Tíminn - 18.10.1977, Side 5

Tíminn - 18.10.1977, Side 5
Þriðjudagur 18. október 1977 5 á víðavangi Hættumerki A þvi ieikur ekki vafi að for- ystumenn BSRB hafa tekiö á samtök sin og umbjóðendur ó skaplega áhættu með þeim að- ferðum, sem þeir beita I verk- falli opinberra starfsmanna. Það hefur greinilega orðið of- an á i forystunni áð beita öliu þvi afli sem fyrir hendi er og skirrast ekki við að brjóta reglur laga um framkvæmd vinnustöðvunar opinberra starfsmanna ef á þær reynir i verkfallinu. Akafamennimir hafa með öðrum orðum orðið ofan á I ákvörðun innan BSRB. Þessi framvinda er Iskyggi- leg, en hún er fyrst og fremst hættuleg fyrir opinbera starfs- menn sjálfa og samtök þeirra. Menn höfðu vænzt þess, að nú yrði sýnt hvernig hin nýju lög, sem færðu BSRB verkfalls- re'tt, reyndust i verki. (Jtkom- an virðist ætla að verða sú, að takmörkuð reynsla fáist á iög- in sjálf, en menn standi frammi fyrir valdbeitingu, sem ekki á stoð i lögum sem gildandi eru og þeim reglum sem aðiljarnir höfðu áður komið sér saman um. Að þessu er vikið I forystu- grein Morgunblaðsins nú á sunnudaginn. Þar segir: „1 lögum þeim um kjara- samning Bandalags starfs- manna rikis og bæja, sem veittu opinberum starfsmönn- um verkfallsrétt, segir svo I 26. grein: „Þótt löglegt verk- fall sé hafið er starfsmönnum, sem í verkfalli eru, skylt aö starfa svo að haldið verði uppi nauösynlegri öryggisvörzlu og heilsugæzlu. Kjaradeilunefnd ákveöurhvaöa einstakir menn skuli vinna I verkfalli og hún skiptir vinnuskyldu á milli manna. Um laun og kjör þess- ara manna meðan á verkfalli stendur skal fara eftir þeim kjarasamningi sem gerður verður að loknu verkfalli.” Þau vandamál, sem upp hafa komið við framkvæmd fyrsta verkfalls opinberra starfs- manna, og eru mjög alvarleg, eru fyrst og fremst sprottin af þvi að Bandalag starfsmanna rikis og bæja, sem undirritaði samning við stjórnvöld fyrir rúmum tveimur árum um þetta skilyrðislausa úrskurð- arvald kjaradeilunefndar, hefur þvi miður sýnt úrskurð- um kjaradeilunefndar virð- ingarleysi, og með þvi reynt að brjóta þessi ákvæöi niður.” Til hvers verður réttarbótin? í þessu er einmitt hættan fyrir opinbera starfsmenn fólgin. Ef til vill halda ein- hverjir þeirra aö þau réttindi, sem þeir fengu með hinum nýju lögum, hafi verið smá- atriði. Svo var ekki, heldur var þar um að ræða mjög verulega réttarbót. Nu reynir á það með hverjum hætti farið er með þessa réttarbót. t öðru lagi verður enn að klifa á þeirri viðkvæmu stöðu, sem opinberir starfsmenn hljóta alltaf að vera I and- spænis afstöðu og viðhorfi allra hinna, sem ekki starfa i opinberri þjónustu og lita til opinberra starfsmanna þeim augum, að þar sé um að ræða fólk sem býr við tryggari at- vinnuskilyröi og að mörgu leyti betri og hægari vinnuað- stöðu en aðrir. Nú heyrist hvaðanæva að, að sá skilning- ur sem rikti með eðlilegum kröfum BSRB sé að réna vegna harðfylgis forystunnar I verkfallinu. Og þá er enn eftir að spyrja, hvort raunverulega sé verið að berjast fyrir kjarabótum. Eða er hér I fullum gangi enn einn hanaslagurinn til að sýna vald sitt og fullan ásetning til að beita þvi án tillits til nokk- urs aðhaíds eða varúðar? Að elta sjálfa sig Vlsir vlkur að kjaramálun- um I forystugrein s.l. laugar- dag og segir: ,,Um raunverulegar lifs- kjarabætur hefur ekki veriö að ræða. Kjaradeila opinberra starfsmanna er þannig aðeins óhjákvæmilegur þáttur I verð- bólgukapphlaupinu. Með sól- stööusamningunum var enn hert á gangi verðbólguhjólsins og það eru bara kjánar sem ekki hlaupa með þeir verða undir I ringulreiðarþjóðfélag- inu.” Svo segir Visir, og er reynd- ar ekki að öllu leyti skynsam- lega að orði kveðið. Hitt er þó vfst að launasamningar, sem ekki taka tillit til verðmæt- anna sem til skipta koma i þjóðfélaginu, munu aldrei leiða til raunverulegra llfs- kjarabóta. 1 skammsýni geta menn þá leiðzt til þess að fall- ast á lögmál vitahringsins og haldið áfram að elta sjálfa sig hringinn. Að Iokum segir Vfsir I laug- ardagsforystugrein sinni: „Hjá þvlverður ekki komizt að kjarasamningarnir við op- inbera starfsmenn leiðitil all- verulegra skattahækkana eða niðurskurðar á framkvæmd- um og þjónustu rikis og sveitafélaga. Ef aðhaldsleiðin verður farin hlýtur það að leiöa til uppsagna opinberra starfsmanna og minni atvinnu við framkvæmdir. Og ef að likum lætur munu forystu- menn BSRB og ASt mótmæla kröftuglega þeim skattahækk- unum sem fylgja I kjölfar væntanlegra samninga.Kjarni málsins er sá að allt útlit er fyrir að menn haldi áfram að hlaupa i kapp við verðbólg- una. Um þessar mundir er engin viðleitni höfð i frammi I þá veru að snúa við blaðinu i þeim efnum. Meðan fram heldur sem horfir leiða krónu- töluhækkanir kaups ekki til bættra kjara.” „Merkilegt atriði” Fróðlegt verður, þegar að þvi kemur, að fylgjast með viðbrögðum forystumanna BSRB við samdrætti I umsvif um hins opinbera eða aukinni skattheimtu. Ef til vill er nokkur visir að þeim við- brögðum núþegar sprottinn. i Huga, fréttabréfi BSRB er nú nýiega fjallað um góða kjara- samninga sem gerðir hafa verið á Akranesi. i sambandi við þá samninga segir þetta málgagn BSRB að það sé „merkilegt atriði” og vert þess aö vakin sé athygli á þvi sérstaklega”, að meirihluti bæjarstjórnar á Akranesi er skipaður Sjálfstæðismönnum, Alþýðuflokksmönnum og AI- þýðubandalagsmönnum.” Það skyldi þó ekki vera að „nýsköpunardraumurinn” vaki einnig fyrir einhverjum forystumanna BSRB? Núver- andi fjármálaráðherra mun væntanlega kynna sér það mál af gamansemi sinni. JS meXÍlKALKSTEINN Utan húss sem innan — Ákjósanleg veggja- dekkning — Kemur í stað pússn málningar BYGGIR HV Grensdsvegi 12 — Sími 1-72-20 Kenns/a er hafin á ný Dráttarvél til sölu Höfum verið beðnir að selja Zetor dráttarvél, 60 hestafla, árgerð 1973. Notkun 3000 vinnustundir. VEIáECCG SUNDABORG Klettagörðum 1 • Simar 8-66-55 & 8-66-80 Vinnutja/d sem stendur við Karlabraut í Garðabæ ef viðunandi tilboð fæst. Stærð um 350 fermetrar. Mjög hentugt fyrir verktaka eða aðra, sem þurfa að flytja aðstöðu milli staða. Mjög fljótlegt i uppsetningu. Burðarvirki eru úr limtré, klæðning er tvö- faldur nælondúkur. Upplýsingar i sima 5-21-44, kvöldsimi milli 8 og 9 4-29-17. Þessi bygging er ti! sö/u ALLIR VEGIR FÆRIR Á YOKOHAMA HJÓLBÖRÐUM HJOLBARÐAR BORGARTUNi 29 SÍMAR 16740 OG 38900 Véladeild Sambandsins

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.