Fréttablaðið - 10.03.2006, Side 55

Fréttablaðið - 10.03.2006, Side 55
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 2 + 6 =1 ���������� ��������������������� Í Atómstöðinni eftir Halldór Lax-ness lofar forsætisráðherrann þrisvar af svölum Alþingishússins að selja ekki landið. Svo fer hann á fyllerí og segir meðal annars: Afhverju ég vil selja landið? Af því samviska mín býður mér það. Hvað er Ísland fyrir íslendinga? Ekkert. Smáríki - skítur... Ég vil selja mitt land, alt fyrir þetta eina. Þeir mega draga mig á hárinu um allan bæinn... Þó þeir fleingi mig opinberlega á Austurvelli og fleygi mér til andskotans útúr ríkis- stjórninni þá skal ég samt selja mitt land. LOFORÐ og svik ráðherrans snú- ast um það hvort leyfa eigi herstöð á Íslandi. Ugla horfir á ósköpin og þegar ráðherrann hefur velt við glösum, staðið upp og sperrt sig, segir hún að maðurinn sé í raun og veru svo drukkinn að ekkert sé eftir af honum nema innsta eðlið. SVO kom herinn til Íslands, bæði í sögunni og í raunveruleikanum. Tyllti sér á Reykjanesið og opnaði þar sína sjoppu með tilheyrandi útgjöldum sem komu sér til góða fyrir ríkiskassann. Í dag er her- stöðin á Miðnesheiði fjárhagsleg- ur baggi á bandarískum stjórn- völdum. Þau vilja út. En þá bregður svo við að íslenskt æðstaráð gengur ítrekað á fund sendiherra, utanríkisráðherra og forseta þess ríkis eins og betlikerling og grát- biður það vera. ÞETTA sama æðstaráð þarf ekki einu sinni að vera drukkið til að selja landið ef því sýnist. Innsta eðlið svo nakið. Það kom sér í rík- isstjórn til að losa okkur við land- ið, þetta smáríki - skít. Forsætis- ráðherra okkar tíma segir í sjónvarpsviðtali að álvaldið í útlöndum, sem þegar hefur hreiðr- að um sig hér, segist fara ef það fái ekki meira land, en það sé ekki hótun. Hvað á maðurinn að segja? Ekki vill hann að þjóðin sjái að raunverulega valdið liggur ekki lengur hjá honum. En þjóðin sér það nú samt. Sér þar fyrstu merki þess að íslenskt æðstaráð þurfi nú að slípa betlistafinn vel til að ganga á fund áltröllanna í framtíð- inni. Það verður auðvitað vandi þeirra sem landið erfa, vandi þeirrar framtíðar sem mun ekki skilja bofs í þeirri fegurð landsins sem skáldin okkar hafa keppst um að lofa. Sú fegurð mun virka eins og hver önnur skynvilla, blekking. OG nú er Árni litli hættur að vera ráðherra af persónulegum ástæð- um og farinn til Íslandsbanka. Það ætla ég að vona að Guð vors lands gefi að hann lendi ekki í því að sjá um boxið sem útdeilir peningum til stóriðjuframkvæmda. Bara svona af þeim persónulegu ástæð- um að hann á ung börn. Hvað er persónulegra en það? Ó guð vors lands 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.