöan mat ^ KJÖTIÐNAÐAftSTÖÐ SAMBANDSINS - , Frystihúsid á Drangsnesi brann í fyrra, og nýtt er hálfbyggt: Enn engin svör frá fisk- veiðasjóði við lánabeiðni Hér skilar hvert mannsbarn um einni milijón króna i útflutningsverömæti. Viöurkenningin er sú, aö stjórn fiskveiöasjóös hefur ekki afgreitt beiöni um lán vegna nýja frystihússins, sem reisa átti i staö þess, sem brann i fyrrasumar. JH-Reykjavlk. — A Drangs- nesi býr tæplega hundraö manns, og þegar allt er meö felldu, eru útflutningsverö- mæti þau, sem þessi staöur skilar, um ein milljón króna á hvert mannsbarn. Þetta er sjávarafli, sem fæst á fimm báta, tfu til fjörutfu og fimm lesta, og allmarga smábáta, og unninn hefur veriö I þorpinu. Nú er hins vegar svo ástatt aö ekki er unnt aö veita nein- um sjávarafla þar viötöku og hefur svo veriö I allan vetur. Frystihús er þar I smlöum, fokhelt, einangraö og aö nokkru leyti múraö og búiö aö leggja I þaö fimmtlu til sextiu milljónir króna. A hinn bóginn hefur ekki veriö unnt aö ljúka viö þaö þar eö sá aöili, fiskveiöasjóöur, sem leggja á fram aöalfjár- magniö til sllkra fram- kvæmda hefur ekki fram á þennan dag veitt endanleg svör viö lánsbeiöni vegna frystihúss, hvaö þá reitt lán af höndum. Forsaga þess máls, er aö hraöfrystihúsiö á Drangs- nesi brann I ágústmánuöi 1976. Var skjótt viö brugöiö og voru allir sammála um, aö mikiö lægi viö aö reisa nýtt frystihús á sem allra skemmstum tlma, og sam- þykkti stjórn byggöasjóös, aö Drangsnes skyldi njóta forgangsréttar vegna þess áfalls, sem byggöarlagiö haföi oröiö fyrir. Lánsbeiönir voru sendar þegar I fyrrahaust, bæöi byggöasjóöi og fiskveiöa- sjóöi. Byggöasjóöur hefur látiö fé af hendi rakna til nýja frystihússins, sem aö var undinn bráöur bugur aö reisa I brýnni þörf og góöri trú á eölilega og velviljaöa fyrirgreiöslu, en frá forráöa- mönnum fiskveiöasjóös sem þó tóku lánsbeiöninni vel I upphafi hafa engir fjármunir komiöné heldur fyrirheit um lán úr þeirri átt, svo aö leita mætti eftir bráöabirgöaláni annars staöar meö vissu um aö geta endurgreitt þaö slöar á réttum tlma. — Þetta er oröiö ákaflega bagalegt, sagöi Jón Alfreös- son, kaupfélagsstjóri á Hólmavlk er Timinn bar þetta undir hann. Okkur hef- ur rekiö I strand vegna þessa seinlætis, og þaö dregst óhóf- lega, aö frystihúsiö, eini vinnuveitandinn á landi I Drangsnesi, komi aö til- ætluöum notum. Drangsnes- bátarnir hafa oröiö aö flytja fisk og rækju til vinnslu á Hóimavlk, og nú liöur senn aö grásleppuveiöum. A Drangsnesi hafa veriö verkuö grásleppuhrogn fyr þrjátlu til fjörutlu milliónir króna á ári. Þaö er 1. aprll sem veiöarnar mega hefjast, og þaö veröur kannski rétt meö herkjubrögöum, aö viö gétum komiö byggingu frystihússins þaö áleiöis, aö mögulegt sé aö veita hrogn- unum viötöku og verka þau I húsinu. Viö hér um slóöir glödd- umst þegar vel var viö þvi vikizt I fyrra aö koma nýju frystihúsi upp sem allra