Tíminn - 02.11.1977, Page 11
11
2. hluti
Olia: Nýtt pólitiskt
vopn
Þaö leiöþó ekki á löngu þar til
olian tók aö streyma til Banda-
rikjanna á ný, en þá höföu
Saudi-Arabar ferfaldað veröiö
og áttu innan fárra mánaöa
digrustu gjaldeyrissjóöi heims-
ins. Jafnframt voru leiötogar
olluútflutningsrikjanna, OPEC,
á stöðugum fundum og ræddu
hvort gengið hefði veriö nægi-
lega til móts viö kröfu
Araba um aðgeröir gegn Israel.
Jafnframt var kannaö hvort á-
stæöa væri til aö gripa til frek-
ara ollubanns. Ekki var um að
ræöa aö Bandarikin veldu milli
Araba og ísraels. Stórveldið var
háö olíu frá Saudi-Arabiu en
varö jafnframt aö gæta þess aö
setja ekki ofan fyrir augliti al-
heimsins.
Pentagon hefur um áratuga-
skeið talið oliuna frá Saudi
ómetanlegan varasjóð. NU eru
fluttar milljón tunnur oliu dag-
lega frá Saudi til Ameriku eftir
aö oliubanninu var aflétt. En
bandarisku oliufélögin hafa
neyözt til aö flytja burt starf-
semisina frá Persaflóa. Banda-
rikin hafa misst áhrifavald sitt
að mestu I Arabalöndunum. En
þó er annaö atriði, sem vegur
þyngra. Bandarikin eru kjarn-
orkuveldi og þaö kemur aldrei
til greina aö þau sætti sig viö aö
vera hernaöarlega háö oliulind-
um viö tUnfót Sovétmanna.
Bandarikjamenn veröa aö
finna olluna á heimaslóö þó svo
þeir neyðist til aö verja til þess
gifurlegum fjárhæöum. Banda-
rikin geta þó ekki snUið baki við
Miðausturlöndum og svarta-
gulli þeirra. Bandamenn
Ameriku njóta góös af þessum
lindum, jafnt i Evrópu og Jap-
an. Hvort sem olian fæst úr
Mexicoflóa ellegar Austur eöa
Vestur-Evrópu verður olian
aldrei framar jafn ódýr orku-
gjafiogáöur var. Veldi oliunnar
er senn á enda og mannkynið
allt verður aö snúa sér af kappi
aö leit aö nýjum orkulindum.
HGBL
Kissinger utanrlkisráöherra:
Mikiö mæddi á honum þessa
daga og hvorki RUssar,
tsraelsmenn né Nixon forseti
hliföu honum.
SINPÓNÍUHLJÓMSVEIT
ISLANDS
A 2. tónleikum Sinfónluhljóm-
sveitarinnar I haust var efnis-
skráin þannig:
W.A.Mozart: Sinfónla nr. 38 ID-
dúr K. 504.
AntonDvorak: AriaUr óperunni
Rusalka.
C.M.von Weber: Aria úr óper-
unni Der Freischutz
AlbanBerg: Siemen fruheLider
P.I.Tsjækovsky: Capriccio
Italien óp. 45
Karsten Andersen stjómaöi,
Sieglinde Kahman söng. Sin-
fónluhljómsveit tslands tekst
afar sjaldan aö gera Mózart viö-
unanleg skil, enda ekki heiglum
hent. 1 þetta sinn tókst 38. sin-
fónlan sæmilega, og ég er
raunar viss um aö miklu betur
heði tekizt, ef Andersen heföi
nennt aö leggjasig fram eins og
til þarf. Mózart samdi þessa
sinfóniu I árslok 1786, til aö
flytja á tónleikum I Prag I
janúar ’87, en þangað var hann
boöinn i tilefni af dæmafáum
viötökum sem Brúökaup
Ffgarós fékk. t bréfi frá Prag
segir hann: „Kl. 6 ók ég meö
Canal greifa á dansleik sem
kenndurer viö Bretfeld, en þar
safnast saman rjóminn af feg-
uröardlsum Prag. Þar heföir þú
átt að vera, kunningi! Ég get
rétt imyndaö mér þig hlaup-
andi, eöa öllu heldur haltrandi,
á eftir öllum þessum fögru kon-
um, giftum og ógiftum! ,Ég
dansaöi hvorki né daðraði viö
neina þeirra, hiö fyrra vegna
þreytu, hiö siöara vegna meö-
fæddrar feimni. En ég fylgdist
af mikilli gleöi meö öllu þessu
fólki svifandi um hugfangið af
tónlistinni minni Ur Figaró, sem
hefur veriö umskrifuö sem qua-
drillur og valsar. Þvi hér talar
enginn um neitt annaö en
Figaró. Ekkert er spilaö, sungiö
eöa bllstraö nema Figaró. Eng-
in ópera trekkir eins og Fígaró.
