Tíminn - 18.03.1977, Blaðsíða 15

Tíminn - 18.03.1977, Blaðsíða 15
Föstudagur 18. marz 1977 15 Handel/ Alicia de Larrocha leikur á pianó Enska svitu i a-moll nr. 2 eftir Bach. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Ben Húr" saga frá Krists dögum eftir Lewis Wallace Sigur- björn Einarsson þýddi. Astráður Sigursteindórsson les (3). 15.00 Miðdegistónleikar Filharmoniusveitin i Vin leikur Slavneska dansa od. 46 nr. 1, 3 og 8 eftir Dvorák: Fritz Reiner stjórnar. Erika Köth, Rudolf Schock og fleiri syngja með kór og hljómsveit þætti úr „Meyja- skemmunni” eftir Schu- bert: Frank Fox stjórnar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn Vignir Sveins- son kynnir. 17.30 (Jtvarpssaga barnanna: „Systurnar i Sunnuhlíö” eftir Jóhönnu Guðmunds- dóttir, Ingunn Jensdóttir leikkona les (3). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Þingsjá Umsjón: Nanna (Jlfsdóttir. 20.00 Planókonsert nr. 2 i B- dúr op. 83 eftir Brahms Richard Goode, sigurvegari I Klöru Haskil pianókeppn- inni 1973 leikur meö Suisse Romande hljómsveitinni: Jean Marie Auberson stjórnar. — Frá svissneska útvarpinu. 20.45 Myndlistarþáttur i umsjá Þóru Kristjáns- dóttur. 21.15 Kórsöngur Sænski út- varpskórinn syngur ung- versk þjóölög. Söngstjóri: Eric Ericson. 21.30 (Jtvarpssagan: „Blúndu- börn” eftir Kirsten Thorup Nina Björk Árnadóttir les þýöingu sina (15). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiusálma (35) 22.25 Ljóðaþáttur Umsjónarmaöur: Njörður P. Njarðvik. 22.45 Afangar Tónlistarþáttur sem Asmundur Jónsson og Guöni Rúnar Agnarsson stjórna. 23.30 Fréttir. Einvigi Horts og Spasskýs: Jón Þ. Þór lýsir lokum 9. skákar. Dagskrár- lok kl. 23.55. sjónvarp Föstudagur 18.mars 20.00 Fréttir og veður. 20.25. Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Skákeinvigið. 20.45 Prúðu leikararnir. Gestur leikbrúðanna i þess- um þætti er söngkonan Lena Horne. Þýöandi Þrándur Thoroddsen. 21.10 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. Umsjónar- maður ómar Ragnarsson. 22.10 Atvikið við Uxaklafa (The Ox-Bow Incident) Bandarlsk biómynd frá ár- inu 1943. Aðalhlutverk Henry Fonda og Dana Andrews. Myndin gerist i „villta vestrinu” árið 1885. Þær fréttir berast til smá- bæjar, að bóndi úr nágrenn- inu hafi verið myrtur. Þar sem lögreglustjórinn er fjarverandi, vilja allmargir bæjarbúa leita morðingjann. uppi og taka hann af lifi án dóms og laga. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 23.25 Dagskrárlok. Hættulegt ferðalag eftir AAaris Carr hennar, að hún stóð aðeins og starði á hann í nokkrar sekúndur án þess að geta svarað. Það var heldur ekki hægt að reiðast þessu því greinilegt var að hann vildi vel. Honum hafði þótt mjög vænt um föður hennar og vildi gera sitt bezta til að forða henni frá hættum og freistingum. — Þakka yður fyrir, sagði hún loks. — Ég vil gjarnan hjálpa til hérna. Ef það er í lagi, kem ég hérna í fyrra- málið, þegar opnað verður —Gotf. Hann brosti til hennar um leið og hann stóð upp. — Viljið þér afsaka mig núna? Ég hef verk að vinna i skurðstof unni. Ég býst þá við yður i fyrramálið. Júlía sat uppi í rúminu og leit óvenju vel út, þegar Penny kom inn. Það leit út f yrir að Vincent hefði rétt að mæla.