Fréttablaðið - 19.02.2006, Page 34
ATVINNA
14 19. febrúar 2006 SUNNUDAGUR
Áhugaverð störf í boði
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu
Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar
upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá
starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Menntasvið annast starfsemi og rekstur grunnskóla
og leikskóla. Í því felst þróun grunnskóla- og leik-
skólastarfs, undirbúningur stefnumörkunar, mat og
eftirlit með skólastarfi og upplýsingamiðlun
fyrir menntaráð og starfshópa á vegum ráðsins.
MENNTASVIÐ-GRUNNSKÓLAR
Grunnskólakennarar
Borgaskóli, sími 577-2900
• Forfallakennari óskast til starfa á vorönn 2006.
• Kennari óskast vegna forfalla í 100% stöðu í 4. bekk til
30. apríl.
Foldaskóli, sími 540-7600
• Forfallakennari óskast í 4. bekk. Um er að ræða 19
kennslustundir á viku fram til 1. apríl næstkomandi.
Ingunnarskóli, sími 411-7282/411-7848
• Kennari óskast í hönnun og smíði næsta skólaár. Æskilegt
er að viðkomandi hafi áhuga og/eða reynslu af nýsköpun í
skólastarfi.
Vesturbæjarskóli, sími 562-2296
• Kennari óskast í 100% stöðu á miðstig.
Hæfniskröfur:
Kennarapróf.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
Þroskaþjálfi
Fellaskóli, sími 557-3800
• Þroskaþjálfi óskast í allt að 100% stöðu fram á vor.
Hæfniskröfur:
Réttindi sem þroskaþjálfi.
Færni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði í starfi.
Jákvæðni og áhugasemi.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Stuðningsfulltrúi
Háteigsskóli, sími 530-4300
• Stuðningsfulltrúar óskast á miðstig. Um er að ræða 50%
stöðu annars vegar og 60% stöðu hins vegar. Störfin eru
laus frá 1. mars.
Helstu verkefni:
Að vera kennara til aðstoðar við að sinna einum eða fleiri
nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð.
Að auka færni og sjálfstæði nemenda, félagslega, námslega
og í daglegum athöfnum.
Hæfniskröfur:
Nám stuðningsfulltrúa æskilegt.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
Frumkvæði í starfi.
Auðvelt með að vinna í hóp.
Ræstitæknir
Fellaskóli, sími 557-3800
• Óskað er eftir starfskrafti til þess að taka að sér ræstingar í
forföllum.
Hæfniskröfur:
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Nákvæmni í vinnubrögðum.
Upplýsingar veita skólastjórar og aðstoðarskólastjórar í við-
komandi skólum. Umsóknir ber að senda til viðkomandi
skóla. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborg-
ar við viðkomandi stéttarfélög. Nánari upplýsingar um laus
störf er að finna á www.grunnskolar.is
Öll laus störf á Menntasviði í leik- og grunnskólum Reykjavíkurborgar
eru að finna á heimasíðunni www.menntasvid.is
Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar
Verkamenn óskast til starfa.
Um er að ræða fjölbreytt störf og góða vinnuaðstöðu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði.
Umsóknum um störfin skal skilað til Þjónustumiðstöðvar
Hafnarfjarðar, Hringhellu 9. Upplýsingar um störfin má fá
í síma 585 5670 eða á staðnum. Hægt er að senda
tölvupóst á Reyni Kristjánsson yfirverkstjóra
reynir@hafnarfjordur.is
Félagsþjónustan í Hafnarfirði
Heimaþjónustudeild auglýsir
eftir matráð.
Um er að ræða 70% stöðu matráðs í mötuneyti eldri bor-
gara á Hjallabraut 33.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi áhuga á vinnu með
eldri borgurum og sé lipur og þægilegur í samskiptum.
Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja þekkingu eða
reynslu í meðferð matvæla.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Hafnarfjarðarbæjar og
Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði.
Umsóknum um starfið skal skilað til skrifstofu
Félagsþjónustunnar í Hafnarfirði, Strandgötu 33, fyrir 24.
febrúar n.k. Upplýsingar gefur Kolbrún Oddbergsdóttir,
deildarstjóri, í síma 585-5700 frá kl. 13:00 til 15:00 alla
virka daga. Hægt er að senda tölvupóst til
kolla@hafnarfjordur.is
Lausar stöður hjá
Hafnarfjarðarbæ
Smiðir og handlagnir verkamenn
á öllum aldri óskast til starfa
við framleiðslu á steinsteyptum einingum
i verksmiðju okkar í Kópavogi sem fyrst.
Upplýsingar í síma 517-8900 eða
á netfanginu borg@evborg.is
Einingaverksmiðjan Borg, Bakkabraut 9, 200 Kópavogur.
Sími 5178900 Fax: 5178901 E-mail: borg@evborg.is
Skrifstofustarf
Innflutnings- og verslunarfyrirtæki miðsvæðis óskar
að ráða starfsmann sem fyrst til að annast gerð
innflutningsskjala, símsvörun, möttöku á pöntunum
og til aðstoðar skrifstofustjóra.
Vinnutími frá 9 – 17.00
Tölvukunnátta ásamt ensku- og einhverri þekkingu
á Norðurlandamáli nauðsynleg. Starfsþjálfun fer fram.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu
blaðins eða á box@frett.is merkt: „Traust til framtíðar – 15“
Sölumenn
Computer Megastore er ný tölvuverslun
sem verður opnuð bráðlega.
Við leitum að sölumönnum,
bæði í fullt starf og hlutastörf.
Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð,
vera stundvís, heiðarlegur og þekkja tölvur og
allt sem þeim tengist. Lágmarksaldur er 18 ár.
Starfið hentar jafnt konum sem körlum.
Umsóknir skulu sendar á netfangið
atvinna@computermegastore.is
fyrir miðvikudaginn 22.febrúar nk.
www.husbygg.is
Öflugur byggingastjóri óskast
Byggingastjóri óskast til að stýra krefjandi byggingar-
verkefnum á höfuðborgarsvæðinu.
Góð laun í boði hjá öflugu fyrirtæki með góðan
starfsanda. Upplýsingar veitir Einar í síma 897 0770
Bílaryðvörn
óskum eftir að ráða duglegan og góðan
starfskraft á ryðvarnarverkstæði okkar.
Bílahöllin – Bílaryðvörn hf. – Jón Ragnarsson s. 664-8090.
Styrktarfélag lamaðar og fatlaðra
SUMARSTÖRF Í BOÐI.
Styrktarfélagið rekur sumardvöl fyrir fötluð börn og
ungmenni í Reykjadal og í Laugalandi í Holtum.
Reykjadalur er staðsettur í Mosfellsdal sem er í u.þ.b.
15 mínútna fjarlægð frá Reykjavík, Laugaland er stað-
sett í u.þ.b. 30 mínútna fjarlægð frá Selfossi. Við erum
að leyta eftir ungu og hressu fólki sem er vill vinna í
gefandi og skemmtilegu umhverfi. Við hvetjum sér-
staklega nema á uppeldis– og heilbrigðissviði til að
sækja um. Við bendum umsækjendum á heimasíð-
una okkar en slóðin er www.slf.is (Reykjadalur), en
þar eru ýmsar upplýsingar um það starf sem fram fer
í sumarbúðunum.
Um er að ræða 12 klst vaktir sem unnar eru í vakta-
vinnuformi, en einnig er óskað eftir fólki á næturvakt-
ir og í stöðu kokks.
Umsóknir vegna sumarstarfa þurfa að berast til
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, Háaleitisbraut 13,
108 Reykjavík eigi síðar en 1. mars 2006.