Fréttablaðið - 10.03.2006, Síða 43
10. mars 2006 FÖSTUDAGUR40
tonlist@frettabladid.is
Írska hljómsveitin U2 hefur
frestað síðustu tíu tónleikunum á
tónleikaferð sinni um heiminn
vegna veikinda náins fjölskyldu-
meðlims.
Ekkert verður því af tónleikum
sem sveitin átti að halda í Japan,
Nýja-Sjálandi og Ástralíu í næsta
mánuði. Tónleikarnir í Ástralíu
áttu að vera þeir fyrstu í átta ár.
Talsmaður U2 sagði að ákvörð-
unin hefði verið óhjákvæmileg og
tilkynnt yrði um nýjar dagsetn-
ingar á tónleikunum um leið og
þær væru orðnar klárar.
Faðir söngvarans Bono, Bob
Hewson, lést úr krabbameini á
meðan U2 var á síðustu tónleika-
ferð sinni um heiminn árið 2001.
Stutt er síðan U2 vann fimm
Grammy-verðlaun, þar á meðal
fyrir plötu ársins, How to
Dismantle an Atomic Bomb sem
kom út á þarsíðasta ári.
U2 frestar tónleikum
U2 Rokksveitin U2 hefur frestað síðustu
tíu tónleikunum á tónleikaferð sinni um
heiminn. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
> Plata vikunnar
Jack Johnson: Curious George
„Fylgifiskur hinn-
ar geysivinsælu
In Between
Dreams er nán-
ast nákvæmlega
eins og búast
mátti við. Jack
Johnson semur þó í þetta skiptið
fyrir kvikmynd, en það setur engan
svip á plötuna.“ BÖS
I Am The Avalanche: I Am
The Avalanche
Frumraun bandarísku emórokksveitarinnar
I Am The Avalanche er eins óspennandi og
hugsast getur. Hér er verið að vinna eftir
formúlu sem er löngu orðin úrelt.
BÖS
Mary J. Blige: The Break-
through
Sjöunda breiðskífa Mary J. Blige er í hæsta
gæðaflokki þegar kemur að útvarpsvænni R&B
tónlist. Ef henni hefur enn ekki verið úthlutað
hásæti senunnar er kominn tími til að krýna
drottninguna.
BÖS
Siggi Ármann: Music for the
Addicted
Þessi önnur plata Sigga Ármanns er bæði
lágstemmd og tilfinningarík og í raun fyrirtaks-
plástur á brothætt sálarlíf. Munið bara: innri
fegurðin skiptir mestu máli.
FB
Stórsveit Nix Noltes:
Orkideur Hawaii
„Stórsveit Nix Noltes á mikla athygli og
ennþá meiri tónleikaaðsókn skilda fyrir þessa
hressandi tónlist sem hefur þann þó neikvæða
fylgikvilla að henta ótrúlega illa til hlustunar í
heyrnartólum.“
BG
The Knife: Silent Shout
„Sænski systkinadúettinn kýs að yfirgefa
poppið á þriðju breiðskífu sinni og færa sig
nær tormeltari og sveimkenndari tónlist.
Samt nægilega sterk plata til að halda athygli
aðdáenda.“
BÖS
Cat Power: The Greatest
„Á sjöundu breiðskífu sinni er Cat Power studd
af undirleikssveit Als Green. Sem fyrr gefur
söngkonan hlustandanum örlítinn hluta af sálu
sinni og skilar af sér afbragðs plötu.“
BÖS
Birgir Örn Steinarsson, Freyr Bjarnason, Borg-
hildur Gunnarsdóttir.
SMS
UM NÝJUSTU PLÖTURNAR
Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI
Blindfold: Blindfold, Jeffrey & Jack
Lewis: City & Eastern Songs, The Tyde:
Three´s Co., Adam Green: Nat King
Cole og Epo-555: Mafia.
1. NINE INCH NAILSEVERY DAY IS EXACTLY THE SAME
2. FRÆFREÐINN FÁVITI
3. SYSTEM OF A DOWNLONELY DAY
4. RICHARD ASHCROFTBREAK THE NIGHT WITH SILENCE
5. DEAD SEA APPLEBEARER OF BAD NEWS
6. AMPOPCLOWN
7. BULLET FOR MY VALENTINEALL THESE THINGS I HATE
8. FUTURE FUTURECODE CIVIL
9. THE DARKNESSIS IT JUST ME
10. AVENGED SEVENFOLDBEAST AND THE HARLOT
X-LISTINN
TOPP TÍU LISTI X-INS 977
TRENT REZNOR Forsprakki Nine Inch Nails
er kominn í efsta sæti X-listans með lagið
Every Day is Exactly the Same.
Fyrsta sólóplata Birgis
Hilmarssonar, söngvara og
gítarleikara Ampop, kemur
út á mánudaginn. Birgir
gefur út undir nafninu
Blindfold og heitir platan
sama nafni. Freyr Bjarna-
son ræddi við Birgi um sóló-
verkefnið.
Platan átti upphaflega að koma út
í byrjun ágúst en eitthvað dróst
útgáfan á langinn og kom því
fyrst út í Bretlandi og Japan.
Birgir segist aldrei hafa ætlað að
gefa hana út á sínum tíma en
síðan hafi sprottið upp áhugi hjá
plötufyrirtækinu Resonant í
London, sem gaf út smáskífuna
My Delusions með Ampop á síð-
asta ári.
