Fréttablaðið - 10.03.2006, Side 53

Fréttablaðið - 10.03.2006, Side 53
 10. mars 2006 FÖSTUDAGUR50 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 opið alla laugardaga 10-14 SKÖTUSELUR HUMAR TÚNFISKUR HRÓSIÐ ...fær Sigurpáll Jóhannesson einkaþjálfari fyrir að píska fólk áfram á nýjum Extreme-nám- skeiðum í World Class. LÁRÉTT 2 atlaga 6 í röð 8 struns 9 spil 11 hætta 12 mest 14 slappi 16 tónlist- armaður 17 niður 18 rekkja 20 tveir eins 21 óska. LÓÐRÉTT 1 flagg 3 guð 4 aðgætinn 5 hallandi 7 bílskýli 10 hár 13 flan 15 sjá eftir 16 knæpa 19 í röð. LAUSN LÁRÉTT: 2 árás, 6 áb, 8 ark, 9 níu, 11 vá, 12 allra, 14 slaki, 16 kk, 17 suð, 18 rúm, 20 rr, 21 árna. LÓÐRÉTT: 1 fána, 3 ra, 4 árvakur, 5 ská, 7 bílskúr, 10 ull, 13 ras, 15 iðra, 16 krá, 19 mn. Ég fór að velta því fyrir mér um daginn hvað fólk er orðið svakalega meðvitað og upptekið af heilsunni. Þó þannig að það er aðallega upptekið af því að hreyfa sig frekar en að hugsa um hvað það setur ofan í sig. Fólk virðist vera alveg jafn duglegt að djamma og vinna eins og brjálæðingar en einhvern veginn hafa allir tíma til að skreppa í ræktina eftir vinnu. Þegar ég fór að hrósa vinkonum mínum fyrir dugnað- inn í ræktinni og spyrjast fyrir um hvað hafi eiginlega valdið þessari róttæku breytingu þeirra á lífsmynstri og þessum skyndilega áhuga á hreyfingu, fékk ég ansi fyndin svör. Þær sögðu mér hvað málið snerist um. Það var ekki spurning- in um að þær hefðu fengið hugljómun eða vildu halda púlsinum á góðu róli heldur var þetta spurning um að hitta menn. Einhvern veginn snýst alltaf allt um að hitta menn. Það er sorglegt en lífsnauðsynlegt, það er að segja þegar maður er einhleypur. Eftir því sem þessar stúlkur segja mér þá er aðal málið þessa dagana að skreppa í ræktina eftir vinnu, þá nefna þær flestar Laugar í þessu samhengi, til að kíkja á liðið. Þá er það víst þannig að þær smella sér í sexý spandex-galla, halda gæðum andlitsmálningarinnar í toppi og henda sér á „stairmasterinn“ . Tryllitækið er þó sett á lægsta hraða til að þær roðni örugglega ekki í framan og að ekki spretti fram á ennið einn einasti svitadropi. Svo inn á milli stökkva þær að vatnskælinum til að fá sér vatns- dreytil og hressa sig við og spjalla við strákana sem eru líka að fá sér sopa. Á leiðinni til baka gjóa þær svo augunum að gæjunum sem eru að pumpa og tékka hvað þeir taka í bekkpressu. Að sjálfsögðu nýta strákarnir sér að sama skapi tækifærið og kíkja á bossana á stelpunum á stigavélunum. Að því er virðist, virkar þessi félags- miðstöð sem alhliða deitmiðstöð fyrir einhleypingana. Ég hef allavega heyrt af fjölmörgum stefnumótum sem áttu upphaf sitt við vatnskælinn þar sem fólk slökkti þorstann og vonaðist eftir að geta slökkt annars konar þorsta í framhaldinu. Ég ætla reyndar að viðurkenna það að mér finnst þetta stórsniðugt. Flestum okkar finnst örlítið súrara að finna mak- ann á djamminu heldur en t.d. í vinn- unni eða í vinahópnum. Nú hefur bæst við enn önnur leiðin til að kynnast fólki á algerlega ósveittan hátt, já eða mjög sveittan, og mögulega finna eitt stykki föru- naut í framhaldinu. Svo er líka tilvalið að bæta heilsuna í leiðinni! Með þessa nýju vitneskju í far- teskinu ætla ég að bruna inn í Laugardal, kaupa mér kort í ræktinni og spandex-galla, setja á mig glossinn og skella mér svo á stigavélina! REYKJAVÍKURNÆTUR HARPA PÉTURSDÓTTIR ÆTLAR AÐ FLÝTA SÉR Í FJÖRIÐ! Með heilsuna að leiðarljósi Sigurgeir Sigurjónsson ljósmynd- ari hefur verið í Argentínu síðast- liðna þrjá mánuði ásamt eiginkonu sinni, Helgu Gísladóttur, og Sæmundi Norðfjörð. Mörgum er eflaust í fersku minni kvikmyndin Mótorhjóladagbækurnar sem fjall- aði um ferð Che Guevara og vinar hans, Alberto Granado, um Suður- Ameríku en í þeirri ferð varð Gue- vara ljóst að frelsa þyrfti álfuna undan misréttinu sem þjakaði íbú- ana og hóf í kjölfarið kommúníska byltingu. Hvort ljósmyndarinn Sigurgeir hafi slíkt í hyggju skal ósagt látið en myndavélin er auð- vitað með í för. Fyrir fjórum árum gaf Sigurgeir út bókina Lost in Iceland sem er