Tíminn - 02.11.1977, Blaðsíða 2
2
Miðvikudagur 2. nóvember 1977
erlendar f réttir
Réttarhöld yfir Bhutto:
Kosningar í
Pakistan?
Rawalpindi-Reuter. Hæstiréttur
Pakistans fjallaði I dag um rétt-
mæti þeirrar ákvörðunar herfor-
ingjastjórnarinnar að fangelsa
fyrrverandi forsætisráðherra
landsins, Zulfikar AliBhutto og 10
leiðtoga hans. Rétturinn ákvað að
senda frá sér stutta ályktun um
málið i næstu viku, og lengri
skýrslu varðandi það siðar.
Bhutto var steypt af stóli við
vandarán herforingja f júli
siðastliðinn. Herlög gengu I gildi,
og 17. september var Bhutto
handtekinn aðeins fjórum dögum
eftir að hæstiréttur úrskurðaði að
Bhutto skyldi látinn laus gegn
tryggingu.
Forsætisráðherranum fyrrver-
andi hefur veriö haldið í gæzlu-
varðhaldi á meöan fram fara
réttarhöld þar sem Bhutto er
ákærður fyrir morð i sambandi
við árás, sem gerð var á póli-
tiskan andstæðing hans.
Lögfræðingur Bhuttos hefur
krafizt þess, að sú aðgerð að
koma á herlögum veröi dæmd
ólögleg, en hann hefur jafnframt
hvatt til þess, að yfirmaður her-
Dregið úr
hjálp
til flótta-
manna frá
Palenstinu
Beirut-Reuter. Hjálpar-
sjóðir sameinuðu þjóðanna
hafa neyðzt til að hætta að
útbýta hveiti til átta hundr-
uðþúsund flóttamanna frá
Palestinu vegna mikils
f járskorts, að þvi er tals-
menn samtakanna sögðu í
gær.
Robert Prevot, framkvæmda-
stjóri samtaka á vegum S.Þ. til
hjálpar flóttamönnum frá
Palestinu, sagði að annarri að-
stoð við flóttamenn yrði hætt
nema fé fengist til hjálparstarfs-
ins á næstunni. Prevot sagði, að
hveitiskammturinn til flótta-
manna yrði minnkaður um helm-
ing á timabilinu frá september til
desember, vegna þess að um 12
milljón dollara halli væri á
rekstri samtakanna.
Flóttamennirnir fá um 10 kiló
af hveiti á mánubi auk hris-
grjóna, sykurs og oliu til eldunar.
„Ef fjárhagurinn verður ekki
kominn i eölilegt horf fyrir árs-
lok, verður að hætta við ýmsar
framkvæmdir, svo sem uppbygg-
ingu skóla” sagöi Prevot.
Flóttamenn sem búa i Libanon,
Sýrlandi, Jórdaniu, vesturbakk-
anum, sem hertekinn er af
ísraelsmönnum og á Gaza-svæð-
inu, eru nú taldir vera um 1,7
milljónir talsins. Um helmingur
þessa fólks nýtur fullrar aðstoðar
fra' S.Þ., en heilsugæzla og
menntun eru meðal þeirra þátta
sem samtökin sjá um.
Heimildir telja, að fjárskortur-
inn stafi af þvi aö oliuframleiðslu-
löndin hafa hætt framlögum sin-
um. Mestu munar að Saudi-
Arabia minnkaði framlag sitt
áriö 1976 úr 10 milljónum dollara i
2 milljónir á þessu ári.
Thomas W. Mcelhiney, yfir-
maður flóttamannahjálparinnar,
sagði að hann hefði gert alls-
herjarþinginu grein fyrir fjár-
hagsörðugleikum i ársskýrslu
samtakanna, og sagt þar að án
frekari framlaga verði að hætta
ýmsri þjónustu og fresta umbót-
um sem gert hafði verið ráö fyrir.
Flóttamánnahjáipin er háð fjár-
framlögum frá stjórnum og
einkaaðilum, en útgjöld hennar
munu nema um 134 milljónum
dollara á þessu ári.
foringjastjórnarinnar
Mohammed Zia-ul Haq efni til al-
mennra kosninga. Lögfræðingur-
inn lagði til að hæstiréttur krefð-
ist kosninga innan sex vikna.
