Fréttablaðið - 19.02.2006, Qupperneq 74
19. febrúar 2006 SUNNUDAGUR34
Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar:
ÚRSLITALEIKUR KVENNA:
GRINDAVÍK-ÍS 73-88
Stig Grindavíkur: Jerrica Watson 26 (12 fráköst),
Hildur Sigurðardóttir 19 (10 fráköst), Ólöf H. Páls-
dóttir 15, Alma Garðarsdóttir 7.
Stig ÍS: Maria Conlon 25 (14 stoðs., 8 fráköst),
Signý Hermannsdóttir 23 (20 fráköst), Stella Kristj-
ánsdóttir 11, Helga Þorvaldsdóttir 9.
ÚRSLITALEIKUR KARLA:
KEFLAVÍK-GRINDAVÍK 73-98
Stig Keflavíkur: A.J. Moey 20 (10 frák.), Gunnar
Einarsson 16, Magnús Gunnarsson 15, Arnar Freyr
Jónsson 12, Sverrir Sverrisson 6, Jón Nordal Haf-
steinsson 4, Elentínus Margeirsson 4.
Stig Grindavíkur: Jeremiah Johnson 26 (8 stoðs., 6
frák.), Helgi Jónas Guðfinnsson 23, Þorleifur Ólafs-
son 9, Páll Axel Vilbergsson 7, Nedsad Biberovic 7,
Pétur Guðmundsson 7, Guðlaugur Eyjólfsson 7.
DHL-deild karla:
STJARNAN-HK 34-32
Mörk Stjörnunnar: David Kekelia 8, Patrekur
Jóhannesson 6, Björn Friðriksson 6, Arnar Theód-
órsson 5, Kristján Kristófersson 3, Gunnlaugur
Garðarsson 1, Tite Kalandadze 1.
Mörk HK: Valdimar Þórsson 10, Tomas Eitutis 6,
Jón Heiðar Gunnarsson 4, Remigijus Cepulis 4,
Ólafur B. Ragnarsson 3, Vilhelm Bergsveinsson 2.
ÍBV-HAUKAR 32-34
Mörk ÍBV: Mladen Cacic 10, Sigurður Bragason
5, Micheal Dostalik 5, Grétar Eyþórsson 4, Ólafur
Víðir Ólafsson 4.
Mörk Hauka: Árni Þór Sigtryggson 8, Jón Karl
Björnsson 7, Kári Kristjánsson 4, Samúel Ívar Árna-
son 4, Gísli Jón Þórisson 4, Arnar Pétursson 3.
STAÐA EFSTU LIÐA
HAUKAR 17 13 1 3 511-460 27
FRAM 17 12 2 3 476-435 26
VALUR 17 12 1 4 521-469 25
FYLKIR 17 9 2 6 469-432 20
STJARNAN 16 8 4 4 467-437 20
KA 16 8 3 5 448-432 19
DHL-deild kvenna:
STJARNAN-HK 30-22
Mörk Stjörnunnar: Rakel Dögg Bragadóttir 11,
Jóna Margrét Ragnarsdóttir 8, Harpa Sif Eyjólfs-
dóttir 4, Sólveig Lára Kjærnested 2.
Mörk HK: Arna Sif Pálsdóttir 6, Auksé Vysniau-
skaite 4, Tatjsana Zukovska 4, Auður Jónsdóttir 3.
KA/ÞÓR-GRÓTTA 26-23
Mörk KA/Þórs: Jurita Madkevicute 11, Þórsteina
Sigurbjörgsdóttir 4, Inga Dís Sigurðardóttir 4, Erla
Heiður Tryggvadóttir 4.
Mörk Gróttu: Ivana Vejlkovic 8, Karen Schmith 3,
Agnes Árnadóttir 3, Kristín Þórðardóttir 2.
VÍKINGUR-ÍBV 13-16
Mörk Víkings: Ásta Agnarsdóttir 4, Þórhildur
Björnsdóttir 3, Natasja Damljanovic 3.
