Tíminn - 26.10.1977, Side 4

Tíminn - 26.10.1977, Side 4
4 Miðvikudagur 26. október 1977 Strandaglópar í Grindavíkur- höfn utan ínótt F.I. Reykjavik — Háhyrning- arnir fjórir, sem urðu stranda- glópar í Grindavikurhöfn i nýaf- stöðnu verkfalli voru sendir ut- an i nótt. Voru þeir fiuttir með flugvél frá tscargo til fyrri ákvörðunarstaðar, sem er I Hol- landi, en lokastaður verður i Kaliforniu. Dýrin voru fiutt flugleiðina I kössum, kældum með is og fóðruðum með geysi- lega þykkum svampi. Tekur flugferðin um 5 klukkustundir. Aösögn Jóns Kr. Gunnarsson- ar, forstjóra Sædýrasafnsins, sem seldi gripina, er mikilli byrði aflétt, þegar dýrin verða komin utan. — Það hefur reyndar farið ágætlega um þau i Grindarvik- urhöfn, nóg til af æti og sjór hreinn, en litið er hægt að vita um, hvernig dýrin lukkast fyrr en komið er i heimahöfn, sagði hann. Það var Guðrún GK með Jón Gislason skipstjóra i farar- broddi, sem veiddi upphaflega i net sin undan ströndum Horna- fjarðar,sex háhyrninga á fimm vikum. Tveir komust til út- landa, áður en verkfallið skall á. Sædýrasafnið hefur nú ekki leyfi fyrir fleiri háhyrningum, en að Iiáhyrningarnir I Grindavíkurhöfn. Þeir fóru út með tscargo-flug- vél til Iiollands i nótt. Timamynd: Gunnar sögn Jóns er góður hagnaður af hann Sædýrasafninu mikil lyfti- sölu þessara sex dýra og verður stöng. Gjöf til Kópavogshælis Laugardaginn 22. okt. 1977 fór fram athöfn i félagsheimil- inu iKópavogiþar sem afhent var minningargjöf til Minn- ingarsjóðs Vals kr. 20.000 — frá Lions-klúbbnum Muninn i Kópavogi. til minningar um Hermann Hermannsson, fyrr- um knattspyrnumann i Val og islenzka landsliöinu. Viðstaddir athöfnina voru ekkja Hermanns, Unnur Jóns- dóttir, Albert Guðmundsson, samherji Hermanns i fjölda ára i Val, Gunnar Gunnarsson og Guðmundur Frimannsson úr aðalstjórn Vals. Frá Lions- klúbbnum voru viðstaddir Ur stjórn klúbbsins, þeir Þór Erl- ing Jónsson formaður, Sturla Snorrason gjaldkeri, Hörður Sigurjónsson og Stefdn Tryggvason sem afhenti gjöf- ina. Hermann heitinn Her- mannsson var mjög virkur meðlimur I Lions-klúbbnum Muninn I Kópavogi og starfaöi þar allt til dauðadags, og gengdi þar ýmsum trúnaðar- störfum. Handprj ónar- ar stofna samtök Það er hugur i prjónafólki um þessar mundir og hyggst þaö nú stof na með sér samtök til að sam- ræma betur kjör sin, en eins og allir vita hafa þau mál öll verið á- kaflega laus i reipum um árabil. Akveðiö hefur veriö, að stofn- fundursamtaka prjónafólks verði haldinn laugardaginn 5. nóvem- bern.k.kl. 2i Glæsibæ. Þar verð- ur lögð fram reglugerð samtak- anna og ýmis mál reifuö. Rætt verður um bætt kjör þess fólks, sem eingöngu prjónar úr lopa, og um dreifingarstöð, sem starfi á vegum prjónafólks. Þá verður lögð fram gjaldskrá sem vonast er til að fáist samþykkt af verð- lagsstjóra. Fólk er hvatt til að fjölmenn á fundinn Bók kvikmyndaleikkonunnar Liv UlLmann Umbreytingin komin út Mest umtalaða bók 1 vestrænum heimi. Metsölubók í þremur heimsálfum. Liv vill sýna manneskjuna án grímu. HELGAFELLSBÓK /

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.