Tíminn - 26.10.1977, Side 8
8
Miðvikudagur 26. október 1977
U tanríkisráðherra:
Aðild Islands að
alþj óðasamningi
um ræðissamband
— sjálfsagt að viðurkenna starf og
réttarstöðu ræðismanna
SsraH
alþingi
Mánudaginn s.l. mælti Einar
Ágústsson utanrikisráðherra fyr-
ir frumvarpi til laga um aðild Is-
lands að alþjóöasamningi um
ræðissamband. t frumvarpinu
felst að rikisstjórninni sé heimilt
fyrir tslands hönd aö gerast aðili
,,að alþjóðasamningi um ræðis-
samband sem gerðurvar i Vlnar-
borg 24. april 1963 og prentaður er
sem fylgiskjal með lögum þess-
um, svo og að viðbótarbókunum
varðandi rikisborgararétt og
skyldubundna lausn deilumála.
Akvæöi samningsins skulu hafa
lagagildi á Islandi.
2. gr.
Ráðherra getur sett nánari
reglur um framkvæmd laga þess-
ara.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Um leið fellur úr gildi konungsúr-
skurður um réttindi ræðismanna
annarra rikja frá 25. april 1821 og
konungsúrskurður um réttindi út-
lendra ræðismanna frá 5. ágúst
1834”.
Einar Agústsson
1 ræðu sinni sagöi utanrlkisráö-
herra m.a.’ „Hér er lagt fyrir Al-
þingi frumvarp til laga um aðild
Islands að alþjóðasamningi um
ræöissamband. Málið á þann að-
draganda, aö árið 1963 var af
hálfu Sameinuðu þjóðanna boðað
til ráöstefnu i Vinarborg til að
ræða samningsgerð um ræðis-
samband, en drög að sllkum
alþjóöasamningi höfðu þá verið
gerð af þjóðarréttarnefndinni.
Þessari ráðstefnu lauk I aprll 1963
og var þá undirskrifaöur samn-
ingur um ræðissamband, svo-
nefndur Vínarsamningur sem tók
gildi 1967. Með lögum frá 1971 var
rikisstj. heimilað aö gerast aðili
fyrir Islands hönd að Vlnarsamn-
ingnum um stjórnmálasamband
frá 1961 og gekk sá samningur i
gildi gagnvart íslandi hinn 17.
júnl 1971. Ráðgert var, að Island
gerðist fljótlega einnig aðili að
Vinarsamningnum um ræðissam-
band frá 1963, en staðið hefur á is-
lenzkri þýðingu samningstextans
þar til nú, eins og I aths. segir.
Þar eru enn fremur talin upp þau
riki, 84 talsins, sem 20. april s.l.
höfðu gerst aöilar aö þessum
samningi, en þess jafnframt get-
ið, að ýmis önnur riki hafa undir-
ritað samninginn, en enn þá ekki
fullgilt.
Það er ræðismönnum Islands I
hag, að Island gerist aðili að
Vinarsamningnum um ræðissam-
band. Samningurinn hefur að
geyma skrásetningu á gildandi
reglum þjóðaréttarins varðandi
ræðismenn, svo sem um störf
þeirra, réttindi og skyldur og um
stofnun, meðferö og slit ræðis-
sambands. Með hliðsjón af þvl að
langflestir ræöiserindrekar Is-
lands erlendis eru kjörræðis-
erindrekar, þ.e.a.s. ólaunaðir
ræðismenn, er ráðgert að gefa
svohljóðandi yfirlýsingu, þegar
Island gerist aðili að Vinarsamn-
ingnum um ræöissamband:
„Með skirskotun til 22. gr.
samningsins lætur rikisstjórn Is-
lands I ljós þá ósk, að I löndum
þar sem venja hefur verið að
leyfa rlkisborgurum viðtökurikis-
ins eða þriðja rlkis að taka við
skipun sem kjörræöiserindrekar
fyrir Island, verði þeirri venju
haldið áfram. Islenska rlkis-
stjórnin lætur einnig i ljós þá von,
að önnur rlki, sem taka upp ræð-
issamband við Island muni fylgja
sömu venju og veita samþykki til
skipunar kjörræðiserindreka I
samræmi við 2. og 3. mgr. 22. gr.
samningsins”.
Eins og hæstvirtum alþingis-
mönnum er kunnugt, þá fór fram
á s.l. sumri i ágústmánuði ráö-
stefna ræðismanna tslands er-
lendis. Það varönnurráðstefnan I
röðinni. Hina fyrri hafði fyrrver-
Framhald á bls. 15
Með þessari tillögu er lögð
áhersla á að á þessu stigi málsins
samþykki Alþingi viljayfirlýs-
ingu þess efnis, að kjósendum
veröi gert auöveldara en nú er að
velja milli frambjóðenda á þeim
lista sem þeir kjósa.”
Á eftir Ragnari tók til máls
Benedikt Gröndal (A) og benti á
að viða og ekki aöeins á tslandi
fari nú {ram umræður um hvern-
ig megi ná þeim markmiðum að
gera kosningar hvorutveggja lýð-
ræðislegri og persónubundnari.
