Tíminn - 18.10.1977, Side 9
Þriðjudagur 18. október 1977
mmni
9
Hvað verður
nýtt að lesa
í vetur?
Þorsteinn Valdimarsson. Davlð Stefánsson
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
og Þjóðvinafélagsins sendir frá
sér eftirtalin rit árið 1977:
Almanak Hins islenzka þjóð-
vinafélags 1978. Almanakið
kemur að venju út i tvennu lagi,
hið minna og hið meira. Rit-
stjóri er dr. Þorsteinn Sæ-
mundsson, stjarnfræðingur.
Andvari 1977. Aöalgreinin i
Andvara að þessu sinni er ævi-
saga Egils Thorarensens, kaup-
félagsstjóra á Selfossi eftiF
Guðmund Danielsson rithöfund.
Ritstjóri Andvara er dr. Finn-
bogi Guðmundson landsbóka-
vörður.
tslenzkar úrvalsgreinar II.
Þetta er annað bindið af úrvals-
greinum, sem Bjarni Vilhjálms-
son þjóðskjalavörður og dr.
Finnbogi Guðmundsson hafa
valið. Fyrra bindið kom út 1976.
Ljóðmælieftir Davfð Stefáns-
son frá Fagraskógi. Þetta er Ur-
val af ljóðum Daviðs, sem
Ólafur Briem menntaskóla-
kennari hefur búið til prentunar
Bókin er þriðja bindið i flokkn-
um Islenzk rit, sem Rannsókn-
arstofnun i bókmenntafræði við
Háskóla íslands gefur út, en rif-
nefnd hans skipa Njöröur P.
Njarðvik, Óskar Ó. Halldórsson
og Vésteinn ólason. Aður hafa
komið i þessum flokki ljóð Jóns
Þorlákssonar og Bjarna Thor-
arensens, — I báöum tilvikum
úrval úr ljóðum þeirra.
tslandssaga l-ö Þetta er nýtt
bindi i Alfræðum Menningar-
sjóðs.og siðari hluti íslandssög-
unnar eftir Einar Laxness
menntaskólakennara.
Konur og kosningar. Rit þetta
fjallar um baráttu kvenna fyrir
kosningarrétti. Höfundur er
Gisli Jónsson, menntaskóla-
kennari.
Tónmenntira-k.Þetta er fyrri
hluti nýrrar bókar i Alfræðum
Menningarsjóðs eftir dr. Hall- -
grím Helgason, tónskáld.
Kortasaga tslands II. Hér er
komið siðara bindi kortasög-
unnar, en hiö fyrra kom út 1972.
HÖfundur er ffaraídur Si'gurðs
son bókavörður.
Hin litilþægu eftir Poul Vad,
erskáldsaga eftireinn kunnasta
rithöfund Dana, þydd af Úlfi
Hjörvar. Sagan heitir á frum-
málinu De nöjsomme.og hefur
vakið mikla athygli.
tslenzk kristni i Vesturheimi
eftir dr. Valdimar J. Eylands.
Bókin hefur að geyma fyrir-
lestra, sem höfundur flutti við
guðfræðideild Háskóla tslands
haustið 1975. Þjóökirkja íslands
gefur bókina út, og formála aö
henni ritar Sigurbjörn Einars-
son biskup.
Smalavisur eftir Þorstein
Valdimarsson. Þetta er seinasta
ljóðabók Þorsteins, en hann lézt
7. ágúst i sumar. Smalavisur
eru gefnar út til styrktar minn-
ingarsjóði Guðfinnu Þor-
steinsdóttur (Erlu) skáldkonu,
móður Þorsteins Valdimars-
sonar.
Hallgrimur Helgason.
Guðmundur Danielsson.
Valdimar J. Eylands.
Sama á hverju
gengur?
Þar sem mikið er gengið, hef-
ur- BYKO jafnan gólfklæðninguna,
sem endist bezt. Þar sem minna geng-
ur á, hefur BYKO það, sem ódýrast
er. Hverju, sem þú stefnir að, hefur
BYKO það rétta undir iljarnar, gólf-
dúka eða flísar, fjölbreytt úrval efnis
og lita.
Þar sem fagmennirnir verzla,
er yöur óhætt
BYGGINGAVÖRUVERZLUN BYKO
KÓPAVOGS SF Ck jO
NYBYLAVEGI8 SIMI:41000
Auglýsingadeild Tímans Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla
Akurevri
Flokkar fyrir börn (yngst 4 ára), unglinga og fullorðna (einstaklinga og
hjón). Byrjendur — Framhald.
INNRITUN í DAG í Alþýðuhúsinu kl. 1 til 7
og í síma 2-35-95