— Þú lítur Ijómandi út, Júlía. Erallt í lagi? — Já, sannarlega. AAér líður sérlega vel núna. Vin- cent segir að ég geti farið heim á morgun. Júlía leit íbyggin á Roy— Bragð mitt heppnaðist, ekki satt, Roy? — Ég varð að láta þig um það, Júlía. Ég veit ekki hvernig mér hefði annars tekizt að komast hingað, svaraði Roy og leit á Pennýju svolítið afsakandi. — Ég spurði AAikeótal sinnum, hvort ég gæti fengið nokkurra daga f rí, en hann lét sem hann heyrði það ekki. Ég gat ekki sagt honum raunverulegu ástæðuna f yrir því að ég vildi komast hingað, svo þess vegna skrifaði ég Júlíu og bað hana að finna eitthvert ráð. Penny starði f urðu lostin á Júlíu, sem brosti geislandi brosi. — Ég gabbaði ykkur öll, ekki satt? Þú getur þakkað mér að Roy er kominn. AAike hefði aldrei lofað honum að koma hingað ef hann hefði vitað réttu ástæðuna. — Ég geri ráð fyrir að ég eigi að vera þakklát, sagði Penny efins. — En ég vildi heldur, að hægt hefði verið að koma því í kring á annan hátt. — Kærðu þig kollótta um hana, Júlía, sagði Roy, og brosti breitt. — Penny er svo vönduð innst inni, það er afskaplega indælt, en ekki sérstaklega hagnýtt. Til- ' gangurinn helgar meðalið, það hefur alltaf verið mín skoðun. — En það getur ekki verið alvara þín Roy sagði Penny og gat tæpast leynt vonbrigðum sínum. — Þú getur bæði sært f ólk og valdið því tjóni með þvi Júlía og Roy skiptust á snöggu tilliti og Penny sá að svo virtist sem Júlía hefði gaman af þessu. — Nú jæja. Það má hver hafa sína skoðun. Við höfum ekki framið neinn glæp, sagði hún kæruleysisiega. Penny sat þögul. Þau hafa að minnsta kosti farið á bak við alla hér, hugsaði hún og leið ónotalega. Þau hugsuðu greinilega ekkert um að starfsfólkið í sjúkra- skýlinu hafði þurft að leggja á sig mikið aukastarf og AAike hafði eytt miklum tíma í að bíða og þóknast Júlíu á ýmsan hátt. En þetta var allt búið og gert, svo hún gat ekkert gert til að breyta því. Júlía hafði gert það til að hjálpa Roy, en kom jafnframt upp um slægð sem Penny geðjaðist ekki að. Þessi kvenmaður hikaði tæp- ast við að ganga nokkuð langt til að fá vilja sínum framgengt og það skipti hana augsýnilega engu máli þótt hún træði á öðrum. Skyldi Roy vera þannig gerður lika, hugsaði hún, en kæfði þá hugsun strax. Hún gerði honum ef til vill rangt til. — Ég vissi ekki að þið Roy hefðuð skrifazt á þegar þú komst hingað, sagði Júlía og fitlaði við blómin á nátt kjólnum sínum.— Ef ég hefði bara vitað það, hefði éq getað róað þig með því að hann væri í grenndinni. Þig hlýtur að hafa langað mikið til að hitta hann. — Ég vissi ekki einu sinni hvað hann hét, svo ég gat ekki margt aðhafazt í málinu, svaraði Penny. — Þetta var heimskulega gert af Roy, en honum datt aldrei í hug að þú kæmir til Tigero. En þar sem þú ert komin hingað, skal ég hjálpa ykkur eins og ég get. Ég varð svoánægð, þegar AAike kom með bréfið f rá Roy og þá f annst mér ég verða að gera eitthvað strax. Ég vissi