Hinsvegar kvaöst hann vera
þeirrar skoðunar aö varðveita
ætti kosti hlutfallskosninganna
um leið og þess væri freistaö að
ná fram ofangreindum markmið-
um.
Magnús T. Ólafsson (Sfv)lagði
áherzlu á að nauösynlegustu
breytingar á kosningafyrirkomu-
laginu yrðu gerðar fyrir næstu
kosningar. Sagðist hann ekki sjá
nein tormerki á að svo gæti orðið
væri viljinn fyrir hendi. Þá kvað
hann það vera álit sitt aö fram-
gangur þessa máls varðaði álit
Alþingis.
Jón Skafta-
son (F)
kvaðst fagna
þeim umræð-
um sem nú
hefðu orðið I
sölum Alþing-
is og hversu
málefnalegar
þæ r v æ ru.
Hann tók und-
ir orð Magnúsar T. Ólafssonar, að
afar mikilvægt væri aö á þessu
þingi yrði fram kornið þeim laga-
breytingum til réttlátara kosn-
ingaskipulags sem unnt. væri að
koma fram með einföldum laga-
setningum.
Þá lýstihann yfir þvl aö sjálfur
hefði hann flutt lagafrumvarp um
breytingar á kosningalögum
vegna þess að hann óttaðist um
afdrif málsins.yrði skipuð önnur
nefnd til aö fjalla þar um. Taldi
hann það ekki réttu leiðina til að
ná fram úrbótum fyrir næstu
kosningar.
I lagafrumvarpi slnu, sagði
hann, væri gert ráö fyrir aö kjör-
listar yrðu settir upp I stafrófsröð
og kjósanda væri falið að setja
númer við frambjóðendur eftir
eigin höfði. Bollaleggingar Ragn-
ars Arnalds um hversu mörg
númer kjósandi þyrfti að merkja
inn sagði Jón að væru út I hött.
Hann hefði haldiö þessu opnu i
frumvarpinu végna þess að hann
teldi það geta staðist þannig 1
framkvæmd og við talningu væri
hægt á einfaldan, rökréttan og
réttlátan máta að raða frambjóð-
endum eftir atkvæðismagni enda
þótt ekki nærri allir merktu við
nema fáa þingmenn.
Þá sagði Jón Skaftason að um
þetta sem annað I frumvarpinu
væri hægt að fjalla betur og rann-
saka þegar málið verður tekið
fyrir á þingi og i nefnd.
Aðrir sem i umræðunum tóku
þátt voru Gylfi Þ. Glslason (A),
Ellert B. Schram (S), Sigurlaug
Bjarnadóttir (A) og Svava
Jakobsdóttir (Abl).
Breytingum á kosninga-
lögum verði fram
komið fyrir kosningar
Nokkrar umræður urðu I gær I
sameinuðu Alþingium breytingar
á kosningalögum en Ragnar Arn-
alds (Abl) mælti þá fyrir þings-
ályktunartillögu um þau mál sem
hann flytur ásamt fjórum öðrum
þingmönnum Alþýðubandalags-
ins. I ályktuninni segir:
„Alþingi ályktar aðkjósa fimm
manna nefnd, er skipuð sé einum
fulltrúa frá hverjum þingflokki,
til að semja frumvarp til laga um
breytingu á lögum nr. 52 1959, um
kosningar til Alþingis, er miði að
þvl að gera kjósendum auðveld-
ara en nú er að velja milli fram-
bjóðenda á þeim lista sem þeir
kjósa.”
1 greinargerð með tillögunni og
efnislega samhljóða þeirri ræöu
sem Ragnar Arnalds flutti I gær,
segir m.a.:
,,Sú skoðun
hefur átt vax-
andi fylgi að
fana.að réttur
kjósenda til að
hafa áhrif á
röð frambjóö-
enda þess
lista, sem þeir
kjósa.sé alltof „ ...
takmarkaður. Ragnar Arnalds
Hefur þetta m.a. leitt til
þess, að prófkosningar eða skoö-
anakannanir til undirbúnings
framboðslista hafa orðið tlðari og
verið reyndar I ýmsum myndum.
Þvl er þó ekki að leyna, að próf-
kosningar eru á ýmsan hátt gall-
aðar, enda almennt óæskilegt I
stjórnmálum að kosningar snúist
fyrst og fremst um persónulega
verðleika einstaklinga. Með
þessu er þó alls ekki sagt að hæfi-
leikar og dugnaður einstakra
manna skipti litlu við skipan
framboöslista, en gæfulegra er aö
pólitiskar kosningar snúist fyrst
og fremst um málefni, en ekki
eingöngu um menn.
Eðlilegast virðist að á kjördegi
geti kjósandinn valið milli flokka
á málefnalegum grundvelli og
samtlmis átt þess kost að velja
milli frambjóðenda flokksins.
Þess háttar fyrirkomulag tiðkast
I mismunandi myndum i öðrum
löndum og koma ýmsir möguleik-
ar til greina.”