fyrst, en sú tregöa sem viö höfum mætt, veldur aftur á móti sárum vonbrigöum. Eins og fram kemur hér aö ofan eru Strandamenn allir af vilja geröir aö koma nýja frvstihrúsinu á Drangsnesi I gagniö. En þungi I kerfinu hefur hamlaö eölilegum byggingarhraöa. Engum getur þó veriö I hag, aö dýr mannvirki standi hálfköruö og ekki er þaö þjóöfélaginu til hagsbóta, aö fólk fái ekki notiö sln viö framleiöslu- störf. PATREKSFJORÐUR HITAVEITUBÆR? F.I. Reykjavik — Um þetta leyti i fyrra var boruö um 400 metra djúp hola hér rétt innan viö bæinn i mynni Mikladals. Höföu fæstir Patreksfiröingar trú á þvl, aö nokkur jaröhiti fyndist, en upp kom 22 gráöu heitt vatn og var magniö um tveir sekúndulitrar. Var þá ákveöiö aö sveitarfélagiö sæi um borun annarrar tilrauna- holu, en Orkustofnun vildi halda tilraunaborunum áfram á eigin vegum, enda dýrt ævintýri fyrir okkur ef ekki lánaöist. Til borsins hefur ekkert spurzt slöan um ára- mót, en eftir þvi, sem ég bezt veit er ætlunin aö stinga honum niöur á Baröaströnd, Patreksfiröi, Tálknafiröi og Bíldudal. A þessa leiö fórust Olfari B. Thoroddsen, sveitarstjóra á Pat- reksfiröi orö, er hann var inntur eftir þvf, hvaö liöi borunum eftir heitu vatni viö Patreksfjörö. Sagöi tJlfar aö gæfu áfram- haldandi boranir góöa raun og heitt vatn fengist viö Patreks- fjörð, teldu menn lagningu hita- veitu þau meö þeim allra hag- kvæmustu á landinu, enda væri um stuttan veg að fara. Einna mestu llkurnar á góöu jaröhitasvæöi eru taldar vera noröur I Arnarfiröi, en Patreks- fjörður tilheyrir ööru svæöi aö sögn fagmanna. I Tálknafiröi kemur heitt vatn vlöa upp á yfir- boröiö en ekkert er vitaö um magniö og verður ekki vitaö fyrr en fleiri boranir hafa komið til. Timinn fékk þær upplýsingar hjá Sigurgeiri Ingimundarsyni starfsmanni Orkustofnunar, að ekki væri enn ákveöiö hvor bor- anna, sem nú eru á Vesturlandi, færi til Patreksfjarðar. Munu málin skýrast eftir helgi, en þá lýkur verkefni stærri borsins, sem er á Isafiröi. Er sá bor um 1000 metra langur. Minni borinn sem telur eina 600 metra er á Barðaströnd og blöur frekari verkefna. Þaö er rétt innan viö bæinn, sem heitt vatn hefur fundizt viö tilraunaborun. Aöfærsiuæöin veröur ekki löng ef vonir manna rætast. r ^ Pykir bodlegt í Djúpinu: Rafmagn ell- efu tíma á sólarhring HV-Reykjavik — Þetta er ekki' neitt neyöarástand, en óneitanlega hvimleitt, þvl rafmagnsskömmtunin hjá okkur hefur veriö ákaflega stif frá áramótum. Þaö hefur ekki komiö dropi úr lofti frá þvi I haust og ekki hláka einn einasta dag, þannig aö vegna vatnsskorts veröur aö taka rafmagniö af okkur allar nætur, milli klukkan tólf á miönætti og átta á morgn- ana, svo og milli klukkan eitt og sex á daginn. Rafmagn Framhald á bls. 23 PALLI OG PESI ~T — Skyldi Týr vera enn viö Eyjar? — Nei, þaö kvaö vera fariö aö týra hjá þeim þar. ^T7(P

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.