Fréttablaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 4
4 10. mars 2006 FÖSTUDAGUR Af fyrirsögn Fréttablaðsins í gær mátti ráða að unglæknar á Landspítala háskólasjúkarhúsi hygðust leggja niður vinnu til að ná fram kröfum um hvíld- artíma. Hið rétta er að þeir hafa ritað sviðsstjórum LSH bréf, þar sem þeir fara fram á að fá að taka út hvíldarrétt 31. mars. Þeir munu mæta til starfa þótt beiðni þeirra verði hafnað. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTTING LÖGREGLA Tveir fullorðnir menn sluppu lítið meiddir eftir bílveltu skammt frá bænum Laugalandi í Eyjafjarðarsveit um átta leytið í gærmorgun. Bíllinn rann til á veginum og lenti utan vegar þar sem hann fór eina veltu. Ökumaður bílsins hringdi í neyðarlínuna og komu lögreglumenn frá Akureyri fljótt á vettvang. Báðir þeir sem í bílnum voru reyndust lítið slasaðir. Þeir voru fluttir á slysadeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri til skoð- unar en meiðsl þeirra reyndust minni háttar. Bíllinn er ónýtur eftir veltuna en hann var fjarlægður með kranabifreið af slysstað. - mh Bílvelta við Akureyri: Tveir sluppu lítið meiddir Bandaríkjadalur 68,77 69,09 Sterlingspund 119,58 120,16 Evra 82,03 82,49 Dönsk króna 10,995 11,059 Norsk króna 10,22 10,28 Sænsk króna 8,689 8,739 Japanskt jen 0,5864 0,5898 SDR 98,85 99,43 GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 9.3.2006 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA Gengisvísitala krónunnar 115,2127 ÍRLAND, AP Um 400 lögreglumenn, hermenn og landamæraverðir frá báðum hlutum Írlands gerðu húsleit í dögun í gær á heimili manns sem talið er að sé einn helsti yfirmaður Írska lýðveldishersins, IRA. Leitin náði jafnframt til um tíu annarra húsa við landamærin. Þrír menn voru handteknir og vegum lokað, en litlar aðrar upplýs- ingar fengust hjá lögreglu. Leitin var að hluta til gerð vegna rann- sóknar á peningaþvætti IRA, en jafnframt var hert landamæraeftir- lit sögð vera ástæða hennar. Árum saman hefur miklu eldsneyti verið smyglað um landamærin. - smk Leit á heimili IRA-foringja: Þrír voru tekn- ir í húsleit VETTVANGSRANNSÓKN Lögreglumaður rannsakar svæðið í kringum heimili manns sem sagður er vera yfirmaður IRA. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MENNTAMÁL „Markmið Kristínar Ingólfsdóttur rektors er raunhæft sem langtímaverkefni ef þjóðin vill það og er reiðubúin að setja í það peninga,“ segir Hörður Filippusson, deildarforseti raunvísindadeildar. Hann er samsinna kollegum sínum hvað varðar raunhæfi þess að Háskóli Íslands komist í hóp bestu háskóla heims svo lengi sem mörkuð sé skýr stefna og fjárfram- lag verði mikið aukið frá því sem nú er. Hörður segir engan vafa leika á gildi Háskólans fyrir þjóðina alla. Það sjáist víða í þjóðfélaginu. „Háskólinn stendur á gömlum grunni og hefur vaxið að styrk í rannsóknum undanfarna áratugi á mörgum sviðum. Besta dæmið um hve góða menntun má fá í skólanum er sú staðreynd að þeir nemendur sem fara frá okkur í meira nám erlendis eiga yfirleitt greiðan aðgang að flestum skólum og hafa staðið sig vel þar. Hins vegar eru veikleikarnir miklir. Þar er vandamálið fyrst og fremst hversu illa skólinn er fjármagnaður en þau eru fleiri vandamálin sem þarf að laga áður en hægt verður að taka þau skref sem til þarf til að koma honum í fremstu röð. Framlög til rannsókna eru lítil og hafa lækkað mikið undanfarin ár í stað þess að aukast eins og þörf er á. Alla innviði rannsókna þarf að efla en fjárskortur hamlar því eins og öðru.