Tíminn - 22.06.1977, Qupperneq 10
10
MiOvikudagur 22. júni 1977
Miðvikudagur 22. júnl 1977
11
ÞRJÁR SÝNINGAR
Vatnslltamynd efttr Jdn Gnnnnrsion.
Slgnrðnr Thoroddaen, verk-
fræðingur
Um þessar mundir
stendur yfir sýning á
verkum Sigurðar
Thoroddsen að Kjar-
valsstöðum, en þar
sýnir hann um 200
myndir. Vatnslita-
myndir, grafik, acryl-
myndir, teikningar og
krit.
Sigurður Thoroddsen er
þjdðkunnur maður af verk-
fræðistörfum sinum og varla er
ráöizti nokkurt stórvirki á land-
inu i virkjunarmálum, án þess
að hann sé haföur meö i ráöum
og þaö fjölefli er með honum
vinnur. Mitt i dagsins önn hefur
hann sinnt myndgerö, stundum
talsvert, stundum minna en
skyldi.
Siguröur er fæddur 24. júli
áriö 1902 og þvi tæplega 75 ára
aö aldri. Foreldrar hans voru
þau frægu hjón Skúli Thorodd-
sen, alþingismaöur og ritstjóri
og Theódóra Thoroddsen, en
þau bjuggu um langt skeiö á
Bessastööum, en þar er
Siguröur fæddur. Síöar áttu þau
heimilii Vonarstræti, þannig aö
lifiö byrjaöi i sveit og bæ.
Siguröur varö stúdent frá MR
áriö 1919 og verkfræöiprófi lauk
hann i Kaupmannahöfn áriö
1927. Cgjörn ingur er aö telja
upp störf hans hér, enda skipta
þau engu máli i þessu sam-
bandi, nema ef vera skyldi til aö
sýna aö islenzkir embættis-
menn, opinberir annamenn og
leiötogar, gætu sinnt listum
meira en þeir gera nú. Maó for-
maður taldi ekki eftir sér aö
yrkja þótt hann stjórnaöi
milljaröi af fólki, sem var aö
byggja nýjan heim fyrir sig.
Hannes Hafstein ráöherra orti,
sama geröu sýslumenn, prestar
og alls konar oddvitar. Nú yrkja
valdamenn ekki lengur, né
heldur embættismenn, og þeir
mála víst litið.
Lifsverk Siguröar Thoroddsen
i myndlist er ekki svo litiö aö
vöxtum. Hann málar mikiö af
vondum myndum aö voru mati,
en sem betur fer dálitiö af
góðum myndum lika. Góöu ein-
tökin eru i öllum flokkum
mynda, góöar teikningar, t.d. af
Ölafi Thors og Jónasi Jónssyni
frá Hriflu. Þá eru á sýningunni
ljómandi góöar vatnslitamyndir
og dúkristur.
Kosturinn viö myndlist
Siguröar Thoroddsen er einkum
sá, aö honum „fer ekkert
fram”.Hann er hinn sami þegar
hann situr viö gluggann i for-
eldrahúsum, 10 ára gamall og
málar næstu hús og þegar hann
rúmlega sextiu árum siöar situr
viö myndgerö I afturelding viö
Vesturbrún. Þess vegna eru
myndir Siguröar persónulegar.
Hann upplifir mótiv sin en klæö-
ir þau ekki eftir Parisartizku.
Sýningu Siguröar lýkur 21.
júni.
Jón Gunnarsson
Jón Gunnarsson sýnir vatns-
litamyndir aö Kjarvalsstööum
dagana 11.-19. júni alls 76
myndir og er myndefni hans
einkum tengt sjó og fiskveiðum.
