Tíminn - 18.03.1977, Blaðsíða 1

Tíminn - 18.03.1977, Blaðsíða 1
Áætlunarstaðir: Bildudalur-Blönduóc Búðardalbi Flateyri-Gjögur-Hólmavík Hvammstangi-Rif-Reykhólar Sigluf jörður-Stykkishólmur Súgandaf jörður Sjúkra- og leiguflug um allt land Simar: 2-60-60 oa 2 fn-6é WmSSSSBSnamm SAAIÐJUVEGI 66 Kópavogi — Sími 76-600 Sjaldgæf sjðn að sjá bifreiö liggja á hliðinni i Lækjargötu. Þö gerðist það f gær þegar þrjár bifreiðir lentu þar i árekstri og eru tvær þeirra nær ónýtar eftir. — Tfmamynd Gunnar. Lögreglan fær ekki vinnufrið fyrir forvitnum borgurum HV-Reykjavik. — Tvær bif- reiöar nær ónýttust og hin þriöja skemmdist nokkuö i höröum árekstri, sem varö á mótum Lækjargötu, Hafnar- strætis og Hverfisgötu i gær. Areksturinn varö meö þeim hætti aö Toyota-bifreiö var ekiö suöur Lækjar'götu, aö gatnamótunum og áleit bif- reiöarstjórinn sig vera á aöal- braut. 1 sömu svifum korri bif- reiö úr Hafnarstrætinu, Sun- beam, og skullu þær saman með þeim afleiöingum aö Toyota-bifreiðin snerist á göt- unni og lenti á staurum sem þar liggja, þannig aö hún stöövaðist á hliöinni. öku- maöur Sunbeam-bifreiöarinn- ar missti vald á ökutæki sinu, þannig aö þaö kastaöist á bif- reiö af Volvo-gerð, sem var kyrrstæö viö gatnamótin, hélt þaöan áfram i boga suður Lækjargötuna, og hafnaöi á ljósastaur. Mikiö tjón varö á Toyota- bifreiöinni og Sunbeam-bif- reiðinni einnig, þannig aö þær eru báöar nær ónýtar eftir. Þaö fréttnæmasta viö atvik þetta er þó efrtil vill ófriður sá sem varö á slyststaö af völdum forvitinna borgara. Lögreglumaður, sem kom á slysstaö, sagöi fréttamanni Tlmans i gær aö ekki heföi veriö vinnufriöur fyrir fólks- mergöinni, sem drifiö heföi aö — Þaö versta viö þetta er, sagöi lögregluþjónninn, aö þaö eru ekki krakkar eöa ungling- ar sem valda okkur mestum vandræöum, heldur rigfull- oröiö fólk, sem veöur um allt eins og heimarikir hundar og svarar skætingi ef viö biöjum þaö aö færa sig úr staö, þannig aö viö getum unniö - segir kaupandi Tímans frá upphafi vega — Ég hef keypt Timann frá upphafi vega og allt fram á þennan dag. Ég var tvftugur piltur, þegar byrjað var aö gefa hann út, og nú er ég aö veröa áttræöur. Þetta sagöi Einar Eyjólfs- son, fyrrum bóndi i Vatns- skarðshólum I Mýrdal i nær þrjá áratugi — en sveit þeirra, sem byrjuöu aö kaupa blaðið, þegar þaö kom fyrst út, gerist nú þunnskip- uö eins og eðlilegt er. — Maöur var talsvert kappsamur I þá daga, sagöi Einar. Ég var ungmennafé- lagi, og við, unga fólkið, þráöum framfarir, menntun og betra og réttlátara þjóðfé- lag. Ræktun lands og lýös — þaö var kjöroröiö. Þaö var oft hart barizt um þjóðmálin i Vestur-Skafta- fellssýslu á meöan ég var þar, og oft hlakkaöi fólk til þess aö sjá, hvernig tekið yröi i strenginn i Timanum, ekki sizt þegar kosningar voru i vændum og úrslitin tvisýn hjá okkur. Enga grein held ég að ég hafi þó geymt til langframa nema Stóru bombuna, sem liklega er frægasta stjórn- málagrein