Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 09.03.1970, Síða 3

Mánudagsblaðið - 09.03.1970, Síða 3
Mánudagur 9. marz 1970 Má nud a g sbtaðlð 3 Samband íslenzkra trygging- a félaga er 10 ára Sl. sunnudag boðaði stjórn Sambands íslenzkra trygginga- félaga blaðamenn á sinn fund, en tilefnið var 10 ára afmæii sambandsins. Við þetta tækifæri skýrði Stefán G. Björnsson, forstjóri, frá störfum sambandsins og birtist hér úrdráttur úr ræðu hans: Fyrir síðustu heimsstyrjölid voru aðeins starfandi hér fjögur innlend vátrygginigafélög og þá aðeins eitt sem annaðist þær tryggingagreinar sem þá helzt þekktar, þ.e. sjóváti-ygging- ar, brunaitryggingar, bifreiða- og líftrygging'ar. Þessi félög voru Samábyrgð Is- lands á fiskiskipum, Samti-ygg- ing íslenzkra botnvörpunga, Brunabótafélag Islands og Sjó- vátryggingafélag Is-lands. Þegar félögunum fjölgaði þá fundu framkvæmdastjórar þeirra að nauðsynlegt væri að hafa nokkuð náið saimstarf í ýmsum mállium. Árið 1953 höfðu þau félög, sem tóku að sér svokaMað'ar frjálsar ábyrgðatryggingar gjört með sér gagnkvæma endurtryggingasaimn- inga, með Islenzkri endurtrygg- ingu sem tengilið. Á fundi í þeim samtökum 2G. september 1958, var vakið máls á því að nauðsynlegt væri að mynda einhver heildarsamtök. 1 undirbúningsnefnd vora kosnir þéir Ásgeir Magnússon, Guðmundur Guðm-undsson o*g Stefán G. Björnsson. Við samninga samþykkta fyrir væntanleg samtök var helzt stuðst við samiþykktir Dansk For- sikrin'gsforening o-g Assurandör Societetet. Boðuðu þremienninigamir síð- an til stofnfundar þann 1- marz 1960 og urðu sitofnaðilar tólf fé- lög. Um tilgang sambandsins segir svo í 2. grein samiþykkta þess: „Tilgangur sambandsins er að. gæta hagsmuna hinna íslenzku tryggingafélaga milli þeirra inn-, I voru | byrðis, gagnvart hinu opinbera og öðrum aðilum og korna fram fyrir þeirra hönd í þeim rnálum, sem varða tryggingafélögin í heild. Þá skal sambandið, eftir því sem við verður komið, stuðla að því að tryggingastanfsemin sé rekin á heilbrigðum grundvelli, þannig að hið þjóðhaigsiega Mut- verk hennar sé innt af hendi“. Hinn mikli fjöldi ’mála sem fjallað hefur verið um og hin vaxandi starfsemi sem rekin er á vegum sambandsins, sýnir hve brýn þörf var á stofhun þess. Fyrstu stjórn skipuðu þeir Ás- geir Maignússon, Gísli Ölafsson og Stefón G. Björnsson, sem for- maður. Núveramdi stjómarmenn eru: Ásgeir Magnússon, Ásgeir Ól- afsson og Stefán G. Bjömsson- Tryggingaskólinn tó'k til starfa 1. okt. 1962. Skólinn hefir því starfað hát.t á áttunda ár og að allra áliti verið mikdl nauðsyn. Alils hafa 11 námiskeið verið haldin, þar af 9 með lok'aprófi og brautskráðir hafa verið 117 nemendur. Án prófs hafa verið haildin námskeið i notkun skýrsluvéla og í líftryggingum. Kennarar Björn Gunnarsson og Eriendur Lárusson. Prófdómari við flest prófin hefur Benedikt Sigurjónssion ver- ið. Á vegum skólans hefir sam- bandið gefið út nokkrar kennslu- bækur um