Tíminn - 20.10.1977, Page 8

Tíminn - 20.10.1977, Page 8
8 Fimmtudagur 20. október 1977 Að sem mestur stöðugleiki sé í stafsetningarmálum ræða Vilhjálms Hjálmarssonar á þingi í gær, þar sem fjallað var um setningu reglna um stafsetningu Það kom fljótt I ljós, þegar ts- lendingar tóku að skipa staf- setningarmálum sfnum með opinberum auglýsingum, að landsmenn létu sig þau málmiklu varða. Nægir að minna á, að ára- tugir liöu frá útgáfu auglýsinga 1929 þar til t.d. öll dagblöð höfðu tekið upp þá stafsetningu sem þar var notuö, þvi að menn voru alls ekki sáttir við hana fyrst lengi vel. Svo fórum siöir að allur þorri landsmanna tók upp þessa staf- setningu og batt raunar við hana allmikla tryggð, eins og siöar kom á daginn. Einstök atriði stafsetning arinnar frá 1929 sættu þó gagn- rýni — að sjálfsögðu. En nærri hálf öld leið, áður en til breytinga kæmi af opinberri hálfu. Breytingarnarsem gerðar voru 1973 og 1974 vöktu mikið umtal, miklar deilur má raunar segja. Voru þær gagnrýndar harðlega af sumum en nutu ákveðins stuðnings annarra. Kom þannig enn glöggt i ljós mjög mikill og al- mennur áhugi á þeim þætti is- lensks máls er starfsetninguna varðar — Og e.t.v. miklu meiri en margan hafði órað fyrir. Mér virðist þeir atburðir, þær umræður, er orðið hafa I tengsl- um við breytingarnar 1929 og svo aftur 1974benda eindregiö til þess að þaö sé ósk hins almenna borg- ara, að sem mestur stööugleiki sé i stafsetningarmálum. Einn al- þingismaður, Ingi Tryggvason hefur komist svo að orði að hæfi- legt sé að breyta islenskri staf- setningu einu sinni á öld! Ég geri nú ekki ráö fyrir aö Ingi Tryggva- son hafi meint þetta bókstaflega en mér er þó nær aö halda að þeir séu ekki svo fáir sem innst inni hugsa á þessa leið. Og ég skal játa það hreinskilningslega að ég hall- ast frekar á þá sveifina! S.l. vetur efndi menntamála- ráðuneytiö til allf jölmennrar ráð- stefnu um islenska stafsetningu Þegar menntamálaráðhcrra, Vilhjálmur Hjálmarsson, hafði á Alþingi I gær fylgt úr hlaði frum- varpislnu um setningu reglna um Islenzka stafsetningu með ræðu sem birt er hér á siðunni urðu all- miklar umræður um frumvarp ráðherra og stafsetningarmál al- mennt. Fyrstur á eftir ráöherra talaði Magnús Kjartansson og kvað frumvarp ráðherra hófsamlegt og skynsamlegt i öllum megin- atriðum. Hinsvegar taldi hann allar þær umræöur sem orðiö hefðu á Alþingi um stafsetningar- mál augljósan vitnisburð um, aö eitthvað væri að gerast I þjóð- félaginu sem erfitt væri að festa hendur á og þessvegna væri gripið til langra ræðuhalda um aukaatriði. Siðan lýsti Magnús yfir þeirri skoðun sinni aö staf- setningarreglur ættu aö vera eins einfaldarog hugsast gætisvo ekki þyrfti aö vefjast fyrir neinum aö stafsetja rétt. Sverrir Hermannsson tók næst- ur til máls og kvaöst einnig sam- þykkur frumvarpi ráðherra i meginatriðum, en hitt skipti meira máli aö ná fyrst sátt- um i þeirri miklu þrætu, sem staðiö hefði á Alþingi um gildandi stafsetningar reglur. Sagði hann, að þrátt fyrir meirihluta á Alþingi fyrir því aö z yröi ekki meö öllu afnumin og samþykkt þings- ályktunartillögu þar um, heföi ráðherra ekkertgert, til að fram- fylgja þeirri viljayfirlýsingu en hér i Reykjavik i samræmi viö ábendingar frá Alþingi vorið áður. Þessiráðstefna var vel sótt. Þar mættu málvisindamenn og móðurmálskennarar og fleiri áhugamenn. t byrjun ráöstefn- unnar, lagðiég fram hugmynd að eins konar málamiðlun en læröir menn og ágætir islenzkumenn ræddu þær hugmyndir og þó miklu fremur málið almennt af vitsmunum og hófsemi og mikilli þekkingu. 