Tíminn - 18.10.1977, Side 8
íil 11A j- II11AIL f
8
Þriðjudagur 18. október 1977
[slsítalalBlsiIsIsIslBlalsIsfsIsIsIsIalÉKalEÍIsIsIaSiIsSiIslalsIs
Það réttlóaði við stein i gær. Það kom sér lika vel. A ytri höfninni
lágu niu flutningaskip, og smábátar á ferð á milli skipa og
lands. —Timamynd: Róbert.
ÓDÝR
GÓLFDÚKUR
Verð pr. ferm:
1400, 1507 og 1670 kr.
polyviíes
Fer að minna
á skútuöldina
Á skútuöldinni lá oft margt skipa
innan við Engey, enda var þá
engin höfn I Reykjavlk og engar
bryggjur, sem gagn var að. Siglu-
trén voru eins og skógur, þegar
skúturnar voru fiestar, svo sem
menn kannast við af gömlum
myndum.
Verkfallið- veldur því, að nú
hafa skip orðið að varpa akkerum
á ytri höfninni, þar sem þeim er
ekki leyft að leggjast að bryggju,
og dag frá degi hefur þeim skip-
um f jölgað, er þar hafa verið látin
biða þessa, hverju fram yndi.
Komið hefur fram, að sjómenn
á þessum skipum eru mjög
óánægðirmeð þessa skipan mála,
þar sem þeir verða að fara á milli
skips og lands á skipsbátunum, ef
þeir vilja ekki biða á skipsfjöl all-
an ti'mann. Ekki er heldur talið
með öllu hættulaust, að svo mörg
stór skip liggi úti á ytri höfninni,
ef stórviðri gerði, eins og mörg
dæmi eru um á þessum tima árs.
Hingað til hefur þó viljað svo vel
til, að sannkölluð veðurbliða hef-
ur verið alla dagana siðan fariö
var að leggja skipum á ytri
höfninni.
Miklar birgöir
hjá mjólkur-
samlögunum
Þriðjudaginn 11. október s.l.
komu saman til fundar á Hótel
Sögu forráðamenn allra mjólkur-
samlaga i landinu ásamt fulltrú-
um úr framleiðsluráði og stjórn
Osta- og Smjörsölunnar. Tilefni
fundarins var að koma á fram-
leiðsluáætlun fyrir mjólkurbúin
og jafnframt athuga leiðir til auk-
innar sölu innanlands.
Gunnar Guðbjartsson, formað-
ur framleiðsluráðs, var kjörinn
fundarstjóri. óskar Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Osta- og
Smjörsölunnar, flutti erindi um
sölustarfsemina, þá ræddi Pétur
Sigurðsson, fulltrúi hjá fram-
leiðsluráði, um ástand og horfur i
framleiðslumálum. Sævar
Magnússon hjá Osta- og Smjör-
sölunni gerði grein fyrir fram-
leiðslu á Óðalsosti.
Þá voru tvö erindi flutt af Pétri
Sigurðssyni, annað um fram-
leiðslu á osti með undanrennu-
mjöli og hitt um vaxtagreiðslur
á eftirstöðvar mjólkurverös.
Sveinn Tryggvason skyröi frá
störfum markaðsnefndar land-
búnaðarins og Ólafur Sverrisson
ræddi um afuröalán út á mjólkur-
afurðir. Ýmsar athyglisveröar
upplýsingar komu fram i erind-
um frummælanda og einnig fram
i frjálsum umræðum um erindin.
ÓskarH.Gunnarssonskýröi frá
þvi m.a., að birgðir af smjöri 1.
okt. hefðu verið 1070 lestir, sem
var um 645 lestum meira en á
sama tíma i fyrra. Af ostum voru
tililandinuá sama tima 1320 lest-
ir, en það var um 414 lestum
meira en 1. október 1976. Birgðir
af undanrennudufti voru 725 lestir
og 230 lstir af kálfafóðri. Birgöir
voru nú meiri en þær hafa verið
mörg undanfarin ár, þrátt fyrir
að sala hefur gengið vel á flestum
afurðum að undanteknu smjöri.
fyrstu 8 mánuði ársins seldust 946
lestir af smjöri. Af osti seldust 967
lestir en það er tæplega 13%
aukning frá fyrra ári. Niður-
greiðsla á smjörveröinu er með
minnsta móti, sem hún hefur ver-
ið undanfarin ár. Oftast hefur hún
numið um 45-50% af smásölu-
verðinu, og alltupp i 70%, en nú
er hún 31%.
Osta- og Sm jörsalan hefur beint
þeirri áskorun til framleiðsluráös,
að það finni leiðir til að lækka
verðásmjöri.ánþessað það bitni
á framleiðendum. Þar má t.d.
benda á að lækka verð á sm jörfitu
en hækka verðið aftur á móti á
próteini.
Áætlað er að flytja út 1000 lestir
af ostum i ár, þegar hafa verið
fluttar út 600 lestir þar af 130 lest-
iraf Óðalsosti. Frjáls innflutning-
ur er á Óöalsosti til Bandarikj-
anna, en innflutningur á öðrum
ostum er háður leyfum. Nokkurt
magn hefur verið flutt út til Svi-
þjóðar hér áöur fyrr, en ekkert
siðastliðin tvö ár. Nú vilja Sviar
kaupa af okkur 200 lestir, en þar
er nú um 200 kr. isl. innflutnings-
gjald af herju kg, þannig að
þangað er útflutningur mjög
óhagstæður. Að siðustu ræddi
Óskar um útflutningsbætur, en
fyrster getiö um greiðslu útflutn-
ingsbóta hér á landi um aldamót-
in siðustu. Þá voru þær greiddar
meö smjöri samkvæmt lögum
sem Danakonungur staðfesti.
Osta- og Smjörsalan á inni hjá
rikissjóði útflutningsbætur að
upphæð 118 millj. kr. fyrir vörur
sem fluttar voruúti april og siðar
og ekki virðist liggja fyrir aö
þessi upphæö fáist greidd á næst-
unni.
1 erindi Péturs Sigurðssonar
kom fram að gert er ráð fyrir að
mjólkursamlögin muni taka á
móti 115,5 millj. ltr. á nýbyrjuðu
verðlagsári. A siðasta verðlags-
ári (1. sept. —31. ágúst) var inn-
vegin mjólk 112,5 millj. ltr. Gert
er ráð fyrir, að seldir veröi 46
Framhald á bls. 23