Fréttablaðið - 10.03.2006, Síða 2
2 10. mars 2006 FÖSTUDAGUR
Olíumálinu frestað Máli olíufélag-
anna gegn Samkeppniseftirlitinu og
íslenska ríkinu var í gær frestað til 28.
mars. Olíufélögin Esso, Skeljungur og
Olís vilja að sektin sem þau voru dæmd
til að greiða vegna verðsamráðs verði
felld niður eða í það minnsta lækkuð.
HÉRAÐSDÓMUR
Bílvelta á Garðsvegi Bíll valt
á Garðsvegi á Suðurnesjum seint í
fyrrakvöld með þeim afleiðingum að
tveir slösuðust lítillega. Bíllinn er talinn
ónýtur og leikur grunur á að ökumaður
hafi verið ölvaður.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ÍRAK, AP Sandstormur reið yfir Bag-
dad, höfuðborg Íraks, í gær og
deyfði hljóðin frá sprengingum
sem urðu minnst 11 manns að bana
og særðu 19, að sögn lögreglu. Öll
fórnarlömbin voru óbreyttir borg-
arar.
Enn hefur ekkert frést af um 50
manns sem vopnaðir menn íklædd-
ir einkennisbúningum skyndiárás-
arsveitar innanríkisráðuneytisins
rændu á miðvikudag. Fólkið var
við störf í öryggisfyrirtæki í Aust-
ur-Bagdad og voru mörg fórnar-
lambanna fyrrverandi hermenn
frá tímum Saddams Hussein. Óvíst
er hver ber ábyrgð á mannráninu.
Talið er að um 450 manns hafi
farist í átökum í Írak síðustu daga.
- smk
Enn sprengt í Írak:
Ellefu fórust í
sprengjuárásum
SPRUNGIÐ Bandarískir hermenn hjálpast
að við að skipta um dekk á Humvee-
bifreið sinni, eftir að þeir óku yfir rusl frá
bílsprengju. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Búið er að framlengja
gæsluvarðhald yfir ungum manni
sem hefur verið ákærður fyrir
sveðjuárás síðastliðið haust, til 5.
maí. Hann hefur verið í gæsluvarð-
haldi frá því í byrjun október þegar
hann lagði til átján ára jafnaldra
síns með sveðjunni við heimahús í
Garðabæ.
Pilturinn hjó ítrekað í piltinn svo
hann hlaut annars vegar skurð í
höfuð og brákaða höfuðkúpu og hins
vegar djúpan skurð á hönd, sinar;
vöðvar og slagæðar voru höggnar í
sundur. Auk þess lagði hann til
félaga piltsins sem skipti sér að
árásinni.
Maðurinn er einnig ákærður
fyrir fleiri árásir, meðal annars
fyrir þátttöku í tveimur hópárásum.
Úrskurðurinn hefur verið kærður
til Hæstaréttar. - gag
Sveðjuárás í Garðabæ:
Gæsluvarðhald
framlengt
ÚRSKURÐAÐUR Í GÆSLUVARÐHALD Sveðju-
maðurinn á yfir höfði sér allt að sextán
ára dóm.
DANMÖRK, AP Atvinnuleysi hefur
haldið áfram að minnka í Dan-
mörku. Í janúar mældist það fimm
prósent og þar með það minnsta í
30 ár en í desember var atvinnu-
leysið 5,1 prósent.
Atvinnulausir voru 139.600 tals-
ins í janúar, samkvæmt opinberum
töldum í Danmörku, en Danir eru
5,4 milljónir manna. Ástandið á
dönskum vinnumarkaði hefur
batnað hægt og bítandi frá því í
desember 2003 en þá voru atvinnu-
lausir 186 þúsund talsins. ■
Atvinnuleysi í Danmörku:
Komið niður í
fimm prósent
SPURNING DAGSINS
Gísli, er alveg út og suður að
flagga í hálfa stöng?
„Ef allt fer norður og niður þá er
kannski rétt að flagga í hálfa stöng.“
Gísli Einarsson, fréttamaður, vakti athygli
Borgnesinga á því hvort ekki væri rétt að
draga úr sorgarsvip staðarins með því að
atvinnurekendur á staðnum hættu að flagga
í hálfa stöng við hvert andlát og allar útfarir
í bænum.
HEILBRIGÐISMÁL Heimsskortur er á
lyfjunum sem talin eru gagnast
gegn fuglaflensu, svo sem Tamiflu
og Relenza, að sögn Haraldar
Briem, sóttvarna-
læknis hjá Land-
læknisembætt-
inu.
Heilbrigðisyfir-
völd hér á landi
hafa lagt drög að
kaupum á viðbót-
armagni af öðru
lyfinu og er gert
ráð fyrir að það
komi hingað til lands með haust-
inu.
