Tíminn - 02.11.1977, Blaðsíða 13

Tíminn - 02.11.1977, Blaðsíða 13
Miövikudagur 2. nóvember 1977 nln Guðlaugsdóttir sér um tímann. 17.50 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 «. A ég aö gæta bróöur míns?”Ingi Karl Jóhannes- son fjallar um samtökin „Amnesty International”. 20.00 Kvöldvaka a. Einsöng- ur: Friöbjörn G. Jónsson syngur islenzk lög Ólafur Vignir Albertsson leikur á píanó. b. Knappstaöaprest- ar Séra Gisli Brynjólfsson flytur fyrsta hluta frásögu- þátta sinna. c. Kvæöalög Jónas Jósteinsson fyrrum yfirkennari kveöur frum- ortar vlsur. d. Mjöll á Dofraf jalli Hallgrlmur Jónasson rithöfundur segir frá.e. Kórsöngur: Dómkór- inn i Reykjavik syngur is- lenzk lög Söngstjóri: Dr. Páll Isólfsson. 21.30 (Jtvarpssagan: „Vlkur- samfélagiö” eftir Guölaug Arason Sverrir Hólmarsson les (20). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Dægradvöl” eftir Benedikt Gröndal Flosi Ólafsson les (25). 22.40 Djassþáttur I umsjá Jóns Múla Ámasonar. 23.25 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Miðvikudagur 2. nóvember 1977 18.00 Simon og krltarmynd- irnar. Breskur mynda- flokkur. Þýðandi Ingi Karl Jóhannesson. Sögumaður Þórhallur Sigurðsson. 18.10 Dádl flytur á mölina. Leikinn, sænskur mynda- flokkur I fjórum þáttum um unglingspilt, sem á heima I sveitaþorpi I Kenya. Hann verður að hætta I skóla og heldur til höfuðborgarinnar, Nairobi, I atvinnuleit. Þýðandi og þulur Hallveig Thorlacius. (Nordvision — Sænska sjónvarpið) 18.40 „Bera bý bagga skop- Htinn”. Fæstir gera sér ljóst, hvilik nytsemdardýr býflugur eru. Til dæmis yrði ávaxtauppskeran rýr, ef engar býflugur væru I heiminum. 1 þessari bresku fræðslumynd er fylgst með býflugum að störfum bæöi utan bús og innan. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. 19.00 On We GoEnskukennsla. 3. þáttur frumsýndur. 19.15 Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Augiýsingar og dagskrá 20.30 Skólahljóms veit Neskaupstaöar. Haraldur Guömundsson stjórnar hljómsveitinni. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 20.40 Húsbændur og hjú (L) Breskur myndaflokkur. Vargur I véum. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 21.30 Uppreisnin I Attica-fang- elsinu (L) Haustiö 1971 varö uppreisn I Attica-fangelsinu I Bandarlkjunum. Fang- arnir mótmæltu aðbúnaðin- um og tóku fangaveröi I glslingu. Meöan á samningaumleitunum stóð, var þjóövarðarliðið kvatt til hjálpar. 1 þessari mynd, sem gerð er sameiginlega af danska sjónvarpinu og BBC, segir blaðamaðurinn Tom Wicker frá, en hann var sáttasemjari I deilu fanga og yfirvalda. Þýöandi Eiður Guðnason. (Nord- vision —Danska sjúvarpið). 22.20 Undir sama þaki. Islenskur framhalds- myndaflokkur I léttum dúr. Endursýndur þriöji þáttur, Hjartagosinn. 