Tíminn - 18.10.1977, Síða 1
/■
V
Fyrir
vörubila
Sturtu-
grindur
Sturtu
dælur
Sturtu-
drit
Fjármálaráðherra:
„Vona að þessari
lotu ljúki með
samkomulagi ’ ’
rædd á þingi
KEJ—Reykjavlk. — í gær uröu
miklar umræ&ur á Alþingi utan
dagskrár um verkfall opinberra
starfsmanna. Kom þar m.a.
fram i ræ&u Geirs Hallgrims-
sonar forsætisrá&herra, aö rik-
isstjórnin hefur ekki lagaheim-
ild til aö semja viö BSHB um
verkfallsrétt samfara endur-
skoöunarrétti á tveggja ára
gildistima samninganna sem nú
er aftur hafist handa viö. Þá
sagöi Geir aö rikisstjórnin væri
tilbúin til samningaviöræöna,
einkum á grundvelli nýgerðra
samninga viö borgarstarfs-
menn.
Sjá nánar bls. 8.
Þráðurinn tekinn upp
að nýju milli ríkis-
valdsins og BSRB
áþ-Rvik. Klukkan átján f gær
hófst fundur meö stjórn BSRB og
sáttanefnd ríkisins. Fyrr um
daginn haföi stjórnin veriö boöuö
á fund hjá ríkisstjórninni f ráö-
herrabústaðnum. Þar var rætt
um bréf það, sem BSRB fékk frá
Kjaradeilunefnd, en nefndin
hefur ásakað BSRB um lagabrot.
Talsmenn rfkisstjórnarinnar
sögöu BSRB eiga aö fylgja úr-
skurðum Kjaradeilunefndarinnar
en svör BSRB voru þau, aö öllum
deilumálum ætti aö skjóta til
dómstóla, aörir aðilar væru ekki
þess umkomnir að eiga lokaoröiö.
Þá var stjórn BSRB einnig boöuö
á fund sáttanefndarinnar og
þeirra embættismanna, sem hafa
unniö aö samningunum. Til-
gangur þess fundar var a& ræöa
um fyrirkomulag á framhalds-
viðræðum, sem hófust eins og
fyrr sagöi klukkan átján.
— Ég veit ekki, hvort viö getum
átt von á þvi, að lagt verði fram
tilboð, sagði Kristján Thorlacius.
— En ég vona að það fari að hefj-
ast viðræður. Ég teldi það eðli-
legt, að sáttanefndin beitti sér
fyrir þvi, að viðræður verði tekn-
ar upp á nýjan leik. Ef hún gerir
það ekki verður þessi fundur til-
gangslaus.
Varðandi deilur Kjaradeilu-
nefndar og stjórnar BSRB, sagði
Kristján, að undirbúningur að
störfum Kjaradeilunefndar hefði
verið með eindæmum lélegur.
Búið átti að vera að skipa i nefnd-
ina um siðustu áramót en þvi hafi
ekki verið lokið fyrr en á vordög-
um. Þá hafi nefndin haldið einn
fund i júni og siðan ekki fyrr en i
september. Hins vegar væri
hverjum og einum ljóst, sagði
Kristján að ef rétt hefði verið
haldið á málunum hefði nefndin
átt að taka til fullra starfa á þeim
tima sem tiltekin er i lögum.
Enn þurfti fólk að bföa. Þetta eru nokkrir þeirra fslendinga, sem urðu strandaglópar á erlendri grund,
og þarna eru þeir að blöa eftir, að farangurinn þeirra komi I leitirnar í flugstöðvarbyggingunni á Kefla-
víkurflugvelli i gær, en þá komu tvær Flugleiöavélar meö farþega til landsins. Tímamynd Gunnar
Strandaglópar komnir heim
SSt-Rvk. Nokkur hluti þeirra ts-
lendinga, em verið hafa stranda-
glópar erlendis vegiia verkfalls-
ins, komu til landsins f gær meö
vélunum tveim, sem fóru utan á
sunnudaginn meö útlendinga.
