Tíminn - 07.06.1977, Side 24
28644 H'j.mil 28645
fasteignasala öldugötu 8
Fasteignasalan sem sparar hvorki
tima né fyrirhöf n til að veita yður sem
; bezta þjónustu
Sölumaður: Finnur Karlsson Valgarður Sigurðsson
V****** heimasími 4-34-70 lögf ræðingur ^
HREvnu.
Sfmi 8 55 22
brnado
áburðardreifari
góð vinnslubreidd
nákvæmar stillingar
einnig fyrir sáningu
Guöbjörn Guöjónsson
Heildverzlun Siöumúla Z2
Simar 85694 & 85295
Veitingahúsafólk í verkfalli i fyrsta skipti:
VERKFALLSÁTÖK Á
NOKKRUM STÖÐUM
mynd: Gunnar.
Gsal-Reykjavik — Til nokkurra
verkfallsátaka kom I Reykjavfk
á föstudaginn viö tvo niatsölu-
staöi, Skrlnuna og Brauðbæ, og
einn veitingastaö, Sesar. Fór
svo aö iokum, aö verkfalisvörö-
um frá Félagi starfsfólks í veit-
ingahúsum tókst aö loka Brauð-
bæ og Sesar, en samkomuiag
tókst viö eigendur Skrinunnar
eftir aö starfsiiöi hafi veriö
fækkaö þar veruiega.
Aö sögn Kristins Hrólfssonar,
formanns Félags starfsfólks I
veitingahúsum, tók fólkiö I fé-
laginu virkan þátt í verkfallinu
— þess fyrsta i sögu félagsins —
en hins vegar létu atvinnurek-
endur þeirra fjölskyldumeölimi
sina ganga inn i störf fólksins og
þurftu verkfallsveröur félags-
ins, sem voru á annaö hundraö
talsins þegar mest var, aö hafa
afskipti af fjölmörgum matsölu-
og veitingastöðum.
Kristinn sagöi, að eigendur
tveggja matsölustaða heföu
veriö mjög stirfnir og til lltils-
háttar átaka heföi komiö á báö-
um stööunum. Verkfallsverðir
rööuöu sér fyrir dyr matsölu-
staðanna, en jafnframt var
reynt aö komast aö samkomu-
lagi viö eigendur. Þaö tókst
hvaö Skrinuna áhrærir, en þar
var starfsliöi fækkaö um fjóra.
Þvermóöskan var enn meiri i
Brauðbæ, en þar var eigandinn,
sem er ómenntaöur í greininni,
viö vinnu ásamt fjölskyldumeö-
limum. Sagöi Kristinn aö staön-
um heföi verið lokaö eftir aö
eigandinn haföi kallaö til lög-
fræöing sinn sem ræddi viö
verkfallsveröi. Viö Brauöbæ
urðu átökin mest að sögn Krist-
ins og þar skaddaöist kona sem
var i verkfallsvörzlu á baki.
Kristinn sagöi, aö félagiö gæti
beitt refsingu viö eigendur þess-
ara staöa, sem væri fólgin i
stöövun á öllum aöflutningi á
hráefni til þeirra. Sagöi Kristinn
aö forystumenn Dagsbrúnar
hefðu lýst stuðningi sfnum viö
aðgeröir þessar, ef til kæmi, en
félagið myndi ekki grlpa til
þessara aögeröa aö svo komnu.
— A laugardagsmorguninn
gengum viö á fund sáttasemj-
ara og sömdum um 2,5% i sér-
kröfur og viö teljum aö atburöir
dagsins áður hafi átt þátt i
hversu fljótt sérkröfurnar voru
samþykktar, sagði Kristinn.