Mörk ÍBV: Pavla Pladminkova 6, Ingibjörg Jóns-
dóttir 4, Simenta Vinfila 2.
STAÐA EFSTU LIÐA
VALUR 13 11 0 2 358-298 22
ÍBV 13 10 1 2 343-290 21
HAUKAR 12 10 0 2 374-313 20
STJARNAN 13 9 1 3 342-293 19
FH 13 8 0 5 343-313 16
GRÓTTA 13 5 0 8 303-317 10
Enska bikarkeppnin:
LIVERPOOL-MAN. UTD 1-0
1-0 Peter Crouch (19.).
CHARLTON-BRENTFORD 3-1
1-0 Darrent Bent (3.), 2-0 Jay Bothroyd (45.), 3-0
Bryan Hughes (62.), 3-1 Isiah Rankin (83.).
Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn.
BOLTON-WEST HAM 0-0
NEWCASTLE-SOUTHAMPTON 1-0
1-0 Kieron Dyer (68.).
Enska 1. deildin:
LEICESTER-LEEDS 1-1
Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan leikinn fyrir
Leicester en Gylfi Einarsson sat á varamannabekk
Leeds allan leikinn.
BRIGHTON-WATFORD 0-1
CARDIFF-HULL 1-0
MILLWALL-CRYSTAL PALACE 1-1
NORWICH-DERBY 2-0
PLYMOUTH-COVENTRY 3-1
SHEFF. WED-SHEFF. UTD 1-2
WOLVES-IPSWICH 1-0
Þýska úrvalsdeildin:
LEVERKUSEN-DUISBURG 3-2
DORTMUND-W. BREMEN 0-1
M’GLADBACH-KÖLN 2-0
NURNBERG-WOLFSBURG 1-0
HANNOVER-B. MUNCHEN 1-1
H. BERLIN-SCHALKE 1-2
KAISERSLAUTERN-A. BIELEFELD 2-0
Ítalska úrvalsdeildin:
LIVORNO-INTER 0-0
MESSINA-JUVENTUS 2-2
Þýski handboltinn:
GUMMERSBACH-GÖPPINGEN 35-27
Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur
hjá Gummersbach með átta mörk en Róbert
Gunnarsson skoraði eitt mark.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
xxxx
xxxxdxx
xxxxxxx
Svona er hausinn á pistlum Einars Loga
EINAR LOGI VIGNISSON: XXXXXX EINAR LOGI VIGNISSON: SKRIFAR UM BOLTANN Á ÍTALÍU OG SPÁNI
Reikningskú stir þeirra ríkustu
Eru það treyjurnar með nafni Beckhams á bakinu?
Troðfullur 110.000 manna völlurinn leik eftir leik?
Ævintýraleg strandhögg markaðsmanna í fjölmennum
álfum og fjarlægum? Spurninga sem þessara hafa
fótbolta- og bissnessáhugamenn spurt sig eftir að end-
urskoðendafyrirtækið Deloitte birti í níunda sinn lista
yfir tekjuhæstu knattspyrnulið veraldar og í fyrsta sinn
eigi ritað nafn Manchester United efst á blaði.
Nú trónir hið sjálfumglaða stórveldi Real Madrid
á toppnum. Lið sem var ekki hálfdrættingur á við
United fyrir réttum fimm árum. Lið sem kallar sig
„besta félagslið heims“ þótt engir titlar hafi skilað sér í
heilar þrjár leiktíðir. Lið sem hefur lagt þungar byrðir á
herðar kröfuharðra aðdáenda sinna undanfarin misseri
með hreint ævintýralegum niðurdýfum. Stórlið sem
malar þó gull sem aldrei fyrr. En skyldi allt gullið glóa?
Endurspegla veltutölur Deloitte raunverulegan styrk
„Madrileños“?
Ekki telja Glazer-feðgar svo vera. Fundu hinir
hlédrægu Ameríkanar sig knúna til opinberrar yfir-
lýsingar í fyrradag. „Fjölskyldan vill minna á að Man.