1 framhaldi af ráöstefnunni ræddi ég svo starf- setningarmálin I þrengri hópum með málvisindamönnum og móðurmálskennurum. Kom glöggt I ljós að menn voru siöur ensvosammála umeinstök atriði þrátt fyrir yfirgripsmikla og trausta þekkingu margra við- mælenda minna á islensku máli. Nokkrir vildu hverfa alfarið til stafsetningarinnar frá 1929 eins og raunar er kunnugt meðal ann- ars af málflutningi hér á Alþingi. Aðrir vildu enga breytingu gera frá þvl sem komið var. t þeim hópi virtust kennarar mjög fjöl- mennir. Og mörg önnur sjónar- mið komu fram á ráðstefnunni og I nefndum viðræðum. Satt að segja man ég nú ekki eftir neinu veigamiklu afmörkuðu atriði, sem allir væru sammála um! En eins og ég sagði áðan leikur ekki á tveimur tungum, að mjög margir þeirra er þarna lögðu orð I belg eru ágætlega vel að sér um is- lenskt mál og málnotkun. Má nærri geta að manni með mina menntun, móðurmálskunnáttu eða ámóta^situr kaka við rass að segja hér til um, hvað rétt sé og hvað rangt. Get ég tekið mér i munn orð viðmælanda Jóns Indiafara á knæpunni i Kaup- mannahöfn og segi, að þaö má Óðinn gera en ég aldrei! Þó virðist mér augljóst eftir ráðstefnuna og þær umræður sem fylgdu i kjölfar hennar og raunar reyndi nú að skjótast fyrir horn með þetta frumvarp. Si'ðan fjallaði Sverrir um tilurð núgildandi stafsetningarreglna i ráðherratið Magnúsar Torfa Ólafssonar. Þá ræddi hann um hugsanlega útkomu ef menn staf- settu eftir framburði og talaði sérstaklega um flámæli á Aust- fjörðum I þvi sambandi. Taldi hann samræmdu stafsetningunni ekki slzt að þakka að flámæli fyrirfinnst nú vart I landinu. Að lokum geröi Sverrir grein fyrir þvi, að hann undirbyggi nú þingsályktunartillögu um is- lenzka stafsetningu, þar sem hann teygi sig eins langt til sátta og honum sé unnt. Sé þar gert ráð fyrir breytingu á núverandi staf- setningarreglum á þá leið aö z verði aftur tekin upp þar sem d, ö, t, sé að finna I stofni sagna. Ennfremur kvaðst hann vilja gera breytingartillögu við frum- varp menntamálaráöherra hvað varðar skipun nefndarinnar, sem um stafsetningarmál skuli fjalla. Auk hinna þriggja nefndarmanna sem frumvarp menntamálaráð- herra gerir ráð fyrir skyldu f jórir aðrir eiga sæti i nefndinni,einn til- nefndur af bókavörðum við Landsbókasafnið einn af Félagi isl. bókaútgefenda, einn af stjórn Blaðamannafélags isl.og einn til- nefndur af menntamálanefnd Al- þingis.____ af fleiri sólarmerkjum að dæma að sú breyting, sem flestir að- hylltust var, að taka aftur upp fyrri reglu og venjur um hversu rita skulistóran staf og lítinn. Og hörð andstaða gegn breytingu I þá stefnu virtist alls ekki vera fyr ir hendi. Þessi orö ber þó ekki að skilja svo að um þetta væru allir málvisindamenn og móðurmáls- kennarar sammála sbr. það sem áður sagði. Að þessari niðurstöðu fenginni ákvað ég að breyta með aug- lýsingu reglum um stóran og lít- inn staf til samræmis við fyrri háttu en iáta við svo búið standa að öðru leyti. Auglýsing um þetta efni var svo útgefin 28.6.77 — Það er mín skoðun að nú sé tvímæla- laust tfmabært aö hugleiða með- ferð stafsetningarmálanna i framtiðinni og taka ákvaröanir um það. Óánægjanfrá 1929 og 1974 