Fréttablaðið - 19.02.2006, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 19.02.2006, Blaðsíða 18
 19. febrúar 2006 SUNNUDAGUR18 MAGNÚS GEIR ÞÓRÐARSSON Vill sjá kraftmiklar, sárar og ögrandi sýningar sem hreyfa við fólki en er minna hrifinn af gáfumannaleikhúsi sem á að skilja fólk eftir hugsi. PEDROMYNDIR/ ÞÓRHALLUR JÓNSSON Umbylting hefur orðið á Leikfélagi Akureyr- ar síðan Magnús Geir Þórðarson tók við stjórnartaumunum fyrir aðeins tveimur árum. Bergsteinn Sigurðsson ræddi við Magnús um leikhúslífið fyrir norðan. Það er óhætt að segja að leik-árið hafi verið gjöfult hjá Leikfélagi Akureyrar. Í gær- kvöldi varð Fullkomið brúðkaup aðsóknarmesta leiksýning félags- ins frá upphafi, en hættir á fjöl- unum til að rýma fyrir Litlu hryll- ingsbúðinni. Á fimmtudag var Maríubjallan eftir Vassily Sigarev frumsýnd og hafa fyrstu viðbrögð verið lofsamleg. Í dómi sínum í Fréttablaðinu segir Súsanna Svav- arsdóttir að „[l]eikhópurinn skili þessu verki af slíkri fagmennsku að unun er á að horfa“. Þessi vel- gengni er ekki síst merkileg í ljósi þess að fyrir aðeins tveimur árum var Leikfélag Akureyrar í mikilli kreppu. „Ég þurfti vissulega að hugsa mig tvisvar um,“ segir Magn- ús Geir Þórðarson leikhússtjóri um tildrög þess að hann flutti til Akureyrar til að taka við stjórn- artaumum Leikfélags Akureyrar. „Leikhúsið var á þeim tíma að vissu leyti komið að endapunkti eins og það var; það hafði gengið mikið á, aðsóknin dalað, það var í listrænum vanda og fjárhagur- inn slæmur. Leikfélag Akureyrar á hins vegar glæsta sigra að baki og ég var sannfærður um að það væri hægt að skipta um kúrs. Eftir að ljóst var að leikhúsráðið hefði svipaða framtíðarsýn og ég og var sammála um að róttækar breytingar væru nauðsynlegar ákvað ég að taka slaginn og flutti norður. Ég vissi að þetta væri spennandi verkefni.“ Sársaukafullt en nauðsynlegt Magnús tók við starfi leikhús- stjóra í apríl 2004, í lok leikársins og gekk hratt til verka. „Ásamt Ingibjörgu, þáverandi fram- kvæmdastjóra, hrundum við miklu breytingarferli af stað. Það fyrsta sem við gerðum var að móta nýja stefnu þar sem við byrjuðum á grunninum og spurðum: Hvernig leikhús viljum við og fyrir hvern? Í framhaldinu fór mikið ferli í gang sem stóð næstu níu mánuði, þótt lunginn af vinnunni hafi farið fram á fyrstu þremur mánuðun- um. Við breyttum um áherslur í verkefnavali og ráðningum leik- ara, reksturinn var stokkaður upp og fastur kostnaður minnkaður með það að markmiði að sem mest fé nýttist í listina.“ Magnús segir að vissulega hafi þetta ferli verið erfitt, sérstaklega þar sem það þurfti að segja upp fólki. „Þetta voru sársaukafulllar breytingar og að því leyti var gott að koma að þessu að utan, því það hefði verið mun erfiðara hefði ég verið of tengdur fólkinu sem var hér fyrir. Með því að koma utan að gat ég gengið kalt í málið og gert þær breytingar sem við töldum nauðsynlegar til að ná tilskyld- um markmiðum. Á þessum tíma- punkti var ekki um annað að ræða en að endurskoða alla starfsemi leikhússins.“ Búið í haginn Leikárið í ár er það fyrsta sem er algjörlega mótað af hinni nýju stefnu og segir Magnús það hafa gengið vel og farið fram úr vænt- ingum. Þótt enn eigi eftir að frum- sýna Litlu hryllingsbúðina, er ljóst að leikárið verður það aðsóknar- mesta í sögu Leikfélags Akureyr- ar frá upphafi. „Við eru afskaplega ánægð með hvað það hefur tekist vel til, and- inn hjá starfsfólkinu hefur verið frábær og áhorfendur og gagn- rýnendur hafa tekið okkur mjög vel. Leiksýningarnar virðast hafa hreyft við fólki og það er ekki hægt að biðja um mikið meira. Það sem mér þykir vænst um er að það virðist hafa tekist að laða ungt fólk í leikhús því meðalald- ur leikhúsgesta hefur hríðlækkað. Við leggjum áherslu á að sinna yngra fólki og nýjum leikhús- áhorfendum og miðum við að sýna ný eða nýleg leikrit. Við fengum Landsbankann í lið með okkur til að niðurgreiða áskriftarkort fyrir 25 ára og yngri og fyrir vikið er helmingur áskriftarkorthafa 35 ára eða yngri, og ég held það sé óhætt að fullyrða að það sé með því lægsta sem þekkist. Þegar við lítum til baka í framtíðinni er ég viss um að þetta sé það sem mun standa upp úr, því með nýjum leikhúsgestum er búið í haginn fyrir framtíðina.