Tíminn - 04.03.1977, Blaðsíða 21
Föstudagur 4. marz 1977
21
Ármenningar að
syngja sitt síðasta?
— á knattspyrnusviðinu. Mikil ólga ríkir
nú i herbúðum þeirra og margir af beztu
leikmönnum liðsins hafa horfið á braut
Mikil ólga er nú hjá knattspyrnudeild Ármanns og há-
værar raddir eru uppi um að Ármenningar séu búnir
að syngja sitt síðasta á knattspyrnusviðinu. Þeir menn
sem hafa stjórnað knattspyrnudeild Ármanns undan-
farin ár, hafa nú yfirgefið herbúðir félagsins og þar
að auki streyma tilkynningar inn til KSI þar sem Ár-
menningar tilkynna félagsskipti. útlitið er nú þannig
hjá Ármanni, að það er vaf asamt að f élagið taki þátt í
2. deildarkeppninni í knattspyrnu.
Ástandið hjá Knattsþyrnu-
deild Ármanns er vægast sagt
mjög slæmt þvi aö ekki hefur
enn verið mynduð stjórn hjá
deildinni siðan Kristján Bern-
burg fyrrum formaður deildar-
innar — og sá maður sem hefur
verið potturinn og pannan i
starfsemi deildarinnar undan-
farin ár, sagði af sér um sl. ára-
mót. Ármenningar hafa gert til-
raunir til aö fá menn til að
starfa i stjórn deildarinnar, en
þær hafa engan árangur borið.
Nú standa Ármenningar
frammi fyrir þeirri staðreynd
að þeir eru búnir að missa mjög
marga leikmenn yngri flokka
sinna yfir i önnur félög og er út-
séö að félagið geti ekki sent
fram liö i yngri aldursflokkun-
um sem standa nú uppi
þjálfaralausir, þar sem þeir
þjálfarar sem hafa þjálfað
flokkana undanfarin ár eru
farnir frá félaginu.
Aðeins 3-4 mæta á æf-
Ástandiö er það sama hjá
meistaraflokki Ármanns sem
leikur i 2. deild. Nokkrir sterk-
ustu leikmenn liðsins eru farnir,
eða þá búnir að ákveða að
leggja skóna á hilluna. Enn hef-
ur ekki verið ráðinn þjálfari fyr-
ir Ármannsliðið og á þær æfing-
ar sem hafa veriö að undan-
förnu hafa aðeins 3-4 leikmenn
mætt. Ástandið er þvf uggvæn-
legt hjá Ármanns-liðinu, þegar
stutt er I Reykjavikurmótiö og
keppnina i 2. deild.
Þaö grátlegasta við þetta er,
að það eru nokkrir menn sem
reyna að klóra i bakkann, þar
sem þeir reyna að loka augun-
um fyrir þeirri staðreynd að
knattspyrnan hjá Ármanni er
að lognast út af. Þessir sömu
menn vita það vel, en þrátt fyrir
það reyna þeir ekkert að gera
til að rétta úr kútnum. Þvf leng-
ur sem þeir loka augunum, þvi
alvarlegra verður málið þvf að
það fer að verða of seint fyrir
Ármenninga að draga flokka
sina úr keppni. Það er mjög
slæmt ef forráðamenn félagsins
vakna ekki upp af Þyrnirósar-
svefninum fyrr en búið er að
ganga endanlega frá niöurrööun
iReykjavikur-og íslandsmótið i
knattspyrnu. Ármenningar ætla
kannski að senda liö fram i
keppni sem eru æfingalaus?
Eins og málin standa i dag hjá
Ármanni, þá bendir allt til, að
knattspyrnudeildin verði lögð
niöur, enda ekki hægt að halda
deild gangandi ef engir menn
fást til að stjórna og þegar útséð
er að Ármann hefur misst mik-
ið af mönnum að undanförnu,
sem hafa haldið merki félagsins
á lofti.
Stjórn KSI verður að
skerast í leikinn
Þegar að þessu er gáð, vaknar
sú spurning hvort aö stjórn KSÍ
sjái sig ekki tilneydda að bianda
sér I málið og fá það á hreint,
hvort Ármenningar ætla sér að
taka þátt I islandsmótinu I sum-
ar og þá hvað félagið kemur til
með að senda marga flokka til
keppni. Éf Ármenningar senda
ekki liö i 2. deildar keppnina, þá
verður nú fljótlega að láta leika
um það sæti, sem losnar þá i
deildinni. Stjórn KSt veröur þvi
að ganga úr skugga um það
fljótlega, hvað Ármenningar
ætla að gera.