gefur tilkynna.aöæskilegtsé að breyta nokkuð aðferðum við töku ákvarðana um Islenzkt ritmál,is- lenska stafsetningu. Það atriði var nokkuð hugleitt i menntamálaráðuneytinu vetur- inn 1975 tii 1976. Varð þá og þar til frumvarp til laga um setningu reglna um islenzka stafsetningu. Fyrstu drög þess frumvarps gerðu þeir að beiðni minni Arni Gunnarsson deildarstjóri og Runólfur Þórarinsson fulltrúi. Við Birgir Thorlacius ráðuneytis- Gylfi Þ. Gislason lýsti yfir stuðningi við þá hugmynd prófessors Halldórs Halldórsson- ar að halda z þar sem hún er I stofni sagna og Sverrir Her- mannsson ætlaöi að flytja á þingi Iformi þingsályktunartillögu. Þá lýstihann yfir stuðningi við frum- varp menntamálaráðherra um setningu stafsetningareglna i framtlðinni. Hinsvegar kvaðst hann álfta aö á meðan frumvarp þetta sé ekki oröið að lögum, hafi ráðherra venjulegan rétt til að setja reglur um stafsetningu með ráðherrabréfi eins og Magnús Torfi hafi á sinum tima gert og einnig Vilhjálmur Hjálmarsson. Menntamálaráöherra talaði næstur og þakkaði góðar undir- tektir við frumvarpið sem slikt. Hann ftrekaöiaðhann heföi sjálf- ur ekki getað fundið leiðir til úr- bóta um skipun nefndarinnar, sem um stafsetningarmál skuli fjalla og hefði hugsað sér að menntamálanefnd gæti gert þar á bragarbót, ef henni sýndist svo. Þá fjallaöi hann um gagnrýni þess efnis að hann skyldi ekki hafa beitt sér fyrir þvi, að z yrði tekin upp i stafsetningu aö nýju. Kvað hann erfittaö breyta i trássi við þann almenna vilja sem hann heföi oröið var viö ekki si'zt meöal kennara og margra málvísinda- raanna, þess efnis, aö ekki yrði hróflað við núverandi staf- Vilhjáimur Hjálmarsson stjóri fjölluöum einnig um málið og raunar fleiri. Það frumvarp sem þá varð til i menntamálaráðuneytinu var lagt fram á Alþingi 1975-1976. Ekki var grundvöllur fyrir þviað flytja það sem stjórnar frumvarp og flutti ég þá frumvarpiö sem mennta- málaráðherra. Alþingismenn tóku frumvarpinu sæmilega. Gagnrýndu þeir einkum skipun eða samsetningu stafsetningar- nefndar sem þeir töldu helst til þrönga. Nú er best að segja hverja sögu eins og hún gengur: þrátt fyrir nokkra yfirvegun hefur mér og okkur félögum I menntamála- ráðuneytinu ekki tekist að bæta um búnað frumvarpsins sem ég áðan nefndi og er það flutt hér óbreyttog að öllu með sama hætti setningarreglum hvað varðar z- una. Hann minnti á ummæli Gylfa Þ. Gislasonar stuttu áður, að venjan hefði helgað rétt ráðherra f þess- um efnum, en sliku yrði breytt með frumvarpi þvi sem hann hefði nú lagtfram. Þá vaktihann athygli á þvi að þingsályktunar- tillaga hefði ekki lagagildi og ráð- herra ekki stjórnskipunarlega skylt að hlita henni. Hinsvegar sagði Vilhjálmur Hjálmarsson væri þ_að mikils virði ef hægt yrði að á sáttum I þessum málum. Næstur talaöi Magnús Torfi Ólafsson og lét i ljós ánægju með það að tveir blindaðir i þessum þingsal (Gylfi Þ. Gislason og Sverrir Her- mannsson) væru aöeins að átta sig og hefðu nú séð hvilik fásinna það væri að Alþingi setti lögum einstök stafsetningar- atriði, eins og þeir hefðu þó beitt sér fyrir af mikl- um þunga á siðasta þingi. Aðrir sem tóku til máls viö umræöurnar voru þeir Jónas Amason og Gunnlaugur Finns- son. og fyrr. Vil ég nú leitast við aö gera grein fyrir efni þess. Eins og fyrirsögn fmmvarpsins ber meö sér, frumvarp til laga um setningu reglna um íslenska