Þó eru á sýningunni nokkrar
landslagsmyndir. Ef stiklaö er á
stóru um myndefnin þá eru þau
Brotin bátur, Vestanátt, Enda-
bauja, Frá Reykjanesi, Kvika,
Esjan, Uppstilling, t.s.frv.,
Ég hefi ekki áöur séö sýningu
hjá Jóni Gunnarssyni, en dálitiö
hef ég séö af myndum hans. Ég
er sammála þvi áliti listráös, aö
vatns 1 i t amyndir Jóns
Gunnarssonar eru betri en
oliumálverkin (þau sem ég hefi
séö), en ég er hins vegar ósam-
mála tilskipun listráös, aö Jón
megi einvöröungu sýna vatnsliti
á Kjarvalsstööum, en ekki oliu-
málverk.
Bevan sagöi viö brezka
þingiö: Þiö veröiö aö taka mig
eins og ég er, eöa láta mig hætta,
en hann var utanrikisráöherra
og fór persónulegar leiðir. Hann
vildi ekki láta breyta sér neitt I
þinginu.
Sama á aö gjöra á Kjarvals-
stöðum, annaö hvort fá menn aö
sýna þar eöa ekki. Aö meina
ákveönar myndir, er of mikil
miöstýring og jaörar viö
áreitni: jafnvel þótt maöur sé
sammála þvi aö vatnslitir séu
betri en eitthvaö annaö i
farangri listamanna.
A sýningu Jóns Gunnarssonar
eru margar ágætar myndir. 1
þeim er talsvert atvinnulif og
veöurfar. Saltar stemmur frá
hafinu.
Þótt segja megi sem svo, aö
Jón Gunnarsson oftaki sig á
sumu af sinu myndefni, þá er
heildarsvipur sýningarinnar
góöur.
Ragnar Páll i Bogasal
Ragnar Páll Einarsson, er
hálfgeröur útigangsmaöur 1
myndlistinni — þannig séö, aö
myndlistarstjórnmálamenn eöa
Ragnar Páll Einarsson
listpólitikusar hafa visaö honum
frá, hafa haldið honum úti i
kuldanum. Ragnar Páll fékk
ekki aö sýna myndir sinar á
Kjarvalsstööum áöur en allt fór
þar i bál um áriö og hann flutti
myndir sinar i Bogasalinn og al-
menningur svaraöi meö þvi aö
kaupa þær allar i logandi hvelii.
Þaö er fróölegt aö reyna aö
gera sér grein fyrir ástæöunni
fyrir þvi aö myndlist Ragnars
Páls á svo öröugt uppdráttar
hjá myndlistaroddvitunum, þvi
myndirhanseru geröar af ljóm-
andi góöri tækni og kunnáttu.
A hinn bóginn eru ekki allir
sáttir viö þessa myndlistar-
stefnu, aö einvöröungu séu mál-
aöar sætar myndir, einhverjar
glansmyndir, þegar vel stendur
á meö veðurfar. Myndir Ragn-
ar Páls eru' óvenju vel geröar,
og þrátt fyrir rótgróna and-
styggö vissra manna á
realisma, þá tel ég nú aö þeir
hafi skotiö yfir markiö þegar
þeir úthýstu Ragnari Páli um
áriö. Til þess hefur listamaö-
urinn of augljósa hæfileika.
Þaö má hins vegar segja sem
svo, aö nesti þaö sem Jóhannes
Kjarval og Asgrimur Jónsson
létu eftir sig, sé löngu upp étiö
og þvi sé fátt úr aö moöa fyrir
þá sem á þvi hafa ætlaö aö nær-
ast alla ævi.
Ég haföi gaman af aö sjá sýn-
ingu Ragnars Páls og tel hana
bæöi fallega og vandaöa. Þaö er
fróölegt fyrir þá sem fást viö
myndlistarstörf aö skoöa tækni
hans og kunnáttu, en þó veröur
liklega ekki lengra haldiö á
þessari braut. Ragnar Páll
veröur aö finna sér nýjan og
persónulegri farveg, án þess aö
þaö sé svo sem i vorum verka-
hring aö skipa mönnum fyrir.
Leikni og kunnátta er málurum
mikilsverö, og henni fylgir llka
sú ábyrgö aö vinna aö stööugri
framþróun, svo menn deyi ekki
inn i vanann, þar sem menn
keppa aöeins viö sig sjálfan.
