Mánudagsblaðið - 23.11.1970, Page 1
I
BlaÓfyrir alla
22. árgangur
Mánudagur 23. nóvember 1970
45. tölublað
VERKFÖLL EFTIR HÁTÍÐIR?
Ríkisstjórnin í sök — veidur ekki
vandanunum — Hótanir
Allar líkur benda til þess, að til verkfalla og almennra óeirða
komi á vinnumarkaðinum eftir áramótin. Forustumenn verka-
lýðsins hafa haft í dulbúnum hótunum, og enn er róið undir öll-
um árum að gylla verkfallsvonina fyrir hinum almenna laun-
þega. Einar ástæðan að til aðgerða kom ekki strax, eru hátíðir,
sem í hönd fara, og ónógur undirbúningstími leiðtoganna.
Ástæðan er „visitölu“-þjófnaður Magnúsar fjármálaráðherra,
sem komið hefur verið inn hjá almenningi, að hafi verið fyrir-
fram undirbúið „plan“ stjórnarinnar til að ná sér niðri á lýðn-
um.
Hræðsla
Ófarnaðarstefna stjórnarinn-
ar ríður sannarlega ekki við
einteyming. Nálega allt hefur
mistekizt eða farið í handa-
skolum, Jóhann Hafstein yfir-
klaufinn tilkynnti verðstöðvun
þrem vikum of snemma og í
kjölfarið sigldu svo stanzlaus-
ar hækkanir fram að 1. nóv. Þá
er því réttilega skotið inn, að
verðstöðvunin sé í og með,
kosningabragð, en við bættist
svo, að stjórnin var hrædd til
að hlaupa frá aðgerðum, sem
hún hafði ákveðið.
Enn hækkanir
Allt þetta hik og fálm hefur
auðvitað vakið enn meiri van-
trú á heilindi aðgerðanna, en
þörf varð. Við svo bætist, að
þátasjómenn, undir stjórn „síð
Er það satt, að fjármálamenn
Alþýðublaðsins séu sárreiðir
út í Jón Héðinn vegna frum-
varpsins um auglýsingabann
á tóbaki?
asta kapítalistans“ Jóns dreka,
ætla umyrðalaust að fá leið-
réttingu eftir áramót, ella
stöðva flotann og opinberir
starfsmenn krefjast og fá, verð
skuldunarlaust, allt að 33%
launahækkun á næstunni, und-
iröruggri stjórn kommúnistans
Kristjáns Thorlacíusar. Þá er
og öruggt, að fámennari stéttir
t.d. dómarar fá og umbun.
Bætur og smjör
Þessar raunir haf lagst þungt
á Jóhann og þyngra á kratana.
Hálmstráum er veifað til að
reyna að „farvera" sig í augum
fjöldans, þ. e. fjölskylduupp-
bótum og lækkun smjörs. Um
fjölskyldubæturnar er það að
segja, að þær voru of lágar,
fyrst þær á annað borð eru
taldar nauðsyn. Smjörlækkun-
in er einungis vegna þeirrar
einföldu neyðar, að bændur
sitja uppi með heilt fjall af ó-
seljanlegu smjöri. Þessu er
svo slegið upp sem góðverki
til handa alþýðu.
Vesalings andstaðan
Eins og fyrr er það hrein-
lega stjórnarandstaðan sem
bjargar stjórninni. Þríhöfðaður
þurs kommúnista og óákveðni
Framsóknar leika beint í fang
Jóhanns og Gylfa. Sjónvarps-
umræðurnar í s.l. viku sýndu
gjörla, að það er „innanfélags-
afbrýði" sem slítur sundur sam
virka andstöðu. Hannibal og
Magnús Kjartansson reyna
hvor um sig að „slá sér upp"
sem frelsarar og baráttumenn
Glæpamanna jéttindi' Svía —
Fyigir ísland eftir?
Sænskir glæpamenn hafa
nú uppi áform um að stofna
til samtaka, jafnframt því,
að þeir æskja inngöngu í
sænska verkamannasam-
bandið sem sérstök deild
og hafa fengið góðar undir-
tektir í velferðarríkinu. Hafa
jafnvel komið fram hug-
myndir um þingsetu fanga-
fulltrúa.
Palme forsætisráðherra<5
ku, að sænsk blöð herma,
vera hlynntur þessari „rétt-
indabaráttu“ glæpamann-
anna, og alveg til með að
veita þeim atkvæðisrétt,
enda þarf hann á öllu að
halda. Þessar sænsku hug-
myndir um „réttlæti“ og
„jafnrétti" hafa í senn vakið
óhug og hlátur hjá alvöru-
þjóðum. Telja má víst, að
islenzk yfirvöld fari enn að
sænsku fordæmi, og verður
ekki ónýtt fyrir þingforseta
okkar að tilkynna:
„Næst tekur til máls full-
trúi Litla-Hrauns og ræðir
fækkun í lögreglunni og af-
nám refsivistar" — !
Hví þessi leynd?
Hræðist BSRB skoðun almennings?
