Tíminn - 20.10.1977, Síða 17

Tíminn - 20.10.1977, Síða 17
mmn Fimmtudagur 20. október 1977 17 | íþróttir Evrópumeistararnir komnir á fulla ferð...: Liverpool skellti Dynamo Dresten //Rauði herinn" frá Liverpool — Evrópumeist- ararnir, hófu vörnina á meistaratitli sínum á Anfield Road í Liverpool í gærkvöldi/ þar sem 39/835 áhorfendur voru saman- komnir. Leikmenn Liver- pool byrjuðu nú í Evrópu- keppninni/ eins og þeir enduðu í Róm sl. keppnis- tímabil — með því að sýna glæsilega knattspyrnu og vinna öruggan sigur (5:1) yfir Dynamo Dresiten frá A-Þýzkalandi. Liverpool-liðið gerði út um leikinn strax í byrjun og var staðan orðin (3:0) fyrir liðið, fyrir leikshlé. AAörk Liverpool skoruðu þeir Hansen, Jimmy Case (2), Phil Neal (vítaspyrna) og Ray Kennedy. AAark A- Þjóðverja skoraði lands- liðsmaðurinn Haefner. Borussia AAönchengladbach vann góðan sigur í Belgrad, þar sem v-þýska liðið glímdi við Rauðu stjörnurnar. „Gladbach" komst yfir (2:0) með mörkum frá Schefer og Heynckes í fyrri hálfleik, en siðan hrellti danski leikmaður- inn Alan Simonsen hina 90 þús. áhorfendur sem sáu leikinn með því að gull- tryggja sigur liðsins í síð- ari hálfleik. Ajax frá Hollandi vann einnig góðan útisigur — 2:1 gegn Levski Spartak í Sofíu í Bulgaríu. Sigur hjá Celtic Celtic rétt marði sigur (2:1) yfir Innsbruck frá Austurríki á Parkhead í Glasgow. 30 þús. áhorfend- ur sáu leikinn og skoruðu þeir Graig og Burns fyrir Celtic. GLENTORAN — mótherjar Valsmanna töp- uðu (0:1) yfir ítalska liðinu Juventus í Belfast, þar sem 30 þús. áhorfendur voru samankomnir. Causio skoraði mark ítalska liðs- ins. ROGER DAVIES — fyrrum leikmaður Derby, kom FC Brugge á bragðið, þegar belgíska liðið vann sigur (2:0) yfir Panathinaikos frá Grikk- landi í Brugge. Hann skor- aði fyrra mark FC Brugge, en síðara markið skoraði belgiski landsliðsmaðurinn Lambert. 30 þús. áhorf- endur sáu leikinn ATLETICO AAADRID og Nantesgerðu jafntefli 1:1 í Nantes í Frakklandi. RAY KENNEDY... átti góöan leik með Liverpool. JUPP HEYNCKES. skotskóna. kominn á ASGEIR SKORAÐII AÞENU... Breytingar á 1. deildar- keppninni í handknattleik: Víkingur mætir FH... — í Laugardals- höllinni í kvöld Þær breytingar hafa veriö gerðar á 1. deildarkeppninni i handknattleik, aö ieikirnir sem áttu upphaflega aö fara fram á laugardaginn i Laugar dalshöllinni, veröa leiknir þar I kvöld kl. 20.00 — þá leika Vik- ingur og FH, og síðan KR og Fram. Leikirnir, sem áttu aö fara fram i kvöld, veröa leikn- ir á laugardaginn — þá leika Armann-ÍR og siöan Vikingur og KR. — þegar Standard Liege tryggði sér þar gott jafntefli (2:2) í UFEA-bikar- keppninni í knattspyrnu Ásgeir Sigurvinsson — knattspyrnukappinn frægi frá Vestmannaeyjum, var heldur betur í sviðsljósinu i Aþenu í gærkvöldi, þar sem hann og félagar hans hjá Standard Liege tryggðu sér jafntefli (2:2) gegn AEK Aþena í UEFA-bikarkeppni Evrópu í knattspyrnu. 22 þús. áhorfendur sáu Ásgeir opna leikinn — með góðu marki, og stuttu síðar bætti félagi hans, Pul, öðru marki við og hafði Standard Liege yfir (2:0) i leikshlé. Grikkirnir náðu að jafna leikinn í síðari hálf leiknum, en það mun ekki duga þeim, því að Standard Liege á að leggja þá léttilega að velli i Belgíu. ASGEIR — hefur skoraö tvö þýöingamikil mörk I Evrópu- keppni. KEN McNAUGHT... skoraöi bæöi mörk Aston Villa. KEN McNaught var hetja Aston Villa á Villa Park i Birmingham, þar sem Aston Villa vannsigur (2:0) yfir pólska liöinu Gornik Zabrze. 