Elns og sjá má á myndinni, þá ern ný Ibáðarhás rltln skammt frá árglllnn. An efa mnn áin, glliA
og uppistöðulónið freista barnanna sem leikvangur — og geta þá leiksiokin e.t.v. orðið dapurleg,
ef ekkert er gert til varnar. (timamynd:ATH)
h
Slysagildran
Glerárgil
ATH-Reykjavik. Akureyri er
bær i örum vexti. Þar hafa á
undanförnum árum risið upp ný
hverfi og ungt fólk virðist hafa
áhuga á að setjast þar að. En i
mörg horn er að lita, þegar ný
hverfi eru skipulögð. Nú hefur
verið hafin bygging húsa fyrir
ofan spennistöðina i Glerárgiii,
og ef að líkum lætur, þá verður
þar margt smábarna I náinni
framtið. En ekki hefur verið
gert neitt til að girða af gilið,
sem óneitaniega er mikil slysa-
giidra. Það eru ekki einungis
þverhniptir hamraveggirnir
sem gætu orðið börnunum að
fjörtjóni, heldur er einnig fyrir
ofan spennistöðina stórt uppi-
stöðulón sem án efa mun freista
smáfólksins.
Er Timinn ræddi viö Helga
Bergs bæjarstjóra á dögunum,
þá sagöi hann, aö til stæöi aö
verja lóniö á einhvern hátt, en
ekki stæöi til að gera neitt I
sambandi viö gilið sjálft. — Þaö
tekst aldrei að verja giliö, sagöi
Helgi, krakkarnir prila bæöi yf-
ir giröingar og hliö. Eins og
stendur, þá er ekki farið aö
byggja viö hættulegasta hlutann
af gilinu. Sólborg, vistheimili
vangefinna er þarna rétt hjá og
þyrfti ef til vill aö gera einhverj-
ar ráöstafanir i sambandi viö
vistmenn þar.
Úr Glerárþorpi
Svipmynd af Eyrinni. Þessi hluti bæjarins var byggöur á árunum 1880 tll 1960.
Eltt nýjasta hverfiðer á ytri-brekkunni, en þaöan er þessl mynd
i könnun, er nemendur við
Menntaskólann á Akureyri
gerðu, kemur berlega i ljós
að talsverður munur er á
ibúum einstakra hverfa á
Akureyri og virðast þeir
skiptast i ólika hópa eftir
aldri hverfanna. Þau atriði
sem einkum og sér i lagi
vekja eftirtekt lesandans eru
m.a. eftirfarandi: Fólk sem
kaupir ibúðjr i elztu hverfun-
um er oftar lágtekjufólk og
sjaldnar hátekjufólk en fólk
sem kaupir ibúðir i nýju
hverfunum. Þeir sem hafa
miklar tekjur eru tiltölulega
fámennir i elztu hverfunum.
Fólk sem býr i yngstu hverf-
unum virðist njóta betri
iánafyrirgreiðslu, þ.e. skuld-
ar yfirleitt meira, en fóik i
elztu hverfunum. Kaupendur
eldra húsnæðis hafa yfirleitt
áttáður heima i sama hverfi.
Fólk sem kaupir Ibúðir i
elztu hverfunum er á svipuð-
um aldri og fóik sem kaupir
ibúðir i yngstu hverfunum.
Barnlaust fólk og einhleypt
er tiltölulega fleira I elztu
hverfunum en i þeim yngstu.
,, Stéttlausa’ ’ stéttaþj óðfélagið
ATH - R eykjavik. Viö
islendingar höfum löngum
hreykt okkur af þvi að hér rikti
stéttlaust þjóðfélag. Sem betur
fer þá rikir hér á landi ekki
svipaður ójöfnuður og viða i ná-
grannalöndunum, en þvi fer
fjarri að mannlifiö hér sé svo
sem margir viija vera iáta. Þvi
miður hafa ekki verið gerðar
itarlegar kannanirá þessu sviði
hér á landi, en þau gögn sem
fyrir liggja nú þegar, ættu að
vera ráðamönnum nægjanlegur
leiðarvisir, hafi þeir yfirleitt
áhuga á að breyta þróuninni.