Fyrri vélin kom frá Kaupmanna-
höfn meö X26 farþega innanborös
um fimmleytið f gær, hin kom
skömmu seinna, einnig meö 126
farþega.Fólk þaö, sem kom i gær
haföi ekki orðiö sérstaklega illa
úti vegna verkf allsins, haföi
ýmist innhlaup hjá kunningjum
eöa þurfti einungis aö bföa einn til
tvo daga og lentu því fæstir i
þeirrileiðu aðstöðu að verða pen-
ingalauslr á erlendri grund. Þaö
sem kom þessu fólki mest á óvart
var, aö' þegar þaö var kannski
mætt út á flugvöll og haföi ekki
hugmynd um ástandið hér heima,
var tilkynnt aö þvi miöur yröi
ekkert flogiö heim vegna verk-
falls. Þeir voru ófáir, sem höföu
slika sögu aö segja.
Það var handagangur 1 öskj-
unni i gær, þegar farþegar með
Kaupmannahafnarvélinni voru
að sækja hafurtask sitt, og allir
voru fegnir að vera komnir heim.
Við tókum tali nokkra farþega og
inntum þá eftir högum þeirra
ytra meðan á biöinni stóö.
Fyrstan að máli hittum við Ein-
ar SB Bjarnason. Hann hafði ver-
ið hálfan mánuð úti og farið viða
m.a. til Stokkhólms og Óðinsvéa,
en verið í Kaupmannahöfn þann
tima, sem hann þurfti að biða eft-
ir fari heim eða frá þvf á föstu-
dag. Sagðist hann hafa átt inn-
hlaup hjá kunningjum þar og sér
liðið í alla staði vel og ekki þurft
að liða peningaskort.
Næstan hittum við Friðrik
Ólafsson, stórmeistara. Hann var
að koma frá Hollandi og kom til
Kaupmannahafnar á laugardag-
mn og beið þvi i tvo daga þar.
'Hannlét velaf slrium högum.Eft-
ir Interpólismótið i Hollandi
dvaldist hann þar um hrið og
tefldi nokkur fjöltefli, og kom til
Kaupmannahafnar á laugardag,
eins og áður segir, og sagði Frið-
rik, að tveggja daga bið i Kaup-
mannahöfn væri ekkert til að
gera veður út af, það væri ágætt
að vera i Kaupmannahöfn.
Þarnæst hittum við roskin hjón
að máli, þau Gisla Gestsson og
Guðrúnu Sigurðardóttur, og voru
þau búin að vera tvo mánuði ytra
og höfðu farið viða. Ekki höfðu
þau yfir neinu að kvarta, að visu
væri alltaf leiðinlegt að biða
svona, en þau höfðu átt pantað
flugfar heim á fimmtudaginn, og
þvi orðið að biða í fjóra daga.
Þá varð á vegi okkar Erna
Ágústsdóttir. Hún var búin að
vera mánuð úti og hafði átt pant-
að far á sunnudaginn, svo að það
ervarla hægt að tala um neinar
tafir hjá mér, sagði hún.
Að siðustu töluðum við við hjón-
in Halldóru og Leif Sveinsson.
Voru þau búin að vera um nokk-
urt skeið úti i Danmörku og höfðu
þau siðan ætlað til Noregs. Þau
fréttu af verkfallinu og sáu þann
kost vænstan að verða sér út um
far heim hið bráðasta til að losna
við husanlega bið og voru ákaf-
lega fegin,að hafa komizt heim án
þss að lenda i klandri og verða
strandaglópar úti.
Þrátt fyrir, að þessar tvær vél-
ar hafi komið heim fullskipaðar
fólki, munu margir íslendingar
biða enn eftir fari heim, þó ekki
hafi fengizt nákvæmar tölur um
fjölda þeirra.
áþ-Rvik. —Viö erum aö hefja viö-
ræður aftur, og ég á von á þvi, aö
þráðurinn veröi tekinn upp aftur,
þar sem hann féll ni&ur á mánu-
daginn, sagöi Matthias A Mathie
sen, fjármálaráöherra, f samtali
viö Timann. — Og ég vona aö
þessari lotu ljúki meö samkomu-
lagi.
Matthias sagðist gera ráð fyrir
þvi, að viðræðumar við BSRB,
myndu grundvallast á þeim atrið-
um, sem ekki voru útrædd i lið-
inni viku. En hvort samningar
starfsmanna Reykjavikurborgar
yrðu hafðir til hliðsjónar við
samningsgerðina vildi hann ekki
tjá sig um. Þess má geta, að
ráðamenn f BSRB hafa lýst þvi
yfir, að þeir samningar séu langt
frá þvi að vera nógu góðir, og t.d.
Akranessamningurinn sé mun
betri.
Mikill viðbúnaður
vegna væntanlegs
goss á Kröflusvæðinu
Leiðbeiningar komnar í hvert hús á svæðinu
áþ-Rvik. Mikill viðbúnaður er hjá
Almannavörnum I Mývatnssveit,
en landiö noröur i Kröf luöskjunni
hefurrisið heldurhærra, en þegar
gaus ibyrjun september. Skjálft-
um fer heldur fækkandi og t.d. á
sunnudag voru þeir samtals 54 yf-
ir sólarhringinn. Skömmu áöur
voru þeir tæplega 80. Áöur en
gaus i september fór skjálftum
einnig fækkandi.
— Breytingar á Bjarnarflags-
svæðinu hafa verið að eiga sér
stað, alltfram undir daginn idag,
sagði Jón Illugason oddviti i
Skútustaðahreppi. — Og siðustu
tvær vikurnar hafa verið að
myndast þar gufu- og leirhverir.
Ég held, að allir jarðfræðingar
séu sammála um, að umbrotum
sé ekki lokið, og þvi munum við
búa okkur undir þau eins vel og
nokkur kostur er á.
Þessa dagana er verið að ljúka
við garð þann, sem á að vernda
byggðina frá hugsanlegu hraun-
rennsli, en eftirað ganga frá einu
raasi, þar sem dælurör kisiliðj-
unnar liggja. Þá er einnig verið
að gera garð fyrir kisiliðjuna, og
unnið er af fullum krafti f vega-
gerö. Byrjað var hjá Reykjahlið
og sagði Jón að vegagerðarmenn-
irnir væru komnir að Vogum. Bú-
ið er að endurskipuleggja við-
vörunarkerfi simans, þar sem
mannaskipti hafa orðið hjá al-
mannavarnanefnd. Einnig var
simi settur i hús og búið er að
tengja handvirkan sima i öll þau
hús, sem ekki hafa sjálfvirkan
sima. Alls munu sjö ibúðarhús
hafa fengið þannig sima. Stjórn-
stöð Almannavarna er flutt i
björgunarstöð Slysavarna -
félagsins og þar voru tengdir þrir
handvirkir simar, og um leið var
fjölsimasamböndum útaf svæð-
inu fjölgað.
— Búið er að prenta nýjar leiö-
beiningarfyrir fólk, tilað hafa viö
útgöngudyr i ibúðarhúsum, og
veröur þeim dreift nú næstu daga,
sagði Jón. — Þessar leiöbeiningar
eru aðallega um hvernig hægt er
að undirbúa fyrirvaralausa brott-
för. Einnig er búið aö prenta
spjöld til að hengja upp i Kisiliðj-
unniog eins hafa starfsmennirnir
fengið fjölritaðar leiðbeiningar.
Sams konar leiðbeiningar hafa
verið settar upp I Léttsteypunni.
Almannavarnaráö kom til Mý-
vatnssveitar s.l. laugardag og
könnuðu meðlimir ráðsins m.a.
Bjarnarflagssvæðið. Þá var sam-
eiginlegur fundur ráðsins og al-
mannavarnanefndarinnar i Mý-
vatnssveit. Að lokum má geta
þess að búið er að tengja Voga-
hverfið viðvörunarkerfi Al-
mannavarna.