Tíminn - 20.11.1977, Qupperneq 9

Tíminn - 20.11.1977, Qupperneq 9
Sunnudagur 20. nóvember 1977 9 Hvað verður nýtt að lesa í vetur? Hvað verður nýtt að le Sextán nýjar bækur frá bókaforlagi Odds Björnssonar Ný útgáfa af Þjóðtrú og þjóðsögum, og margt fleira girnilegt Bókaforlag Odds Björnssonar á Akureyri á áttræðisafmæli á þessu ári, og gefur að vanda út margt bóka. Það var árið 1897, sem Oddur Björnsson gaf út fyrstu bók forlagsins, „Þyrna” Þorsteins Erlingssonar. Samkvæmt upplýsingum Geirs S. Björnssonar prent- smiðjustjóra, hafa forráðamenn bókaforlagsins ákveðið að senda frá sér Þjóðsagnasafn Odds Björnssonar, Þjóðtrú og þjóðsagnir, i nýrri útgáfu. Bók- in, sem gefin var út 1908, er löngu uppseld, og hefur, að sögn Geirs, verið mikil og vaxandi eftirspurn eftir henni, einkum hin siðari ár, enda mun hún nú næsta torfengin. Sira Jónas Jónasson á Hrafnagili bjó safnið til prentunar i upphafi og skrif- aði merkan formála um þjóðtrú og þjóðsagnir og menningar- sögulegt gildi þeirra. En löngu eftir að safn þetta var gefið út, fannst i dóti Odds Björnssonar böggull með þjóðsagnahandrit- um, sem ljóst var að var frá hinni fyrstu söfnun hans. Sögu- menn og skrásetjarar voru all- margir, þar á meðal Oddur Björnsson sjálfur. En flestar sögurnar hafa þeir skrásett Benedikt Guðmundsson (1879—1818), kennari frá Hring- veri á Tjörnesi og Theódór Friðriksson rithöfundur (1876—1948), á árunum 1907—1911. Samkvæmt upplýsingum Geirs S. Björnssonar er aug- ljóst, að sira Jónas hefur lesið Guðmundur Þorsteinsson. handritið yfir, leiðrétt stafvillur og vikið orðalagi við eftir þvi sem betur fór. Var þvi ákveðið að taka þesa viðbót með i hina nýju útgáfu, sem Steindór Stein- dórsson frá Hlöðum hefur búið til prentunar. Ung listakona á Akureyri, Þóra Sigurðardóttir, hefur myndskreytt þessa nýju útgáfu, sem er væntanleg á markað i lok nóvembermánað- ar. Bókaforlag Odds Björnssonar gefur annars út sextán bækur á þessu ári, og eru tvær ljóða- bækur þegar komnar út: Málað á gler eftir Guðmund L. Frið- finnsson rithöfund og bónda á Egilsá, en það er fyrsta ljóðabfk hans, og Þankagælur eftir Kat- rinu Jósepsdóttur, sem búsett er á Akureyri. Hún hefur áður sent frá sér íjóðabók. Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi hefur skrásett nýja bók, sem heitir tslenzkar dulsagnir. Hér eru skráðar frásagnir af ýmsum dulrænum atburðum, sem sannanlega hafa átt sér stað, en erfitt er að útskýra með náttúrulögmálum, fyrirbæri einsog framtiðarskyggni, hugs- anaflutningur, berdreymi, hug- boð og huglækningar, svo nokk- uð sé nefnt. Hér kemur Margrét frá öxnafelli viða við sögu, en sem kunnugt er munu ófáir Is- lendingar telja sig standa i þakkarskuld við hana fyrir veitta aðstoð. Um þessa bók far- ast Ævari R. Kvaran svo orð i eftirmála: ,,.... Frásögnin er öll fyrirhafnarlaus og blátt áfram, en svo athyglisverð að efni, að erfitter að leggja bókina frá sér áður en henni er lokið.” Saga hestalækninga á tslandi er mikil og fróðleg bók eftir Kanadamanninn George J. Houser, en Heimspekideild Há- skóla Islands hefur tekið hana gilda sem doktorsrit við háskól- ann, og fer doktorsvörn væntan- lega fram