Fréttablaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 20
 10. mars 2006 FÖSTUDAGUR20 fólkið í landinu STAÐURINN TÖLUR OG STAÐREYNDIR C M Y CM MY CY CMY K HLH 2x15.pdf 7.3.2006 13:43:10 „Það er alveg óhætt að segja að ég sé í blóma lífsins,“ segir Gísli Jóhannsson garðyrkjubóndi í Dalsgarði. Þar fer fram mikil blóma- ræktun en hann ræktar ógrynni túlípana, páskalilja og rósa. Hann var að dytta að blómunum ásamt Ligite Petraityte þegar tvímenn- ingana bar að blómagarði. „Nú er verið að gera allt klárt fyrir páskana en þeim fylgja mestu annirnar hjá okkur. Annars ræktum við um 400 þúsund túlípana, 40 þúsund páskaliljur, 20 til 30 þúsund lauka og helling af rósum. Ætli þær séu ekki um þúsund á dag. Annars fer ræktendum fækkandi þessi síðustu ár. Ég held að þeim hafi fækkað um helming aðeins á fjórum árum þannig að ég myndi telja að við værum um tólf til fimmtán eftir á landinu öllu. En guðspjall dagsins hjá okkur er að rækta lífrænt og vera ekki að gusa í þetta allskonar efnum. Það er reyndar aðeins meiri vinna í kring- um það en afskaplega skemmtileg vinna. Svo erum við að reyna að tolla í hæsta gæðaflokki.“ Gísli segist vera fæddur inn í þetta en foreldrar hans hófu blóma- ræktun í Dalsgarði. „Svo vorum við bræðurnir í þessu en nú er ég einn eftir,“ segir hann. Ligite kemur frá Litháen og kann vel við sig í kanaríloftslaginu í Dalsgarði. Henni þótti þó ekki mikið til koma þegar blaðamaður greip rós til að færa henni enda umkringd slíku allan liðlangan daginn. Gísli er hins vegar líklegur til að spjalla við rós sé honum afhent hún en hann segist tala við blómin meðan hann dytti að þeim. Það er hins vegar ekki jafn freistandi að færa honum rós. Íbúafjöldi í desember 2005: 206. Íbúafjöldi í desember 2000: 219. Íbúafjöldi í desember 1997: 206. Sveitarfélag: Mosfellsbær. Bæjarstjóri: Ragnheiður Ríkarðsdóttir. Helstu atvinnufyrirtæki: Kúabúið Hrísbrú. Gróðrastöðin Dalsgarði. Safnið á Gljúfrasteini. Hestaleigan Ferðahestar. Hestaleigan í Laxnesi. Meðferðarheimilið Hlaðgerðarkoti. Golfvöllurinn Bakkakoti. Vegalengd frá Reykjavík: 20 km (miðað við Gljúfrastein). Mosfellsdalur Dumbungur víkur fyrir geislum sólar þegar Jón Sigurður Eyjólfsson og Gunnar V. Andrésson aka inn Mosfellsdalinn. Víða um dalinn eru hross á beit og einhvers staðar við Mos- fellið leynist silfur Egils en tvímenningarnir ætla hins vegar að kanna mannauðinn í sveitinni og skunda því á milli bæja. Þó að radíus höfuðborgarsvæðis- ins virðist vera að teygja sig yfir Mosfellsdalinn þá virðist sveita- menningin þar ekki ætla að láta undan síga. Yfir tvö hundruð manns búa í dalnum og sækja flest- ir vinnu sína í borgina. Þó er sam- heldnin mikil enda hefur viss íbúa- kjarni haldið þar velli þó ágangur aðkomumanna gerist sífellt meiri. Aðkomumaður í tæp fjörutíu ár Fyrst er komið við á æskuheim- ili nóbelskáldsins í Laxnesi en þar býr ævintýramaðurinn Þórarinn Jónasson. Hann rekur hestaleigu þar og svo hefur hann gert gömlu hlöðuna að hinum veglegasta veislusal. Gestirnir sem notið hafa aðstöðunnar á Laxnesi eru ekki af verri endanum. „Hér hafa ólíkleg- ustu menn skotið upp kollinum, til dæmis kom Rod Stewart hér fyrir nokkrum árum,“ segir Þórarinn. „Hann mátti hins vegar ekkert vera að því að ríða út enda kom hann uppáklæddur líkt og Raggi Bjarna þegar hann kom hingað. Það sama verður þó ekki sagt um piltana í Metallica en þeir riðu út allan daginn þegar þeir dvöldu hér. Þetta eru miklir sómamenn og það var ekkert sukk eða svínarí á þeim heldur bara einskær gleði. Sömu sögu er að segja um langflesta hestamenn, þetta er ekki eins og í gamla daga þegar menn voru með bokkuna í annarri og beisli í hinni.