JENS JENSSON.... einn af leikmönnum Ármannsliösins (t.h.) sem
hafa skipt um félag. Jens hefur gengið iFram. Hér á myndinni sést
hann I baráttu við Magnús Torfason, Völsungi sem hefur nú aftur
gengiö i ráðir Keflvikinga.
Myndin sýnir unglingalandsliðið, en það er skipað þessum unglingum: — Garöar, fararstjóri, Siguröur,
Jóhann, Kristin, Broddi og Friörik.
U nglingalandsliðið í
Kaupmannahöfn
— þar sem NM-mótið í badminton hefst á morgun
Björt framtíð sundíþróttar
innar:
Metaregn
— á sundmóti Ármanns
Unglingalandslið islands í
badminton er nú komið til
Kaupmannahafnar, þar
sem það tekur þátt i Norð-
urlandamóti unglinga, sem
hefst þar á morgun.
Unglingalandsliðið hélt utan sl.
mánudag og hefur það dvalizt hjá
ýmsum félögum i Danmörku, til
aö undirbúa sig sem bezt fyrir
NM-mótið. — Það er mjög mikil-
vægt fyrir unglingana að fá að
spreyta sig við Dani fyrir NM,
sagöi Garöar Alfonsson, farar-
stjóri landsliösins, en hann sagöi
að Danir væru nú meðal beztu
badmintonleikara heims og ungl-
ingastarf þeirra hefur veriö frá-
bært. — Okkar unglingar fá tæki-
færi til að fylgjast með þessu
starfi og etja kapp við alla efni-
legustu badmintonleikara Dana.
Unglingalandsliðiö er skipað
okkar beztu unglingum, sem nú
eru komnir i fremstu röð
badmintonspilara okkar. Liöið er
skipað þessum unglingum, Sig-
urði Kolbeinssyni, Jóhanni
Kjartanssyni, Kristinu Kristjáns-
dóttur, Brodda Kristjánssyni og
Friöriki Arngrimssyni.
Sundfólk okkar var heldur bet-
ur i vigamóöi á sundmóti Ár-
manns i Sundhöllinni — þar fuku
islandsmetin hvert á fætur öðru.
Þórunn Álfreösdóttir setti tvö
glæsileg met og þar að auki var
hún I boðsundsveit Ármanns sem
setti met I 4x100 m skriösundi en
sveitin synti vegalengdina á
4:32.9.
Þórunn tryggði sér afreksbikar
mótsins, þegar hún setti met I 200
m fjórsúndi er hún synti vega-
lengdina á 2:43.3 minútum. Þá
setti hún einnig met i 100 m flug-
sundi — 1:09.4 min. Sonja Hreiö-
arsdóttir setti met 1200 m bringu-
sundi — synti vegalengdina á
2:51.2 mfn.
Alfreð Alfreðsson —- bróðir Þór-
unnar setti met i 400 m fjórsundi
er hann synti á 4:59.4 min. Þá
setti karlasveit Armanns met I
4x100 m fjórsundi, meö því að
synda vegalengdina á 4:23.0 min.
Unga sundfólkiö okkar lét sitt
ekki eftir liggja. Guðný Guöjóns-
dóttir úr Ármanni setti telpnamet
i 200 m fjórsundi — 2:40.8 min.
Ungir Selfyssingar settu einnig
----------------------
DALY TIL
DERBY
Derby keypti í gær-
kvöldi leikmanninn
Gerry Daly frá
Manchester United, á
tvö hundruð þúsund
sterlingspund.
v_________ y
met. Hugi Harðarson setti
sveinamet í 400 m fjórsundi —
5:30.0 min og Steinþór Guðjóns-
son setti drengjamet I 50 m skrið-
sundi, þegar hann synti vega-
lengdina á 26.3 sek. Eldra metiö
var 9 ára gamalt sett af Finni
Garðarssyni 1968 — 26.6 sek.
Það er greinilegt, aö það er
bjart. framundan hjá sundfólki
okkar, og það er óhætt að segja að
aldrei hefur sundiþróttin verið á
eins mikilli uppleið og einmitt nú.
\
Islend-
ingar
mæta
Tékkum
tslendingar sigruðu Hol-
lendinga (26-20) i HM-keppn-
inni i handknattleik i Austur-
ríki I gær.
Þeir mæta þvi Tékkum, sem
töpuöu (21-24) fyrir Svium, i
keppninni um þriöja sætið I
undankeppninni.
Markhæstu leikmenn is-
lenska liösins I gær voru Geir
Hallsteinsson, sem skoraði 7
mörk Jón Karlsson, meö 6 (5)
og Axel Axelsson, sem skoraöi
5 mörk.
Austur Þjóöverjar sigruöu
Spán (21-15) en þegar þetta
var skrifaö höfðu ekki borizt
fregnir af úrslitum i leik Búlg-
ara og Frakka.