Fréttablaðið - 19.02.2006, Blaðsíða 2
2 19. febrúar 2006 SUNNUDAGUR
HÁSKÓLI ÍSLANDS
26. FEBRÚAR
NÁMSKYNNING Í HÁSKÓLA ÍSLANDS
www.hi.is
ÞÝSKALAND, AP Tæplega 30 fuglar
til viðbótar hafa greinst með hina
banvænu fuglaflensu á eyjunni
Schwerin í norðurhluta Þýska-
lands. Alls eru tilfellin því orðin
41 þar í landi.
Fylgst verður vandlega með
eyjunni á næstunni til að koma í
veg fyrir að flensan breiðist út.
Fyrsta fuglaflensutilfellið
greindist í dauðum svönum og
í erni á eyjunni Rügen í Þýska-
landi á dögunum. Enn hefur engin
manneskja smitast af fuglaflensu í
Þýskalandi. Hins vegar hafa rúm-
lega níutíu manns látist af völdum
sjúkdómsins í Asíu og Tyrklandi á
undanförnum þremur árum. - fb
Fuglaflensa í Þýskalandi:
Sýktum fuglum
fjölgar stöðugt
SÝKTIR FUGLAR Vísindamenn halda á
pokum með sýktum fuglum sem fundust á
eyjunni Rügen í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÓÐAÚTBOÐ Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík,
segir það ganga gegn markmiðum
útboðsreglna að einn maður, Bene-
dikt Jósepsson, hafi átt hæsta tilboð
í allar einbýlishúsalóðir við Úlfars-
fell nema eina. „Markmiðið var
að gefa einstaklingum, sem væru
að byggja yfir sig, tækifæri til að
bjóða í lóðirnar. Það eru fyrirvarar
í útboðsskilmálunum sem gera ráð
fyrir því að hægt sé að endurskoða
samninginn. Ég geri ráð fyrir því
að við munum skoða þessi mál strax
á morgun því það er augljóst að það
gengur gegn markmiðum útboðsins
að sami einstaklingurinn sé með
hæsta tilboð í 39 af 40 tilfellum.“
Byggingafyrirtæki höfðu ekki
leyfi til þess að bjóða í einbýlis-
húsalóðirnar. Benedikt, sem er eig-
andi fyrirtækisins ByggBen ehf.,
bauð því í lóðirnar í eigin nafni.
Benedikt segir það vera ein-
kennilegt ef til-
boð hans verða
ekki samþykkt,
þar sem hann
fór að öllum
útboðsreglum.
„Það kemur mér
verulega á óvart
ef Reykjvík-
urborg ákveð-
ur að grípa til
aðgerða. Ég tel
mig hafa farið
að öllum settum
reglum. Ég geri
mér grein fyrir
því að það er erfitt að gera öllum til
geðs.“
Benendikt segir ennfremur að
um mikið hagsmunamál sé að ræða
fyrir hann og fyrirtæki hans, Bygg-
Ben ehf. „Þetta er að sjálfsögðu
mikið hagsmunamál fyrir mig og
mitt fyrirtæki. Ég bý í grennd við
þetta hverfi og hef sterkar skoðan-
ir á því hvernig skipulagsmálum á
þessu svæði skal háttað. Það kemur
mér verulega á óvart ef það verður
ekki fallist á mín tilboð og ég trúi
því hreinlega ekki að það verði nið-
urstaðan.“
Reykjavíkurborg fær rúma fjóra
milljarða fyrir lóðirnar við Úlfars-
fell sem í heild eru 120 talsins.
Gert er ráð fyrir því að rúmlega
400 íbúðir muni rísa á lóðunum.
Heimilt er samkvæmt útboðs-
skilmálum að bjóða í fleiri en eina
lóð og hafa þeir, sem hæsta tilboð-
ið eiga í hverja lóð, leyfi til þess
að framselja byggingaréttinn á
lóðinni. Reykjavíkurborg hefur þó
forkaupsréttinn ef byggingarrétt-
urinn er framseldur.