vátryggingar, fyrst árið 1964 um skipatryggingar eftir Þorstein Egilsson, um fai-m- tryggdngar effcir Jón Raifn Guð- mundsson og um sameiginHegt sjótjón eftir Björn Helgason. Jafnframt voru þá gefin út sér- prentaðir tveir fyrirlestrar „Saga sjótiygginga“ eftir Þorstein Eg- ilsson og um ,,Dloyd’s“ eftir Gísla Ólafsson. Síðan komu út árið 1968 tvær bækur, „Ábyrgð farmlflytjenda, flutningsó.byrgð“, eftir Benedikt Sigurjónsson og „um protection and indemnity tryggingar" eftir Valgarð Briem. Hafa tryggingafólögiin leyst til sín þessar bækur til dreifingar til viðskiipfcavina og annarra og nokkur félög fært sér það í nyt. issa stofnana. Fleiri bækur eru væntanlegar síðar- Stjóm saimbandsins hefir að því sfcuðlað að íslenzkir trygg- ingamenn sæktu ráðstefnur um tryggingamál erlendis og hafa nokkur félög fært sé rþað í nyt. Árið 1964 kom fram sú hug- mynd að þau tryggingafélögsem önnuðust vátiyggingar fiskiskipa sameinuðust uim kaup á ogrekst- ur björgunarskips fyrir flotann. Fékk það mál góðar undirtektir. Athugun þessa máls leiddi t.il stofnunar Björgunarfélagsins hf. i nóvemfoer sama ár. Árið 1966 var tekið á leigu að Hverfisgötu 116, húsnæði, sem þá var nýkomið í eigu ísienzfcra endurtryggdngar. 24. janúar 1969, gaf dömsmóla- róðuneytið út reglugerð umum- ferðamál. Óskaði róðuneytið eft- ir tilnefningu sambandsins á einum fullltrúa og einum tilvara. I júnímánuði s.l. óskaði félags- málaráðuneytið eftir tilnefningu á tveimur mönnum í stjórn Bnmamálastofnunar ríkisins. Var orðið við báðum þessutm óskurn. Er það von okkar trygginga^ manna að starfsemi sambandsins verði ávalt þannig að tiíl heilla verði jafnt fyrir tryggingafélög- in og þá mörgu aðila sem starf- semi þessi snertir á einn eða annan hótt. Nýr yfirma&ur tæknideildar FÍ Stefán Örn Stefánsson yfirmaður Tæknideildar F. I. Hinn 16. f. m. tók Stefán Orn Stefánsson verkfræðingur viS deild arstjórastarfi lijá Flugfélagi íslands, sem yfirmaður Tæknideildar fé- lagsins Stefán Örn hefur undan- farna mánuði starfað hjá Flugfélagi íslands til undirbúnings þessu starfi og hefur á því tímabili með- al annars verið í þjálfun erlendis. Stefán Örn Stefánsson er fædd- ur á Húsavík 15. febrúar 1938. Hann varð stúdent frá Mennta- skóla Akureyrar 1958 en innritað- ist síðan til verkfræðináms við Háskóla íslands þar sem hann nam í þrjú ár. Hann stundaði síðan framhaldsnám í vélaverkfræði við Kaupmannahafnarháskóla og lauk þaðan prófi í janúar 1964. Hann hóf þá störf við olíuhreinsunarstöð Dansk Esso í Kalundborg en kom hingað til lands í maí 1966 og tók við framkvæmdastjórastarfi hjá Síldarverksmiðju ríkisins á Seyðis- firði. Tæknideild Flugfélags íslands samanstendur af þrem megindeild- um. Þ.e. verkstæði þar sem allar viðgerðir og viðhald á flugvélum og tækjum fer fram, Skoðunardeild og Skipulagsdeild. í Tæknideild starfa 85 manns. juria jurta jurta HAGSÝN HÚSMÓÐIR NOTAR

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.