22.45 Dagskrárlok. t'BffíÍi 13 David Graham Phillips: SÚSANNA LENOX Jón Helgason ■> að þess háttar átti sér stað. En hvers vegna það átti sér stað— það var henni enn meiri ráðgáta en áður. Nú, þeg- ar henni var Ijóst orðið, að hugmyndir hennar um ást sem andlegtfyrirbæri voru úr jafn lausu lofti gripnar og trúin á jólasveina, gat hún ekki lengur skilið, hvernig á því stóð, að hún var eiginlega til. Meðan hún var að bregða f léttunum fram yfir ennið, sagði hún við Mabel: „Þú — elskar hann?" ,,Ég:" Mabel skellihló. ,,Þú mátt fá hann ef þú vilt". Það fór hrollur um Súsönnu. „Nei, nei", sagði hún. „Hann er sjálfsagt góður — og hann er auðvitað frábær leikari. En ég — ég kæri mig ekki um karlmenn." Mabel hlóaftur — snöggt og beisklega. „Biddu bara", sagði hún. Súsanna hristi höfuðið með ungæðislegu öryggi. „Skiptir það nokkru máli, hvað maður kærir sig um?" sagði Mabel og lét sig einu gilda hvernig hin tók í þetta. „Ég hef flækzt víða, og ég hef ekki fyrirhitt neinn, sem í rauninni kærði sig um annað fólk. Maður kærir sig bara um sjálfan sig. En karlmennirnir þurfa á kvenfólki að halda, og kvenfólkið þarf karlmenn. Það er kölluð ást. Það mætti eins vel kalla matariystina ást. Spurðu Burl- ingham". 14 Tempest var alveg eins og hannátti að sér, er að mat- borðinu kom, og aðrir einnig. Það var ekki snef ill af upp- gerð í framkomu hans. [ vitund þessara fIjótaflækinga var hið óvenjulega aðeins sjálfsagður hlutur og hið óvænta það, sem alltaf hafði mátt búast við. Þeim fannst því allt, sem gerðist, ofur-sjálfsagt og eðlilegt. Súsanna fórvitaskuldað dæmi hinna. Þegar Tempest beindi orð- um sínum til hennar, svaraði hún eins og ekkert hefði í skorizt. Þess vegna vakti atburður sem hefði getað haft leiðindi í för með sér, ef honum hefði verið of mikill gaumur gefinn, minni athygli en fimm stór og þrútin f lugnabit, sem Eshwell hafði fengið um nóttia. Og alveg óafvitandi tileinkaði Súsanna sér þarna eitt mikilvægt atriði í þeirri list að lifa í mánnlegu samfélagi — atriði, sem miklu ræður um örlög manna. Það er eitt af meigin- atriðunum í skynsamlegum sambúðarvenjum að læra að láta það, sem ekki getur orðið að gagni, kyrrt liggja, og einbeita sér að því, sem haganlegt er að gera. Burlingham gerði nú heyrinkunnugt, að þau skyldu leggja frá og láta reka niður til Betlehem. Andmælin dundu á hónum. „Hvað? Var ekki talað um, að við yrð- um hér heila viku?" hrópaði Fjóla. „Og ekki gekk það svo amalega í gærkvöldi". „Fengum við ekki seytján dali?" spurði Eshwell. „Við fáum hvergi meira á einu kvöldi". „Hver er það, sem stjórnar þessum leikflokki?" spurði Burlingham Ijúf mannlega, en þó mynduglega. „Ég þyk- ist vita, hvað ég er að gera". Súsanna hlustaði á. Hún var orðin rjóð í kinnum og niðurlút. Hún vissi, að Burlingham „hætti við að mjólka dropsömustu kúna", eins og Konnemora komst að orði, til þess að forða henni brott úr Sutherland. Og hún hafði orð á þessu við hann, er þau hittust á framþiljunum tvö ein, rétt eftir að báturinn var slopp.inn fyrir nesið neðan við bæinn. „Já", svaraði hann. „En ég geri mér miklar vonir um frammistöðu þína. Ég vil koma þér á framfæri sem fyrst". Hann svipaðist um, sá, að enginn var nálægur, og dró þá samanbrotið eintak af Sutherland-póstinum upp úr vasa sínum. „Svo skaltu líka", sagði hann, „lesa þetta". Súsanna las: „Georg Warham hefur beðið oss að tilkynna, að hann hafi hækkað upp í þúsund dali verðlaun þau, sem hann heitir þeim, er getur