Talsmaöur herforingjastjóm-
arinnar sagði I gær, aö valdaránið
væri ééttlætanlegt vegna þess að
Bhutto heföi brugðizt skyldu sinni
ab koma á löglegum kosn-
ingum I landinu.
Úm 350 manns létu lifið I mót-
mælum gegn kosningasvikum
Bhuttos I marz s.l., og herinn tók
völdin á þeim forsendum að ekk-
ert samkomulag hefði tekizt meö
Bhutto og andstæðingum hans á
þingi.
Zulfikar Ali Bhutto
Felipe prins af Asturias i faftmi
f jölskyidunnar.
Holli 3nzi d audkýf -
ingurinn ófundinn
Amsterdam-Reuter. SérstiSc sveit
50 hollenzkra lögreglumanna
hefur leitaö mjög nákvæmlega 1
allri Amsterdam að vfsbendingu
um hvaft orftift hefur um þýzka
m illjónam æringinn Maurits
Caransa, sem rænt var fyrir
fimm dögum. Talsmaftur lögregl-
unnar sagfti aft ieitarmenn hafi
einskis orftift vfsari.
Enn hefur ekkert svar fengizt
við beiðni, sem kom fra" fjölskyldu
Caransa til ræningjanna um að
láta frá sér heyra. „Við förum
eftir ráðleggingum sem okkur
berast” sagði talsmaður lögregl-
unnar, en ekkert hefur enn frétzt
frá ræningjunum sjálfum.
Rauður Fiat, sem sagt er aðhafi
verið notaður viö ránið siðastlið-
inn föstudag, fannst I gær, en lög-
reglan telur aö hann hafi ekki
verið notaöur i þessu sambandi.
Ekki er kunnugt úm tilganginn
með ráninu, en talið er að það sé
framið af glæpamönnum án
nokkurs pólitisks tilgangs.
Oeirðir í Jóhannesarborg
Jóhannesarborg-Reuter. Nem-
endur, sem gangast eiga undir
próf I Soweto, grýttu I dag aftra
blökkumenn, sem reyndu aft
varna þvi aft þeir kæmust inn i
skólann, aft þvi er lögreglan I Jór
hannesarborg segir.
Yfirmaður lögregluliðs, sem
Sonur Juans Carlos
krýndur
Covadonga-Reuter. Mikill fjöldi
manna fagnafti nfu ára gömlum
syni Juans Carlos konungs, þegar
hann var útnefndur prins af
Asturias vift mikla viðhöfn i gær.
Athöfnin var haldin I þorpinu
Covadonga i norfturhluta
Asturias. Hún var i alla stafti
fburftarmikil og meftal þátta i
henni var hámessa i fuliri lengd.
Erfingjar spænsku krúnunnar
hafa borið titilinn prins af
Asturias frá þvi á 14. öld. Athöfn-
inni var lýst opinberlega sem
krýningarathöfn, en þvi orðalagi
var breytt á siöustu stundu og
sagt, að hér væri um almennan
virðingarvott aö ræða. Þessi ráð-
stöfun mun hafa veriö gerð með
tilliti til hættu á pólitiskum deil-
um. Vinstrisinnar hafa taliö aö
Felipe prins gæti ekki orðið
erfingi spænsku krúnunnar fyrr
en þingib hefði lokiö umræðu um
framtiðarstjórnskipulag á Spáni.
Þrátt fyrir að vinstrimenn séu
ekki ákafir andstæðingar kon-
ungsins og erfingja hans, var þaö
talin móðgun við þingiö að halda
krýningarathöfn á þessu stigi
mála á Spáni.
Alþýða manna i Asturias virtist
ekki skeyta um pólitiskar deilur,
entók hjartanlega á mötkonungs-
fjölskyldunni við kirkjuna þar
sem messa var sungin. Prinsinn
kom til kirkju í fylgd fcreldra
sinna og tveggja systra.
Aðalandstöðuflokkar konungs-
veldisins, sósialistar og kommún-
istar hafa lýst þvi yfir að þeir
kjósi lýðveldi fremur en konungs-
veldi, en séu reiðubúnir að sam-
þykkja konungsveldi svo framar-
lega sem lýðræöið er I heiðri haft.
Vinstrisinnar hafa ekki gert til-
raunir til að bréyta stjómkerfinu,
en herinn á vafalaust drýgstan
þátt I þvi. Hernum er ætlað að
vemda einveldið.
sérstaklega fæst við óeirðir, sagði
að 21 blökkumaður hefði verið
handtekinn eftir atburöina i sam-
bandi við prófin i Isaacsonskól-
anum.
