Fréttablaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 55
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
2 + 6 =1
����������
���������������������
Í Atómstöðinni eftir Halldór Lax-ness lofar forsætisráðherrann
þrisvar af svölum Alþingishússins
að selja ekki landið. Svo fer hann á
fyllerí og segir meðal annars:
Afhverju ég vil selja landið? Af
því samviska mín býður mér það.
Hvað er Ísland fyrir íslendinga?
Ekkert. Smáríki - skítur... Ég vil
selja mitt land, alt fyrir þetta eina.
Þeir mega draga mig á hárinu um
allan bæinn... Þó þeir fleingi mig
opinberlega á Austurvelli og fleygi
mér til andskotans útúr ríkis-
stjórninni þá skal ég samt selja
mitt land.
LOFORÐ og svik ráðherrans snú-
ast um það hvort leyfa eigi herstöð
á Íslandi. Ugla horfir á ósköpin og
þegar ráðherrann hefur velt við
glösum, staðið upp og sperrt sig,
segir hún að maðurinn sé í raun og
veru svo drukkinn að ekkert sé
eftir af honum nema innsta eðlið.
SVO kom herinn til Íslands, bæði í
sögunni og í raunveruleikanum.
Tyllti sér á Reykjanesið og opnaði
þar sína sjoppu með tilheyrandi
útgjöldum sem komu sér til góða
fyrir ríkiskassann. Í dag er her-
stöðin á Miðnesheiði fjárhagsleg-
ur baggi á bandarískum stjórn-
völdum. Þau vilja út. En þá bregður
svo við að íslenskt æðstaráð
gengur ítrekað á fund sendiherra,
utanríkisráðherra og forseta þess
ríkis eins og betlikerling og grát-
biður það vera.
ÞETTA sama æðstaráð þarf ekki
einu sinni að vera drukkið til að
selja landið ef því sýnist. Innsta
eðlið svo nakið. Það kom sér í rík-
isstjórn til að losa okkur við land-
ið, þetta smáríki - skít. Forsætis-
ráðherra okkar tíma segir í
sjónvarpsviðtali að álvaldið í
útlöndum, sem þegar hefur hreiðr-
að um sig hér, segist fara ef það fái
ekki meira land, en það sé ekki
hótun. Hvað á maðurinn að segja?
Ekki vill hann að þjóðin sjái að
raunverulega valdið liggur ekki
lengur hjá honum. En þjóðin sér
það nú samt. Sér þar fyrstu merki
þess að íslenskt æðstaráð þurfi nú
að slípa betlistafinn vel til að
ganga á fund áltröllanna í framtíð-
inni. Það verður auðvitað vandi
þeirra sem landið erfa, vandi
þeirrar framtíðar sem mun ekki
skilja bofs í þeirri fegurð landsins
sem skáldin okkar hafa keppst um
að lofa. Sú fegurð mun virka eins
og hver önnur skynvilla, blekking.
OG nú er Árni litli hættur að vera
ráðherra af persónulegum ástæð-
um og farinn til Íslandsbanka. Það
ætla ég að vona að Guð vors lands
gefi að hann lendi ekki í því að sjá
um boxið sem útdeilir peningum
til stóriðjuframkvæmda. Bara
svona af þeim persónulegu ástæð-
um að hann á ung börn. Hvað er
persónulegra en það?
Ó guð vors
lands
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI