Tíminn - 18.10.1977, Qupperneq 11

Tíminn - 18.10.1977, Qupperneq 11
Þriðjudagur 18. október 1977 n finmm Ctgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Jón SigurOsson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gisiason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 80.00. Askriftargjald kr. 1.500 á mánuði. Blaðaprent h.f. Minnisleysi Lúðvíks Lúðvik Jósepsson birtir grein i Þjóðviljanum á sunnudaginn, þar sem fjallað er um launamál og kjaramál. Lúðvik Jósepsson telur sig benda þar á einfalt ráð, sem leysi allan vanda. Þetta einfalda ráð er að kjósa Alþýðubandalagið. Þá leysist kjara- málin af sjálfu sér. Þá skipti engu máli hvernig við- skiptakjörin eru eða hvort vel fiskast eða illa. Það skiptir engu máli, ef Lúðvik Jósepsson og Magnús- Kjartansson eru i stjórn. Þá geta kjósendur verið áhyggjulausir. í samræmi við þetta, á Lúðvik ekki heldur erfitt með að skýra þá kjaraskerðingu, sem varð hér á ár- unum 1975 og 1976. „Ástæðan er sú,” segir Lúðvik, ,,að núverandi rikisstjórn ákvað strax eftir að hún var mynduð i ágústmánuði 1974, að lækka skyldi kaupmátt launa frá þvi sem um hafði verið samið.” M.ö.o. kjaraskerðingin stafaði einfaldlega af þvi, að Alþýðubandalagið var ekki i stjórn. Bersýnilegt er af þessu, að annað hvort er Lúðvik gleyminn eða hann reiknar með þvi, að lesendur Þjóðviljans séu gleymnir. Tillagan um að lækka kaupmátt launa frá þvi, sem um var samið i febrú- ar 1974, var komin fram alllöngu áður en núverandi stjórn var mynduð. Hún kom fram i frumvarpi sem vinstri stjórnin lagði fram á Alþingi vorið 1974 eftir að ljóst var orðið, að kjarasamningurinn, sem var gerður i febrúar það ár, myndi hvort tveggja i senn leiða til óðaverðbólgu og atvinnuleysis. í þessu frumvarpi, sem var flutt með fullum stuðningi Lúð- viks Jósepssonar og Magnúsar Kjartanssonar fólst bæði lækkun á grunnlaunum, sem fóru yfir visst mark, og visitölubinding. 1 viðræðum um endur- reisn vinstri stjórnarinnar, sem fóru fram i ágúst- mánuði 1974, stóð ekki á fulltrúum Alþýðubanda- lagsins að fallast á 15-17% gengislækkun, ef sam- komulag næðist um nýjan stjórnarsáttmála að öðru leyti. Fulltrúar Alþýðuflokksins, sem tóku þátt i þessum viðræðum, viðurkenndu einnig að þetta væri nauðsynlegt. Núverandi rikisstjórn gerði þvi ekki annað, þegar hún tók við, en að framfylgja tillögum, sem allir flokkar voru þá búnir að fallast á og voru reiðubúnir að styðja, ef þeir yrðu þátttakandur i stjórnarsam- starfi. Efnahagsástandið var þá með þeim hætti, að menn voru sammála um að þessar aðgerðir eða aðrar hliðstæðar, væru óhjákvæmilegar, ef ekki ætti að láta útflutningsatvinnuvegina stöðvast og láta koma til stórfellds atvinnuleysis. Hvers vegna lætur Lúðvik eins og hann muni ekki eftir þessum staðreyndum? Er hann svona minnis- laus? Eða er hann að segja visvitandi ósatt. Alþýðubandalagið má eiga það, að þegar það hefur verið i rikisstjórn, hefur það ekki hikað við að taka á sig ábyrgð af ráðstöfunum, sem ekki hafa þótt vænlegar til vinsælda, eins