Utd. er ennþá það félagslið heims sem skilar mestum
hagnaði. Óskum Real Madrid til hamingju en minnum
á að við erum í góðum málum og framtíðin mun skila
okkur á toppinn á nýjan leik.“ Vakti yfirlýsingin nokkra
kátínu enda töldu margir að United ætti að hafa meiri
áhyggur af öðrum niðurstöðutölum en þeim sem lúta
að reikningshaldi. Og bókhaldsæfingar þannig séð
tilgangslausar meðan Abromovich tímir að eyða vasa-
peningunum sínum í Chelsea.
Ójöfnuður í suðri
Í helstu deildum norðursins er meginhluta sjón-
varsptekna skipt jafnt og þótt greitt sé sérstaklega
fyrir sýnda leiki þá njóta öll liðin ávinningsins. Þannig
fær Man. Utd. vissulega mest í Englandi en botnlið
Sunderland drjúgt líka, sennilega um 60% af því sem
stóru liðin fá. Í suðrinu er misskiptingin gífurleg. Þar
selja stórliðin leikina sína sjálf og njóta alls hagnaðar
af. Smáliðin þéna innan við 5 prósent á við risana.
Juventus var að ganga frá 150 milljón evra samningi
um sjónvarpsréttindi sem er að gera allt vitlaust.
Óréttlætið þykir úr hófi gengið og hafa önnur
lið hótað að hreinlega hætta að spila við
Juve verði nýtt fyrirkomulag ekki tekið
upp. Spánverjar eru svo mitt á milli ítalska
ójafnaðarins og ensku jafnaðarmennsk-
unnar, Real Madrid og Barcelona fá
vægast sagt huggulegan hlut.
Áhersla á veltuna
Undir stjórn forsetans og fasteignamóg-
úlsins Florentino Perez hafa verið unnin
fjárhagsleg stórvirki í reikingshaldi Real
Madrid. Munar mestu um sölu á fasteignum
félagsins en einnig hefur tekjuhliðinni verið
sýndur meiri áhugi en gjaldahliðinni. Öll áhersla lögð
á aukna veltu. Þannig eru ofurboltanir „galacticos“
ofurborgaðir en jafnframt samið um að helmingur
persónulegra auglýsingasamninga þeirra renni til
félagsins. Hlutur Madrid í samningi Beckhams við
Gillette hljóðar þannig upp á ríflega þann mun sem er
á tekjum liðsins og Man. Utd. Sannarlega salt í sárin sú
raksápa. Svipaður tekjumunur er á treyjusölu félagana.
Madrid hefur helmingi meiri tekjur en Man. Utd.
en munurinn er sá að Madrid ber allan kostnað
af framleiðslu, markaðsetningu og dreifingu á
meðan að bókfærðar tekjur Man. Utd. eru ein-
göngu rétthafagreiðslur fyrir treyjuframleiðsluna.
Hreinn hagnaður sumsé.
Tvennt stendur þó upp úr allri talnaleik-
fiminni. Annars vegar að um veltutölur er
að ræða og segja lítið um fjárfestinga-
getu félaganna. Chelsea stendur þar
upp úr og sennilega kæmi Juventus
næst. Hins vegar endurspegla tölurnar
þá staðreynd að aldrei í sögunni
hefur verið meiri munur á stóru lið-
unum og hinum. Er ég sjálfsagt ekki
einn um að telja það mesta vandamál
sem fótboltinn glímir við í dag og að
einhvers konar launaþak og tekjujöfnun
að hætti amerískra hópíþrótta verði að
koma til ef ekki á illa að fara.
Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, segist fullviss um
að fyrirliðinn
Ledley King muni
skrifa undir nýjan
samning við félagið
áður en tímabil-
inu lýkur. King
er 25 ára enskur
landsliðsmaður og
núverandi samn-
ingur hans rennur
út 2008. Viðræður
um nýjan samning standa þó yfir.
