Tíminn - 06.08.1977, Page 9

Tíminn - 06.08.1977, Page 9
Laugardagur 6. ágúst 1977 9 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu viö Lindar- götu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Siðumúla 15 simi 86300. Verð i lausasölu kl. 70.00. Áskriftargjald kr. 1.300.00 á mánuði. Blaðaprenth.f. Samvirmuhreyfingin og dreifbýlið Þau hulduöfl, sem stundum virðast stjórna leið- araskrifum Mbl., segjast að visu ekki vera á móti sáSlhvinnuverzlun, en jafnhliða bölsótast þau gegn henni og beita iðulega i þvi sambandi úreltum 40-50 ára gömlum áróðri um einokunarverzlun, en slikur áróður er hvarvetna annars staðar liðinn undir lok, þvi að reynslan hefur sýnt svo rækilega, að samvinnuhreyfingin hefur unnið meira gegn einokun og yfirdrottnun auðhringa en nokkur hreyfing önnur. Það er þvi ekki óeðlilegt, þótt þessum skrifum Mbl. sé likt við afturgöngun Sérstaklega bölsótast þó Mbl. yfir viðgangi sam- vinnuverzlunarinnar úti á landsbyggðinni. Hún hafi þar viða hrakið kaupmenn af hólmi. Þetta er þó ekki nema hálfur sannleikur og ekki það. Verzlun i dreifbýlinu er miklum erfiðleikum bundin og enginn gróðavegur fyrir þá, sem vilja hagnast vel á stuttum tima. Einkaframtaksmenn hafa þvi leitað sér að fengsælli miðum. Samvinnu- félögin hafa orðið að halda áfram hinum örðuga rekstri úti á landsbyggðinni, sem einkum er þó erfiður i hinum minni byggðarlögum. Sá arður, sem þau hafa safnað, hefur ekki verið fluttur burtu, eins og kaupmannsgróðinn, heldur runnið til stuðnings margvislegri uppbyggingu i umhverfi þeirra. Aldrei hefur mikilvægi samvinnustarfsins komið betur i ljós en á siðari valdaárum við- reisnarstjórnarinnar, þegar atvinnuleysið setti dapurleg spor á mörg þorp og bæi viðs vegar um landið. Margir einstaklingar hreinlega gáfust upp, þar á meðal kaupmenn og fleiri einkaframtaks- menn og fluttu til Reykjavikur. Byggðastefnan var hafin til viðnáms gegn þessum fólksflótta. Kaup- félögin hafa tekið virkan þátt i þessu viðnámi og oft haft forustu um nýja uppbyggingu. Þess sjást nú viða merki, að baráttan hefur borið ávöxt. Atvinnuleysið er horfið og bölhyggjan um leið, og nú rikir viða bjartsýni og sóknarhugur. Samvinnumenn una árangrinum sæmilega. Morgunblaðið fárast hins vegar yfir þvi sem gerzt hefur og harmar m.a. sókn samvinnufélaga i sjávarútvegi og fiskvinnslu. Þarna er blaðið i andstöðu við sjónarmið og óskir almennings. Hann kallar á aukin afskipti samvinnumanna til eflingar iðnaðar og annarrar atvinnuuppbyggingar i sem flestum byggðar- lögum. Þvi er treyst að Sambandið og kaupfélögin njóti skilnings og stuðnings, til að fylgja fram markaðri stefnu á þessu sviði. Það gætir einskis ótta um að Sambandið og kaupfélögin séu stór fyrirtæki, sem séu hættuleg framþróun byggðar- laganna. Þvert á móti er almennt viðurkennt, að þau eru traust fjöldahreyfing sem flýr ekki af hólmi þegar i móti blæs, heldur efnir ti va^narbar- áttu og uppbyggingar eftir þvi sem aðstæður leyfa. Lítið samræmi Borgarstjórinn i Reykjavik hefur nýlega látið semja skýrslu um atvinnumál borgarinnar. Hún gefur til kynna, að um stöðnun hafi verið að ræða undanfarin ár. Á þessum sama tima gerist það, að samvinnufyrirtæki eins og KRON fá ekki lóðir hjá borginni undir starfsemi sina og verða þvi að færa hana til nágrannabyggða. Þannig er litið samræmi i þvi, þegar borgarstjórnarmeirihlutinn þykist vilja auka atvinnurekstur i borginni, en hrekur hann svo úr henni, eins og framangreint dæmi sýnir. Þ.t>. ERLENT YFIRLIT Elliot Richardson hefur í hótunum Bandaríkin í óánægð með nýja textann Elliot L. Richardson EINS og áður hefur verið sagt frá, fól nýlokinn fundur hafréttarráðstefnunnar for- seta hennar og nefndarfor- mönnum að semja nýjan sam- felldan og samræmdan texta sem umræðugrundvöll að nýj- um hafréttarlögum og kæmi hann i stað þeirra fjögurra sundurlausu texta, sem lágu fyrir ráðstefnunni. Ekki tóks forsetanum og nefndarfor- mönnunum að leggja þennan texta fram áður en fundinum lauk, heldur var hann lagður fram nokkrum dögum siðar. Ef til vill hefur þessi seinkun á textanum verið með ráðum gerð, þvi að sitthvað er i hon- um, sem veldur ýmsum rikj- um vonbrigðum, og hefðu um- ræður um það vart verið æski- legar á þessu stigi. Þær verða þvi að biða þangað til ráð- stefnan kemur saman að nýju, en það verður 28. marz i Genf á næsta ári. Timinn þangað til verður notaður til óformlegra viðræðna, þar sem reynt verð- ur að jafna ágreining. Meðal þeirra, sem létu mikla óánægju i ljós strax eft- iraðtextinn hafði verið birtur, var Elliot L. Richardson, aðalfulltrúi Bandarikjanna á ráðstefnunni. Hann kvaddi strax saman blaðamanna- fund, þar sem hann lét mikil vonbrigði i ljós og kvaðst hann þvi myndi leggja það til við Carter forseta, að Banda- rikjastjórn tæki það til ihug- unar hvort rétt væri að þau héldu áfram þátttöku i ráð- stefnunni. Ef svo héldi áfram, sem nú horfði virtist það til- gangslitið. Þótt Richardson tæki þannig til orða, þykir ekki liklegt, að hann leggi það til, að Banda- rikin hætti þátttökunni að sinni, heldur er talið, að hann hafi með þessum ummælum viljað árétta sem greinilegast óánægju sina. Fari hins vegar væntanlegur Genfarfundur á sömu leið og fundurinn i New York i sumar, er það engan veginn ótrúleg spá, að bæði Bandarikin og fleiri riki dragi sig i hlé. ASTÆÐAN til óánægju Richardsons var einkum sú, að fyrsta hluta textans, sem fjallar um nýtingu hafsbotns- ins utan efnahagslögsögunn- ar, hafði litið verið breytt, og hann jafnvel gerður óhagstæð- ari iðnaðarrikjunum en áður. Jens Evensen, hafréttarrað- herra Noregs, hafði lagt i það mikla vinnu að ná samkomu- lagi um breytingar á gamla textanum og hafði honum orð- ið talsvert ágengt i þeim efn- um. Fyrir þetta starf sitt, hafði Evensen hlotið þá viður- kenningu, að ráðstefnan fól honum i byrjun fundarins i vor að stjórna óformlegum fund- um fyrstu nefndar, sem fjallar um úthafbotninn, og yröi reynt á þessum fundum að þoka málum i samkomulagsátt. I samræmi við þær niðurstöður, sem Evensen taldi að hefði fengizt af þessum umræðum, lagði hann fram itarlegar breytingartillögur, sem hann taldi liklegt, að samkomulag næðist um. Þótt Bandarikin hefðu andmælt sumu i þeim, töldu þau, að þær stefndu i rétta átt. Formaður fyrstu nefndarinnar, Engo frá Kamerún var hins vegar ekkert ánægður yfir þessu, þvi að hann taldi sér ýtt til hliðar, þegar Evensen var falin áður- nefnd fundarstjórn, enda þótt fundirnir, sem Evensen stjórnaði, væru kallaðiir óformlegir fundir á vegum formannsins, þ.e. Engos. Þeg- ar forseta ráðstefnunnar og nefndarformönnum var falið að semja nýjan texta, fékk Engo aðstöðu til að láta að sér kveða. Hann fékk þvi fram- gengt, að mjög viða var ekki tekið tillit til málamiðlunartil- lagna Evensens og um viss atriði varð textinn enn óhag- stæðari iðnrikjunum en áður. Þannig segir nú i nýja textan- um, að fyrirtæki þau, sem fá vinnsluleyfi hjá hinni væntan- legu alþjóðlegu hafsbotns- stofnun, verði að láta henni i té alla þá tæknilega þekkingu, sem þau hafa- yfir að ráða. Þetta er skilyrði sem umrædd fyrirtæki viljasiztaf öllu hlita. Oliklegt er nú, að iðnaðarrikin fallist á þetta. Hins vegar fell- ur þetta vel i geð þeim þróunarrikjum, sem vilja helzt koma allri vinnslu i hendur alþjóðastofnunarinn- ar. Sennileg hefur Engo bætt álit sitt hjá þessum rikjum, en þau höfðu áður haft hann grunaðan um að vilja ganga of langttil móts við iðnaðarrikin. MEÐ HINUM nýja texta virðist þvi litið miða i þá átt að jafna ágreininginn um hafs- botnsmálið, en i reynd er það mesta deiluefnið á hafréttar- ráðstefnunni. Náist sam- komulag um það, er liklegt aö einnig semjist um önnur ágreiningsefni. Óþolinmæði márgra iðnaðarrikja, sem vilja fara að hefja vinnslu, fer vaxandi yfir þvi hvað hægt miðar á hafréttarráðstefn- unni. Beri Genfarfundurinn næsta vor litinn eða engan árangur, er hætta á, að þau gefizt upp. Þannig liggja nú fyrir Bandarikjaþingi frum- vörp um að heimila fyrirtækj- um slika vinnslu, en stjórnin hefur tafið fyrir þeim til þessa. Gerist ekkert i Genf næsta vor, mun reynast erfitt að tefja frekar fyrir þvi, að eitthvert áðurnefndra frum- varpa verði samþykkt á Bandarikjaþingi. A þessu stigi er erfitt að segja um, hvort hafréttarráð- stefnan fer út um þúfur eða ekki. Mörg þróunarriki vinna að samkomulagi bak við tjöld- in, en önnur eru ósveigjanleg. Iðnaðarrikin eru þegar búin að ganga alllangt til sam- komulags og kunna að ganga eitthvað lengra, en eiga þó erfitt með að gera það. En hvort hafréttarr aö- stefnan heppnast eða ekki, er nýi textinn ekki að siður mikill fengur, og þó einkum sá kafli hans, sem fjallar um lögsög- una og efnahagslögsöguna. Liklegt er að sá hluti hans muni verða varanlegur grund- völlur laga eða venja, sem myndist um þessi efni. Jæns Evensen

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.