„Það hefur verið svo lítil fram-
leiðsla á þessum lyfjum undanfar-
in ár, að verksmiðjur hafa þurft að
auka afkastagetuna. Það tekur
tíma og eftirspurn er mikil í öllum
heiminum,“ segir hann. „Það er
verið að auka framleiðsluna,
þannig að vonandi verður ekki
skortur á næstunni. En hann er til
staðar eins og er.“
Nú eru til staðar í landinu tæp-
lega 90.000 meðferðarskammtar
af inflúensulyfjum fyrir lands-
menn. Til stendur að bæta við það
magn á þessu ári og því næsta, að
sögn Haraldar.
„Vandamálið er að þetta liggur
ekki á lausu, en við stefnum að því
að fá 4.000 skammta til viðbótar
með haustinu og svo 16.000
skammta á næsta ári.
„Stærstur hluti þeirra birgða
sem eru til í landinu er Tamiflu.
Nú ætlum við að kaupa aðra teg-
und, sem er Relenza. Við viljum
hafa aðeins meiri fjölbreytni í
þessu, í stað þess að binda okkur
við eina tegund. Það er þekkt að í
sumum tilvikum getur veiran
verið ónæm gegn tamiflulyfinu, en
þá er ekki krossónæmi á Relenza,
þannig að það er þá upp á eitthvað
að hlaupa.“
Haraldur segir enn fremur að
verið sé að leggja drög af því að
hafa ársbirgðir af dreypilyfi í
landinu á hverjum tíma. Magnið sé
reiknað út á þeim forsendum að
metið sé hvað þungur inflúensu-
faraldur myndi þýða. Þörfin sam-
svari því að á farsóttarári væri
notað sama magn á þremur mán-
uðum og þörf væri fyrir á venju-
legu ári.
„Þá er auðvitað verið að athuga
hvort hagkvæmara væri að hafa
dreypilyfjaverksmiðju í landinu,
en þetta er spurning um kostnað,“
segir hann og bætir við að dreypi-
lyfin muni koma hingað til lands á
árinu. Þau verði keypt erlendis frá
og kaupin fari í ákveðið útboðs-
ferli.
jss@frettabladid.is
HARALDUR BRIEM
LYFJABIRGÐIR SÓTTVARNALÆKNIS Þær lyfjabirgðir sem eru í landinu eru einkum tamiflulyf.
Sóttvarnalæknir ætlar að kaupa inn aðra tegund, Relenza, sem væntanlega kemur til
landsins í haust.
Heimsskortur á
fuglaflensulyfjum
Skortur er á fuglaflensulyfjum í heiminum, enda eftirspurnin mikil. Heilbrigðis-
yfirvöld hér ætla að kaupa talsvert af lyfinu Relenza, sem kemur ekki fyrr en í
haust. Vilji er til að hafa ársbirgðir af dreypilyfi í landinu á hverjum tíma.
FRAMKVÆMDIR Samningur hefur
verið undirritaður um byggingu
tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar
og hótels við Austurhöfnina í
Reykjavík. Samningurinn er milli
Portus-hópsins, sem er í eigu Lands-
afls og Nýsis, og Austurhafnar-TR.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra sagði að með
undirrituninni væri verið að leggja
mósaíksteina til að skapa mikilvæg-
asta mósaíkverk landsins.
Gert er ráð fyrir að byggingin
taki þrjú ár og verður strax byrjað
að rífa þau mannvirki sem fyrir eru
á lóðinni. Stefnt er að því að starf-
semi hefjist haustið 2009 og að hót-
elið verði opnað á sama tíma.
Portus hefur jafnframt ákveðið
að kaupa allan byggingarrétt á
TRH-reitnum fyrir verslun, þjón-
ustu og íbúðir og verður stofnað
sérstakt félag um þá uppbyggingu.
Félagið verður ábyrgt fyrir því að
fimm stjörnu alþjóðlegt hótel rísi á
svæðinu og mun einnig eiga önnur
hús og bílageymslur á svæðinu.
Stofnkostnaður tónlistarhússins
og ráðstefnumiðstöðvarinnar er
áætlaður um 12,5 milljarðar króna.
Við bætist kostnaður við byggingu
hótels og annarra mannvirkja, þar á
meðal höfuðstöðva Landsbanka
Íslands.
Leyfilegt byggingamagn á lóð-
inni nemur um 91 þúsund fermetr-
um auk bílastæða neðanjarðar og
um 14 þúsund fermetra í kjöllurum.
Aðalbyggingarnar eru fimm, þar af
fjórar meðfram nýrri göngugötu,
Reykjastræti. - ghs
Samningur undirritaður um byggingu tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar:
Mikilvægasta mósaíkverkið
MÓSAÍKSTEINAR LAGÐIR Samningur um byggingu ráðstefnumiðstöðvar, tónlistarhúss og
hótels við Austurhöfnina var undirritaður í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
VÍSINDI Vísindasiðanefnd fjallaði
um rannsóknir sem gerðar voru á
vegum Lyfjaþróunar hf. á fundi
sínum í vikunni, en ákveðið var að
taka rannsóknir fyrirtækisins til
skoðunar eftir að nefndinni bárust
ábendingar um að hugsanlega
hefði verið átt við niðurstöðurnar.