Eins og kunnugt er þá eru opinberir starfsmenn að fá gíf-
urlegar og óeðlilegar kauphækkanir, sem nema munu allt að
33% innan 10 mánaða. En starfsmenn BSRB neita algjörlega
að gefa upp efni samninganna sem þjóðin verður að greiða.
Hversvegna er þessi þögn. Vill kommúnistinn Thorlacíus
leyna landslýð kröfum sínum, pína hið opinbera og velta svo
auknum almenningsútgjöldum skyndilega yfir þjóðina? Óttast
maðurinn máski, að þjóðin risi öndverð gegn þeim svívirði-
legu kröfum, sem þarflaust hvítflibbalið hins opinbera heimt-
ar að fullnægt sé? Þjóðin getur, með leik, losað sig við um
40% opinberra starfsmanna og náð þó fullum afköstum.
Hjalað er nú um það, að þeir
Ólafur Björnsson oð Birgir
Kjaran séu i leynimakki um
samstarf til höfuðs núverandi
ráðamönnum Sjálfstæðis-
flokksins. Hvað þessir tveir ut-
anveltumenn hafa í hyggju er
óvíst, en ekki eru þeir taldir
bera of mikið traust til núver-
andi flokksforustu, annar út-
skúfaður, en hinn einskis met-
inn nema sem eftirlegukind.
Jóhanni er að verða þessi
byrði of þung; hann tvístígur,
óttast Gunnar og Geirs-menn,
og smáklíkur flokksins, sem
alls staðar stinga upp kollin-
um eftir ofríki og einveldi
Bjarna heitins. Flokkurinn í
reild hangir saman á „götun-
um“ eins og útslitnir larfar,
forustulaus með öllu.
fjöldans, og Bragi Sigurjóns-
son gat í hvoruga löppina stig-
ið og barðist við að verja
stjórnina án þess þó að vera
sannfærandi, enda algjörlega
andstætt sönnum krata. Einar
var mest hlutlaus, svo Magn-
úsi fjármálaráðherra veittist
létt að tvístra og sigra.
Hérageð
Forráðamenn verkalýðsins
forðuðust í síðustu lög' að
nefna verkföll unz stjórnandi
hreinlega neyddi þá til þess.
Hins vegar var Ijóst, að þetta
vopn er reitt'til höggs og bíður
þess eins hvar skal niður
koma. Það þarf hvorki auðvald
né komma til að sjá að þeir
lægst launuðu tapa á þessu.
Oll störf Sjálfstæðismanna
haf einkennzt af fálmi og ó-
vissu, því eindæma hérageði
að geta aldrei komið hreint
fram. Innbyrðist deilur og ó-
viss stefna hið ytra eru ein-
kenni svokallaðrar forustu.
Verkföll
Með hækkandi sól má því
búast örugglega við „aðgerð-
um“ og þá getur ríkisstjórnin,
í núverandi formi, talið daga
sína. Jóhann forsætisráðherra
verður að gera sér Ijóst, að
raggeitarskapur kemur aldrei í
stað hógværðar né heldur mik
ilmennska í stað raunsæis.
Skipstjórinn er kominn að
strandi og aðeins óvænt lukka
getur forðað fleyinu.
Hvers gjalda
Mosfellingar?
Hvers eiga Mosfellingar að
gjalda í símamálum? Þetta er
spurning, sem margir „innfædd-
ir" velta fyrir sér, en í sveit-
inni eru símgjöld öll til t.d.
Reykjavíkur óeðlilega há og
tímatakmörkuð meðan aðrir t.d.
Hafnfirðingar, Kópavogsbúar
og álíka búa við miklu betri
kjör. Fullyrða má, að mestur
hluti símtala Mosfellinga, sem
máli skipta séu við Reykjavík,
sem er aðalviðskiptastöð þeirra,
en gjaldið er óheyrilegt og rang-
látt. Geir Gunnarsson, kommún-
isti, er sá eini, sem reynt hefur
að fá þetta lagfært, en árangur-
inn var ekki annað en hvertsím-
tal var lengt um nokkrar sek-
undur, en annað ekki. Ástandið,
eins og það er, er óheýrilegt og
lándssímastjórninni til mikillar
vansæmdar.
Irigólfur ráðherra, ætti sem
fyrst að krefjast þess, áð þess-
um málum sé kippt í lag, en
vitanlega munu a.m.k. sumir
Mosfellingar muna Geir áhug-
ann og tilraunina, þótt hún
bjargaði ekki miklu.
Útþenslustofna
Loftleiða
Nú ætla Loftleiðir að stofna
bilaleigu og nota til þess ó-
takmarkað fjármagn sitt, og
gera þeim, sem starfandi eru
erfiðara fyrir. í fyrra tilkynnti
félagið, að það ætlaði að
stofna ferðaskrifstofu! Al-
menningur hefur visuslega
visst gaman að velgengni fé-
lagsins, en ef fjárgetu þess á
að beina inn á alls óskyldar
brautir t.d. bílaleigu, þá fer
mörgum að þykja nóg um.
Hvað næst? — er nokkuð til
að hindra þá í að stofna ríkis-
stjórn?!
Leikfang Mánudagsblaðsins