Tíminn - 27.08.1977, Síða 15

Tíminn - 27.08.1977, Síða 15
Laugardagur 27. ágúst 1977 15 Ólafur Jóhannesson, viðskiptaráftherra og verndari sýningarinnar setur hana MóL-ReykjavíkSýningin Heimil- iö ’77 var sett i gærdag kl. 16 meö ávarpi Ólafs Jóhannessonar, viö- skiptaráðherra og verndara sýningarinnar, að viðstöddum 600 gestum og þar á meðal forseta- hjónunum. Eins og lesendur Timans vita, hefur undirbúningnum að sýning- unni i Laugardal verið gerð ýtar- leg skil i Timanum síðustu daga og er ekki þörf að bæta þar úr. Sýningin sjálf er hins vegar hin glæsilegasta. Um tilgang sýningarinnar sagði Ólafur Jóhannesson m.a. i ávarpi sinu: Sýning sú, sem hér verður opn- uð, hefur þann tilgang að veita iandsmönnum kost á þvi að kynn- ast á einum stað framboöi allra helztu vara og þjónustu, sem varðar stofnun og rekstur heimil- is. Og siðar sagði viðskiptaráö- herra: Ennfremur er sýningin fallin til þessaðauka samband og skilning milli framleiðenda og neytenda og hefur verulegt upplýsingagildi fyrir neytendur og er þannig i samræmi við þá stefnu, sem viða er nú leitast viö að fylgja, aö tryggja neytendum sem beztar Heimilið ’77 sett í gær: Eykur samband og skilning milli fram- leiðenda og neytenda — sagði Ólafur Jóhannesson, viðskiptaráð- herra, í ávarpi við opnun sýningarinnar Vift setningarathöfnina var hinum 600 gestum boftift rikulega upp á kampavin. Timamyndir: G.E. upplýsingar um hið fjölbreytilega framboð vöru og þjónustu, sem á boðstólum er nú á timum . Sýning sem þessi hefur þvi margvislegt hagnýtt gildi og eiga þvi forystumenn Kaupstefnunnar ogallirþeir, sem hönd hafa lagtá plóginn viö undirbúning sýning- arinnar, þakkir skildar fyrir framtakið. En það er ekki útlitiö eitt, sem skiptir máli og i lok ávarps sins sagði Ólafur Jóhannesson: Ég vil að lokum minna á, að hér eru það eingöngu efnisleg gæði, sem lita má augum. Hér má sjá, hvernig hinn ytri umbúnaður heimilisins má glæsilegastur verða. Það, sem öllu máli skiptir heimilislifið sjálft, verður ekki sett á sýningu. Ef fagurt mannlif nær ekki að gróa innan veggja heimilisins, breyta skrautleg salarkynni þar engu um. Verða einungis til að minna enn frekar á það, sem á vantar. Þetta er hollt að hafa i huga nú, þegarsókn eftir efnislegum gæðum, einungis þeirra sjálfra vegna, sýnist keyra úr hófi hjá of mörgum. í gær kl. 18 var svo sýningin opnuö fyrir almenna gesti, en hún stendur yfir til 11. september. Bjarni Ólafsson, framkvæmdastjóri sýningarinnar, flylúr inngangsorð Forseti tslands, herra Kristján Eldjárn og kona hans, Halldóra Eldjárn, ganga inri i Laugardalshöllina.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.