Tíminn - 20.11.1977, Síða 5

Tíminn - 20.11.1977, Síða 5
Sunnudagur 20. nóvember 1977 5 HMiMÍil'í lNDSSQGUNNI franska rannsóknarskipiö Pour- quoi pas? fórst úti fyrir Mýrum 16. september 1936, en i höndum snillingsins veröur greinin óbrotgjarn minnisvarði um hinn erlenda sjómann viö ísland, — hverrar þjóðar sem er og á hvaöa tima sem vera skal. segja hverju bami kunnir, eins og t.d. víg Björns rika Þorleifs- sonar, hirðstjóra Dana á Is- landi, en hann vógu Englend- ingar, eftir aö hann haföi lagt hömlur á verzlun þeirra 1467, og varð þaö manndráp til þess að hleypa af stað „þorskastriö”, hinu þriðja i röðinni, þeirra tiu, sem háö hafa veriö hér viö land. Ábatasöm viðskipti Hvorki eru tök á né heldur ástæöa til, aö leikmaður sé aö telja upp i litilli blaðagrein hin „tiu þorskastriö” sem Islend- ingar hafa háð viö aðrar þjóöir i aldanna rás. En ráölagt skal hverjum manni, sem vill kynna sér þá sögu, að lesa hina ágætu bók próf. Björns Þorsteins- sonar, Tiu þorskastríð, sem oft hefur verið vitnað til hér að framan. Með þvf geta menn afl- að sér haldgóðrar fræðslu um þennan merka þátt íslandssög- unnar, — þátt sem varðar svo mjög alla afkomu þjóðar vorrar i fortlð og nútið. Fyrr.á tið þreyttu menn ekki einungis kapphlaup um þann fisk, sem synti i sjónum, heldur lika eftiraðhann var veiddur og verkaður og orðinn að skreið. Ogenn langarmig að vitna i bók Björns Þorsteinssonar: „Jafnskjótt og kaupmenn voru orðnir landfastir, þustu þeir um nágrenni hafnarinnar með brennimerki á lofti og sett- ust við fiskstaflana og helguðu sérskreiðina með þvi að brenni- merkja hvern fisk. Siðar komu aðrir kaupmenn, stundum úr næstu höfn, og töldu sig eiga fiskinn samkvæmt viðskipta- samningi siðastliðins árs og tóku hann I sina vörslu, ef þeir gátu. En brennimarkið varð ekki þvegið af skreiðinni, og þvi auglýsa kaupmenn i borgum Englands og Þýzkalands eftir islenzkum fiski, sem frá sér hafi verið tekinn og merktur S eða R eða einhverjum öðrum stöfum, litlum eða stórum, og útaf þessu spunnust alls konar bréfaskrift- ir og málaferli”. (TIu þorska- strið, bls. 67). Þessi gallharða samkeppni sannar, svo ekki verður um villzt, að verzlunin viö Island hefur verið meira en litið ábatasöm. ,,Senn þig kallar ísland ljótt” Víbskiptafræðin lýtur sinum eigin lögmálum, og kaupmenn eru og verða kaupmenn, hvar sem þeir eiga heima. En hvern- ig skyldi hafa verið að vera sjó- maður, brezkur, þýzkur eða franskur, og stunda fiskveiðar á Islandsmiðum fyrr á tímum, áður en sú tækni kom til sögunn- ar, sem oss nútimamönnum er kunnust? Gömul skilgreining á mann- fcS2l§£i^: I #■<*■**'* ***** /■ t , ^ tr^ Othello á fullri ferö á eftir varöskipi. Nóbelsskáldið um hinn franska sjómann við tsland, eins og hann hefur verið, kynslóð eftir kynslóð, og segir svo meðal annars: „Venjulega drukknar álit- legur hluti hverrar skipshafnar i strandinu. Margir verða Uti á söndunum eftir að hafa gengið á kjúkunum dægurlangt. En ekki eru þeir fyrr komnir aftur i Bretaniu, eftir aö hafa verið fluttir heim til sin yfir mörg lönd, en þeir eru enn stignir á skipsf jöl og stefna á Islandsmið. t Bretaniu raula fiskimanna- konurnar barnagælu sem hefur þetta viðlag: Sofðu Jón minn, sofðu rótt, senn þig kallar Island ljótt”. Hið ytra tilefni þessarar greinar er sjóslysið, þegar Nýir timar framundan Og enn er farinn vegur. Enn hafa tslendingar háð baráttu um fiskimiðin i kringum land sitt, og farið með sigur af hólmi. „Stóru stökkin”, útfærsla land- helginnar i tólf milur og svo aft- ur i' tvö hundruð milur, hafa blandazt saman við stjórnmála- deilur vorra daga, þar sem jafn- an er margt sagt, sem betur væri ósagt. En hvað sem þvi lið- ur, hljóta allir góðir og réttsýnir menn að fagna unnum sigri, um leið og þeir óska þess, að út- færsla fiskveiðilögsögunnar verði okkur sjálfum og niðjum okkar til aukinnar hagsældar, og fiskistofnunum við landið sú vernd, sem dómbærustu mönn- um ber saman um að þeim sé nauðsynleg. A liðnum áratugum og öldum hefur gengið á ýmsu i samskipt- um tslendinga og þeirra manna útlendra er sóttu lifsbjörg sina hingað norður I höf. Nú er sú öld vonandi upp runnin, þegar „lif- beltið i kringum landið” verður tilafnotafyrirtslendinga sjálfa, og þá eina. —VS. (Heimildir: Björn Þorsteins- son: Tiu þorskastrið, Rvik 1976. Halldór Laxness: Vettvangur dagsins, ritgerðir, Rvik 1942). Dráttarbátarnir léku stórt hlut- verk i hinum gráa leik. Hér sézt brezki dráttarbáturinn Irishman frá Hull við sina þokkalegu iðju. fólkinu er á þá leið, að til séu þrjár tegundiraf mönnum: Þeir sem eru lifandi, þeir sem eru dauðir, og þeir sem stunda sjó. Varla hefur sá verið hrifinn af sjómennsku er svo mælti, en hvað sem slikum staöhæfingum liður, hlýtur mörgum mannin- um, sem kominn var frá Bret- landseyjum eða meginlandi Evrópu að hafa þótt heldur daufleg vistin, þegar skip hans veltust á öldum Atlantshafsins, en islenzk vetrarnótt var yfir og allt um kring. Þeir, sem þá at- vinnu stunduðu til langframa, hljóta að hafa verið mikið gefnir fyrir sjómennsku, eða að þeir hafa átt fárra kosta völ heima fyrir, nema hvort tveggja hafi verið. Arið 1941 skrifaði Halldór Laxness grein, sem heitir tsland og Frakkland. Þar ræðir Eitt með ósæmilegri uppátækjum Englendinga var, þegar þeir smygiuðu fréttamanni brezka útvarpsins B.B.C. á land austur á fjörðum. Myndin er tekin I fjörunni i Neskaupstað. m cV, bíSabrautin er sú bílabraut, sem hvað mestum vinsældum hefur náð. Meginástæðan er sú að endalaust er hægt að stækka brautina sjálfa og hægt er að kaupa aukahluti til stækkunar og endurnýjunnar. Hægt er að búa til likingar af öllum helztu bílabrautum heims. Um 15 mismundandi gerðir bila er hægt að kaupa staka auk margra skemmtilegra aukahluta. HEILDSOLUBIRGÐIR: INGVAR HELCASON Vonarlandi v/Sogaveg, símar84510og 84510.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.