Tíminn - 28.05.1977, Page 27
iiiiimuu
Laugardagur 28. mal 1977
27
toppnum hjá mér til frambúöar.
Carl Palmer-hliðin er stórfin
að flestu leyti, t.d. „L.A.
Nights” og „Food for your soul”
en kaflinn úr „The scythian
suite” Prokofieff’s likar mér
ekki i þessum flutningi. Að
mörgu leyti gefur þessi plötu-
hliðin bezta mynd af hinum
gömlu góðu ELP ásamt fyrra
verkinu af siðustu hlið. Svo er að
sjá aö Palmer sé ónæmastur
þeirra félaga fyrir nýbreytn-
inni. T.d. endurflytur hann hiö
gamla og stórgóða „Tank” eftir
hann sjálfan og Emerson.
Og þá er komið að siðustu
plötuhlið, en þar eru þeir allir á
feröinni saman og fara stórkost-
lega af staö með verkinu „Fan-
farefor the common man”, eitt-
hvert bezta verk þeirra frá upp-
hafi, sannkallaður ELP-djass.
Um siöara verkiö „Pirates”
treysti ég mér ekki til þess að
fara svo lofsamlegum orðum.
Þar gætir nokkurrar sundur-
geröar og texti, lag og söngur
falla að minu mati tilfinnanlega
illa saman.
Þrátt fyrir veikburða tilraun-
ir minar til að vera gagnrýninn
er þessi plata sannast að segja
ekki aöeins undantekning frá
popp-reglunni, hún er ekki siöur
undantekning hvað gæðin snert-
ir. Vestanhafs hefur hún þegar
fengið stimpilinn — sigilt
meistaraverk — og þar um bæti
ég ekki betur. Þess vegna kem-
ur ekkert minna en 5+ til
greina.
„Bestu verk”: „Piano
concerto No. 1”, „Fanfare for
the common man”, „Cést la
vie”, „L.A. Nights”, „Lend
your love to me tonight”,
„Tank”. —kj
Frábærir ELP
— klassiskt meistaraverk
Emerson, Lake & Palmer —
Works
Atlantic K80009/FACO
Piano Concerto No. 1: First
movement: Allegro Giojoso:
Second movement: Andante
Molto Cantabile: Third move-
ment: Toccata Con Fuoco. —
Hvort sem þú trúir þvi eða ekki
er þetta fyrsta verk hins nýja
albúms Emerson Lake og
Palmer: „Works” (Volume 1).
Þetta verk, Píanókonsert nr. 1
eftir Keith Emerson spannar
fyrstu plötuhlið af fjórum. Að
sjálfsögðu leikur Emerson
sjálfur á planóið (Steinway) og
honum til aðstoðar er hvorki
meira né minna en FIl-
harmonluhljómsveit Lundúna -
borgar undir stjórn hins vlö-
kunna: John Mayer. Útsetningu
önnuðust Keith Emerson og
John Mayer.
A annarri hlið plötunnar eru
tónsmlöar eftir Greg Lake og
Peter Sinfield. Lake leikur á
klassiskan gítar og syngur, hon-
um til aðstoðar er lltil hljóm-
sveit og kór.
Þriðja plötuhliö er á nafni
Carl Palmer, og er þar aö finna
tónsmíðar eftir sjálfan hann,
Emerson, Bach o.fl. Palmer
leikur á slagverk, að sjálfsögðu,
og ýmsir tónlistarmenn honum
til aðstoöar, m.a. Emerson, Joe
Walsh, Andy Hendriksen og
John Timperley.
Á fjóröu og slöustu plötuhlið
eru þeir allir saman: Emerson
Lake og Palmer. Hér er að finna
tvö verk, annaö eftir Aaron Cop-
land og flutt af ELP. Hitt er eftir
Emerson, Lake og Sinfield, út-
sett af Emerson og John Mayer,
söng annast Greg Lake. Til að-
stoðar er óperuhljómsveit
Parisarborgar, stjórnað af God-
frey Salmon.
Hér er þvl ekki á ferðinni
„popp-plata” I venjulegum
skilningi þess orðs en viö á
Nú-TImanum viljum þó geta
hennar og gagnrýna af veikum
mætti.
Um planókonsert Emerson er
það helzt að segja, aö hann er
frábær á slnu sviði og leikur
Emerson, að vonum, magnað-
ur, á köflum kannski of
magnaöur. Þaö sem einkum
vekur mann til umhugsunar um
tónverk þetta er hversu „klass-
Iskt” það er. Maður spyr sjálfan
sig hvort Emerson geri rétt i
þessari vendingu frá poppneyt-
endum yfir i heim sigildrar tón-
listar. Er hann kannski að reyna
að sanna eitthvaö? Ég leyfi mér
að efast um hvort þetta er rétt
skref þrátt fyrir stórkostlegan
árangur. Hafi hann ætlaö aö
sanna hæfni sina á þessu sviði
hefur honum þó svo sannarlega
tekist það.
Þáttur Greg Lake er athyglis-
verður að mörgu leyti. Mér sýn-
ist hann fara ööruvisi aö I
meginatriöum en félagi hans
Emerson. Enda þótt tónlistin sé
hljóöfæralega klassisk er hún I
anda nútimatónlist, I poppræn-
um skilningi, sem stórgóður
gitarleikur Lake undirstrikar.
Aldrei hef ég heyrt sllka sam-
hljómun klasslskrar hljóm-
sveitar og gltars, né sllkri
hljómsveit beitt á jafn töfrandi
hátt til aö yúlka tónviöhorf
slagaraeinkenni (sem hefur
ákveðiö markmið) held ég t.d.
að lagiö „C’est la vie’ verði á
Þá er RJÓMA-
MYSUOSTUR og
MYSUOSTUR ofar-
lega á vinsældalistanum hjá öllum
aldursflokkum enda ekki að furða því
mysuostar eru næringarrík fæða,:,
innihalda m.a. járn, kalsíum, prótín
og vítamín.
ostur eykur orku -léttír lurtd
vimr uumunnu
Við köllum mysuostana okkar
„vini“ barnanna að gefnu tilefni.
Yngsta fólkið er hrifíð af MYSING-
NUM og gerir honum góð skil, þegar
færi gefst. Og nú er MJÚKUR MYSU-
OSTUR á boðstólnum og eru vinsældir
hans þegar miklar.
j