“ En aðspurður um sveit og sveit- unga segir Þórarinn: „Ég er búinn að búa hér í fjörutíu ár og það er rétt núna sem ég hef unnið mig upp úr því að vera aðkomumaður hér í sveit. Það er mikil samheldni hérna og ekki hlaupið að því að koma úr borginni og vera meðtekinn hér sem sveitungi. En svo veit ég það að fólk í Mosfellsbænum álítur okkur hálf biluð, ég segi ekkert um það hvort eitthvað sé hæft í því.“ Að svo mæltu kemur hestamað- ur með gest í hlöðuna og heilsar Þórarni en segir svo við gestinn: „Hér er gaman að fá sér í staup- inu.“ Gengið skáldaleiðir Bjarki Bjarnason frá Hvirfli hefur undanfarin ár kynnt dalinn fagra. Fer hann þá svokallaðar skáldaleiðir og segir af mikilli inn- lifun frá skáldum sem hafa skilið eftir sögu við sérhvern hól. „Til dæmis er komið við hjá Guddulaug svokallaðri en Halldór sagði frá henni í bókinni Í túninu heima,“ segir Bjarki. „Hann segir þar að allir hafi trúað á lækningamátt vatnsins úr Guddulaug en efalítið er það aðeins fært í stílinn en menn hafa nú skáldaleyfi hér í dalnum. En svo segir hann frá því að hann hafi alltaf sótt vatn fyrir föður sinn. Eitt sinn varð svo faðir hans veikur og þá sótti skáldið vatn fyrir hann í Guddulaug og honum batn- aði jafnskjótt. Svo varð faðir hans aftur veikur en þá var skáldið í Reykjavík að ganga frá Barni nátt- úrunnar og komst ekki til að færa föður sínum vatn og þá dó hann.“ Bjarki segir göngugarpana jafn- an drekka úr Guddulaug og hafi einhverjir kvillar verið að plaga þá verða þeir jafnan eins og nýslegnir túskildingar eftir góðan sopa. Bjarki lifir sig inn í hlutverkið og hermir jafnvel eftir skáldinu þegar svo ber undir. Það er engu líkara en tvímenningarnir séu staddir með honum í túninu heima. Æskuheimilið verður að safni „Ég komst að því þegar ég starf- aði í bæjarpólitíkinni að nágrannar okkar úr Mosfellsbæ álíta okkur hálf skrítin,“ segir Guðný Hall- dórsdóttir þegar tvímenningarnir tóku hús á henni. „Það var alltaf talað við mann með einhverju sál- fræðilegu ívafi. En fólk sem hefur búið á sömu þúfunni alla tíð verður náttúrlega svolítið heimaríkt og við stöndum saman. Það kann að vera það sem veldur þessu,“ segir hún og brosir við. Guðný er dóttir nóbelskáldsins líkt og flestir vita og býr hún á Melkoti sem er steinsnar frá Gljúfrasteini. „Þetta er vissulega nokkuð skrítið að sjá æskuheimili sitt verða að safni en vissulega sá ég að í þetta stefndi og gat því und- irbúið mig. Nú reyni ég eftir fremsta megni að aðstoða þetta góða fólk sem að því stendur,“ segir Guðný og lítur í kringum sig í túninu heima. GUÐNÝ HALLDÓRSDÓTTIR Guðný sér æskuheimili sitt úr eldhúsglugga sínum á Melkoti. Æskuheimili sem nú er orðið að safni. FRÉTTABLADID/GVA BJARKI BJARNASON FRÁ HVIRFLI Saga leynist við hvern hól í Mosfellsdal og hefur Bjarki í nógu að snúast við að skila henni til ferðamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Í MOSFELLSDAL Kirkjan á Mosfelli kórón- ar dalinn. Einhvers staðar í gilinu þar fyrir ofan gæti svo silfur Egils verið að finna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sveitungar í túninu heima ATVINNUREKANDINN: GRÓÐRARSTÖÐIN Í DALSGARÐI Blómleg starfsemi í dalnum GÍSLI OG LIGITE.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.