“ Að hreyfa við fólki Magnús er leikstjóri að mennt, lærður á Bretlandi, og hefur starf- að sem slíkur í atvinnuleikhúsi undanfarinn áratug, en hann kveðst ekki síður hafa ánægju af leikhús- stjórn. „Í auknum mæli myndi ég segja. Ég er leikhúsmaður af lífi og sál og fæ mikla útrás sem leik- stjóri. Æfingaferlið er afar gefandi sem og að upplifa sýninguna að því loknu. Hvað leikhússtjórn snertir þarf að hugsa hlutina í stærra sam- hengi. Það tekur nokkra mánuði að setja upp eitt leikrit, svo tekur næsta verkefni við. Í leikhússtjórn þarf að spyrja: Hvar stöndum við núna og hvar viljum við vera eftir eitt ár, eða tíu, og marka stefnuna eftir því. Hluti af starfi mínu hér fyrir norðan er líka að leikstýra og mér finnst mikil forréttindi að fá að blanda þessu tvennu saman.“ Hann minnir á að þegar öllu er á botninn hvolft vinni leikhússtjór- inn og leikstjórinn að sama mark- miðinu. „Tilgangurinn er auðvitað að bjóða upp á leikhús sem snert- ir og hreyfir við fólki; að skapa þessa stund þar sem fólk gleymir stað og stund. Þar liggja hugsjón- irnar. Þær afsaka hins vegar ekki ef reksturinn er lausbeislaður og það er eðlilegt að sú krafa sé gerð að leikhús sem eru rekin að miklu leyti fyrir almannafé séu rekin vel. Gott leikhús á að reka eins og gott fyrirtæki, ramminn þarf að vera skýr en innan hans hafa lista- mennirnir mikið frelsi.“ Regluleg togstreita Magnús segir að vissulega mynd- ist togstreita milli listamannsins og rekstrarþáttarins. „Ég upplifi það reglulega. En það er hægt að láta þetta vegast á og finna bestu lausnina sem samræmir þetta tvennt. Við höfum hins vegar komið því svo fyrir að þótt leikhús- stjóri beri ábyrgðina, hefur fram- kvæmdastjóri fengið meira vægi og völd yfir daglegum rekstri. Það er ágætt að dreifa þessu þannig að pólarnir sem togast á séu ekki inni í sama manninum.“ Verkefnavalið er flókið ferli og þar getur líka verið togstreita. „Þar eru svo ótal margar breytur sem koma inn í. Grunnurinn er auðvitað að finna verk sem maður heillast af og maður hefur trú á að eigi erindi og snerti við fólki. En þau þurfa líka að henta leikhópn- um, falla innan fjárhagsrammans og síðast en ekki síst þarf maður að hafa trú á að þau veki áhuga væntanlegra leikhúsgesta. Að sjálfsögðu er ekki sama mark- miðið með hverju verkefni. Eitt er hugsað til að uppfylla ákveðin markmið og annað til að uppfylla önnur. Oft er sárt að horfa á eftir verkum sem maður heillast af en falla ekki saman við önnur verk- efni. Leikár er eins og litróf og maður vill ekki að öll verkin séu í sama litatóni. Og svo er auðvitað fullt af leikritum sem mann dauð- langar að leikstýra en henta leik- húsinu ekki, á þessum tímapunkti að minnsta kosti.“ Vantar áhættu Talið berst að íslensku leikhúsi – kostum þess og göllum – og Magn- úsi finnst það býsna gott í það heila. „Íslenskt leikhús er frekar fágað og vandað, en það er helst að menn eru stundum hræddir við að taka áhættu. Fyrir vikið hættir því til að detta niður í meðalmennsku og miðjumoð. Það helgast kannski af því að við erum lítil þjóð. Sýningar sem eru á jaðrinum höfða kannski til of lítils hóps til að þær gangi. Þar kemur jafnvægislist leikhús- stjórans inn í; hann þarf hugsa hvert markmiðið er með hverju verki og hvernig það passar á móti öðrum sýningum og gæta þess að hafa þau ekki öll í sama litatón. En við eigum frábæra listamenn og þegar best lætur er íslenskt leik- hús á heimsmælikværða.“ Hann saknar helst að sjá ekki meira dansleikhús hér á landi. „Það væri afskaplega heilbrigt og gott að fá fleiri gestasýningar erlendis frá. Okkur langar að bjóða erlendum gestasýningum hingað norður, en fjárráðin leyfa það bara ekki eins og er.“ Sjálfur kveðst Magnús vera alæta á leikhús, en heillast mest af því sem hann kallar tilfinninga- leikhús. „Ég vil sjá kraftmiklar, sárar og ögrandi sýningar sem hreyfa við mér. Ég er minna hrif- inn af gáfumannaleikhúsi þar sem maður rekur nefið upp í loft, setur sig í gáfumannalegar stellingar og ræðir þær spekingslega. Ég vil láta stinga mig í hjartað.“ ■ Vil láta stinga mig í hjartað Tilgangurinn er auðvitað að bjóða upp á leikhús sem snertir og hreyfir við fólki; að skapa þessa stund þar sem fólk gleymir stað og stund. Þar liggja hugsjónirnar. Þær afsaka hins vegar ekki rekst- urinn og það er eðlilegt að sú krafa sé gerð að leikhús sem eru rekin að miklu leyti fyrir almannafé séu rekin vel.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.