„Ég hélt þessu fyrir sjálfan
mig í eitt ár og sagði hvorki já né
nei við þá. Ég ætlaði ekki að gera
þetta og fannst þetta vera bara
fyrir mig, hálfgert skúffuverk-
efni,“ segir Birgir. „Síðan lenti ég
í því að félagarnir voru farnir að
fíla þetta vel og voru að spila
lögin í partíum, þannig að það var
mikill félagsþrýstingur í gangi
um að gefa þetta út, líka frá fólki
sem ég þekkti ekki neitt,“ segir
hann.
Tónlist fyrir kærustuna
„Það er eiginlega tvenn uppspretta
að þessari plötu. Ég var að gera
tónlist við innsetningar, skúlptúra
og ljósmyndaverk hjá kærustunni,
og var hún allt frá því að vera
framandi upp í að vera hversdags-
leg. Svo virkaði það mjög vel.
Annað lagið á plötunni og það sein-
asta, Þokubörnin, gerði ég fyrir
„slide show“ sem hún gerði með
myndum af fötluðum börnum sem
hún varpaði á risaskjá,“ segir
hann.
Hljómaði Þokubörnin m.a. í
þáttaröðinni Allir litir hafsins eru
kaldir sem var sýnd í Sjónvarp-
inu á dögunum ásamt öðru lagi
plötunnar, Sleepless Nights. Að
sögn Birgis var hin uppsprettan
að plötunni sú að Óli í Stafrænum
Hákoni kom og útsetti með honum
nokkur lög sem síðar voru sett á
plötuna.
Blindfold-platan, sem er nokk-
uð lík eldri verkum Ampop, hefur
selst ágætlega erlendis, sérstak-
lega miðað við hvað plötufyrir-
tækið Resonant, sem meðal ann-
ars hefur á sinni könnu Stafrænan
Hákon, Ölvis og Sk/um, er lítið í
sniðum. Hefur hún einnig fengið
góða dóma, m.a. í tímaritinu Wire.
Fyrir nokkrum vikum kviknaði
síðan áhugi á að gefa hana út hér
heima, líklega vegna aukinna vin-
sælda Ampop.
Tónleikahátíð í Skotlandi
Birgir, sem býr úti í Glasgow, býst
ekki við því að fylgja plötunni
eftir á Íslandi. Aftur á móti hefur
Blindfold þegar haldið tónleika í
Edinborg og Glasgow og hefur
jafnframt verið boðið að spila á
tónleikahátíð í Skotlandi í sumar.
„Ég er búinn að búa til litla hljóm-
sveit og við erum að fá mjög góðar
viðtökur. Þetta verkefni er leik-
fangalandið mitt. Á meðan hinir í
Ampop eru að vinna frá átta til
fimm heima er ég að ströggla úti
við að vera tónlistarmaður og er
að dúlla mér í þessu á meðan. Það
er svo gaman að leika sér með
hljóð og gera eitthvað spennandi.“
Ampop til Frakklands
Ampop byrjar vikulanga tónleika-
ferð sína um landið með Diktu og
Hermigervli á Egilsstöðum í kvöld.
Lýkur henni á Nasa eftir viku.
Samningur við franska plötufyrir-
tækið Recall er jafnframt í burðar-
liðnum og hyggur sveitin á tón-
leikaferð um Frakkland í sumar.
Önnur plata Ampop, Made For
Market, sem er undanfari hinnar
vinsælu My Delusions sem kom út
fyrir síðustu jól, verður einnig
endurútgefin hér á landi á mánu-
daginn og því ljóst að bæði Ampop
og Blindfold eru á beinu brautinni
og ætla sér vafalítið að halda sér
þar í framtíðinni.
Leikfangalandið Blindfold
Hljómsveitirnar Singapore
Sling, Dr. Mister and Mr.
Handsome, Auxpan og
Reykjavík! eru á meðal
þeirra sem koma fram á tón-
leikunum Reykjavik in
Technicolour sem verða
haldnir í Tjarnarbíói annað
kvöld. Standa þeir yfir frá
klukkan 18.00 fram yfir
miðnætti.
Á tónleikunum verða
sýndar stuttmyndir og
önnur myndbandsverk,
meðal annars eftir
listamanninn Alex-
ander Caklinsky
sem er íslenskætt-
aður en býr í Brook-
lyn í New York. Verða
myndirnar sýndar á sama
tíma og tónlistarmennirnir
koma fram. Einnig stendur
til að taka upp tónleikana
með fimm myndavélum og
búa til DVD-mynddiska með
útkomunni.
Haukur S. Magnússon úr
hljómsveitinni Reykjavík!
segir sveitina hlakka
mikið til tónleikanna.
„Þetta hljómaði
mjög spennandi og
við höfðum mikinn
áhuga á að taka
þátt,“ segir Hauk-
ur.
Ný plata með
Reykjavík! er
væntanleg síðar
á þessu ári. Upptökur hóf-
ust í byrjun október í fyrra
og verður platan tilbúin á
næstu dögum. Upptöku-
stjóri var Valgeir Sigurðs-
son, sem hefur meðal ann-
ars unnið mikið með Björk í
gegnum árin.
„Það var alveg geðveikt
að fá að vinna með honum,“
segir Haukur um Valgeir.
„Honum hefur tekist að láta
okkur hljóma eins og alvöru
hljómsveit.“
Svo gæti farið að Reykja-
vík! fari í tónleikaferð út
fyrir landsteinana til að
fylgja plötunni eftir en það
á allt eftir að koma í ljós
síðar.
Óvenjulegir tónleikar
> popptextinn
„Without you I was broken
but I´d rather be broke down with
you by my side.“
Jack Johnson
er í ástarsorg í
laginu Broken
af plötunni Cur-
ious George.
BIRGIR HILMARSSON Forsprakki Ampop hefur gefið út sína fyrstu sólóplötu undir lista-
mannsnafninu Blindfold. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.