Tíminn - 06.08.1977, Blaðsíða 13

Tíminn - 06.08.1977, Blaðsíða 13
Laugardagur 6. ágiíst 1977 13 Magneu frá Kleifum, Guö- mundar G. Hagalins, Steins Steinars og Jons úr Vör. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar 12.25 VeBurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Tónleikar 13.30 Laugardagur til lukku Svavar Gests sér um þátt i tali og tónum. 15.00 tslandsmótiB i knatt- spyrnu, fyrsta deiid Hermann Gunnarsson lýsir frá Keflavik siBari hálfleik milli ÍBK og Vikings. (Fréttir kl. 16.00, veBur- fregnir kl. 16.15). Laugar- dagur til lukku (frh.) 17.00 Létt tónlist 17.30 „Fjöll og firnindi” eftir Arna óla Tómas Einarsson kennari lýkur lestri frásagna af feröalögum Stefáns Filippussonar (10). 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 1935 FjaörafokÞáttur i umsjá Sigmars B. Haukssonar. 20.00 Tónlist eftir Emmanuel Chabrier „Slavneskur dans” og „Pólsk hátiö”. Suisse Romande hljóm- sveitin leikur: Ernest Ansermet stjórnar. 20.15 Sagan af Söru Leander Sveinn Asgeirsson hagfræö- ingur tekur saman þátt um ævi hennar og listferil og kynnir lög sem hún syngur. Fyrri hluti. 21.00 „önnur persóna ein- tölu”, smásaga eftir Hail- dór Stefánsson Knútur R. Magnússon les. 21.15 „Svört tónlist” Umsjónarmaöur: Gerard Chinotti. Kynnir: Asmund- ur Jónsson Annar þáttur. 22.00 Fréttir 22.15 Veöurfregnir Dansiög 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Laugardagur 6. ágúst 1977 18.00 IþróttirUmsjónarmaöur Bjarni Felixson. Hlé 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Albert og Herbert (L). Nýr, sænskur gaman- myndaflokkur I sex þáttum eftir bresku gamanleikja- höfunduna Ray Galton og Alan Simpson, sem m.a. sömdu þættina um Fleks- nes. Leikstjóri Bo Her- mansson. Aðalhlutverk Sten-Ake Cederhök og Tomas von Brömsen. 1. þáttur. Raddir aö handan. Skransalinn Albert og Her- bert sonur hans búa saman i heldur óyndislegu húsnæöi. Albert kynnist miöli, og slö- an er haldinn miöilsfundur heima hjá þeim feögum. Þýöandi Dóra Hafsteins- dóttir. (Nordvision — Sænska sjónvarpið). 20.55 Abba(L) Sænska hljóm- sveitin Abba, öðlaðist heimsfrægö áriö 1974, er hún sigraði i söngvakeppni evrópska sjónvarpsstööva. Aður á dagskrá 30. mai sfðastliðinn. (Nordvision — Sænska sjónvarpiö). 21.50 Erfiö eftirleit. (Dernier dc-micile connu) Frönsk sakamálamynd. Leikstjóri José Giovanni. Aöalhlut- verk Lino Ventura og Marléne Jobert. Myndin lýsir störfum fransks lög- reglumanns og samstarfs- konu hans og erfiðleikum viö úrlausn verkefna, sem þeim eru fengin. Þýöandi Ragna Ragnars. Myndin er ekki viö hæfi barna. 23.30 Dagskrárlok framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan LÍKI OFAUKIÐ O eftir Louis Merlyn Hvers vegna skyldirðu gera það? spurði hann. Hann talaði hægt en ákveðið. — Hvað kemur þetta þér við? Polly Baird barði að dyrum og opnaði svo. Hún hélt á kaffikönnu og bolla. Milan leit á hana og síðan á Fran og loks i kring um sig í herberginu. Hann mundi hlutina ekki rétt vel. Alvarleg á svip rétti Polly Fran könnuna og yfirgaf aftur herbergið. Fran hellti bollann háifan af kaffi. Hann neitaði að líta við því, svo hún gekk til hans og rétti honum bollann. Hún sagði kuldalega: — Þú verður að drekka þetta, annars skvetti ég því f raman i þig. Hann deplaði augunum f raman í hana. Það var eins og þetta væri ekki sú Fran sem hann þekkti. Hann sagði: — Hvað kemur þér það við? — Ég kom hingað til að ná í þig, svaraði hún. — Ég þarfnast hjálpar. Þetta voru mistök. Milan stóð upp. — Til helvítis með þig — og Nat. Rödd hans var gjörsamlega hljómlaus. — Það er þitt mál, samþykkti hún rólega. — Þá látum við lögregluna um það. Þú ert jafn f læktur í þetta og ég, Milan. Milan settist aftur. Það var allt of erfitt að standa Hann sagði: — Ég veit ekki hvað þú átt við. — Hvar varstu klukkan fjögur í nótt? Milli þrjú og f jögur? Milan stundi.— Hvernig ætti ég að vita það? Polly Baird kom inn aftur. — Ég heyrði þetta, sagði hún.— Ég get sagt þér, hvar hann er. Milan leit við með erf iðismunum og leit á hana. — Ég vildi óska að ég gæti það, sagði hann. Hún brosti og skyndilega hataði hann hana óskaplega. Hann óskaði þess, að hann vissi ekki hvers vegna hún brosti svona. Hún hætti að brosa og gekk yf ir aðglugganum. Milan sagði: — Gefðu mér í glas. An þess að líta við, svaraði hún: — Nei. Það var mér að kenna í gærkvöldi. Ég ætla ekki að endurtaka það. — Hefurðu mikiðá móti því að ég eyðileggji rúmfötin? spurði Fran.— Ef hann vill ekki drekka þetta kaff i, ætla ég að skvetta því framan í hann. — Gjörðu svo vel, svaraði Polly kæruleysislega. Milan rétti fram handlegginn. — Ég skal drekka það, sagði hann. Honum féll ekki að láta gera grín að sér einkum, ef kona átti í hlut. Aðeins vanlíðanin i maganum og höfðinu kom í veg fyrir að hann yrði nógi reiður til að gera eitthvað. Hann svolgraði kaffið og Fran fyllti bollann aftur. Hún gekk að honum og hvíslaði: — Fritz Elios dó í morgun. — Dó? Hvernig? — Hann var skorinn á háls, sagði hún ofur rólega. — Hann gæti hafa gert það sjálfur. Milan sá, að hún áleit ekki, að hann hefði gert það sjálfur. Hann leit viðog framhjá Fran og Polly Baird við gluggann. — Komdu hingað! skipaði hann í hörkutón. Hún gekk hægt til þeirra og staðnæmdist við hlið Fran. Milan sagði hægt: — Klukkan hvað? — Rúmlega fjögur, sagði Fran. — Hann var ekki...ekki alveg dáinn. Polly Baird greip andann á lofti. — Er einhver....? — Ekki ennþá, sagði Milan. — Hvað var ég að gera um fjögurleytið, Polly? — Þú sazt inni í stofu, svaraði hún.— og drakkst frá þér allt vit. Hún starði á Fran. — Hann er kolruglaður, þegar hann er fullur. Milan þóttist ekki heyra til hennar. — Hvar? spurði hann Fran. — Hjá Emile? — Já, svaraði hún. — Ég fór þangað til að hitta Emile. — Hvernig? — í leigubíl.... Blótsyrði hans stöðvuðu hana. — Hjálpi okkur allir heilagir, sagði hann. — Hypjið ykkur út báðar tvær. Þær gengu hægt út, og hann leit í kringum sig eftir föt- unum sínum. Hann fann þau fallega hangandi á herðatré i skápnum og gretti sig við tilhugsunina um að þurfa að klæðast smoking um hábjartan daginn. Hann klæddi sig í f lyti og gaf sér aðeins tíma til að dýfa höfðinu í vaskinn f ullan af köldu vatni og þurrka sér með hraði. Hann hefði átt að hafa auga með Emile. Hann var alltof hræddur. Milan trúði ekki andartak, að Fritz hefði skorið sig á háls. Ösennilegt var, að hann mundi hjálpa Emile með því að hafa íbúðaskipti og fyrirfara sér svo. Milan fyrirleit sjálfan sig. Hann hafði drukkið sig fullan með vilja, þó hann vissi að eitthvað gæti gerzt. Ef til vill hafði það kostað mannslíf. Hann yfirgaf herberqið og gekk niður stigann. Hann svimaði og varð að fara hægt. Hann var kominn að úti- dyrunum, þegar Polly Bird kom og greip i handlegg -hans. — Borðaðu einhvern morgunverð, Milan. — Má ekki vera að því. Löggan biður ekki eftir því að maður borði. — Þú getur ekki farið svona út, sagði Fran úr dyra- gættinni. — Ef þú ætlar að koma með, skaltu f lýta þér, tilkynnti Milan henni. Hann reif upp hurðina og sólargeisli hitti hann í augun. Frískt loftið var hressandi. — Ég vil gjarnan hjálpa, sagði Polly Baird. — Takk fyrir gestrisnina, var svar Milans. Hann lagði af stað niður tröppurnar. Fran sagði alvarlega: — Honum er ekki aivara Það er bara .... — Ég heyrði það allt í gærkvöldi, greip Polly fram i. — Ég viðurkenni að ég gerði vitleysu. Fran kinkaði þakklát kolli og flýtti sér niður tröppurnar. Hún brölti inn í bíl Milans, um leið og hann byrjaði að bakka út af stæðinu. Hún sat stif við hurðina, þegar hann ók gegnum bæinn. — Hvernig komstu út til Pollýjar? — Með strætó, svaraði hún. — Notarðu ekki leigubila, þegar þú þarft út, sagði hann. Hún þagði og hann hédt áfram: — Segðu mér frá þessu. Hún sagði honum það allt í stuttu máli. Hann lét hana endurtaka smáatriðin: stellingu líksins og hvernig hurð- in hafði verið brotin upp innan frá. Þegar hún hafði lokið máli sínu, sagði hann: — Ég held að þú hafir á rettu að standa. Eitthvað er meira er lítið óeðlilegt við þetta. Ég vissi, að Fritz var hjá Emile, og ég hefði gaman af að vita, hvort einhver annar vissi það. í íbúðinni sótti hann föt í skápinn og fór í bað. Eftir að hafa farið í steypubað og rakað sig, leið honum öllu betur. En beiskjan eftir að hafa gertsig að f íf li, sat enn í honum. Hann sá, að Fran var að útbúa morgunmat. — Ég hef ekki tíma til að borða, sagði hann í hörkutón. Hún sneri sér snöggt að honum. — Þú hefur gert þig gjörsamlega að fíf li, Rick. Haltu þér saman og hugsaðu andartak. Hún sá að það dimmdi yfir andliti hans af reiði og bætti við: — Ég þarf að segja fleira. Seztu og hlustaðu. Milan elti hana fram í eldhúsið og settist við litla borðið. Hann borðaði ekkertog ýtti diskinum frá sér. — Þú ferð einförum, sagði hún reiðilega. — En það er mál til komið að þú hættir því. Ég er að reyna að hjálpa Nat og ég get það. „Hún erkomini gang, pabbi. Það tefur þig bara að lesa leiöbeiningarnar.” VI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.