margföld metsölu- bók og þykir fanga náttúru Íslands á einstakan hátt en það er ljóst að myndefnið er ekkert síðra í Arg- entínu þó að Sigurgeir vilji ekki gefa mikið uppi um væntanlega útgáfu. Þremenningarnir hafa verið á ferðalagi frá lok desember og ferðast um landið þvert og endi- langt. Lokaspretturinn er fram- undan en Sigurgeir reiknaði með að þau kæmu aftur í haust. Ferðin hefur gengið mjög vel og hópurinn hefur ekki orðið fyrir neinum skakkaföllum. „Við erum á leiðinni til Patagoníu,“ segir Sigurgeir en þau hafa verið með svokallaðan „location manager“ sem aðstoðar þau við að finna „réttu“ staðina sem Sigurgeir telur nauðsynlegt þegar ferðast er um ókunnug lönd. „Hann gegndi svipaðri stöðu við gerð myndanna Mission og Seven Days in Tibet,“ bætir ljósmyndar- inn við. Argentína, sem margir tengja við nautakjöt, hesta og knatt- spyrnugoðið Maradona, er áttunda stærsta land heims, tæpir 6.000 km á lengdina. „Það sem heillaði fyrst við landið er að það eru svo miklar andstæður í bæði þjóðlíf- inu og landslagi,“ segir Sigurgeir og bætir við að það minni því um margt á Ísland hvað fjölbreyti- leika varðar. Í dag kemst hópurinn í tæri við hin „trúarbrögð“ landsins en þá fara þau á leik erkifjendanna Boca Juniors og River Plate. Liðin eru bæði með aðsetur í höfuðborginni Búenos Aíres og það má oft litlu muna að upp úr sjóði í þeim mikla bardaga. „Við erum með blaða- mannapassa og getum því fangað stemninguna á vellinum,“ segir Sigurgeir. Þau eru væntanleg til landsins á næstu vikum og þá ætti að skýrast hvort landsmenn geti fengið að sjá þessa mikla ferða- sögu í náinni framtíð. freyrgigja@frettabladid.is SIGURGEIR SIGURJÓNSSON: ÆVINTÝRAFERÐ Í ARGENTÍNU Ætlar að sjá leik Boca og River Plate SIGURGEIR SIGURJÓNSSON Hefur verið á þriggja mánaða ferðalagi um Argentínu með myndavélina sína og verður við- staddur stærsta knattspyrnuleikinn þar í landi í dag.FRÉTTABLAÐIÐ / GVA 1 Borgarnesi 2 Á vefnum bakkafjörður.is 3 Barein [ VEISTU SVARIÐ? ] Glöggir áhorfendur NFS og Stöð 2 hafa tekið eftir nýju andliti meðal veðurfréttamanna en það er Sig- ríður Ólafsdóttir. Hún var á vakt þegar Fréttablaðið náði tali af henni og var nokkuð hress enda veðrið með hreinum ágætum. Hún kláraði jarð- og landafræði og leggur stund á meistaranám í umhverfisfræðum. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún komið víða við, verið menntaskólakennari, flugfreyja og leiðsögumaður. Þá er hún nýkomin heim úr tveggja vikna skútusiglingu um Karíba- hafið með kærasta sínum og barni. „Aldur er afstæður,“ segir Sigríð- ur og hlær. Aðspurð af hverju veðurfréttir segist hún alla tíð hafa verið sam- ræðuhæf um veður og námið sé nátengt þessu aðaláhugamáli Íslendinga. „Ég er reyndar „bara“ veðurfréttakona en gæti bætt veð- urfræðinni við seinna meir,“ segir Sigríður, glöð í bragði. Mörgum er það hulin ráðgáta hvernig veður- fréttamenn geta þulið upp úr sér spár langt fram í tímann en Sigríð- ur segir starfið ekki vera ólíkt leikarastarfinu. „Við leggjum mikið á minnið og þurfum að vera góð að lesa í veðrið,“ segir hún og bætir við að hún sé enn að venjast því að standa fyrir framan mynda- vélarnar án landakorts og texta. Veðrið skiptir Íslendinga miklu máli og þeir hefja varla samræður án þess að veðrið beri á góma. Sig- ríður segir landa sína þó enn ekki vera farna að stoppa hana úti á götu og kvarta yfir slagviðri eða roki. „Í góðu veðri erum við óskap- lega glöð en þegar leiðindin í jan- úar og febrúar eru sem mest leggst það þungt á þjóðarsálina,“ segir Sigríður og hlær. „Ábyrgðin er því mikil að flytja veðurfréttir; gefa fólki von en samt ekki of miklar væntingar,“ segir Sigríður. - fgg Ný veðurfréttakona á NFS SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR Nýi veðurfréttamaðurinn á NFS og Stöð 2 hefur slegið í gegn á skjánum en hún hefur komið víða við þrátt fyrir ungan aldur.FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN NAUT REKIN Í ARGENTÍNU Eitt af einkenn- um landsins eru nautin.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.