og efnahagstillög- unum vorið 1974. Svo fór reyndar þá, að Alþýðu- bandalagið græddi á hinni ábyrgu afstöðu sinni þá. En hvorki þá eða siðar hefur Alþýðubandalagið get- að bent á nein undraráð til að mæta versnandi við- skiptakjörum eða öðrum hliðstæðum erfiðleikum. Það hefur þá ekki siður en aðrir flokkar stutt hefð- bundnar aðgerðir, sem hafa þótt óhjákvæmilegar. Það verður vonlaust fyrir Lúðvik Jósepsson að ætla að gripa til minnisleysis eða einhvers, sem er verra, til þess að reyna að leyna þessu. Undraráðin, sem hann gefur i skyn, að Alþýðubandalagið hafi i erm- inni, hafa enn ekki séð dagsins ljós og eiga ekki eftir að gera það. Þau eru sama efnis og nýju fötin keis- arans. ERLENT YFIRLIT Umræður um eftir- mann Páls sjötta Kaþólska kirkjan þarfnast frjálslyndari forustu ÞVl haföi veriö spáö i fjöl- miölum, aö Páll sjötti myndi leggja niöur páfadóm 26. september siöastliöinn, þegar hann átti áttræöisafmæli. Þetta var m.a. dregiö af þvi, aö hann haföi sett æöstu mönnum kaþólsku kirkjunnar ákveöin aldursmörk, sem ekki haföi tiökazt áöur. Þannig veröa biskupar nú að láta af embætti.þegarþeir eruorönir 75 ára, og kardinálar fá ekki að taka þáttipáfakjörieftir að þeir hafa náö áttræðisaldri. Margir fréttaskýrendur álykt- uðu þannig, að fyrst menn væru orönir ófærir til aö taka þátt i páfakjöri eftir aö þeir hefðu náö áttræðisaldrinum, væru þeir siður færir um aö gegna sjálfu embættinu eftir að þeim aldri væri náð. Fréttaskýrendur töldu þetta lika þvi frekar koma til greina, þegar páfinn væri orö- inn mjög heilsuveill eins og Páll sjötti er sagöur vera. Þeim varö þó ekki aö spám sinum. Páll sjötti gegnir em- bættinu áfram og sýnir ekki á sér neit£ fararsnið. Ef til vill hefur hann þaö I huga, að þrir siðustu fyrirrennarar hans, en hann þekkti þá alla persónu- lega, gegndu allir páfaem- bættinu eftir að þeir urðu átt- ærðir. Þeir voru Pius ellefti, sem gegndi embættinu frá 1922-1938, Pius tólfti, sem gegndi embættinu frá 1939- 1958 og Jóhannes þrettándi, sem gegndi þvi frá 1958-1963. Þeir Pius ellefti og Jóhannes þrettándi létust á 82. aldurs- ári, en Pius tólfti á 83. aldurs- ári. Páll sjötti getur dregiö af þvi þá ályktun, aö sennilega eigi hann ekki langt eftir. En .' til hafa verið páfar, sem hafa náð hærri aldri. Pius ni- undi, sem var páfi 1846-1878, varð 85 ára gamall, og Leó þrettándi, sem var páfi frá 1878-1903, var orðinn 93 ára, þegar hann lézt. Yfirleitt bendir þetta til, að páfar nái háum aldri. PÁLL sjötti, sem réttu nafni heitir Giovanni Battista Montini,gekk ungur i þjónustu kirkjunnar og þótti fljótt lík- legur til forustu. Ariö 1937 var hann kvaddur til að starfa I Vatikaninu og varð mjög handgeng inn P ius i tól f ta, s em var páfi á árunum 1939-1958. Þó fór svo, aö honum og Piusi páfa samdi ekki. Montini skip- aði sér i hinn frjálslyndari arm kirkjunnar á þessum ár- um oggekk meira að segja svo langt aö taka afstööu gegn Franco einræöisherra Spánar, þegar hann lét taka þekktan leiðtoga kommUnista af lifi. Pius