Gert er ráð fyrir því að lóðirnar
verði orðnar byggingarhæfar í nóv-
ember á þessu ári.
magnush@frettabladid.is
Kemur til greina að
endurskoða útboðið
Það gengur gegn markmiðum útboðsreglna að Benedikt Jósepsson geti átt
hæsta boð í 39 af 40 einbýlishúsalóðum við Úlfarsfell. Þetta segir Steinunn Val-
dís Óskarsdóttir borgarstjóri. Benedikt undrast viðbrögð borgarstjóra.
STEINUNN VALDÍS
ÓSKARSDÓTTIR Telur
ástæðu til þess að
fara vandlega yfir
útboðsmál að nýju.
Fjórir teknir ölvaðir Lögreglan í
Kópavogi stöðvaði í fyrrinótt fjóra öku-
menn vegna gruns um ölvun við akstur.
Í öllum tilfellum reyndist sá grunur á
rökum reistur.
MYND AF FRAMTÍÐARSKIPULAGI VIÐ ÚLFARSFELL Gild
tilboð i lóðirnar 120 sem boðnar voru út, voru alls 4240
talsins. Rætt verður um það í borgarstjórn á morgun
hvort ástæða sé til þess að skoða útboðin enn betur.
FUGLAFLENSA Áhættumat vegna
fuglaflensu er óbreytt, er nið-
urstaða fundar viðbragðshóps á
vegum embættis yfirdýralæknis.
Hópurinn hélt fund fyrir helg-
ina þar sem farið var yfir þróun
flensunnar undanfarna daga.
Fyrstu niðurstöður úr rann-
sóknum á fuglum sem fundust
dauðir í Danmörku í vikunni benda
til þess að þeir hafi ekki drepist úr
fuglaflensu. Þeir verða þó rannsak-
aðir frekar til að hægt sé að útiloka
fuglaflensuna algjörlega.
Haraldur Briem sóttvarnar-
læknir segir að það hafi komið á
óvart hversu fljótt flensusmit barst
í álftir í Þýskalandi. Fremur hefði
verið búist við tilvikum af þessu
tagi síðar í vor. Hins vegar liggi
flugleið farfugla ljós fyrir. Slóðin
liggi um Grikkland, Austurríki,
Ítalíu og Þýskaland.
Ljóst sé að mjög skæður stofn
hafi lagt þessa fugla að velli.
Greinilegt sé að einhverjir fuglar
séu í góðu sambýli við veiruna og
flytji hana á milli.
Haraldur sagði Landlæknis-
embættið ekki hafa mælt gegn
ferðamennsku til landa þar sem
fuglaflensan hefur komið upp. Á
heimasíðu embættisins eru leið-
beiningar um hvað ferðamönnum
ber að varast í heimsóknum til við-
komandi landa.
jss@frettabaladid.is
Viðbragðshópur yfirdýralæknis á fundi í gær:
Áhættumat er óbreytt
RÓM, AP Ítalski ráðherrann
Roberto Calderoli sagði af sér
í gær eftir að hafa legið undir
mikilli gagnrýni fyrir að klæðast
stuttermabol með teikningum af
spámanninum Múhameð í ítölsku
sjónvarpi.
Að minnsta kosti tíu manns
létust í miklum mótmælum sem
áttu sér stað fyrir utan sendiráð
Ítala í Líbíu vegna ögrandi athæf-
is Calderolis. Hann er liðsmaður í
Norðurflokknum sem er þekktur
fyrir andstöðu sína gegn innflytj-
endum.
Silvio Berlusconi, forsætis-
ráðherra Ítalíu, hefur þegar rætt
vel og lengi við Moammar Gadd-
afi, leiðtoga Líbíu, til að ná fram
sáttum í málinu. Fjöldi þeirra sem
létust í Líbíu er sá mesti í einum
mótmælum síðan mótmælaalda
hófst víða um heim vegna teikn-
inganna. -fb
Ítalskur ráðherra gagnrýndur:
Uppsögn vegna
skopteikninga
DANMÖRK Á þriðja þúsund manns
tók þátt í friðargöngu á Norð-
urbrú í Kaupmannahöfn í gær-
dag. Hverfið er helsta hverfi
innflytjenda í borginni. Mark-
mið göngunnar var að hvetja til
friðsamlegra samskipta milli
fólks með ólíka menningu og
trú.