Það er opinbert leyndarmál,
aö búseta fóiks skiptist á hverfi
eftir efnahag. t Reykjavik til að
mynda, býr efnaminna fólk
gjarnan i gamla bænum og i á-
kveðnum hlutum Breiðholts-
hverfa. A Akureyri hins vegar
þá býr þaö fólk á Eyrinni og i
innbænum. Um þetta segir svo I
norrænu menningarkönnuninni
sem gerð var á Akureyri á árun-
um 1974-75: „Svo virðist sem
hátekjustéttirnar, atvinnurek-
endur og opinberir starfsmenn,
séu einkum i nýrri hverfunum i
bænum. Einkum er skiptingin
skýr i Lundunum, Byggðun-
um og syðri brekkum. Faglærð-
ir verkamenn sem margir
hverjir hafa ekki lakari tekjur
en atvinnurekendur og
embættismenn búa einkum i
Gerðunum, Lundunum og Völl-
unum og einnig i Glerárhverfi
austan Hörgárbrautar.
Athyglisvert er hve fáir at-
vinnurekendur og opinberir
starfsmenn eru á Oddeyri og i
Glerárhverfum. Stéttaskipting
cftir hverfum virðist þannig
vera tiltölulega skýr á
Akureyri.”
,, Stéttaskiptin gin”
könnuð nánar
Þó svo aö gott starf hafi veriö
unniö meö norrænu menningar-
könnuninni, vantaöi mikiö uppá
að verkinu yröi lokiö. Henni var
ekki ætlað aö rannsaka mismun
á ibúum hverfanna og siöastlið-
iö haust könnuöu þvi nokkrir
nemendur i félagsfræöideild
Menntaskólans á Akureyri
þessa stéttaskiptingu nánar.
Aöalheiöur E. Jónsdóttir og
Anna Þ. Ingólfsdóttir geröu at-
hugun á aðalbyggingartima
hverfanna sem gengiö haföi
veriö út frá I norrænu menn-
ingarkönnuninni og I leik- og
starfskönnun, sem gerö var
snemma á sJ. ári. Siöan rann-
sakaöi Anna útsvarsgreiöslur
fólks i þessum hverfum áriö
1976 en Aöalheiöur kannaöi
flutninga fólks innan bæjarins,
hvaöan fólk flutti og hvert áriö
1975 og fyrri hluta árs 1976. Hún
takmarkaöi rannsókn sina viö
þá sem höföu keypt ibúöarhús-
næöi eöa byggt og flutt í þaö á
þessum tima. Jafnframt safnaöi
hún upplýsingum um aldur fólks
og útsvarsgreiöslur. Nanna
Rögnvaldsdóttir rannsakaöi
fjölskyldustærö og gerö I
hverfunum.
Bæjarhverfunum á Akureyri
var skipt i fjóra flokka til aö-
greiningar, þ.e.: Hverfi A:
Geröi, Lundir — Hverfi B:
Byggöir, Glerárhverfi — Hverfi
C: Brekkur, Mýrar, Vellir —
HverfiD: Innbær, gamla Eyrin,
miöbær. Elzta hverfiö er inn-
bærinn, en hann byggðist upp á
árunum 1880 til 1930. Yngstu
hverfin eru Geröin og Lundirn-
ir. Uppbygging þeirra hverfa
hófst I byrjun þessa áratugar og
er enn ekki lokið.
Hátekjufólk býr eink-
um i nýjustu hverfun-
um
I töflu yfir útsvarsgreiöslur
gjaldenda á Akureyri eftir bú-
setu 1976, kemur i ljós að gjald-
endur meö undir 150 þúsund
krónur i útsvar eru i miklum
meirihluta i hverfi D. Flestir
þeir sem greiöa yfir 150 þúsund
búa i nýjustu hverfunum. í nýj-
ustu hverfunum býr sem sagt
þaö fólk sem hefur hæstar tekj-
urnar en lágtekjufólkiö er til-
tölulega flest i elztu hverfunum.
