Tíminn - 18.03.1977, Page 5
Föstudagur 18. marz 1977
5
Svanlaug Árnadóttir,
hjúkrunarfræöingur, formaöur
Hjúkrunarfélags islands.
Fulltrúa-
fundur
Hjúkrun-
arfélags-
ins
FULLTROAFUNDUR
Hjúkrunarfélags islands var
haldinn f Reykjavik dagana 11. og
12. marz s.l. Daginn fyrir full-
trúafund var kjörfundur á skrif-
stofu félagsins og var kosinn nýr
formaöur f staö Ingibjargar
Helgadóttur, sem ekki gaf kost á
sér til endurkjörs. Formaöur til
þriggja ára var kosin Svanlaug
Árnadóttir hjúkrunarfræöingur,
en þrir félagsmenn voru i kjöri.
Samkvæmtlögum félagsins átti
fulltrúafundur að kjósa 2 fulltrúa
i stjórn og tvo i varastjórn. Þar eö
fleiri gáfu ekki kost á sér var
sjálfkjöriö i stjórn að þessu sinni.
Stjórn félagsins skipa nú:
Svanlaug Arnadóttir, formaður,
Anna S. Stefánsdóttir, Sigriöur
Einvarösdóttir, Fanney Frið-
björnsdóttir, Björg Olafsdóttir,
Þuriður Backmann og Gyða
Thorsteinsson. Varastjórn: As-
laug Björnsdóttir, Maria Gisla-
dóttir, Helga Snæbjörnsdóttir,
Pálina I. Tómasdóttir, Dórothea
Sigurjónsdóttir, Jóna Valgeröur
Höskuldsdóttir.
Fulltrúafundurinn samþykkti
einróma ályktun, þar sem lögð er
áherzla á þaö, að landsmönnum
beri öllum skylda til aö taka virk-
an þátt I umhverfisvernd, og mót-
mælt er öllum áætlunum stjórn-
valda um stóriðju á Islandi, sem
valdið geti mengun á lofti, landi
og legi.
• •
Paöerumvið
SAMSOI.ll
BRAIJÐ
E ins taklingar verulega
afskiptir í lánakerfinu?
— sparifé þeirra fimmtíu og þrír milljardar, lán til þeirra tæpir þrettán
milljarðar
HV-Reykjavik. — Við
Treystum okkur ekki til að
svara þvi til með beinum orð-
um að einstaklingar séu veru-
lega afskiptir i útlánum lána-
stofnana, það er banka, en
hins vegar getum við bent á,
að samkvæmt hagtölum þeim,
sem komu út um siðustu ára-
mót, voru spariinnlán I bönk-
um og sparisjóðum, sem ætla
má aö séu að mestu frá
einstaklingum komin, samtals
53.5 milljarðar króna, en á
sama tima voru útlán til ein-
staklinga ekki nema 12.9
milljarðar króna, sögðu þeir
Baldvin Tryggvason, spari-
sjóðsstjóri, og Jón G. Tómas-
son, formaður stjórnar Spari-
sjóðs Reykjavikur og ná-
grennis, á blaðamannafundi,
sem sparisjóöurinn boðaði til I
gær, i tilefni þess, að nú eru
liðin rétt um f jörutiu og fimm
ár frá þvi hann tók til starfa.
— Sem peningastofnun höf-
um við þá sérstöðu, sögðu
Baldvin og Jón ennfremur i
gær, að við lánum eingöngu til
einstaklinga og nær eingöngu
til húsbygginga, Ibúðakaupa
eða endurbóta á ibúða-
húsnæði.
Við teljum að sparisjóðurinn
gegni þýöingarmiklu hlut-
verki á þessu sviöi, raunar
þýðingarmeiru en við höfðum
gert okkur grein fyrir. Þegar
við fórum til þess aö taka
saman eins konar kynningar-
lesningu fyrir þennan fund,
duttum við niðurá þaö, að þótt
hlutur okkar i heildarlánveit-
ingum alls bankakerfisins til
einstaklinga á öllu landinu sé
aðeins rúmlega átta af
hundraði, þá er hlutur okkar
að lánum til einstaklinga á
starfssvæði sparisjóðsins, það
er I Reykjavik, Kópavogi og
Selt jarnarnesi, rúmlega
sextán og hálfur af hundraöi,
og hlutur okkar af lánum til
ibúðamála einstaklinga á
þessu svæði um tuttugu og
átta af hundraði, eöa rúmlega
fjórðungur. Við höfðum alls
ekki gert okkur grein fyrir þvi
hvað við vorum stórir fyrr.
Annars er það með helztu
áhugamálum okkar núna, að
útvega okkur með einhverju
móti fé til aukinna lána til
þeirra, sem vilja endurbæta
eldri ibúðir. Þróunin undan-
farin ár hefur verið sú, að
eldri hverfi hafa tæmzt, nýrri
hverfi aftur risið ákaflega
hratt. Þetta teljum við að
mestu leyti komið til vegna
rangrar stefnu húsnæðismála-
stjórnar, sem lánar svo miklu
minna til kaupa eða endurbóta
á eldri ibúðum en til nýrra
ibúða (2.7 milljónir til nýrra,
hámark 450 þús. til eldri).
Þetta vildum við fá að leið-
rétta, með þvi að lána til
endurbóta i auknum mæli.
Við höfum reifað þetta mál
nokkuð við Seðlabankann og
ein hugmyndin er sú, að við
fengjum að taka lán i Seðla-
bankánum, allt að jafnvirði
þess sparifjár sem við sam-
kvæmt reglum verðum að
hafa bundið þar, sem eru um
þrjú hundruð milljónir króna,
með tryggingu i þeim bundnu
innistæðum. Siðan fengjum
við að lána þetta fé til endur-
bóta á eldra húsnæði, en með
þessu móti gætum við lánað
fimm hundruð einstaklingum
sex hundruð þúsund krónur
hverjum.
Þetta er þó engan veginn
komið nálægt framkvæmda-
stigi og búast má við aö hljóð
heyrðist úr horni hjá þeim at-
vinnuvegi, sem setið hefur að
þessu bundna sparifé,—