Fréttablaðið - 19.02.2006, Blaðsíða 16
19. febrúar 2006 SUNNUDAGUR16
Það er svolítið áfall að lenda í Quito, höfuðborg Ekvador. Fyrst er það líkamlega áfall-
ið þegar út úr loftþrýstri flugvél-
inni er stigið, því borgin er í um
2.800 kílómetra hæð yfir sjávar-
máli. Þessi mikla hæð veldur því
að líkaminn virðist hafa bætt á sig
eins og tíu kílóum í einni hendingu,
mikill þorsti gerir vart um sig og
ekki alveg laust við svima. Ferða-
langi er snögglega komið í skilning
um merkingu orðsins „þyngdar-
afl“.
Tollverðir taka mér fagnandi
og veita mér gringómeðferð í
gegn um skoðun. Ekkert nema
gott kvöld og allir að þakka fyrir
eitthvað. Fallegasti tollvörður sem
ég hef séð tekur við passanum og
stimplar hann einkar blíðlega með
brosi: „bienvenido a Ecuador, senj-
or“. Ef þetta er þriðji heimurinn
vil ég panta harða kreppu og blóð-
uga byltingu á Íslandi sem fyrst.
Leikvöllur seldra barna
Fyrir utan flugvöllinn er öðruvísi
umhorfs. Betlibörn úti um allt að
selja nammi, bursta skó og hreinsa
bílrúður. Mörg þessara barna
munu vera keypt í ársþrælkun
fyrir um það bil tíu dollara, segir
mér bílstjórinn. Þau eru hér í
umsjá „vinnuveitandans“, meðan
foreldrarnir bíða heima í sveitinni.
Oft láta þó foreldrarnir undan og
fylgja með í borgina, til að selja
nammi á götunum. Börnin virðast
hafa náð að skapa sér sinn eigin
heim, því hér fyrir utan sé ég litla
indjánadrengi í hellirigningunni
skemmta sér við handahlaup á
sjálfri hraðbrautinni. Ég minnist á
þetta við bílstjórann og hann leið-
réttir mig; börnin hafa gefist upp
á snakksölu og hafa breytt sér í
skemmtikrafta í rigningunni. Lög-
reglan hinumegin við götuna bend-
ir okkur á að halda áfram veginn.
Við keyrum í óskipulagðri
hrúgu ódýrra sjálfsmorðsbíla sem
eru að flýta sér framhjá ennþá
óskipulegri hrúgum húsa í öllum
regnbogans litum. Þetta er heill-
andi, a.m.k. fyrir Reykvíking. Því
er þetta ekki frelsið holdi klætt?
Að mega berja sér saman hrörleg-
an ryðkofa við hlið þriggja hæða
glansandi hvítrar bílasölu? Gott að
finna stað þar sem í orðinu „borg-
arskipulag“ felst lítt meira en að
skilja götur frá görðum.
Hér er allt morandi í heima-
tilbúnum heimilum. Hinn fátæki
byrjar á því að negla saman ein-
hverju skronsteri sem heldur
honum tiltölulega þurrum á nótt-
inni og bætir svo við sig, eftir því
sem efni leyfa. Hér og þar eru
meira að segja hálftilbúnar lúxu-
svillur byggðar utanum einn svona
skúr. En þær eru auðvitað undan-
tekningar; fæstir ná því nokkurn-
tíma að tengja rafmagnið.
Með samviskubit í aldingarðinum
Fyrsti morguninn lofar góðu. Á
Hótel Viktoríu er morgunmatur-
inn borinn fram í stórum björtum
sal á þriðju hæð og allur veggur-
inn vestanverður er ein stór rúða.
Útsýnið er ekki af verra taginu.
Risavaxin pálmatré og kirkju-
turnar frá nýlendutímanum, en
hér og þar rísa nýtísku háhýsi upp
úr draumaheiminum, eins og til
að minna á 21. öldina. Smáfuglar
syngja þar til haninn galar og yfir-
gnæfir þá. Á borðinu er ávaxta-
safi sem er of góður til að drekka,
útskornir melónubitar, papaya-
ávextir og jarðarber, hrærð egg
og ótrúlega sæt appelsína, líklega
beint úr gróðurhúsi hótelsins. Allt
þetta kostar 12 dollara fyrir tvær
manneskjur og þykir rándýrt hér
um slóðir. Nóg til að kaupa sér barn
í eitt ár, hugsa ég, og finn hvernig
appelsínan súrnar í munninum.
Á borðinu eru blómin; litrík og
falleg. En eitthvað er ekki rétt.
Jú, þetta eru alvörublóm og ekki
plast! Hálfundarlegt að hugsa til
þess að einhver hafi skroppið út
í morgun og tínt blóm til að setja
hér sem skraut fyrir mig. Ég hefði
vel sætt mig við gamla góða plast-
ið og finnst allt í einu eins og ég
sé ekki nógu góður til að njóta alls
þessa. Eins og ég sé nýlenduherra,
sem ekkert gerði til að fá þau völd,
nema fæðast í Vestur-Evrópu.
Þetta hlýtur að venjast, hugsa
ég, þegar „senjornum“ er boðið
meira kaffi í mestri auðmýkt og
ég rek augun í sirka þriggja kílóa
ávöxt sem er að sliga greinina á
pálmlegu trénu fyrir utan glugg-
ann. Skýin dragast frá og það fer
aðeins að birta í Quito. ■
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00-18.00 og laugardaga kl. 12.00-16.00
SKIPT_um væntingarX-TRAIL ELEGANCE
TILBOÐSVERÐ / SJÁLFSKIPTUR
RÍKULEGUR STAÐALBÚNAÐUR
2.790.000 kr.
NISSAN
Veiðikortið 2006 fylgir
öllum 4x4 Nissan bílum
Öllum Nissan X-TRAIL sem keyptir eru
í febrúar fylgja vetrardekk og dráttarbeisli
17" álfelgur, litað gler, 6 diska geislaspilari, 3 drifstillingar,
rafstýrð leðursæti, loftkæling, sjálfskipting, útvarpsfjarstýring
í stýri, sóllúga.
ANDSTÆÐIR HEIMAR Sums staðar má sjá hvar lúxusvillur rísa í næsta nágrenni við hriplek
kofaskrifli.
KEYPT Í ÁRSÞRÆLKUN Sumra barnanna bíða ill örlög því hægt er að kaupa þau í ársþræl-
kun fyrir um tíu dollara.
KLEMENS MEÐ BETLIBÖRNUM Í QUITO Betlibörnin má sjá úti um allt selja nammi, bursta skó og hreinsa í bílrúður.
Handahlaup á hraðbrautinni
Á ferðalagi um Ekvador bar margt fyrir sjónir
heimspekingsins Klemens Ólafs Þrastarsonar, þar
á meðal fallegasti tollvörður í heimi og indjána-
drengir í hellirigningu.