Tíminn - 20.11.1977, Qupperneq 10

Tíminn - 20.11.1977, Qupperneq 10
10 Sunnudagur 20. nóvember 1977 LANVIN PARFUMS Arpegedc Lanvin Ilmvötn og baðvörur Fást hjá: Verzlunin Oculus, Austurstrœti 7, Reykjavík. Snyrtivöruverzlunin Mona Lisa, Laugavegi 19, Reykjavík. Snyrtivöruverzlunin Clara, Bankastrati 8, Reykjavik. Snyrtivörubúðin, Laugavegi 76, Reykjavík. Snyrtivörubúðin Kamilla, Hafnarstrati 16, Reykjavík. Súpuhúsið, I.augavegi 17, Reykjavík. Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirái. Verzlunin Elva, Kirkjuhraut 6, Akranesi. Verzlunin Edda, Hafnargötu 61, Keflavík. Verzlunin Lindin, Eyrari'egi 7, Selfossi. Vörusalan s.f., Hafnarstrati 104, Akureyri. djo David Pitt & Co. “ Laugaveg 15, sími 13333. Starfskrafta vantar nú þegar i snyrti- og pökkunarsal Hrað- frystihúss Fiskvinnslunnar á Bíldudal h.f. Húsnæði og mötuneyti á staðnum Upplýsingar hjá verkstjóra i sima (94)2116 Bæjarútgerð Hafnarfjarðar ATVINNA Bæjarútgerð Hafnarfjarðar vantar starfsfólk tll fiskvinnslu, bæði karla og konur. Fyrirhugað er að unnið verði í ákvæðisvinnu. Hafið samband við verkstjóra. Verkstjóri BERNSKA OG ÆTTJÖRÐ Bernska og ættjörO Tómas Guðmundsson: Heim til þln, tsland. Ljóð. Helgafell. Reykjavik 1977. 128 bls. Þessi bók dregur nafn af upp- hafsoröum þjóöhátiðarljóðs á Þingvöllum 1974: Heim til þfn, Island, ættjörö vorog móðir, vér börn þin einum huga hverfum öll i dag, á meðan niöur ellefu alda fer þungum söng um þögn vors myrka blóös. Af þessum toga er drjilgur hluti kvæöa bókarinnar sem viröastortá þrem áratugum, en siöasta bók Tómasar, Fljótiö helga, kom út 1950. Þar var einnig fjöldi tækifæriskvæöa. Skáldiö er einatt til þess kvatt aö mæla fyrir munn þjóöar sinnar á hátiöisstundum. Hann flytur Danakonungi kvæöi aö hætti hirðskálda, hyllir Eim- skipafélagiö fimmtugt, og kveö- ur um Skúla fógeta þegar af- hjúpaöur er minnisvarði hans. Aö minnsta kosti þrjú lýöveldis- afmælisljóö er einnig aö finna i nýju bókinni. Þá er kvæöi á af- mæli Þjóöleikhússins. Kynleg villa hefur slæðzt inn i fyrir- sögnina: Þaö var ekki flutt á 25 ára afmæli leikhússins 1975, heldur fimm árum áður. Þá sýndi leikhúsiö Mörö Valgarös- son eftir Jóhann Sigurjónsson og er skirskotaö til þess i kvæö- _inu. „Tómas Guömundsson er þjóöskáld vort og ástsælasta skáldiö”, segir Kristján Karls- son á kápu nýju bókarinnar. Af oröalaginu má ráöa aö þetta tvennt þurfi ekki áö fara saman. Um Stsæld Tómasar er ekki aö efast. Hitt kann aö reynast vafasamara á vorri tiö aö sæma nokkurn þjóöskálds- heiti. Oröiö hefur yfir sér rómantiskan blæ og tengist ó- hjákvæmilega þjóöernishyggju eins og þeirri sem greip hugi Is- lendinga i sjálfstæöisbarátt- unni. Eins og nú horfir eru hug- myndir um þjóöerni og sameig- inleg markmiö þjóöar meö öör- um brag en fyrr. Stundum virð- ist manni æriö djúpt á slikri til- finningu: Er ekki „þjóöin” upp- leyst i hagsmunahópa sem streitast viö aö troöa skóinn hver niöur af öörum? Þjóöernis- hyggjan hefur- látiö undan siga aö sama skapi sem trú manna á stfelldar framfarir, ööru nafni hagvöxt, hefur dofnaö. Þessar hugrenningar vlkja um stund þegar viö lesum ættjaröarljóö Tómasar Guö- mundssonar. Andi þeirra og inntak eraö vlsu ættaö frá horf- inni öld. En af málsnilld sinni og smekkvisi tekst skáldinu ab oröa upp á nýtt hin einföldu siöaboð sem slikur kveðskapur erreistur á: tryggö viö ættjörö, menningu og tungu, mannúö og mildi, viröingu fyrir lifinu og auömýkt frammi fyrir guödómi aö baki allrar tilveru. Allt þetta dregur Tómas fram i Þingvallakvæðinu sem til var vitnað i upphafi. Og þessi strengur er sleginn i mörgum fleiri hátiöarljóöum. Þannig er til aö mynda kveöiö á tuttugu ára afmæli lýöveldisins: Þvi, æska mins lands, þaö er aldanna hamingjudraumur, sem á sina ráðningu i dag undirtrúfestiþinni. Ó, opna þú honum þinn barm, þitt brennandi hjarta. Legg bernskunnar niðandi lindir á fulloröiö minni. Þótt viða sé hér fagurlega aö oröi komizt er hinu ekki aö neita aö þessi kvæöi hefðu mátt vera færri I bókinni. 