Það voru nokkur samtök
múslíma í Danmörku sem stóðu
fyrir göngunni. Haft er eftir
einum skipuleggjendanna á
vefsíðu Politiken í gær að gang-
an hafi heppnast vel.
Þó hafi framíköll nokkurra
múslíma farið fyrir brjóstið á
sumum þátttakendum. - ks
Múslímar í Danmörku:
Friðarganga
á Norðurbrú
ROBERTO CALDERONI Ítalski ráðherrann
sagði af sér í gær eftir að hafa sætt mikilli
gagnrýni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
YFIRDÝRALÆKNIR
Eigendur lausa-
göngufugla þurfa að
vera tilbúnir til að
hýsa þá.
Fann hvítt duft í bílum Tvö minni-
háttar fíkniefnamál komu upp í Kópa-
vogi í fyrrinótt. Lögreglan fann lítilræði
af hvítu dufti í tveimur bílum sem nú
er til rannsóknar en líklegt þykir að um
amfetamín sé að ræða.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SAMKEPPNISMÁL Það er lágmarks-
krafa að Ríkisútvarpið dragi sig
út af auglýsingamarkaði, að því er
kom fram í ræðu Þórdísar J. Sig-
urðardóttur, stjórnarformanns
Dagsbrúnar hf. á aðalfundi félags-
ins á föstudag. Þórdís sagði sterk-
ar raddir hafa komið fram með að
frumvarp til laga um Ríkisútvarpið
hf. standist ekki reglur um ríkis-
styrki. Þórdís segir jafnframt ótrú-
legt að þegar fyrirtækið sé í sókn
virðist sem afskipti ríkisvaldsins
eða aðgerðarleysi ætli að reynast
því þrándur í götu.
Páll Magnússon, útvarpsstjóri
Ríkisútvarpsins, telur útgangspunkt
Þórdísar vera þann að í lagafrum-
varpinu um breytingar á lögum um
rekstrarform Ríkisútvarpsins felist
að ríkið sé að setja meiri pening
í reksturinn sem sé ekki raunin.
,,Hún hefur mislesið að það sé ætlun
að bæta við það fé sem ríkið leggur
RÚV til beint eða óbeint.“ Páll segir
það bíræfni að stjórnarformaður
365 miðla, sem ráða yfir um 60%
auglýsingamarkaðar, kveinki sér
yfir miðli sem ráði yfir 13%. Þeim
væri nær að einbeita sér að sínu en
ekki vola yfir þeirri samkeppni sem
þeim sé veitt. - sdg
Dagsbrún vill Ríkisútvarpið út af auglýsingamarkaði:
Ráðandi miðill á ekki að kvarta
RÍKISÚTVARPIÐ 365 miðlar vilja RÚV af
auglýsingamarkaði en útvarpsstjóri segir
þeim að hætta að vola yfir samkeppni.
Þyrsluslys Tvær bandarískar þyrlur
hröpuðu í hafið undan ströndum
Djibouti í Afríku í gær, með tíu hermenn
innanborðs. Tveimur mönnum var bjarg-
að lifandi en yfirvöld vildu ekki greina
strax frá afdrifum hinna átta sem náðust
upp úr sjónum. Rannsókn stendur yfir á
því hvort þyrlurnar urðu fyrir skotárás.
AFRÍKA
SPURNING DAGSINS
Hvernig er það Sigbjörn, er
gott að vera í Sjálfstæðis-
flokknum?
Já, já það er alveg frábært.
Stuðningsmenn Kristjáns Þórs Júlíusson í
prófkjöri Sjálfstæðismanna á Akureyri tóku
sig saman um að kjósa ekki „kratafram-
bjóðendur“. Sigbjörn, sem bauð sig fram
í prófkjörinu, sat eitt sinn á þingi fyrir
Alþýðuflokkinn.