— Viðreyndum aö fara að lög-
um og forðast átök, en verk-
fallsbrotin voru mörg og margir
eigendur ósamvinnuþýðir. Til
dæmis vissum við um verkfalls-
brot i Sesari, þar sem húsnæðið
hafði verið þrifiö áöur um dag-
inn, og staðurinn var opnaöur
um kvöldið. Við lokuöum þarna
á milli kl. 21 og 23, en málinu
lauk með þvi, að eigendur stað-
arins undirrituðu skjal, þar sem
þeir báðust afsökunar á þvi að
hafa brotið verkfallið. Það var
að okkardómi mikillsigur að fá
þessa afsökunarbeiðni undirrit-
aða þvi þetta er fyrirtæki, sem
hefur siglt fram hjá félaginu,
eins og svo mörg önnur fyrir-
tæki, þar sem starfsfólk heyrir
undir okkar starfsgreinar.
Kristinn nefndi ennfremur ó-
tvirætt verkfallsbrot i Öðali, og
ennfremur grun um verkfalls-
brot I Þórscafé og Glæsibæ, þar
sem unglingar undir lögaldri
munu hafa verið við störf viö
inngang og i fatahengi. Allir
þessir þrir staðir voru opnir á
föstudagskvöldið.
— Þessi frumraun okkar I
verkfalli gaf ágæta raun hvað
snertir okkar félagsmenn, en
hins vegar þarf eflaust að fara
30 ár aftur i timann til þess aö
finna hliðstæðu hvað snertir
háttarlag atvinnurekenda okkar
sem margir hunzuðu okkar
verkfallsrétt. En stéttarvitund
okkar félagsmanna er að auk-
ast, og við erum sannfærðir um
það að þetta tekst betur næst, ef
til þess þarf að koma, sagði
Kristinn Hrólfsson að lokum.
Sjá frekari fréttir af verkfall-
inu i Reykjavlk bls. 2.
Rauðsendinga vantar
ennþá tilbúinn áburð
JB-Reykjavík — Lambavatn er
einn af sex bæjum á Rauðasandi I
Rauðasandshreppi og býr þar
Tryggvibóndi Eyjólfsson. Tfminn
haföi samband við Tryggva og
spuröist tiðinda úr sveitinni.
Tryggvi sagði, að heidur kalt
heföi veriö hjá þeim undanfarna
daga. Vorið væri að visu komiö,
en það hefði kólnað aftur. — Vor-
störfin hafa gengið misjafnlega,
það strandar alit á áburöinum.
Eitthvaö af honum er komiö, en
vegna yfirvinnubannsins höfum
við ekki enn fengið þaö, sem á
vantar og ég veit ekki hvenær það
verður. En sauðburðurinn hjá
okkur hefur gengið vel, sagöi
Tryggvi.
Við spurðum Tryggva að þvl,
hvernig það væri að búa á Rauöa-
sandi og svaraði hann því að það
væri ekkert slæmt fyrir þá, sem
væru vanir þessu. — En ég býst
viö, aö óvönum fyndist þeir vera
frekar út úr. Það er þéttbýlis-
kjarni i örlygshöfn og þar er slát-
urhús og kaupfélag, en það er I
fjörutiu kilómetra fjarlægð og yf-
ir f jall að fara og er vegurinn ekki
eins og bezt verður á kosið. Það
kemur mjólkurblll hingað annan
hvern dag frá Patreksfirði og
stundum fáum við vörur með
honum frá kaupfélaginu þar.
þannig aö við skiptum viö bæði
kaupfélögin. Þó leggjum við af-
urðir okkar inn hjá sláturfélaginu
örlygi. Miðað við Vestfirði yf-
irleitt er sveitin hér i kring nokk-
uð grösug og ef ekki eru óþurrkar
eins og undanfarin sumur, gengur
bara vel að heyja fyrir skepnurn-
ar.