að AAike vildi ekki gefa Roy frí þar sem samningur hans er bráðum útrunninn og AAike myndi finnast tímanum sóað. — Sannleikurinn er nú sá, að hann vill ekki lyfta litla fingri til að gera mér greiða, sagði Roy og það var beiskja ?röddinni. — Sá maður fyrirlítur mig. Ég veit ekki hvers vegna, en hann hef ur verið andvígur mér al- veg síðan ég kom hingað. Júlía brosti móðurlega til hans. — Það er þér sjálf um að kenna. Þú hugsar aldrei. Það er svo sem ágætt að segja allt í hreinskilni, en það er hins vegar varasamt, þegar yfirmaður manns á í hlut. AAike er fyrirtak, ég veit alveg hvernig á að meðhöndla hann. — Það gegnir öðru máli með þig, Júlía. í fyrsta lagi er hann hrif inn af þér og í öðru lagi f innst honum hann þurfa að vernda þig. Hann nýtur þess. Honum finnst þægilegt að vera gjafmildur og góðhjartaður, einkum þegar hann getur hagnazt á því líka. Græn augu Júlíu glömpuðu af hlátri. — Þú verður að læra að fara þér hægar. Roy. Svona yfirlýsingar geta eyðilagt allt fyrir þér. Penny gæti haldið að þú værir afbrýðisamur í garð AAikes. Júlía sagði ekki meira, en leit rannsakandi á alvarlegt andlit Pennýjar. — Ég mundi ekki bíða of lengi ef ég væri í þínum sporum, Penny. Það er ekkert sem kemur í veg f yrir að þú gift- ist. Roy strax. Samningur hans við félagið rennur út eftir viku, þannig að AAike mun ekki senda hann aftur upp eftir. — Vertu róleg, Júlía! Ekkert liggur á, greip Roy f ram í, þegar hann sá að Penny varð vandræðaleg. — Við er- um varla farin að kynnast almennilega. Sjálfur er ég ekki í neinum vafa, en Penny þarf lengri tima. — Það er bara kvenleg hlédrægni, sagði Júlía stríðnislega.— Auðvitað vill hún ekki láta líta svo út sem hún sé of áköf. En ég þori að veðja að hún hefur þegar tekið ákvörðun. Þú átt að taka hana með trompi. Konur vilja innst inni, að karlmenn séu ákveðnir í svona málum. — Ekki ég, sagði Penny og brosti. — AAér þykir það leitt, Júlía en þú verður að fara þér hægar við að koma okkur saman. Við höfum nægan tima. Hún dró djúpt andann og leit á Roy sem sat með mæðusvip. — Hvað ætlarðu að gera, þegar þú hættir hér? — Fá mér eitthvað annað að gera, býst ég við. En það er undir þér komið, Penny. Þess vegna er það, sem Júlía er svona ýtin. AAig langar frekar til að þér geðjist að þeim stað, sem ég kem til með að setjast að á. — Vandræði að Roy skuli ekki eiga neina peninga, sagði Júlía hreinskilin. — Hann langar til að koma sér upp eigin fyrirtæki einhvers staðar. — Einmitt. Útf lutningur, það er hlutur sem borgar sig. Þar eru til margar greinar, sem væru athyglis- verðar. — En hvað um læknisfræðina. Þú sagðist hafa áhuga á henni. Langar þig ekkert til að halda áfram á því sviði? — Það er orðið of seint, held ég, svaraði Roy og leit ástúðlega til hennar. — Auðvitað hef ég mikið gagn af því, sem ég lærði af föður þínum. En ég gæti ekki hugsað mér að setjast aftur á skólabekk. Það væri in- dælt að setjast að á einhverjum góðum stað, einkum ef „Ætlar þú að láta hana sleppa með þetta”? Geymið ábætinn fyrir mig.” DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.