Ekkert, ekkert, nema Fígaró.
Sannarlega mikill heiöur fyrir
mig*
Næsta ópera Mózarts var Don
Giovanni K. 527, og margir
þykjast heyra óminn af henni i
38. sinfóníunni.
Meginréttirnir
Sieglinde Kahman fluttist ný-
lega til tslands ásamt manni
sinum Sigurði Björnssyni
óperusöngvara og fram-
kvæmdastjóra Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar. Þau hjón feröuö-
ust meö hljómsveitinni kringum
landiöíhaustogsungu á I3stöö-
Sieglinde Kahman
um, og si'ðar á tónleikum i
Garðabæ, en þetta var „debut”
þessarar söngkonu okkar á
fjölum Háskólabló. Hápunktur
tónleikanna var flutningur
hennar á 7 ljóðum Alban Berg
(1885-1935), bæði tónlistin og
flutningurinn voru meö ágæt-
um. Tónskráin segir aö skáldiö
hafi samiö söngva þessa fyrir
rödd og pianó á árunum 1905-
1908, en slöan umsamiö þá fyrir
hljómsveit og rödd áriö 1928.
tonlist
Þannig njóta þeir sln afar vel.
Sieglinde Kahman er tæplega
nægilega dramatlsk söngkona
til aö gera Der Fruhschutz full
skil, en Weber (1786-1826) er tal-
inn marka upphaf hinnar
rómantisku þýzku óperu meö
þessu verki (1821). Enda segir
tónskráin, aö arian úr Der
Freischutz sem þarna var
sungin væri ein hin fegursta, en
jafnframt hin erfiðasta, i allri
þýzkri óperu.
Þá söng Sieglinde Kahman
ariuna Ur Rúsölku ágætlega, og
mönnum til mikillar gleöi.
Eftirrétturinn
Slöast flutti hljómsveitin sl-
vinsælt verk Tsjækovskýs,
Capricco Italien, sem hefst
með glæstum trompetblæstri,
og síöan fylgir hvert lagiö öðru
skemmtilegra þrungiö suöræn-
um funa og kæti.
30.10 Siguröur Steinþórsson
Kristinn
Björnsson:
Enn
um
lág
laun
á íslandi
Ég þakka Ama Benedikts-
syni, framkvæmdastjóra,
glögga og fróölega grein I Tim-
ann 12. sept. s.l. um vinnumál,
en hún var skrifuð I tilefni af
grein minni nokkru fyrr „Hvers
vegna eru laun lág á Islandi”.
Tilgangur minn meö þeirri
grein var að vekja faglega um-
ræöu um launamál og leita
skýringa á þvi aö laun hér virö-
ast lægri en i grannlöndum.
Þessi mál viröast lltiö rann-
siScuö og eru sjaldan rædd af
raunsæi I fjölmiölum, en mikiö
er um slagorö og fullyrðingar
bæöi frá launþegum og vinnu-
veitendum.
Tvennt sýndist mér hin ágæta
grein Ama leiöa vel I ljós. Hann
skýrir þaö, aö launakostnaöur
er mun meiri en greidd laun og
gerir töluverðan samanburð á
vinnuafköstum eöa framleiðni
hér og erlendis.
Ég vil ræða þessi atriöi aöeins
nánar.
Eflaust gera ekki allir sér
ljóst, hvað mörg launatengd
gjöld vinnuveitendur greiða og
þaö eykur launakostnað um-
fram greidd laun til starfs-
mannsins. Þá vakna tvær
spurningar: Væri ekki heppi-
legra, aö launþegi fengi sem
mest greitt sjálfur en yröi svo
aö greiða launaskatt, trygg-
ingagjöld o.fl. sjálfur? Hann
vissi þá, hvaö hann fær og i
hvaö það fer. 1 ööru lagi er ekki
svipaö fyrirkomulag á Norður-
löndum, þannig aö launakostn-
aöur veröi þar lika meiri en út-
borguö laun?