páfi tók þá þaö ráö aö fjarlægja Montini frá páfa- laröinum, þar sem hann haföi oröiö mikil áhrif. Arið 1954 skipaöi hann Montini erkibisk- up i Milanó. Hann kom þvi ekki til greina við páfakjörið 1958, þegar margir frjálslynd- ir kardinálar vildu styðja hann. Árið 1963náöihann kjöri sem páfi og þótti um skeið lík- legt, aö hann myndi marka timamót i sögu kaþólsku kirkjunnar, þar sem hUn þyrfti aö samlagast breyttum tima og Montini þótti vænleg- ur til forustu i þeim efnum. Montini, sem haföi tekið sér nafnið Páll sjötti, fór lika vel af stað. Hann fór i fleiri utanlandsferöir en nokk- urfyrirrennarihans hafði gert og heimsótti 16 lönd viöa um heim á skömmum tlma. Þann- ig vildi hann fá sem mest yfir- lit um ástand kirkjumála i heiminum. Eftir þessi feröa- lög skipaöi hann marga kardinála viða utan Italiu, en fram til skamms tima haföi meirihluti kardinálanna veriö Italir. NU er svo komið, aö aö- eins 40 kardinálar eru Italskir af 136 alls. Þá setti Páll páfi þau aldursmörk fyrir biskupa og kardinála,sem áöurer sagt frá. En þegar þessu sleppir hafa umbætur oröiö litlar I tið hans og hann gerist stöðugt I- haldssamari. Ótti hans viö uppgang kommUnista á Italiu kann aö hafa átt þátt i þessu. Margir fréttaskýrendur telja að hann sé nU einangraður I Vatikaninu, þvi aö flestir em- bættismenn þar vilji ýmsar breytingar, sem séu nauðsyn- legar vegna breyttra tima. Páll páfi er sagður hafa gerzt stöðugt einráðari og ósam- vinnuþýðari með aldrinum. ÞAR sem almennt er álitiö aö skammt verði i páfakjör, er farið aö ræða allmikið um væntanlegan eftirmann Páls sjötta. Þaö eru kardinálarnir, sem velja páfa. Þótt kardinál- amir séu 136 talsins, er ekki reiknaö meö að öllu fleiri en 100 taki þátt i páfakjörinu. Margirhafa misst rétt til þátt- töku i þvi vegna þeirra aldurs- ákvæöa, sem Páll páfi hefur sett. Einna liklegasta páfaefni þykir nU Pignedoli kardináli, 67 ára, en hann hefur þaö sér- staka hlutverk aö fylgjast meö störfum kaþólsku kirkjunnar i Afriku og Asiu.Hann er talinn heldur frjálslyndur. Sebast- iano Baggio, 64 ára er oft nefndur, en hann er nU eins konar eftirlitsmaður meö biskupum. Fari svo, að ftalsk- ur kardináli veröi ekki fyrir valinu, þykir Hollendingurinn Jan Wittebrands,68 ára, einna liklegastur, en Italir hafa skipaö páfasætið samfley tt frá 1154, og myndi það þykja eins konar bylting,ef breyting yröi á þvi. Þá hefur Englendingur- inn Hume kardináli einnig komiö til orða og styrkir það stööu hans, aö kaþólskan sæk- ir nU á i enskumælandi lönd- um. Þótt páfinn sé ekki lengur eins voldugurog áöurfyrr, eru völd hans enn mikil. Kaþólska kirkjan telur nU um 600 millj- ónir manna. Forusta hennar er i höndum 136 kardinála, 2000 biskupa og 400 þUs. presta. Þessi stóra forustu- sveit hefur ekki litil áhrif, ef hún beitir sér sameiginlega. Þ.Þ. Aöur var ekki til ráös aö birta skopmyndir af páfa. Þetta er mynd úr itölsku blaði, þar sem páfinn á aö vera á kommúnista- veiðum. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.