Þá ræddi Ragnar um ýmsar
fyrirmyndir i öörum löndum og
hugsanlegar leiðir til að ná ofan-
greindum markmiðum og sagði
slðan: „Flutningsmenn þessarar
tillögu hafa enn ekki tekið afstöðu
til þess, hvaða leiö yröi heppileg-
ust I þessum efnum, enda eðlileg-
ast að væntanleg þingnefnd kanni
fyrst nánari framkvæmd máls-
ins. Hins vegarerþað aðalatriöið,
að sú leið, sem valin er, sé sann-
gjörn og jafnframt veröi kosn-
ingaaðferðin einföld og auðskilin.
Jón Skaftason
Skóli fyrir þroskahefta
að Staðarfelli í Dölum
— fjármunum varið til sérkennslu skila sér aftur, sagði
Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra i svari
við fyrirspurn frá Jónasi Arnasyn
Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaraðherra svaraði I
gær fyrirspurn frá Jónasi Arna-
syni um hver starfsemi væri
fyrirhuguö I húsakynnum Hús-
mæðraskólans að Staðarfelli. t
svari ráðherra kom fram, að
nokkrir fyrrum húsmæðraskólar
landsins væru nú fullnýttir til
námskeiðahalds I heimilisfræð-
um, en að Laugalandi I Eyjafirði
og Staðarfelli I Dölum hafi
kennsla fallið niður, I bili a.m.k.
Siðan lýsti menntamálaráð-
herra þvf yfir, að menntamála-
ráðuneytiö hafi I hyggju, i fullu
samráði viö heimaaðila, að koma
áfót sérkennslu fyrir þroskahefta
að Staðarfelli. „Ætlunin var”,
sagði ráðherra, ,,að hefja sllka
starfsemi þegar I haust. Var gerö
starfs-og kostnaðaráætlun og sótt
um aukafjárveitingu I þessu
skyni. En fjármálaráðuneytið
taldi eigi unnt, þar sem hér var
um verulegar fjárhæðir að ræða,
aö verða við þeirri beiöni utan
fjárlaga. Fjárveiting til þessarar
fyrirhuguðu starfsemi er heldur
ekki tekinupp I fjárlagafrumvarp
fyrir 1978, en erindiö um þaö ligg-
ur fyrir og verður tekið til með-
ferðar I Fjárveitinganefnd og á
Alþingi.
Ég geri mér vonir um það, að
Alþingi verði viö beiðni um fjár-
veitingu til þess að hefja á ný
skólahald á Staðarfelli. Þar eru
allmikil og að mörgu leyti ágæt~
húsakynni og virðist fráleitt að
hugsa sér annað en nýta þau á
þann hátt, sem hagkvæmastur
þykir.”
Þá fjallaði menntamálaráð-
herra um nauðsyn sérkennslu
fyrir þroskahefta og gat þess, að
Staðarfellsskólinn yrði ,,að
nokkru leyti I umsjá eða
undir handleiðslu Oskjuhliðar-
skólans I Reykjavlk, sem er aöal-
skólastofnun rlkisins á þessu
sviði.” Þar yrði ekki um dvalar-
heimilieöa geymslustað að ræða,
heldur hæfingarstofnun ogmikil
áherzla yrði lögð á skóla- og
fræðslustarfsemi.
Að lokum sagði Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamálaráö-
herra:
„Það hefur verð menntamála-
ráðuneytinu mikil stuðningur og
I raun og veru hvatning við þessa
áætlanagerð hversu velviljuð
skólanefnd Staðarfellsskóla hefur
verið þessum hugmyndum og
áhugasöm um það, að Staðarfell
gæti á ný tekiö til starfa I þágu
uppeldismálanna, þótt I breyttu
formi væri. Einnig hafa tveir
þingmenn Vestlendinga, þeir As-
geir Bjarnason og Friöjón Þórö-
arson lagt þessu máli lið.
Ný og breytt viðhorf I skóla-
málum, I byggingamalum skól-
anna, skólaskipan og innri gerð,
afleiðing breyttra hátta á ýmsum
sviðum hafa valdið þvl, að verk-
efni einstakra skóla hafa raskazt.
Þaö veröur eitt af mörgum við-
fangsefnum við setningu nýrrar
löggjafar um framhaldsskóle-
stigið, að skipuleggja skólastarfið
i landinuþannig að skólamann-
virki þau, sem fyrir eru verði nýtt
á haganlegan hátt.”
Að lokinni ræðu menntamála-
ráðherra uröu nokkrar umræður
um málið og fyrstu til máls tók
Jónas Árnason (Abl) og þakkað
góð svör ráðherra. Hann lagöi
siðan áherzlu á að fjárveiting
fengist til Staðafellsskóla á þess
um vetri.
Aðrir, sem til máls tóku, voru
Sigurlaug Bjarnadóttir (S) Frið-
jón Þórðarson (S), Oddur Ölafs-
son (S) og loks menntamálaráð-
herra, sem m.a. lýsti yfir þeirri
skoöun sinni aö væri f jármunum
rétt varið til sérkennslu og hæf-
ingarstarfsemi skiluöu þeir sér
bókstarflega aftur og það fjár-
hagslega.
Vilhjálmur Hjálmarsson