Þeldökkir nemendur i Suður-
Afriku koma ekki til kennslu til að
mótmæla þeirri kennslu sem
blökkumenn njóta, og segja að
hún sé lakari en kennsla við skóla
hvitra. Leiðtogar blökkumanna
hafa hvatt nemendur til að mæta
ekki til prófa og taka með þeim
hætti þátt i mótmælunum.
Talsmaður lögreglunnar sagði,
að tveir nemendur hefðu verið
handteknir þegar þeir reyndu að
fá aðra nemendur til að hverfa
frá skóla sem er nærri Pretoriu. 1
sama skóla var hellt niður bensini
til að auðvelda ikveikju.
Flugrán
fordæmd
New York-Reuter. Sérstök nefnd
allsherjarþings Sameinuðu þjóft-
anna, sem fjallar um pólitisk
mál, fordæmdi i gær fhigrán, og
hvatti öll riki heims til að heröa
öryggisgæzlu á flugvöllum og á
flugleiftum. F undarályktunin sem
samþykkt var án atkvæfta-
greiftslu, hvetur öll riki til aft
fylgja þrem alþjóftasáttmáium
sem beinast gegn truflunum á
flugi. Alyktunin fer nú fyrir alls-
herjarþingift til umfjöllunar.
Nefnd 149 þjófta tók flugrán til
umræðu Isi"ðustu viku, eftirað al-
þjóðasamt<8c flugmanna hótuöu
48 stunda verkfalli ef S.Þ. tækju
málið ekki til umræðna þegar i
stað. Aðgerðir flugmanna voru
ákveðnar með tilliti tilflugránsins
Isiðasta mánuöi þegar Boeing 737
þotu Lufthansa var flogið til
Somalíu. Þýzk vfkingasveit
bjargaði farþegum og áhöfn með
áhlaupi, en ræningjarnir höfðu
áður myrt flugstjóra þotunnar.
Tillagan sem samþykkt var i
dag er unnin upp úr texta sem 46
þjóðir lögðu fram, en Austurriki
og önnur Vestur-Evrópulönd
höfðu forystu um framsetningu
þess texta.
Bandarikj amenn hætta þátttöku
i Alþjóða vinnumálastofnuninni
Brussel -Reu+er. Forsvarsmaður stærstu samtaka
verkalýðsfélaga, sem ekki telja sig tengd kommún-
isma, sagði ígærað hann harmaði þá ákvörðun Cart-
ers Bandaríkjaforseta, að Bandaríkjamenn dragi sig
út úr starfsemi Alþjóða vinnumálastofnunarinnar
ILO og kvaðst vona að hann íhugaði afstöðu sína.
Alþjóðlegt bandalag frjálsra
verkalýðsfélaga sem telst hafa
á sínum snærum 55 milljónir
verkamanna viös vegar um
heiip, sagði i tilkynningu i gær,
að ákvörðun Bandaríkjaforseta
myndi „aðeins veikja lýðræðis-
öflin innan Alþjóða vinnumála-
stofnunarinnar.”
Fréttir frá stjórninni i
Washington hermdu að Carter
mundi tilkynna ákvörðun sina
seint i gær eða eftir að verka-
lýðsmenn sendu frá sér tilkynn-
ingu var6o.,idí máliö.
Bandarikjamenn voru meðal
stofnenda Alþjóða vinnumála-
stofnunarinnar, en i samtökun-
um eru 134 þjóðir. Stofnunin
hefur að aöal markmiði að bæta
aðstöðu verkamanna um allan
heim. Tvö ár eru siðan Banda-
rikjamenn tilkynntu fyrstum þá
fyrirætlun slna að draga sig út
úr samtökunum, og þá á þeim
forsendum að samtökin væru
notuð sem grundvöllur til póli-
tiskra deilna.
Samkomulag náðist ekki i
stjórn Carters vegna ákvörðun-
ar um að hætta aðild að Alþjóða
vinnumálastofnuninni. Cyrus
Vance og Zbigniew Brzezinski
voru báðir á móti þessari
ákvörðun, vegna þess að þeir
telja að aðgerðir af þessu tagi
verði til þess aö veikja stöðu
Sameinuðu þjóöanna. Crsögnin
var tilkynnt kl. 3 að staðartima
og tekur gildi á laugardag.