stafsetningu er hér um að ræða fyrirmæli um verklag, ekki um það, hvernig rita skuli. í fyrstu grein frv. er kveöið á um að menntamálaráðuneytið setji reglur um fslenska staf- setningu. Þar er og skilgreint gildissviðslíkra reglna og er þar I engu vikið frá þvi sem nú gildir hvað þetta atriði varðar. í ann- arri grein er kveðiö á um skipun nefndar sem leita skal tillagna frá, áður en stafsetningarreglum er breytt. í þessari nefnd skulu sitja menn með sérþekkingu á Is- lenskri tungu og með reynslu á kennslu móðurmálsins. Einn nefndarmanna skal tilnefndur af deildarráði heimspekideildar Há- skóla íslands og vera úr hópi fastra kennara Háskólans f Is- lenskri málfræði. Einn skal skipaður af islenskri málnefnd úr hópi nefndarmanna sem yfirleitt eru málvisindamenn. Og loks til- nefnir stjórn Félags isl. fræða þriðja nefndarmanninn og skal hann vera úr hópi móðurmáls- kennara á grunnskóla- eða fram- haldsskólastigi. Þegar þetta frumvarp var til umræðu á Alþingi i fyrstu var eins og ég gat um, skipan þessar- ar nefndar nokkuð gagnrýnd og einkum að hún skyldi ekki vera fjölmennari. Ég hef nokkuð hug- leitt þetta atriði en mín niöur- staða varsú aðbreyta ekki þeirri tilhögun sem hér er lagt til að höfð verK. Hvort tveggja er að ég tel skipan þessarar nefndar þannig undirbyggða I frumvarpinu að hún ætti að tryggja nokkura breidd i viðhorfum. Inn I nef ndina koma fulltrúar frá málvisinda- mönnum og svo frá kennurum og þetta tel ég mikilvægt. Einnig hitt, að I lok annarrar greinar siðustu málsgreina er að þvi vikið að ráðuneytið geti leitað umsagn- ar um tillögur nefndarinnar hjá öðrum sérfróðum aðilum um is- lenska tungu og móðurmáls- kennslu eins og þar segir. Ég tel þvi að auðvelt eigi aö verða að koma á framfæri öllum sjönarmiðum i gegnum störf þessarar nefndar. En svo sem af sjálfu leiðir þá er það á valdi Alþingis að hafa hér annan hátt á og breyta ákv. 2. gr. í þriðju grein segir að við fram- kvæmd laga þessara skal þess gætt að stuðlað sé að æskilegri festu i stafsetningu og reglum ekki breytt örar en nauðsynlegt þykir til samræmis við eðlilega málþróun. Hér er lögð áhersla á, að festa sé æskileg i stafsetningu og I greininni sé ætlað að tryggja að þeirra sjónarmið verði gætt við framkvæmd laganna. Hygg ég, eins og áður hefur komið fram, að þetta sé i samræmi við skoðun velflestra Islendinga. Loks er svo i fjórðu grein ákvæöi um það, að áður en settar eru stafsetningarreglur eða gerðar breytingar á þeim, þá skuli afla heimildar Sameinaðs Alþingis til breytinganna i formi þingsályktunar. Með þessu ákvæði er þvi slegið föstu, að þær stafsetningarreglur eða breytingar á starfsetningar- reglum sem menntamálaráðu- neytið hyggst gefa út að fengnum tillögum sérfræðinganna, að þær verði hverju sinni lagðar fyrir Sameinað Alþingi sem fylgiskjal með tillögu til þingsályktunar um heimild til útgáfu. Ég hef þessi orð ekki mikið fleiri en legg á það megináherslu að með þessu frumvarpi er reynt að tryggja æskilega festu i stafsetningunni og að tryggja hvort tveggjaj að sjónarmið sérfræðinga fái að njóta sfn en verði þó ekki gerð gildandi nema Alþingi hafi kynnt sér þau og samþykkt. Ég legg svo til, að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu visað til menntamálanefndar. alþingi Staf setningarreglur enn ræddar á þingi

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.