Sparisjóður er starfandi I
hreppnum, og hefur verið svo
langa tið. Að sögn Tryggva er
þeir nýbunir að fá nýjar spari-
sjóðsstjóra, en Snæbjörn Thor-
oddsen í Kvigindisdal, stofnandi
hans, var búinn að vera spari-
sjóðsstjóri frá upphafi. Þá sagði
Tryggvi að enginn prestur væri
þjónandi f sókninni og hefði hun
veriðprestlaus frá þvi sr. Grimur
Grimssonfórensr. Þórarinn Þór,
sóknarprestur á Patreksfirði
messar af og til.
Er taliö barst að Sauölauksdal,
sagði Tryggvi að til stæði að hafa
þar barnaheimili i sumar, og
sagði að það væru stúlkur úr
sveitinni a.m.k. ein þeirra fóstur-
menntuð, sem stæöu fyrir þessu.
Sagðist hann halda aö plass væri
fyrir fimmtán til tuttugu og fimm
börn.
Sérsamningar
á Þórshöfn
gébé Reykjavik — Vegna þeirra
erfiðleika, scm verkfall og yfir-
vimiubann hafa valdið atvinnu-
lifi á Þórshöfn, gerði verkalýðs-
félag staðarins samkomulag við
IIraöfrystistöð Þórshafnar og
Þórshafnarhrepp um lágmarks-
laun fyrir verkafólk, og hefur
það þvi afiýst yfirvinnubanni.
Samkomulagið hljóöar upp á, að
verkafólk fái eitt hundrað þús-
und krónur á mánuði fyrir dag-
vinnu. Samkomulag þetta feilur
siðan úr gildi, þegar væntanieg-
ir kjarasamningar ASl verða
gerðir.
Atvinna hefur verið miög
ótrygg á Þórshöfn i vetur, en
þar er gerður út einn skuttogari,
Fontur. Skipið kom með góðan
afla rétt fyrir helgi, og er nú
unnið af fullum krafti að vinnslu
þess afla. Yfirvinna verður unn-
in, þegar þess er þörf til að
bjarga verömætunum undan
skemmdum.
— Það var ekki um annað að
ræða en að komastaðeinhverju
samkomulagi til þess að aflinn
skemmdist ekki, sagði Guðjón
Kristjánsson, starfsmaður
Verkalýðsfélags Þórshafnar við
Timann i gær.
Rætt um bygg-
ingu útvarpshúss
KH-Reykjavik. Nýlega, nánar
tiltekið 26. mai, var tekin fyrir
hjá byggingarnefnd Reykja-
vfkurborgar beiöni Rfkisút-
varpsins um Ieyfi til að byggja
útvarpshús f nýja miðbæ mið-
bænum viö Kringlumýrabraut.
Vilyrði hafði fengizt fyrir lóð á
horni Hvassaleitis, Háaleitis-
brautar og Bústaðavegar, og
mun húsið áætlað sex hæðir,
u.þ.b. 65000 rúmmetrar.
Afgreiðslu málsins I byggingar-
nefnd var frestað.
1 framhaldi af þessu hafði
blaðið samband viö Gunnar
Vagnsson, fjármálalegan fram-
kvæmdastjóra Rikisútvarpsins,
og spurðist fyrir, um hvað liði
framkvæmdasjóði Ríkisút-
varpsins, en honum eru áætlað-
ar 5% af brúttótekjum stofnun-
arinnar, samkvæmt nýjum út-
varpslögum, sem samþvkkt
voru 1971. Sagði Gunnar, að
þetta ákvæði hinna nýju laga
hefði ekki komið til fram-
kvæmda fyrr en áriö 1972. Sfðan
hefði verið greitt reglulega i
sjóðinn, eins og lögin gerðu ráð
fyrir, og næmi hann nú 226
millj. kr., þar af 13 millj. i vöxt-
um. Er.. þá ekki meötalinn
undirbúningskostnaður, sem
þegar hefur farið fram og nem-
ur 29 millj. kr. Áætlaði hann aö
um 600-650 millj. fari i að steypa
húsið upp og ljúka því að utan,
en endanlegt verð væri óvist,
þvi augljóst væri aö allur tækja-
búnaður stofnunarinnar þyrfti
endurnýjunar við. Gunnar sagði
að lokum, að hann teldi enga
annmarka á því aö hefja fram-
kvæmdir siðar á þessu ári, svo
framarlega sem tilskilin leyfi
fengjust frá yfirvöldum. Ríkis-
útvarpið heyrir undir mennta-
málaráðuneytið,
Verkfall eftir
verkfall
gébé Reykjavik — í gær var alls-
herjarverkfall verkalýðsfélag-
anna á Suðurnesjum, og í dag
verða það verkalýðsfélögin á
Norðurlandi, sem fara i verkfali
og á morgun á Vesturlandi. Sið-
asti verkfallsdagurinn er á
fimmtudag, en þá verða alls-
herjarverkföll á Austurlandi og á
Vestf jörðum. Siðan hefjast
starfsgreinaverkföll þann 13. júní
ogstanda til 20. júni — og þann 21.