Varöandi vinnuafköst og álag
vil ég taka undir orö Áma og
þekki þau fyrirbæri, er hann
bendir á, þo aö ég hafi ekki séö
þau svo vel og skipulega sett
fram fyrr. Frekari umræöa um
þennan þátt vinnumála væri
æskileg. Má t.d. Ihuga hvort
hærri greiöslur fyrir eftirvinnu
séuekkimjög óæskilegar, þegar
hún rýrir svo afköst. Þaö er
athyglisvert, að hann áætlar af-
kösthér „ekki langt umfram 2/3
af norskum meðalafköstum”.
Flest fólk, sem ég veit deili á
hérlendis, vinnur um þriðjungi
lengri tima en umsamda dag-
vinnu, jafnvel helmingi lengri,
ef þeir eru aö „byggja”. Þessi
vinnutlmi hlýtur aö valda of-
þreytu og draga úr eölilegum
áhuga og árangri hjá flestum.
Þaö væri þvi þörf á aö draga úr
eftirvinnu, en leggja áherzlu á
skipulag og afköst I dagvinnu.
Ég vil svo endurtaka hvatn-
ingu mlna um aö vinnu- og
launamál yröu tekin fastari tök-
um, áfram veröi haldiö aö
kanna, hvort launþegar hér geti
ekki búiö viö sömu kjör og ná-
grannar okkar og almenningi þá
gert ljóst hvernig á þessu
standi, ef þaö tekst ekki. Ég
veit, aö hér koma mörg sviö
þjóölifsins og hagkerfis til
greina. Ég vildi óska aö viö
fengjum fáein erindi og viö-
ræöuþætti I útvarpi og sjónvarpi
um þessi mál, þar sem fram
kæmu rekstrarhagfræðingar og
aðrir fagmenn, er kannaö hafa
þessi mál og gætu skýrt fyrir al-
menningi hver aðstaða okkar
er. Þetta er ekki verra eða ó-
nauðsynlegra efni en margt af
þvi sem við nú fáum aö heyra I
fjölmiðlum.
Loks vil ég þakka Halldóri
Kristjánssyni fyrir stutta at-
hugasemd iTimanum 14. ág. s.l.
I tilefni af grein minni, þar sem
hann nefnir óheilllavænleg áhrif
veröbólgu og hárra vaxta, er
valdi fyrirtækjum erfiöleikum.
Þetta er mér ljóst og vil taka
undir, þó aö ég nefni það ekki.
Aöur hef ég skrifaö um verö-
bólgu. Þaö er stjórnunaratriöi
aö stööva hana. Ef þaö tekst
ekki, má meö verötryggingu
lána og sparifjár koma 1 veg
fyrir áhrif hennar á eignar-
myndun og tekjuskiptingu. Þaö
mundi a.m.k. hindra mesta
óréttlætiö, sem veröbólga veld-
ur. Því miöur er allt of lltill vilji
fyrir hendi hjá valdhöfum og
forráöamönnum bankamála til
aö halda verölagi stööugu og
tryggja varanlegt gildi gjald-
miöils. Þetta er þó eitthvert
mesta réttlætismál I þjóöfélagi
okkar eins og sakir standa, þvi
að slfelld veröbólga og gengis-
sig rýrir stöðugt hlut launþega,
en færir þeim fyrirhafnarlitiö
eignir, sem skuldum geta safn-
aö.
Jógi úr Ananda
Marga á
íslandi
Indverskur jógi úr hinum póli-
tiska armi hreyfingarinnar An-
anda Marga er kominn hingað til
lands, og hefur hann þegar flutt
erindi i Reykjavík. Hann mun
einnig fara til Akureyrar, þar
sem hann flytur erindi á miöviku-
dags- og fimmtudagskvöld aö
Þingholtsstræti 14 og Egilsstaöa,
þar sem hann flytur erindi I
Vegaveitingum aö Hlöðum á
föstudagskvöldið.
Jógi þessi sat fyrir skemmstu i
fangelsi i Indlandi, en var sleppt
nýlega. Kom hann hingað frá Svi-
þjóö, og er i för meö honum Is-
lendingur, sem kynntist honum á
Indlandi.
Hann mun dveljast hér á landi
sjö til tlu daga.
Jóhann Helgason rakarameistari hefur opnað rakarastofu I Glæsibæ. Hann er nýkominn frá Gautaborg,
þar sem hann kynnti sér nýjungar I klippingum, sérstaklega barnaklippingar. Hann hefur á boöstólum
úrval herrasnyrtivara. Stofan er opin alla daga frá 9-6, en til 10 á föstudagskvöldum. Hann tekur á móti
pöntunum I sima á föstudögum frá 6-10. A myndinni er Jóhann Helgason á rakarastofu sinni 1 Giæsibæ.
(Timamynd Róbert.)