Fréttablaðið - 07.04.2006, Page 54
VINNINGAR VERÐA AFHENDIR HJÁ BT SMÁRALIND. KÓPAVOGI. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB. 99 KR/SKEYTIÐ.
Í dag hefst miðasala á Manchester-
tónleikana í Laugardalshöll og
Nasa á midi.is og verslunum Skíf-
unnar og B.T. Heppnir miðakaup-
endur geta átt von á góðum auka-
glaðningi því fjórtán farseðlar til
Manchester eru faldir í þeim fimm
þúsund miðum sem til sölu eru.
Fólk þarf ekki að bíða og sjá hvort
það hafi unnið því það fær tilkynn-
inguna strax og það lýkur kaup-
ferlinu.
Mikið úrval íslenskra og
erlendra tónlistarmanna treður
upp á þessari hátíð og nægir þar
að nefna húfugítarleikarann Badly
Drawn Boy auk Echo and the
Bunnymen en sú sveit kemur
reyndar ekki frá Manchester held-
ur Liverpool. Hún hefur reyndar
líka áður komið til Íslands en það
var fyrir 23 árum síðan og má til
gamans geta að á umslagi hljóm-
plötunnar Porcupine má sjá hljóm-
sveitarmeðlimina standa við Gull-
foss.
Meðal íslenskra tónlistar-
manna má nefna The Foreign
Monkeys en sveitin vann Músík-
tilraunir með miklum tilþrifum
fyrir skömmu. Þá kemur stórsveit
Benna Hemm Hemm einnig fram
auk glysrokksveitarinnar Tra-
bant.
Miðasala hefst í dag
BADLY DRAWN BOY Er meðal þeirra
fjölmörgu listamanna sem koma fram á
Manchester-tónleikunum í Laugardalshöll
og Nasa. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Fyrir rúmum áratug eða
svo var varla hægt að
þverfóta fyrir erótískum
spennutryllum í kvik-
myndahúsum borgarinnar.
Nú virðast þeir hafa beðið
afhroð ef marka má viðtök-
urnar við Basic Instinct 2.
Dómar íslenskra gagnrýnenda um
framhaldsmyndina Basic Instinct 2
eru ekkert einsdæmi. Kvikmynda-
rýnar hafa keppst um að hakka
myndina í spað og verður hún
að teljast líkleg til afreka á Rifs-
berjaverðlaununum, sem veitt eru
verstu kvikmyndunum ár hvert.
Ógnareðlið er ágætt dæmi um
hvert erótískir trillar stefna. Jade,
Body of Evidence og Showgirls
fóru nánast sömu leið og Sharon
Stone ; háðulega útreið í öllum
fjölmiðlum var það eina sem
þeirra beið.
Sitt sýnist hverjum um ástæð-
ur þess að erótík er á undanhaldi í
bandarískum kvikmyndum.
Fréttavefur CNN birti fyrir
nokkru samtöl við helstu máttar-
stólpana í þessum geira og fremst-
ur meðal jafningja var Paul Ver-
hoeven en hann leikstýrði fyrri
myndinni um Catherine Tramell.
„Allt sem er erótík hefur verið
bannað í Bandaríkjunum,“ sagði
leikstjórinn við fréttavefinn. „Við
búum við stjórnvöld sem hamra
stöðugt á kristnum gildum en
kristin trú og kynlíf hafa aldrei átt
vel saman,“ hélt leikstjórinn
áfram. Handritshöfundurinn
Nicholas Meyer, sem á meðal ann-
ars heiðurinn af handriti Fatal Att-
raction, tekur undir þessi orð Ver-
hoeven og segir Bandaríkin vera
orðið púrítanskt samfélag. „Við
búum við hálfgerðan McCarthy-
isma nema nú er ekki lengur spurt
hvort þú sért kommi heldur hvort
þú hafir kynlíf í kvikmyndum
þínum,“ bætti Meyer við.
Ekki eru þó allir sammála þessu
og Mark Damon, sem framleiddi 9
1/2 viku og Wild Orchid, taldi þetta
vera útbrunna tískubólu. Fram-
leiðandinn JC Spink hafnar þó
öllum þessum rökum og dregur
internetið til ábyrgðar. „Af hverju
að borga 800 krónur fyrir eitthvað
sem þú sérð frítt á netinu?“ spurði
Spink. Hollywood hefur hins vegar
ekki alveg gefist upp á erótíkinni
því í burðarliðunum eru Number
23 með Jim Carrey og Sabbatical
þar sem Jennifer Garner flettir
sig klæðum auk sálfræðitryllisins
Need.
Erótík á undanhaldi?
BASIC INSTINCT 2 Framhaldsmyndin hefur
fengið háðulega útreið í velflestum fjöl-
miðlum og nú spyrja menn hvort erótík sé
liðin tíð í Hollywood.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Eva Longoria hefur lýst því yfir að hún vilji fá Michael
Douglas til að leika miðaldra
ástmann sinn í þáttaröðunum
Aðþrengdar eiginkonur en þau
léku saman í kvikmyndinni
The Sentinel. Svo virðist sem
Longoria hafi notið samvist-
anna við stórstjörnuna
það mikið að
hún vill ólm
endurtaka leikinn
sem allra fyrst en
hún er sem kunnugt
er í sambúð með
körfuknattleiks-
leikmanninum
Tony Parker.
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
ICE AGE 2 kl. 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI
ÍSÖLD 2 kl. 6 og 8 M/ÍSLENSKU TALI
DATE MOVIE kl. 10 B.I. 14 ÁRA
ICE AGE 2 kl. 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI
LUCKY NUMBER SLEVIN kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
THE PRODUCERS kl. 8 og 10.45
WALK THE LINE kl. 5.15, 8 og 10.45
RENT kl. 5.20 B.I. 14 ÁRA
ICE AGE 2 kl. 4, 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI
ICE AGE 2 SÝND Í Í LÚXUS kl. 4, 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI
ÍSÖLD 2 kl. 4, 6 og 8 M/ÍSLENSKU TALI
DATE MOVIE kl. 6, 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
BIG MOMMA’S HOUSE 2 kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15
PINK PANTHER kl. 3.50 og 10.10 400 kr. í bíó!
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
STEVE MARTIN KEVIN KLINE
- L.I.B - TOPP5.IS
- S.K. - DV
2 FYRIR 1
FYRIR VIÐSKIPTAVINI
GULLVILDAR
ÓSKARS-
VERÐLAUNIN
sem besta leik-
kona í aðalhlut-
verki - Reese
Witherspoon
AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINS!
YFIR 22.000 MANNS !
VINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG!
SPRENGHLÆGILEGUR SÖNGLEIKUR
FRÁ GRÍNSNILLINGNUM MEL BROOKS!!Mamma allra
grínmynda er
mætt aftur í
bíó!
WWW.XY.IS
200 kr.
afsláttur
PÁSKAMYNDIN 2006
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
EIN STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA Í USA
RANGUR TÍMI, RANGUR
STAÐUR, RANGUR MAÐUR
- LIB, Topp5.is