Tíminn - 07.06.1977, Blaðsíða 8
8
Þriðjudagur 7. jilnl 1977
Hvítasunnukappreiðar Fáks
Elzti knapinn
74 ára, sá
yngsti llára
Sigurvegarar i báöum flokkum
eru afburða glæsilegir hestar, og
hlutu sömu meðaleinkunn, 8,84,
sem er frábær árangur. Einkunn-
ir þeirra sundurliðaöar voru
þannig:
ögri Brjánn
Tölt: 8,6 8,8
Viljiogmýkt: 8,8 8,6
Fjölhæfnioghlýðni: 8,7 9,0
Fegurðireið: 8,9 9,1
Yfirferðargangur: 9,2 8,8
Meðaleinkunn:
8,84 8,84
ögri, sigurvegarinn I A-flokki,
er 7 v. brúnstjörnóttur, frá Skipa-
læk i Múlasýslu. Hann er undan
Svip 384 og Ekkjufellsbrúnku.
Ragnar Hinriksson átti ögra og
tamdi hann, en hefur nú selt Gisla
B. Björnssyni. Ragnar þjálfaði
hestinn fyrir þetta mót, og sat
hann þar. ögri er gammvakur, og
á trúlega eftir að láta að sér
kveöa á hlaupabrautunum. 1 ööru
sæti var Stokkhólma-Blesi, sem
Reynir Aðalsteinsson sat og á i fé-
lagi við Halldór Sigurðsson. Blesi
er 7 v. fjölhæfur og mikiö taminn
gæöingur frá Stokkhólma I
Skagafirði, undan Rauö 618 og
Nótt. „Þessi hestur er heilaþveg-
inn” heyröi ég nærstaddan áhorf-
anda segja, þaö er sjálfsagt of-
mælt, en mér finnst hann mætti
vera glaðlegri. Blesi fékk 8,54 I
meðaleinkunn. Þriðji varð Garp-
ur, 7 v. brúnn, frá Oddsstööum i
Borgarfirði. Eigandi Höröur G.
Albertsson, knapi Eyjólfur Is-
ólfsson. Einkunn 8,42.
Brjánn sigraöi nú i flokki klár-
hesta með tölti, og var vel að sigr-
inum kominn. Ég hef áöur lýst þvi
hve hrifandi fagur hestur Brjánn
er, enda ber einkunn hans fyrir
fegurði reið þess vott. Hreyfingar
hans bera vott tign og mýkt.
Brjánn er 7 v. brúnstjörnóttur frá
Sleitustöðum i Skagafirði, undan
Þokka frá Viðvik og Brún frá
Sleitustöðum. Höröur G. Alberts-
son á hestinn, en Sigurbjörn
Bárðarson sat hann. Þokkadis
var i öðru sæti, með einkunnina
8,66. Þokkadis er gullfögur
hryssa, meö háa og fagra fótlyft-
ingu og vel setin. Þriðja sætið
hreppti Tritill, 7 v. brúnn frá
Leirulækjarseli, Mýrarsýslu, und
an Brún frá Leirulæk og Jörp.
Eigandi Gunnar Steinsson, knapi
Birgir Gunnarsson. Einkunn 8,44.
Þaðer augljóst, af úrslitunum, aö
árgangurinn frá 1970 hefur veriö
sérstaklega góöur, einkum brúnu
hrossin, þvi öll þau sex, sem skip-
uöu efstu sætin eru 7 vetra, og öll
brún nema eitt.
Sigurður Haraldsson á Kirkju-
bæ stjórnaöi gæðingadómum, en
hann hefurlagtmikiðaf mörkum,
til geröar þess dómkerfis, sem nú
erfgildihjáL.H.,hefurog manna
mesta reynslu I stjórnun gæö-
ingadóma og hefur enda kennt
flestum eða öllum dómurum, sem
aö gæðingadómum starfa, til
verka. Ég spjallaði stutta stund
við Sigurð, og spuröi hann fyrst
um gæðinga þessa móts. Hann
sagöi að gæðingarnir hefðu yfir-
leitt verið góðir, og gleðilegast
væri hve skeiö væri I mikilli
framför, en hann hefði búizt við
Sigurvegarar i A-flokki gæðinga. Lengst tii vinstri er Ragnar á ögra, þá koma Reynir á Stokkhólma-
Blesa, Eyjólfur á Garpi, Sigurbjörn á Gými og Þorvaldur Þórvaidsson á Fáfni. .
Hvitasunnukappreiöar Fáks
hófust á nýstárlegan og skemmti-
legan hátt, aö þessu sinni. Allir
verðlaunaðir gæðingar félags-
manna, sem til náðist, voru sýnd-
ir. Þetta nýmæli kunnu áhorfend-
ur vel aö meta, og vissulega er
skemmtilegt aö rifja upp liðin
mót með þvi aö skoða þaö sem
þar sást glæstast. Allt voru þetta,
og eru enn, góöir gæöingar og
sumir afburðahestar. Hver man
ekki hlaupagamminn Þyt, eöa
vekringinn Hroll, sem sýndi að
þrátt fyrir sin 24 ár, getur hann
enn þrifið vel til skeiðsins. Og
enginn, sem hefur séð snillinginn
Núp fara á kostum, gleymir hon-
um. Hjalti Pálsson þulur kallaði
hann augnayndi, þaö er ekki oflof.
Núpur var ekki þjálfaöur fyrir
þessa sýningu, var raunar litið
notaöur I vetur, en þó er slikur
glæsileiki og höfðingsskapur yfir
öllum hreyfingum hans, að eng-
um dylst, að þar fer gæöingur i
sérflokki. A Landsmótinu á Vind-
heimamelum 1974, fékk Núpur
9,24 i meðaleinkunn. Við lauslega
athugun finn ég ekki aö nokkur
hestur hafi fyrr eöa siðar fengiö
jafn háa einkunn. Núpur er frá
Kirkjubæ, undan Núpakotsblesa
og Eldingu, gæöingamóöur af
Svaðastaðastofni. í sambandi við
sýningu eldri gæðinga var Sigurði
Ólafssyni veittur bikar I viður-
kenningarskyni fyrir áhuga hans
og störf i þágu skeiösins. Sigurður
sat hest fyrst á kappreiöum árið
1931, en tiu árum siöar sat hann
vekring fyrst á móti. Þaö mun
hafa verið Perla frá Gufunesi.
Arið 1948 sat hann Glettu sina I
metspretti, það met stóð I 28 ár.
Menn voru farnir að halda aö
metið, sem var 22,6 sek., yrði ekki
bætt.
Næst voru kynntir fimm efstu
gæðingar i hvorum flokki, en þeir
voru dæmdir á laugardeginum.
Brjánn, bezti hestur i B-flokki, knapi er Sigurbjörn Bárðarson.
Ilér leggur Ragnar Hinriksson Gretti sinn i gæöingakeppninni. Fyrir
þennan sprett fengu þeir hæstu einkunn, sem gefin hefur verið fyrir
skeið á I'áksvelli, 9,4. Núpur hefur einn hesta hlotið hærri einkunn fyrir
skcið, það var á Landsmótinu 1974.
::SS|€
„Gömlu” snillingarnir, frá
vinstri Gunnar Reinartsson á
Neista, 17 v. hlaut 3. verðl. á
Fjórðungsmóti á Egilsstööum
1968 og viðurkenningu hjá Fák
1971, Ingi Lövdal á Garpi, 15
v., stóð efstur i B-flokki hjá
Fák 1971 og á Skógarhólamóti
sama ár og enn á Fjórðungs-
mótinu á Hellu 1972. Leifur
Jóhannesson á Grana, 24 v. 1.
verðl. hjá Fák 1967 og 1968, á
Skógarhólum 1969 og 3. verðl.
á landbúnaðarsýningunni 1968
Sigurður ölafsson á Hrolli, 24
v. Hrollur var i 5. sæti alhliða
gæði.nga á Landsmótinu i
Skógarhólum 1970, hann er
sonur Giettu, sem átti islands-
met i skeiði i 28 ár og var
sjálfur ósigrandi á skeið-
vöilum landsins i áraraðir.
Snúlla Einarsdóttir á Völsung,
22 v. 3. verðl. hjá Fák. 1969.
Jóhann Friðriksson á Grána,
19 v. var efstur hjá Fák og i
Skógarhóium 1970. Þekktastur 1
er hann þó trúlega sem reið-
skjóti Lénharðs fógeta i sam-
nefndri kvikmynd. Gunnar
Tryggvason og Eitiil, 14 v. 1.
verðl. i A-flokki 1972 hjá Fák.
Guðrún Fjeldsted á Þyt, þeim
fræga hlaupara, sem nú er 21
v. Hann hlaut 2. verði. á
landbúnaðarsýningunni 1968.
Þá kemur Sigurfinnur Þor-
steinsson á Núp. Núpur er nú
16 v. og á að baki frábæran
feril I gæðingakeppnum, hann
var dæmdur bezti alhliða
gæðingur hjá Fák þrjú ár i
röð, 1969, '70 og ’71, annar á
Skógarhólamóti 1968, þriðji á
landsmóti 1970, efstur á
Fjórðungsmóti á Hellu 1972 og
endaði keppnisferil sinn með
frábærum sigri á Landsmóti
1974, þar fékk hann hæstu
einkunn sem gæöingur hefur
hlotið til þessa. Siðastur er
Gunnar Eyjólfsson á Glæsi 17
v. var annar hjá Fák 1969,
þriðji á Skógarhólamótinu
1970 og fékk góða dóma á
Landsmótinu sama ár, þótt
hann næðiekki verðlaunasæti.
A myndina vantar Berg
Magnússon og Kolbak, sem er
19 v. Ilann sigraði tvisvar á
innanfélagsmóti Fáks, og varð
þriðji i B-flokki á Lands-
mótinu 1970.
meiri þátttöku. Siðan spurði ég
um gæðingadóma almennt. Sig-
urður sagði að I undirbúningi væri
stofnun dómarafélags, sem
mundi hafa m.a. á stefnuskrá
sinni, að sjá dómurum fyrir end-
urhæfingu og þjálfun. Dómstiginn
væri nú i endurskoðun, sagði
hann, og hann vildi hvetja dóm-
ara til aö nota þá möguleika, sem
dómstiginn gæfi, betur en
þeir geröu flestir. Ein-
kunnastigann 5- 10 ætti að nota
allan, og hann taldi miður, hvað
margir dómarar væru tregir til
aö dæma út fyrir bilið 7-8,5 sagði
Sigurður að lokum.
Eins og fyrr sagði, hófst mótiö
meö sýningu „gömlu snilling-
anna”, en að lokinni keppni A og
B flokka gæðinga, kom önnur, og
ekki þýðingarminni nýjung,
keppni „ungu snillinganna”, þ.e.
gæðingakeppni þar sem knapar
voru yngri en 16 ára. Þaö var
mjög timabært aö unglingarnir
fengju að spreyta sig og sýna
hvað I þeim býr, þvi unglingurinn
i dag er afl morgundagsins. Ég
veit ekki hverjir dæmdu i keppni
unglinganna, — dómar fóru fram
á laugardeginum — en mér hefur
stundum oröið hugsaö til keppni
af þessu tagi, og þá Imyndaö mér,
að vel væri viö hæfi að ungir dóm-