júni verður allsherjarverkfall um
iand allt.
Tugir þúsunda manna hafa
þegar tekið þátt i dagsverkföllun-
um og hafa þau haft margvisleg
áhrif og óþægindi i för með sér.
Aðalsamninganefnd ASl hefur
samþykkt tillöguna um röð
starfsgreinaverkfallanna og hef-
ur tillagan verið send aðildafélög-
um ASl sem munu taka hana til
athugunarog ákvörðunar á næstu
dögum.
Þann 13. júni fara þessir i verk-
fall: Málm- og skipasmiðasam-
band Islands og þeir téiagar
Verkamannasambands íslands,
sem starfa i fyrirtækjum tengd-
um málmiðnaði. 14. júni: Lands-
samband iðnverkafólks,
Samband byggingarmanna og
þeir félagar Verkamannasam-
bandsins sem starfa i byggingar-
iðnaði. 15. júni:Rafiðnaðarmenn,
bókagerðarmenn, félög í veit-
inga- og hótelrekstri. 16. júni:
Verzlunarmenn. 20. júni: Verka-
mannasambandið i fiskiðnaði,
hafnarvinna, og Landssamband
vörubifreiðastjóra. 21. júni: Alls-
herjarverkfáll i einn dag um land
allt.
Viða úti á landi, þar sem áhrifa
slíkra starfsgreinaverkfalla
myndi gæta litið sem ekki, er i
athugun möguleiki á að fara aðr-
ar leiðir. Þar er helzt hallast að
þvi, að i stað starfsgreinaverk-
falla komi eins dags allsherjar-
verkfall, auk þess sem tekið yrði
þátt i allsherjarverkfallinu 21.
júni'.
Leitað að tvi-
tugum pilti
MÓ-Sveinsstöðum — Ekkert
hefur spurzt til rúmlega tvftugs
pilts frá Blöndnósi frá þvi að-
faranótt laugardags fyrir hvita-
sunnu. Viðtæk lcit hefur veriö
gerð að piltinum og stendur hún
enn. Óskað hefur verið eftir þvf
að nafn piltsins verði ekki birt
að svo stöddu.
Síðast er vitað meö vissu um
feröir piltsins um fimmleytið
umrædda nótt og þá á Blöndu-
ósi, en fyrst á þriöjudag var far-
ið aö óttast um hann. Litill
plastbátur sem lá í fjörunni við
Blönduós þessa nótt fannst rek-
inn út af Skagaströnd I fyrradag
undir Króksbjargi á Skaga-
strönd, fannst önnur árin úr
bátnum. óttast menn að piltur-
inn hafi farið út á bát þessum og
drukknað.
Fjölmennir leitarflokkar hafa
gengið fjörur á degi hverjum
undanfarið og verður leit haldið
áfram.
PALLI OG PESI
— Osaleg kyn-
greining er þetta
hjá Afengisverzl-
uninni, maður.
— Hvaöa kyngrein-
ing er það?
— Kláraviniö, auð-
vitað.