“ Sigurður Brynjólfsson, deildar- forseti verkfræðideildar, er sam- mála Herði að flest það sem laga þarf innan skólans megi rekja til viðvarandi fjárskorts undanfarinna ára. „Ég tel að það verði stærsta verkefni rektors að afla fjár til að gera skólann sam- keppnishæfan við það sem best ger- ist. Undirstöðurn- ar eru fyrir hendi að mörgu leyti en það kemur enginn háskóla í hóp þeirra bestu á hugarorkunni einni saman. Til þess þarf mikið fé og mun meira en skólinn hefur verið að fá. Fáist það með einhverj- um hætti er markmið rektors ekki óraunhæft að mínu mati en verk- efnið er vissulega verðugt og fáir sem yrðu ekki reiðubúnir að leggja því lið innan skólans. Mér líst mjög vel á þetta framtak rektors.“ albert@frettabladid.is HÁSKÓLI ÍSLANDS Deildarforsetar raunvísindadeildar og verkfræðideildar eru sammála um að fjárskortur hamli því að Háskólinn sé ekki í fremstu röð en markmiðið sé verðugt. SIGURÐUR BRYNJ- ÓLFSSON Háskólinn kemst ekki í hóp eitt hundrað bestu háskóla heimsins á hugarorkunni einni. Útilokað sé annað en að ætla að til þess þurfi stóraukið fjármagn og meðan svo sé muni umræðan um upptöku skólagjalda lifa. HÖRÐUR FILIPPUS- SON Deildarforseti raunvísindadeildar segir markið ekki sett of hátt en margt þurfi að koma til áður en Háskólinn geti skammlaust farið fram á mat þeirra sem meta frammi- stöðu háskóla um heim allan.FRÉTTA- BLAÐIÐ/E.ÓL Háskólinn hefur gert mikið fyrir þjóðina Ætli Háskólinn að komast í fremstu röð í heiminum er nauðsynlegt að ríkið og þjóðin öll standi þar þétt að baki, að mati tveggja deildarforseta við skólann. LÓÐAÚTHLUTUN Byggingavöruversl- unin Bauhaus fær lóðina við rætur Úlfarsfells. Borgarráð samþykkti það einróma í gær. Forsvarsmenn Byko og Húsasmiðjunnar hyggjast skoða réttarstöðu sína. Húsasmiðj- an, þar sem hún hafi talið að aðeins væri gert ráð fyrir einni bygging- arvöruverslun á svæðinu þeirra. Byko þar sem fyrirtækið hefur sóst eftir lóð austan við Vesturlandsveg frá því árið 1998 en fékk lóð vestan vegarins. Steinn Logi Björnsson, forstjóri Húsasmiðjunnar, segir að ákvörð- un um að byggja verslunina við Grafarholt hafi verið tekin eftir að hafa metið deiliskipulag svæð- isins. Síðan hafi því verið tví- breytt, fyrir Byko og nú Bauhaus. Húsasmiðjan hafi einnig sótt um lóð við Vesturlandsveg en verið hafnað. „Við erum raunar ánægðir með staðsetninguna en hefðum viljað stærri verslun og að ekki væru byggðar fjörutíu þúsund fermetra byggingavöruverslanir ofan í okkar.“ Eiríkur Elís Þorláksson lögmað- ur segir ekki útilokað að bótaskylda geti myndast en bæði geti verið erfitt að sýna fram á að fyrirtækin hafi skaðast sem og hversu mikið tjónið er. Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs, segir borgina ekki hræðast lögsóknir og athugasemd- ir Húsasmiðjunnar hafi ekki borist henni. Borgin hafi haft hagsmuni húsbyggjenda að leiðarljósi og alls almennings sem komi til með að njóta lægra verðlags. DAGUR B. EGGERTSSON For- maður skipulags- ráðs. STEINN LOGI BJÖRNSSON Forstjóri Húsasmiðj- unnar. BAUHAUS TIL ÍSLANDS Borgin úthlutaði Bauhaus lóð undir hlíðum Úlfarsfells í gær. Byko byggir beint á móti. Borgarráð samþykkti einróma að Bauhaus fengi lóð við rætur Úlfarsfells: Húsasmiðjan og Byko fá lögfræðiálit Áfram í Írak Ástralskir hermenn munu verða eitt ár til viðbótar hið minnsta í Írak samkvæmt ákvörðun ástralskra stjórnvalda í vikunni. Nú eru um 450 ástralskir hermenn á átakasvæðum í Írak. ÁSTRALÍA VILL Í FREMSTU RÖÐ HÁSKÓLI ÍSLANDS TAÍVAN Chen Shui-bian, forseti Taí- vans, hvatti Íslendinga fyrr í vik- unni til þess að styðja umsókn Taívans um aðild að yfirstjórn WHO, Alþjóða heilbrigðisstofn- un Sameinuðu þjóðanna. Þetta kom fram á fundi Chen með Arn- björgu Sveins- dóttur, þing- flokksformanni Sjálfstæðisflokksins, fyrr í vik- unni, en hún er stödd í Taívan ásamt fleiri þingmönnum í boði þarlendra stjórnvalda. Um samskipti Taívans og Íslands segir Chen að á undanförn- um fjórum árum hafi 17 íslenskir þingmenn heimsótt landið. - jh Taívan vill sæti í WHO: Biðja Ísland um stuðning ARNBJÖRG SVEINSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.