Haukar komust upp fyrir Fram í DHL-deild karla í gær eftir sigur liðsins
á ÍBV í Eyjum, 32-34. Það var Árni Þór
Sigtryggsson sem fór fyrir gestunum
og skoraði átta mörk en hann virðist
óðum vera að finna sitt besta form eftir
að hafa látið hafa heldur hægt um sig
það sem af er leiktíð. Þá komst Stjarnan
upp í 5. sæti deildarinnar með sigri á
HK í Garðabænum, 34-32. David Kekelia
skoraði sex mörk fyrir Stjörnuna en fyrir
HK gerði Valdimar Þórsson það sem
hann gat og skoraði 10 mörk en það
dugði því miður ekki til.
Norski skíðakappinn Kjetil Andre Aamodt sigraði í keppni í risasvigi
á ÓL í Tórínó í gær og var þetta þriðji
ólympíutitill Aamodt í greininni frá
upphafi. Alls hefur hinn 34 ára gamli
Aamodt nú unnið átta ólympíugull á
ferlinum auk 12 heimsmeistaratitla.
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir það tómt bull að það
sé með ráðum gert
að hafa heimavöll
liðsins, Stamford
Bridge, í slæmu
ástandi. Hann
virðurkennir að
völlurinn sé eins og
kartöflugarður en
spænskir fjölmiðlar
hafa haldið því fram að þetta sé viljandi
gert til að Chelsea eigi betri möguleika
gegn Barcelona í meistaradeildinni.
Raddir þess efnis að Chelsea hyggist kaupa sóknarmanninn Samuel
Eto´o frá Barcelona í sumar verða sífellt
háværari. Eto´o varð í þriðja sæti í kjör-
inu á besta knattspyrnumanni heims
en í öðru sæti varð Frank Lampard,
leikmaður Chelsea. Lundúnaliðið er víst
að undirbúa risatilboð í kamerúnska
landsliðsmanninn.
Sóknarmaðurinn John Hartson hefur biðlað því til John Toshack, lands-
liðsþjálfara Wales, að hann leggi öll
deilumál við Robbie Savage til hliðar og
velji leikmanninn aftur í landsliðið. Hart-
son segir að Savage sé einn allra besti
leikmaður sem Wales eigi og mikilvægt
sé að fá hann aftur í liðið.
Stjörnuleikur nýliða í NBA-deildinni fór fram í fyrrinótt en þá spila nýliðar
deildarinnar gegn leikmönnum á 2. ári.
Andre Iguodala, leikmaður Philadelphia
76‘ers, skaraði fram úr í leiknum og
skoraði þrjátíu stig fyrir eldra liðið sem
sigraði 106-96.
ÚR SPORTINU
FÓTBOLTI Alan Smith, leikmaður
Man. Utd, varð fyrir mjög alvar-
legum meiðslum undir lok leiks-
ins gegn Liverpool í gær. Smith
ætlaði þá að fórna sér fyrir skot
Dietmars Hamann en einhvern
veginn náði hann að festa löppina
í grasinu. Allur skrokkurinn hélt
hins vegar áfram og fór þunginn
allur á ökklann, sem síðar kom í
ljós að hafði mölbrotnað.
„Hann fótbrotnaði og ökklinn
fór úr lið. Þetta eru ein verstu
meiðsli sem ég hef séð,“ sagði
Alex Ferguson, stjóri Man. Utd.