34.138 áhorfendur ááu þennan fyrrum leikmann Everton, skora bæöi mörk Birmingham-liðsins. IPSWICHréttmaröi sigur (1:0) yfir Union Las Palmas frá Spáni, þegar liðin mættust á Portman Road i Ipswich. Gates skoraði sigurmark Ipswich i fyrri hálf- leik. 22.249 áhorfendur sáu leik- inn. NEWCASTLE tapaði (1:2) i Frakklandi, þar sem liðið lék gegn Bastia. Cannell skoraði mark Newcastle i fyrri hálfleik. Mikill áhugi fyrir HM-keppninni í handknattleik í Danmörku: UPPSELT Á LEIK ÍSLANDS rvp DTTOOT /v -l^T-p^Qi — og nokkrir miðar eftir á JLli (J jLJ leik Islendinga gegn Dönum Mikill áhugi er I Danmörku fyrir HM-keppninni I hand- knattleik, sem hefst I Danmörku 26. janúar 1978. í gærkvöldi seldust upp miðarnir á úrslita- leik keppninnar, sem á aö fara fram i Brumby-höllinni i Kaup- mannahöfn, en höliin tekur um 7000 áhorfendur. Aögöngumiö- inn á úrslitaleikinn kostaöi um 4.400 islenzkar krónur. Miöasalan hófst sl. mánudag hjá DSB — dönsku rikisjárn- brautunum viö Freiöriksborg- götu I Kaupmannahöfn kl. 11. Strax um morguninn kl. 9 voru farnar að myndast biöraöir af fólki, sem hugöist tryggja sér miða, og voru nokkrir tslend- ingar i þeim rööum. tslenzka landsliðiö, leikur i riöli meö Dön.um, Rússum og Spánverj- um — þeir leikir fara fram á Jótlandi. Þaö er mikill áhugi i Kaupmannahöfn fyrir þessum riðli — hjá Dönum og íslending- um, enda leika þjóðirnar i hon- um. íslenzkir námsmenn i Kaupmannahöfn hafa ákveöiö aö efna til hópferöar til Jót- lands. Þaö sýnir bezt hvaö áhuginn i Danmörku er mikill fyrir keppninni, að uppselt er nú á fjóra af úrslitaleikjunum. Tim- inn fékk þær upplýsingar hjá DSB, aö danska handknattleiks- sambandiö heföi veriö búið aö selja iþróttafélögum á þeim stööum, sem leikirnir fara fram — alla miðana á leikina, áöur en DSB hefði veriö beðið aö annast sölu aðsöngumiöa á HM-keppn- ina. Danir hafa reynt aö koma i veg fyrir svartamarkaösbrask meö miöa á sjálfan úrslitaleik- inn — þannig átti hver maður aðeins kost á aö kaupa fjóra miða á leikinn. Þess má geta aö nú þegar er uppselt á leik tslands og Rúss- lands, og leik Danmerkur og Spánar, sem fara fram sama keppnisdag. Nokkur sæti voru laus i gær I tveimur af neöri þremur veröflokkum i sæti á leik tslands — Danmörku, sem fer fram i Randers 28. janúar, auk þess voru nokkrir miöar i stæði óseldir. Aftur á móti var nóg af miðum til á leik tslend- inga og Spánverja, sem fer fram i Thisted 29. janúar. Þess má geta aö Útsýn og Úr- val hafa tryggt sér miöa á aíl- marga leiki i HM-keppninni, en nú þegar er uppselt i feröina hjá Útsýn. en Frakkarnir svöruðu með tveimur mörkum frá Papi i siðari hálfleik. A-Þýski landsliðsmaðurinn Jurgen Sparwasser var hetja Magdeburg, þegar liðið lagði v- þýzka liðið Schalke 04 að velli — 4:2 i Magdeburg. Hann opnaði leikinn, en siðan skoraði hann sitt þriðja mark — „Hat-trick”, þegar 27 min. voru til leiksloka. START frá Kristiansand — mótherjar Fram, unnu sætan sigur (1:0) yfir v-þýzka liðinu Braunsehweig i Noregi. Haugen skoraði mark Start-liðsins. Einstracht Frankfurt vann góðan útisigur (3:0) yfir FC Zurich frá Austurriki i Zurich. Hoelzenbein og Wenzel (2) skor- uðu mörk v-þýzka liðsins. BAYER MUNCKENvann örugg- an sigur (3:0) yfir Marek Stanke Dimitrov frá Bulgariu i Muncher,. GerdMuller og Rummenigge (2) skoruðu mörk liðsins. BARCELONA náði jáfntefli (1:1) gegn AZ ’ 67 frá Hollandi i Alkmaar. Hollendingurinn Nees- kens skoraði jöfnunarmark spánska liðsins.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.