1 slikum kvæö- um koma óhjákvæmlega sömu Tómas Guðmundsson hugmyndir upp aftur og aftur, og þær eru oröaðar meö áþekk- um hætti. Samt er þessi tæki- færiskveðskapur augljóslega af sömu rót runninn og hin „per- sónulegu”kvæbi skáldsins Lifs- skilningur hans er brotalaus. En i ljóðunum sem Tómas yrkir ótiúcvaddur túlkar hann hug sinn með gleggri og nærgengari hætti. Þau mætti auökenna meö nafni eins ljóösins: HausttregL Þau eru borin uppi af kennd sem Kristján Karlsson kallar „sárs- auki gagnvart mætti eyðilegg- ingarinnar i öllu lifi”. Hér er meö öörum oröum lýst þeirri reynslu hversu árin flytja manninn æ nær hinum hinztu dyrum, manninn og þann heim sem hann hrærist í. Ljóöiö sem siöast var nafnt hefst svo: Hve vel ég man þá daga löngu liöna, er lágu allir vegir heim til vorsins og allt var fallegt, fuglar, blómogdýr. Og enn i kvöld, er geng ég gamallmaður aö hitta mig i heimi týndrar bemsku, mig furöar ekki á neinu nema þvl, hve ástúölega allt þar viö mér tekur, rétt eins og foröum — fuglar, blómogdýr. Þessi tilvitnun verður aö duga til marks um hugblæ ljóöanna. En hér mætast I einum farvegi hátiöarljóöin og hin, i teikni þeirra orða sem höfundur hefur valið sem heiti bókarinnar: Landiö, voriö, bernskan, blóm- in, dýrin: allt er þetta hnitaö i eitt: upprunaleg verömæti, sem toga manninn til sin æ fastar er degi hallar. Og þótt aö vonum hafi slaknaö á þeirri skáldlegu spennu sem fyrri ljóö Tómasar lýsa, þekkjum viö þennan tón. Heim tilþin, tslander 1 rökréttu framhaldi af Fljótinu helga, þótt fyrri bókin sé mun veiga- meiri. Og enn iökar Tómas þann paradox, gamansaman og tregafullan i senn, sem hann er löngu frægur fyrir. Svo hefst ljóö sem nefnist Tímaþrot: Hve löturhægt bernskunnar dagar oft gengu hjá garði. Þeir gátu þó séö, að lifiö beiö eftirmér, og máttu vita, að þess vegna þurftiég sem fyrst á allri framtið minniað halda. Af þvi sem aö ofan var sagt má ráða aö þessi nýja bók Tóm- asar Guðmundssonar sé með al- varlegri svip en fyrri ljóð hans. Gamansemi bregður þó fyrir: Or Feröadagbók (frá Bangkok) minnir á feröakvæöin I Stjörnum vorsins. A meðal skáldfugla, kvæöiö um spóann er dálitið I ætt viö Þrjú ljóö um litinn fugl. Ég get ekki stillt mig um að taka upp eitt erindi: Og skálderhannspói og dável af guöi gerður og gæti vist talizt af fjölmörgum öfundsverður. Þvíhann hefur einhvern veginn meö kynlegri kænsku komizthjá þvi aö vera þýddur á sænsku. Kvæðið um spóann er til marks um það sem Kristján Karlsson sýndi fram á i frægari ritgerö sinni um Tómas, aö „gamankvæöi” hans og „alvar- leg” kvæði verða ekki sundur greind af neinni skynsemi. Inn- tak kvæðisins er hinn sami tregi andspænis ofriki timans sem bókin öll tjáir i ýmsum tilbrigö- um. Þessi ljóöabók breytir ekki þeirrimynd sem islenzkir ljóöa- unnendurhafa löngu gert séraf skáldskap Tómasar Guömunds- sonar, og hún varpar aö minum dómi tæpast nýju ljósi á hann. En hún rekur til loka skáldferil sem er merkilegur i ljóölistar- sögunni, og hún minnir á heim og menningu sem er á hvörfum. Slfk ljóö um ættjörðina, i viöum skilningi, veröa sennilega aldrei ort framar á tslandi. Gunnar Stefánsson bókmenntir

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.