eftir áramót. Hér er meðal annars dreginn fram merkur þáttur i menningarsögu Islands og gerð grein fyrir aðal- ástæðu þess, að sá þáttur er ein- stakur i sinni röð á Norðurlönd- um. Bókin skiptist i 38 kafla, auk heimilda- og nafnaskrár. Andrés Kristjánsson hefur skrásett Kaupfélagsstjóratal með æviskrám á fjórða hundrað manna, sem gegnt hafa starfi kaupfélagsstjóra hér á landi frá árdögum kaupfélaganna og allt til þessa árs. Bókin er i stóru broti og birtist ljósmynd af við- komandi manni með hverri ævi- skrá. Hjónin Jenna og Hreiðar Stef- ánsson hafa notið mikillar hylli yngstu lesendanna og eru hinar svonefndu öddu-bækur ávallt mjög vinsælar. Nú koma á markaðinn þrjár öddu-bækur, sem hafa verið uppseldar. Þær eru Adda, 4. útgáfa, Adda i menntaskóla og Adda trúlofast, og er þetta 3. útgáfa á tveim hinum siðar nefndu. Þá eru all- ar sjö öddubækurnar aftur fá- anlegar. Auk þess kemur út ný barnabók eftir Hreiðar Stefáns- son, og nefnist hún Mamma min er lögga. Ármann Kr. Einarsson sendir einnig frá sér nýja barnabók, og nefnisthún ömmustelpa.Sagan er að mestu leyti byggð á dag- bók höfundarins um timabil á þroskaferli litillar dótturdóttur. Þá kemur út tiunda bindið i rit- safni Ármanns, en það er ungl- ingabókin Flogið yfir flæðar- máli, sem er úr bókaflokknum um Árna og Rúnu i Hraunkoti. Unglingabækur Ragnars Þor- steinssonar um ævintýri tvibur- anna Silju og Sindra, Upp á llf og dauða og Skjótráður skip- stjóri, hlutu einróma lof gagn- Ármann Kr. Einarsson. rýnenda þegar þær komu út, og nú kemur þriðja bókin i þessum flokki eftir Ragnar, og nefnist Flöskuskeytið. Hafdis Norðfjörð, sem hefur vakið athygli fyrir góðan lestur á barnasögum i Rikisútvarpið, sendir nú frá sér sina fyrstu bók, Ævintýri frá annarri stjörnu. Bókin er fagurlega myndskreytt af listakonunni Þóru Sigurðardóttur. Þetta er ævintýri bæði fyrir börn og full- Jenna og Hreiöar Stefánsson. Andrés Kristjánsson. Bandarikjunum undanfarna mánuði. Sagan hefur verið kvikmynduð og er nú sýnd i Bandarikjunum við mikla að- sókn. Þessar tvær siðast nefndu skáldsögur eru báðar þýddar af Hersteini Pálsyni. Auk þessa gefur Bókaforlag Odds Björnssonar út timaritin Týli', ritstjóri Helgi Hallgrims- son, og Heima er bezt, ritstjóri Steindór Steindórsson frá Hlöð- um. orðna, og minnir einna helzt á barnabækur Thorbjörns Egner. Loks er að geta tveggja þýddra skáldsagna. önnur er Spitalaskip eftir Frank G. Slaughter, en það er 55. skáld- saga hans, og sjötta skáldsagan sem Bókaforlag Odds Björns- sonar gefur út eftir þennan við- kunna höfund. Hitt er skáldsagan Fram yfir miðnætti eftir Sidney Shieldon, sem verið hefur metsölubók i EHá ^3 Eg3 ®3 ©3 EÖ EÖ ^ COSY STÓLLINN með háu eða lágu baki SKAMMEL OG HRINGBORÐ I TVEIMUR STÆRÐUM VERÐIÐ: Stóll með háu baki Stóll með lágu baki Skammel Borð80 sm plata Borð 65 sm plata kr. 88.000 kr. 68.000 kr. 36.000 kr. 42.000 kr. 38.000 Stólarnir eru eingöngu framleiddir i leðri og eru til á lager í dökkbrúnu en við getum einnig f ramleitt þá í öðrum litum eftir sérpöntunum. Grindin er úr lituðum aski. j SÍÐUMÚLA 30 - SÍMI: 86822 Esa y

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.