Sé litiö á skiptingu þeirra út-
svarsgjaldenda, sem greiöa
hæst og lægst útsvar, þá kemur i
ljós aö 33% gjaldenda i A-hverf-
unum greiða minna en 100.000
kr. i útsvar en 63% gjaldenda i
D-hverfunum. 1 A-hverfunum
búa 17% gjaldenda en aöeins
11% þeirra sem greiöa minna en
100.000 kr. i útsvar og 33%
þeirra sem greiða meira en
250.000 kr. (vergar tekjur meiri
en kr. 2.750.000)
Algengt að fólk flytji
innan hverfanna
Séu teknir til athugunar flutn-
ingar fólks i nýju hverfin á
Akureyri, kemur sú athyglis-
veröa staöreynd i ljós að fólk
flytur mikiö innan þessara nýju
hverfa. Þegar undan er skilinn
flutningur fólks i þessi nýjú
hverfieralgengast aö fólk flytji
innan sama hverfis. Greinilegt
er að ibúar elztu hverfanna
flytja sizt i nýju hverfin heldur
flytja þeir i þær ibúöir sem
losna i elztu hverfunum. Þar
sem stúlkurnar fjalla um i
ibúðakaupendur segja þær, aö
þeir séu fáir i lægsta tekju-
flokknum nema helzt þeir sem
kaupa ibúðir i elztu hverfunum.
Hins vegar eru kaupenduráber-
andi margir i hæsta tekju-
flokknum. Alykta þær þvi, aö
engra breytinga sé aö vænta i
þvi aö ibúar Akureyrar skiptist i
hverfi eftir stéttum. Heldur
muni þróunin veröa i þá átt aö
skilin milli hátekjufólks og lág-
tekjufólks veröi æ skýrari.
Fyrir þá sem eiga bágt meö aö
trúa þvi sem á undan er komiö,
má geta þess a^upplýsingar úr
norrænu menningarkönnuninni
renna enn styrkari stoöum und-
ir þessar skoöanir. Þar kom
fram aö ibúar nýju hverfanna
skulda til muna meira en ibúar
eldri hverfanna, einkum ibúar
hinna elztu. Varpað er fram
þeirrispurningu,hvort þeirsem
hafa hæstar tekjurnar fái jafn-
framtbeztu lánafyrirgreiösluna
sem gerir þeim kleift að komast
i nýjasta og bezta húsnæöiö. En
ekki fara nemendurnir neitt
nánar út i þaö atriöi, enda ekki
tilgangur þeirra.
I töflu yfir aldursskiptingu
þeirra sem keyptu eöa byggöu
ibúðarhúsnæöi á Akureyri áriö
1975 og fyrri hluta árs 1976, sést
að meira en helmingur þeirra
sem keyptu ibúöir eru undir
þritugu. Svo viröist sem tiltölu-
lega margt fólk eldra en þritugt
flytjist I B og C hverfin en til-
tölulega sjaldgæft er aö fólk yfir
fertugt kaupi ibúö i elztu hverf-
unum.
Galleri Suöurgötu 7.
Erlend
myndlist í
Gallerí
Sudurgötu 7
Kás-Reykjavik. Laugardagiim 18.
júni opnuöu tveir Þjóöverjar Jan
Voss og Johannes Gauer,
Hollendingurinn Henriette Egten
og Bandarikjamaöurinn Tom
Wasmuth, myndlistarsýningu I
Galleri Suöurgötu 7. Mun þessi
sýning vera liöur i viöleitni
gallerisins til aö kynna tslending-
um erlenda myndlist. I fréttatil-
kynningu, sem blaöinu hefur bor-
izt frá aðstandendum gallerisins
segir, aö hér sé á feröinni fram-
sækiö fólk i myndlist og veröi for-
vitnilegt um aö litast á sýning-
unni.
Sýningin stendur yfir til 3. júli
og er opin 4-io virka daga en 2-10
um helgar.
1 j jjjjjljj I 1
Sjúkrahólal RauAa krossina •ru á Akurayrí og i Raykjavík. RAUÐIKROSSISLANDS