aldarinnar — greinina, sem Jónas frá Hriflu skrifaði, þegar Helgi á Kleppi kvað upp þann úr- skurð hann væri geðveikur. Þessa grein átti ég lika þar til á siðasta ári, aö hún fór meö bókum minum, sem ég gaf frænda minum austur i Landakoti. Penninn hans Jónasar — hann átti ekki sinn lika. Þeir hinir höfðu lit- iö aö gera undir vopnin hans, „Geymdi þó ekkert nema Stóru bombuna” Einar Eyjólfsson frá Vatnsskarðshólum — i sextfu ár hefur hann lesiö Tfmann, en nú er svo komiö aö hann veröur aö nota gleraugu. — Timamynd: Gunnar. Samningar um jarðstöð undirritaðir: Landssíminn yfirtaki hana eigi síðar en 1992 HV-Reykjavik—I dag veröa undirritaöir samningar milli Landssima tslands annars vegar og Stóra Norræna simafélagsins hins vegar, um kaup uppsetningu og rekstur á jaröstöö, sem gegna á simaskiptum Is- lands viö umheiminn. Samkvæmt samningi þess- um mun Stóra Norræna leggja fram sem nemur þrem áttundu hlutum þess fjár sem þarf til kaupa og uppsetningar á stööinni, en það samsvarar sem næst þeim tiu milljónum danskra króna sem félagiö haföi áður lýst sig reiöubúiö til aö leggja i lagningu nýs sæ- strengs milli Færeyja og ts- lands. Landssimi Islands mun svo leggja fram fimm áttúndu hluta fjárins. Varðandi rekstur stöövar- innar og tekjur af henni er i samningunum gert ráö fyrir aö Stóra Norræna haldi áfram rekstri sæsima- strengs sins milli tslands og Skotlands, og er ákveöiö i samningnum aö til þess aö félagiö hafi eölilega nýtingu á honum og eölilegar tekjur, miöaö viö samningana um strenginn, aö i byrjun fari tuttugu og fjórar simarásir um strenginn, tuttugu og fjórar um jarðstöðina, en siöar, þegar jaröstööin stækkar og strengurinn nýt- ist ekki lengur, veröi félag- inu tryggöur afrakstur af tuttugu og fjórum rásum, þó aldrei minni en sem nemur tiltekinni upphæö. A móti kemur ákvæöi, þess efnis, aö fari tekjur þess upp fyrir þetta mark eitt ár, þá komi þaö til frádráttar hiö næsta, þannig aö lágmarks- tekjurlækki þá sem þvi nem- ur. Ariö 1985 þegar samningurinn um sæstreng- inn rennur út, verður tslendingum heimilt aö kaupa Stóra Norræna út úr jaröstööinni og eignast hana aö fullu. Ef sá kostur veröur ekki tekinn, gengur félagiö út i ársbyrjun 1992, þegar stööin veröur aö fullu af- skrifuö, þá án þess aö kaupa þurfi híut þess. Aætlaö er i dag aö kostnaöur viö jaröstööina veröi tæplega einn mill- jaröur króna. Til þess aö auðvelda uppsetningu hennar og auövelda samninga viö Stóra Nor- ræna, hefur nú verið lagt fram frumvarp á Alþingi, þar sem gert er ráö fyrir aö felldir veröi niöur tollar, söluskattur og vörugjald af stööinni,og tækjum sem flutt eru inn tilhennar og auk þess að félagiö um rekstur hennar veröi skattlaust. Um þaö er nánar fjallaö á þingsiöu 1 dag. á—... ■■■■' a ' "R11CC2Q1* T^Q VI í JLli UðiSClil f JL-áCMjXJLJLJL nor QnQtiiroY*Í£ii* iC!r jJcÆJL JL \f JL J c&JL — mótherjar íslands i HM-keppni

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.