eftir leikinn. Smith var borinn
af velli sárþjáður og tengdur við
súrefnisgrímu til að hann héldi
meðvitund. „Það lítur út fyrir að
hann verði mjög lengi frá en ég er
viss um að hann mun snúa aftur,“
bætti Ferguson við en talið er að
Smith verði allt að níu mánuði
að ná sér. Rafael Benitez, stjóri
Liverpool, sagði atvikið hafa
skyggt á annars góðan knatt-
spyrnuleik. „Við erum algjörlega
miður okkar vegna Smith. Hugur
okkar er með honum,“ sagði
Benitez. „Maður vill aldrei sjá
leikmenn lenda í svona meiðsl-
um. Við óskum honum góðs bata
og vonum að hann verði kominn
aftur á völlinn sem fyrst. - vig
Alan Smith fótbrotnaði hryllilega í leiknum gegn Liverpool:
Ein verstu meiðsli sem ég hef séð
HRIKALEGT Samherjar Alan Smith gerðu sér strax grein fyrir því að meiðsli hans væru
mjög alvarleg og voru læknar beggja liða kallaðir inn á völlinn til að huga að leikmann-
inum. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Þar til í gær voru liðin
85 ár síðan Liverpool hafði unnið
sigur á Manchester United í bik-
arkeppninni í Englandi og það var
ljóst strax í upphafi leiks að heima-
menn voru staðráðnir í að brjóta
þau langvarandi álag. Liverpool
byrjaði af miklum krafti og upp-
skar verðskuldað mark á 19.
mínútu með skalla Peter Crouch.
Heimamenn hefðu getað skorað
fleiri mörk í fyrri hálfleik en góð
markvarsla Edwin van der Saar
hélt gestunum inni í leiknum.
Í síðari hálfleik snerist leik-
urinn síðan við, gestirnir sóttu
af nokkrum krafti án þess þó að
skapa sér nein afgerandi mark-
tækifæri. Svo fór að Liverpool
sigraði að lokum og fögnuðu leik-
menn liðsins ákaft eftir leikinn.
„Eftir 85 ár er stórkostlegt að
vinna loksins,“ sagði Rafael Benit-
ez, stjóri Liverpool, eftir leikinn.
„Við áttum sigurinn skilinn og við
viljum tileinka stuðningsmönnun-
um hann. Þeir voru magnaðir.“
Hetjan Crouch sagði það ein-
staka tilfinningu að skora sig-
urmark gegn Man. Utd í bikar-
keppni. „Leikir þessara liða eru
þeir stærstu á hverju ári í deild-
inni. Þetta hefur því sennilega
verið mikilvægasta mark sem
ég hef skorað á ferlinum,“ sagði
Crouch.
Alex Ferguson, stjóri Man. Utd.,
sagði að sínir menn hefðu einfald-
lega ekki náð að finna glufur á
öflugri vörn Liverpool. „Þeir áttu
ekki mörg góð tækifæri í þessum
leik en náðu að skora eitt mark og
það nægir þeim oftast. Þannig er
Liverpool í dag − þarf aðeins að
spila vel í fimm mínútur, skora
mark og verja síðan það forskot.
Þetta er það sem liðið er best í,“
sagði Ferguson. „Við vorum alltof
slakir í fyrri hálfleik og það var
sú frammistaða sem gerði út um
vonir okkar í þessum leik,“ bætti
Skotinn við.
Hermann Hreiðarsson og
félagar í Charlton tryggðu sér
sömuleiðis farseðilinn í 8-liða
úrslit keppninnar með auðveldum
sigri á 2. deildar liði Brentford,
3-1. Hermann Hreiðarsson lék
allan leikinn í vörn Charlton og
stóð sig vel en mörk liðsins skor-
uðu Darren Bent, Jay Bothroyd
og Bryan Hughes. Bolton og West
Ham þurfa hins vegar að mætast
að nýju eftir að hafa gert marka-
laust jafntefli á Reebook-vellinum
í gær. - vig
Mikilvægasta mark sem
ég hef skorað á ferlinum
Liverpool er komið í 8-liða úrslit ensku bikarkeppninar eftir 1-0 sigur á erki-
fjendunum í Man. Utd á Anfield í gær. Peter Crouch skoraði eina mark leiksins.
LOKSINS, LOKSINS Stuðningsmenn Liverpool gjörsamlega trylltust þegar Peter Crouch
skoraði markið sem átti síðan eftir að ráða úrslitum í leiknum gegn Man. Utd í gær. Sumir
þustu inn á völlinn til að fagna með hetjunum sínum eins og sést á þessari mynd.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES