Tíminn - 06.08.1977, Page 10

Tíminn - 06.08.1977, Page 10
10 Laugardagur 6. ágúst 1977 Laugardagur 6. ágúst 1977 11 Sé öryggisloki hins vegar ekki fyrir hendi, svo sem á þessari mynd, gctur maöurinn farið marga hringi meö spilinu og hlotið limlestingu eða jafnvel bana af. Sjómenn eru neikvæðir gagnvart öryggisbúnaði - segir Þórhallur Hálfdánarson, starfsmaður rannsóknarnefndar sjóslysa HV-ReykjavIk, — Það er ekki hægt að lita fram hjá þvi, að stór hluti þeirra tvö hundruð niutiu og sjö slysa, sem urðu á sjó árið 1976, voru með öllu óþörf. Ef þau öryggistæki, sem eiga að vera um borð i skipum, væru það og væru jafnframt notuð, svo og ef öryggislokar væruá spilum á fiskiskipum, þá hefði mátt fækka þessum slys- um sem uröu mikið, jafnvel allt að þvi um helming, sagði Þór- hallur Hálfdánarson, starfs- maður rannsóknarnefndar sjó- slysa,i viðtali við Timann i gær. — Varðandi öryggislokana á spilin er það að segja, sagöi Þórhallur ennfremur, — aö á undanförnum sex árum hafa niutiu og tveir sjómenn slasazt við netaspil og flestir þeirra al- varlega, en þegar menn festast i spilum hlýzt oft limlesting af. I flestum þessara tilvika hefði öryggisloki komið i veg fyrir mikil meiðsli. Við vitum þess engin dæmi, að slys hafi oröið, með þeim hætti, að maður hafi slasazt viðspil, sem öryggisloki hefur verið á. Að visu getur verið erfitt um vik að skylda bátaeigendur til aðsetja loka á spil hjá sér, eink- um þá sem ekki eru með há- þrýstispil. Lokiá háþrýstispil er tiltölulega ódýrt tæki, en á önn- ur spil getur hann kostað allt að hálfri milljón króna. Mörg önnur slys hafa orðiö vegna þess að öryggistæki, sem samkvæmt reglum eiga að vera um borð, svo sem öryggisbelti með liflinum og bjargvesti, annaö hvort eru þar ekki, eða eru ekki notuð. Ekki verður annað sagt, en að meðal sjómanna rikir ákaflega neikvæður hugsunarháttur gagnvart öryggistækjum. Sjó- mannasamtökin hafa áratugum saman barizt fyrir þvi að ná fram kröfum sinum um öryggismál og hafa jafnvel slegið af launakröfum, i þvi skyni. Svo þegar viðurkenning fæst, vilja sjómenn ekki nota hlutina. „Það kemur ekkert fyrir mig’ virðast allir hugsa, að minnsta kosti þar til eitthvað kemur fyrir þá. Það skal tekið skýrt fram, að útgeröarmenn hafa alla tið verið ákaflega jákvæðir gagn- vart öryggisútbúnaði. Hins veg- ar eru það skipstjórnarmenn- irnir, sem eiga að sjá til þess að hann sé notaður, en þar er viða pottur brotinn. Mér þykir það raunverulega ábyrgðarhluti hjá skipstjórnarmanni, til dæmis á skuttogara, að heimila yfirleitt manni að vera viö störf i skut- rennu, án liflinu. 1 þessu sambandi má það gjarnan koma fram, sem raun- ar var birt i ársskýrslu rannsóknarnefndar sjóslysa, að nefndinni hefur borizt vitneskja um, að einn togaraskipstjóri, Aki Stefánsson á b.v. Sléttbak EA-304 gefi mönnum sinum ströng fyrirmæli um aö nota öryggisbúnað þann, sem skylt er að hafa um borð, viö vinnu sina og lætur hann ekki viðgeng- ast, aö út af þeirri reglu sé brugðið. Mættu aðrir taka sér þetta til fyrirmyndar. Að öðru leyti held ég aö bezt sé að láta skýrsluna sjálfa tala sinu máli, sagði Þórhallur að lokum. Öryggisbeltin með liflinum hindra sjómenn ekki viö störf þeirra. Skriki þeim fótur i skutrennu skuttogara, kemur liflinan hins vegar í veg fyrir, að þeir lendi út I sjó. Það þarf ekki að orölengja það, hver endalokin verða, ef maður lendir aftur af togara, út I sjó, sem hefur hitastig rétt um frostmark. Meira en helm- ingur slysa á sjó vegna kæruleysis? I skýrslu rannsóknarnefndar sjóslysa fyrir árið 1976 kemur fram, að á þvi ári uröu alls tvö hundruð niutiu og sjö slys á sjó. Alls urðu á árinu fimmtán dauöaslys á sjó, i öllum tilvikum drukknun. Brunaslys uröu sex. 1 þrjátiu og tveim tilvikum varð maður fyrir skuröieöa stungu, Ifjórtán tilvikum varð maður fyrir brot- sjó, tuttugu slösuðust við vindur og niu meiddust þegar festingar á blökk og annað bilaði. Attatiu slys urðu með þeim hætti, aö maður varð milli hurða, hlera og veiðarfæra, eöa virar og tóg slitnuðu. Sextiu urðu fyrir meiðslum, þegar þeir runnu til ofanþilja og duttu. Tiu meiddust við störf i vélarrúmi og átján viö störf I lest. Sjö meiddust við löndun afla og tuttugu og sex slösuðust þegar þeir voru aö fara aö og frá boröi. Alls verða þvi um þrjú hundr- uö slys á sjó þetta ár, það er aö segja um þrjú hundruð slys, sem bótaskyld eru. Minniháttar slys, þar sem viökomandi er ekki frá vinnu tiu daga eða leng- ur, eru ekki talin með. 1 skýrslunni eru ennfremur rakin tuttugu og sjö slys, sem rannsóknarnefndin hefur haft til umfjöllunar. Sérstaklega er fjallað um orsakir þeirra og af- leiöingar, sem vera ber, en af niðurstöðum nefndarinnar má draga allnokkurn lærdóm. í tveim tilvikum eru orsakir slysa ókunnar. Þrisvar sinnum orsakar vangá við stjórn skips slys. 1 fimm tilvikum er útbún- aður varhugaverður, vangá viö stjórn tækja veldur einu slysi og vangá við störf fimm slysum. 1 sex tilvikum hefði öryggisbún- aður komiði veg fyrirslys, hefði hann verið fyrir hendi og verið notaður. óhappaslys teljast fimm. Veröur þetta rakið nánar hér að aftan: Hefðu öryggislokar fækkað slysum um 20? 1 formála skýrslu rannsóknarnefndar sjóslysa segir: Þau slys, sem nefndin hefur fjallað um á liönu starfsári og rakin eru i þessari skýrslu gefa enn tilefni til að minna á þá hættu, sem fylgir störfum við spil og vindur. Um það bil þriöj- ungur þeirra slysa, sem um er fjallað i skýrslunni, hafa orðið i sambandi við slik störf. Nefndin beinir þvi enn þeim eindregnu tilmælum til sjómanna aö sýna varúð við sllk störf og einnig aö sami maöur sinni ekki bæði stjórn spils og hifingu. Þá er ljóst að öryggisloka vantar viða viö spil, en þeir eru mjög mikilvæg öryggistæki. Með reglugerð frá 20.2. 1973, sem sett var að frumkvæði rannsóknarnefndar sjóslysa, var fyrirskipaö, að öryggisloka skyldi setja við öll linu- og/eöa netaspil i nýjum skipum, svo og i eldri skipum, sem skipta um spil eöa ef breytt er lögnum að þeim. A siðasta ári beindi nefndin þvi til Samgönguráöu- neytisins.aö settar yrðu reglur, sem skylduðu alfariö að hafður yröi öryggisloki viö línu- og netaspil á öllum skipum og bátum, sem nota slik spil og eru stærri en fimmtán rúmlestir brúttó. Er þaö von nefndarinn- ar, aö slikar reglur veröi settar hið fyrsta. Eins og fram kemur annars staöar, hafa á undanförnum sex árum nær eitt hundrað islenzkir sjómenn slasazt i spilum. 1 skýrslu rannsóknarnefndarinn- ar eru rakin fimm dæmi um slik slys og þar af er talið óhætt aö fullyrða, að öryggisloki hefði komiði veg fyrir f jögur af þeim. Ennfremur kemur fram i skýrslunni, að rannsóknar- nefndinni er ekki kunnugt um, að slys hafi hlotizt af spili, sem öryggisloki er á. Má þvi ætla, að undanfarin sex ár hafi yfir niutiu Islenzkir sjómenn slasazt og margir hverjir mjög alvarlega, af or- sökum, sem alls ekki þurfa að vera fyrir hendi. Þessi tegund slysa er óþörf. Væru öryggislokar alls staðar fyrir hendi, hefðu slysin þá orðið tuttugu færri siðasta ár? Tvö hundruð sjötiu og sjö, i staö tvö hundruð niutiu og sjö? Þeir eru hins vegar margir Islenzku sjómennirnir, sem fremur vilja hætta Hfi og Iimum að óþörfu. Ef til vill gengi þeim betur, ef þeir hefðu báðar hendur lausar, en þyrftu að nota aðra til að halda sér. Lendi sjómaður I spili, sem búið er öryggisloka af þeirri gerö, ei hér sést á myndinni, lendir hann jafnframt á lokaásnum, sem aðeins þarf að hreyfast um nokkra millimetra, til þess að spilið stöðvist. OPINBERIR EFTIRLITS- AÐILAR LÁTA SIG ÖRYGG- ISATRIÐI LITLU SKIPTA Við lestur skýrslunnar frá rannsóknarnefnd sjóslysa kemur i ljós, að slysafjöldi er ákaflega misjafn eftir tegund skipa. Athyglisvert er, aö árið 1976 veröur aðeins eitt slys um borð i hvaðveiðiskipi, og það með þeim hætti að maður klemmist. Þá verða aðeins tvö slys um borð i linuskipum yfir eitt hundrað brúttólestir aö stærö, bæði þannig aö maður verður fyrir skurði eða stungu. Litlu skuttogararnir viröast vera einna hættulegastir, þvi um borð i togskipum 100 til 500 brúttólestir, verða sjötiu og átta slys á árinu, þar af tvö dauða- slys. Raunar verða um borð i þeim allar tegundir slysa, sem skýrsla rannsóknarnefndar- innar nær til. Það, sem þó öðru fremur vekur athygli, við lestur skýrsl- unnar, er hversu margir islenzkir sjómenn viröast slas- ast og jafnvel láta lifið hvert a"r, vegna þess aö þeim reglum, sem settarhafa verið um öryggi er ekki fylgt, svo og vegna kæruleysis. Vangá virðist al- gengasta orsök slysa. Tvö dæmi, sem birt eru I árs- skýrslu rannsóknarnefndar- innar eru svc talandi, að ekki þarf frekari orða við: 1: Tveir hásetar drukkna af skuttogurum á árinu, með þeim hætti, að liflinur, sem skylt er að hafa um borð, hefðu bjargað þeim, eru ekki fyrir hendi. Við sópróf i öðru þessarra tilvika kom fram að hvorki voru til i viðkomandi skipi öryggisbelti með liflinu, né björgunarvesti, sem lögboðiö er. Af hálfu skoð- unarmanns var engin athuga- semd gerðvegna þessa vanbún- aðar, er skipið var skoöað hinn 20. janúar 1976. UM hitt slysið segir: Engin öryggisbelti né öryggisvesti voru til um borö i skipinu, enda þótt það væri nýbúið að fá haf- færisskírteini. Skipaskoðunar- maður hafði þó gert athuga- semd vegna þessa. Hafði skip- stjóri lofað að bæta úr þessu svo fljótt sem auðið væri. 2: Seinna dæmið sýnir viðhorf sjómanna gagnvart öryggi og slysum, þótt vonazt verði til, að þetta viðhorf sé ekki algilt. Bókin i dagbók báts, þar sem fjallað er um alvarlegt slys er varö um borð: „Farið i róöur klukkan 6:30. Við fyrstu bauju fer Binni i spilið og slasast. Farið út aftur klukkan 9:30”. Rétt málning getur fækkað slysum Af tvö hundruö niutiu og sjö slysum á árinu 1976 verða ein sextiu með þeim hætti, aö skips- menn renna til ofanþilja og detta. 1 leit að leiöum til aö koma i veg fyrir slfk slys hefur nefndin gert tilraunir meö ákveðna tegund málningar, til þess aö koma i veg fyrir hálku á þiifari. Hér er um að ræða sérstaka plastmálningu. Var hún reynd um nokkra hrið um borð I bv. Sólbak EA-5. 1 bréfi til rannsóknarnefndar- innar, dagsett 13. marz 1977, segir skipstjórinn á Sólbak, Stefán Aspar: „Efni þetta var sett á dekkið, sitt hvoru megin viö skutrenn- una, frá skut fram aö brú. I einu oröi sagt hefur það reynzt meö slikum ágætum við allar þær aöstæður, sem skapazt um borð I fiskiskipi, sem veiöar stundar á djúpmiðum viö Island yfir vetrarmánuöina, aö óþarfi er aö tiunda það nánar. Þessa rúmlega fjóra mánuði, sem liðnir eru siöan umrættefni var sett á dekkið, hefur enginn maður hlotiö byltu á þeim stöö- um. Varast þarf að hafa vara- bobbinga iila bundna þar sem efniö er, þvi þeir nudda þaö af.” Samkvæmt þessu má álykta sem svo, að þeim sextiu slysum, sem uröu með þeim hætti að menn runnu til á þilfari og duttu, hefði mátt fækka veru- lega, meö notkun réttrar máln- ingar á þilför Miðað við að tekizt hefði aö fækka þeim um helming, hefðu slys á siðasta ári oröið tvö hundruð fjörutiuog fimm, i staö tvö hundruð niutiu og sjö. Tvö óþörf banaslys? Um slys á skuttogurum segir i skýrslu nefndarinnar: — Slys á skuttogurum eru sem betur fer miklu færri en áður. Þó uröu tvö banaslys, þar sem menn tók út af skut- togurum. 1 hvorugu tilvikinu var notaður öryggisbúnaöur, sem ætlaður er til aö koma i veg fyrir slik slys og fyrirskipaöur var með reglugerð frá 10. júni 1975. Þetta er öryggisbelti með lífinu og björgunarvesti. Þessi útbúnaður var heldur ekki til um borö, þótt skipin heföu verið skoðið og fengiö haffæris- skirteini. Nefndin telur fulla ástæðu til að brýna fyrir sjómönnum, einkum skipstjórnarmönnum, aö ganga ætiö úr skugga um, aö þessi búnaður sé fyrir hendi um borð i skipunum og hann jafn- framt notaöur. — I skýrslunni kemur fram, að á siðasta ári verða rétt um eitt hundrað og þrjátiu slys um borð I togurum, þar af þrjú banaslys. 1 einu tilviki hverfur maöur af togara, og eru orsakir hvarfs hans ókunnar. 1 tveim tilvikum veröa slysin með þeim hætti, að hásetar detta aftur af skuttogurum. 1 hvorugu tilvikinu voru öryggis- belti með liflinum til i skipun- um, né heldur björgunarvesti. 1 niðurstöðum nefndarinnar segir, aö notkun þessa lögboðna öryggisútbúnaðar, llfllnunnar, hefði i báðum tilvikum komiö i veg fyrir að mennirnir færu út- byröis. Notkun björgunarvestis heföi aftur komið i veg fyrir drukknun. Ef hlýtt væri ákvæðum um öryggisbúnaö um borð i skut- togurum, mætti þvi ætla með nokkuö mikilli vissu, aö báöir þessir menn væru lifandi i dag, og slysin hefðu orðið tveim færri. Oryggislokur á spilum og lifllnur i togurum og slysin hefðu oröið tvö hundruð sjötiu og fimm, i stað tvö hundruð nlu- tiu og sjö.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.