sagt honum, hvar fósturdóttir hans, frú Súsanna Ferguson, er niðurkomin. Það er nú mjög óttazt, að þessi heiðvirða fallega kona, sem hvarf frá bæ manns síns að kvöldi brúðkaupdagsins, sjálfsagt í snöggri geðshræringu, hafi svipt sig lífinu. Vér vonum, að svo hafi þó ekki verið". Það hvarf allt í móðu fyrir augum Súsönnu, er hún hafði lesið þessa tilkynningu. Hún varð þess þó vör, að Burlingham horfði á hana. Svo mælti hann: „Eins og ég hef áður sagt þér, þá vil ég ekki neitt vita um þinn feril. En þegar ég las þetta, datt mér í hug, að hitt fólkið gæti haldið, að þarna væri verið að lýsa eftir þér, ef það læsi þetta — og mundi þá kannski vinna eitt- hvert óhappaverk". Hann andvarpaði og brosti háðslega. „Mér flaug það í hug sjálfum. Þús- und dalir eru miklir peningar. Þú þekkir það ekki— ekki enn — hvernig líkurnar til þess að græða pen- inga — sama með hvaða ráðum — geta svipt menn — og konur allri sjálfstjórn, þegar fjármunir eru jafn tor- fengnir og nauðsynlegir og þeir eru í þessari veröld okk- ar. Þú munt sjá það seinna, væna mín, að þeir, sem verða fram úr hófi hneykslaðir, þegar aðrir gera eitt- hvað misjafnt, eru alltaf fólk, sem aldrei hefur verið freistað til þess að gera það sama. Ég veit ekki, hvers vegna ég lét ekki...". Hann yppti öxlum. „Nú veiztu, hvers vegna ég hef ekki komizt áfram í heiminum". Hann brosti glaðlega. „En það getur breytzt. Spilið er ekki nándarnærri búið". Henni varð það Ijóst hve hann hafði í raun og veru fært þunga fórn hennar vegna. Þótt hún bæri f jarskalega lítið skynbragð á peninga, skildi hún samt, að þúsund dalir var ekki neitt smáræði Hún átti ekki nein orð til í eigu sinni. Hún mændi yf ir á smaragð-grænan f Ijótsbakkann, augu hennar fylltust tárum og varirnar titruðu. Hversu mikil mannúð var ekki til í heiminum — hversu mikil mannást og göfgi! „Ég er ekki viss um", sagði hann, „nema þú ættir að fara heim aftur. En það verður þú sjálf að ákveða. Mér sýnist sem þú munir sjálf vita, hvað þú ert að ganga út í". „Það er alveg sama, hvað ég kann að vera að ganga út í", sagði hún. „Mig mun aldrei iðra þess, sem ég hef gert. Ég myndi heldur fyrirfara mér en vera einn ein- asta dag í námunda við þennan mann, sem ég var neydd til að giftast". „Jæja — mig langar nú ekki til þess að deyja", sagði Burlingham glaðlega, „en þó held ég, að ég vildi heldur- eiga undir högg að sækja hjá ormunum en láta geyma mig í einhverju fjandans koti inni í skógi. Maður fær kannski ekki matinn sinn eins reglulega, en maður lifir þó. Já — þetta líf inni í skógi er áreiðanlega eins og vita sig kominn í gröfina — fyrir þá, sem einhver lífsneisti er í". Hann reif Sutherland-póstinn sundur í sex hluta og fleygði þeim út fyrir borðstokkinn. „Þau hin hafa ekki séð blaðið", sagði hann. „Svo að— ungfrú Lorna Sack- ville getur verið róleg". Hann klappaði á öxlina á henni. „Og nú skuldar þú mér eitt þúsund og tvo dali". „Ég skal áreiðanlega borga þá skuld — ef þú getur ,,Ef ég ætti þessa verzlun, mundi. eg leggja þessa deild niður og setja hér upp leikfangadeild.” DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.