Rannsóknirnar sem til skoðun-
ar eru hjá nefndinni beindust að
notkun nefúða við bólusetningu en
þeim stýrði Sveinbjörn Gissurar-
son, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Lyfjaþróunar hf. Hann starf-
ar nú sem prófessor við
lyfjafræðideild Háskóla Íslands.
Rannsóknirnar voru unnar á
árunum 1999 til 2004, en þeim var
þá hætt þar sem þær skiluðu ekki
tilætluðum árangri.
Ólöf Ýr Atladóttir, fram-
kvæmdastjóri Vísindasiðanefnd-
ar, segir niðurstöðu að vænta bráð-
lega en ekki er ljóst hvenær hún
verður gerð opinber. -mh
Vísindasiðanefnd:
Að skoða mál
Lyfjaþróunar
NOREGUR Aðild að Evrópusam-
bandinu er hvorki á dagskrá á
Íslandi né í Noregi á
næstu árum. Þetta kom
fram í viðræðum Geirs
H. Haarde utanríkisráð-
herra við Jonas Gahr
Störe, utanríkisráðherra
Noregs, í opinberri heim-
sókn ráðherrans í Noregi
í gær.
Geir sagði að aðild að
ESB væri ekki á dagskrá
hér á landi fram til árs-
ins 2011 og norski utan-
ríkisráðherrann sagði það sama
gilda í Noregi fram til 2009 enda
sé samið um það í norska stjórn-
arsáttmálanum.
Heimsókn ráðherrans hófst
með áheyrn hjá Haraldi
Noregskonungi í gær-
morgun. Geir hitti forseta
þingsins, utanríkismála-
nefnd og ráðherra. „Við
fórum yfir mál sem tengj-
ast tvíhliða samstarfi og
samskiptum ríkjanna, og
jafnframt efnahagsmálin,
friðargæsluna, varnar-
málin á Íslandi og svo
ræddum við heilmikið um
fiskveiðimál á norðurslóð-
um, ESB og EES sem við erum
sammála um að gangi mjög vel,“
segir Geir.
Tvö vandamál milli ríkjanna
voru ítarlega rædd, ágreiningur
varðandi Svalbarðasvæðið og
óánægja Íslendinga með samning
sem Norðmenn gerðu við ESB um
síldveiðar á síðasta ári.
„Við munum reyna að athuga
hvort við getum náð síldarsamn-
ingi fyrir næsta ár þegar líður
fram á árið. Kolmunnasamningur
var í gildi í fyrra í fyrsta skipti og
það er almenn ánægja með hann.
Svo eru menn forvitnir um ýmis-
legt á Íslandi, til dæmis efnahags-
málin.“
Norskt-íslenskt verslunarráð
verður stofnað í Noregi í dag.
- ghs
GEIR H. HAARDE
UTANRÍKISRÁÐ-
HERRA.
Geir H. Haarde utanríkisráðherra í opinberri heimsókn í Noregi:
Síldarsamningur í bígerð
DÓMSMÁL Landspítalinn var í gær
dæmdur til þess að greiða konu á
sextugsaldri sjö milljónir króna
vegna varanlegrar örorku og
miska sem hún varð fyrir þegar
hún vann á speglunardeild Land-
spítalans.
Konan starfaði sem hjúkrunar-
fræðingur á speglunardeild
Landakotspítala við Túngötu frá
árinu 1988 en síðan á Borgarspít-
alanum í Fossvogi frá því í nóvem-
ber 1996 fram í nóvember ári
síðar. Konan þjáðist af astma sem
hún taldi að stafaði af notkun á
efni sem innihélt glútaraldehýð.
Það var notað til þess að hreinsa
áhöld á deildinni.
Konan veiktist mikið og hefur í
kjölfarið verið metin með tíu pró-
senta varanlega örorku. -mh
Landspítalinn dæmdur:
Greiði konu sjö
milljónir króna
PORTÚGAL Brasilísk kona, sem geng-
ist hafði undir leiðréttingu á kyni,
var myrt í Portúgal fyrir nokkrum
vikum. Morðið hefur vakið athygli
vegna þess hversu ruddafengið það
var.
Fjórtán ungir drengir af kaþ-
ólsku upptökuheimili réðust inn í
hús konunnar í lok febrúar og mis-
þyrmdu henni í nokkra daga. Dreng-
irnir köstuðu henni svo ofan í 10
metra djúpa gryfju þar sem hún
drukknaði.
Játuðu drengirnir verknaðinn. Í
ljós kom að þeir höfðu lagt fórnar-
lambið í einelti um langt skeið.
Morðið hefur vakið reiði um allan
heim. - ghs
Kona sem hafði skipt um kyn:
Drengjahópur
myrti konu